Þjóðólfur - 06.08.1909, Qupperneq 2
128
þj oðolfur;
gllmur í tveim flokkum (eptir þyngd).
Verðlaun hlutu þar:
í i. flokki:
1. Sigurjón Pétursson,
2. Hallgrímur Benediktsson,
3. Pétur Gunnlaugsson.
í. 2. flokki;
1. Kristinn Pétursson,
2. Guðbrandur Magnússon,
3. Guðm. Sigurjónsson.
Loks fór fram bændaglíma og
reipt og.
Verðlaunum var útbýtt í tjaldi á tún-
inu um kveldið, sakir óveðurs úti. Þau
voru ekki í gjaldgengum peningum að
vanda, heldur minnispeningar úr silfri
með viðeigandi áletrun.
Að sfðustu var d a n s.
Veður var slæmt um daginn, og var
skemmtunin því minni en ella; en þó
sást það ekki á, er farið var að dansa
þvf óveðrið virtist engin áhrif hafa á þátt-
takendurna, Má víst vera allslæmt veður,
ef engir fást til að fara uþp á danspall-
inn. Þjóðhátíðarnefndin á þakkir skilið
týrir að láta þjóðhátíðarhaldið eigi farast
fyrir, og var allt frá hennar hendi vel og
sköruglega af hendi leyst.
Ræða
dr. Jóns Porkelssonar á þjóðhátíð
Reykyíkinga 2. ágúst 1909.
Það hefur víst aldrei verið mælt svo
eða ort fyrir minni Reykjavíkur hingað
til, að ekki hafi verið minnst á að Ing-
ólfur hafi fyrstur sett hér byggð. Og svo
er enn gert í kvæði því, er syngja skal
hér í dag, eptir eitt af skáldum vorum,
sem er margprentað og margkunnugt.
En f þessu kvæði er jafnframt gefin vin-
samleg leiðbeining um það, að minningar
liðinna alda ættu að gleymast og við
þeim ætti ekki að hreifa. Ekki finn eg
það þó skyldu mína að fylgja forskrift
þessa skálds hér í dag. Eg finn einmitt
ástæðu til þess að minnast í nokkrum aðal-
atriðum á sögu þessa bæjar á fyrri öld-
um, því að það veit eg ekki til, að hafi
verið nokkru sinni gert til neins yfirlits.
Ingólfur Arnarson, þessi mikli faðir
þessa bæjar og þessa lands, var ekki
af neinu úrkasts-fólki. Þeir frændar voru
ættaðir af Þelamörk, og voru miklir fyrir
sér. Bjönólfur afi hans flýði af Þelamörk
fyrir vígasakir og staðfestist í Dalsfirði á
Fjölum í Firðafylki. Langafi Ingólfs varHró-
mundur Gripsson, sem miklar sagnir hafa
gengið um í forneskju. Hrómundi er svo
lýst í rímum þeim fornum, sem G r i p 1 u r
heita :
Óttast hvorki sviða né sár
seggr í randaflugum,
breiðr um herðarTTijartr á hár,
blíðr og snarr í augum.
Siálfur hafði Ingólfur legið í víkingu
áður hann kom hingað til lands. Var hann
enn fyrsta vetur í Ingólfshöfða og annan
í Hjörleifshöfða. »Hann var hinn þriðja
vetur undir Ingólfsfelli, tyrir vestan Ölfusá,
þar sem sumir segja, hann sé heygður.
Þau misseri fundu þeir Vífill og Karli
öndvegissúlur hans við Arnarhvál fyrir
neðan Heiði. — Ingólfur fór um vorið
ofan um Heiði. Hann tók sér bústað þar,
sem öndvegissúlur hans höfðu á land
komið. Hann bjó í Reykjarvlk.
Þar eru enn öndvegissúlur þær
í e 1 d h ú s i«.
Þegar þetta var ritað (Landnáma), þá
voru liðin 4—500 ár frá því, er Ingólfur
reisti hér íyrst bæ, því aðjelztu bækur Land-
námu eru skrifaðar seint á 13. ö!d og
um 1300. Én hvað gamlar ætli elztu
stoðirnar séu í eldhúsunum hérna í Reykja-
vík núna? Hér finnst nú varla hús né
nokkur spýta í húsi eldri en 100 ára.
Ræktin við þær gömlu minningar hefur
verið hér rfk á þessum stað til forna;
hitt er eptir að vita, hvort hún verður
það eins nú og í framtíðinni.
Ingólfur er kallaður frægastur allra
landnámsmanna, því að hann kom hér
að auðu landi og bygði fyrst landið, og
gerðu aðrir landnámsmenn eftir hans
dæraum síðan. Niðjar Ingólfs urðu lengi
tryggir síðan við ættleifð sína. Þeir sátu
ekki einungis yfir hvers manns hlut um
endilangt Kjalarnesþing um margar aldir
og skipuðu fyrstir þing á íslandi áður al-
þingi var sett, heldur voru þeir og hæstr-
ar stéttar um goðorðs-nafnbætur. Alls-
herjargoði var æ af ætt Ingólfs, allt þang-
að til konungsvald komst yfir landið. Og
þá var allsherjargoði á Islandi Þormóður
Þorkelsson, þriðji maður frá Ingólfi, þegar
kristni var lögtekin hér álandiárið 1000.
Það er og eptirtakanlegt, að höfuðbólin
mestu hér í grennd voru langt fram eptir
öldum eign niðja Ingólfs. V i ð e y áttu
niðjar hans, þar til hún var gefin til
klausturs á öndverðri 13. öld. Hof á
Kjalarnesi áttu þeir frændur fram á ofan-
verða 13. öld. Bessastaði áttu þeir
frændur fram á 13. öld, þar til Snorri
Sturluson, sem var ágjarn til lausafjár og
landa, náði eign á þeim. Þ i n g v ö 11
áttu þeir fram á 13. öld. Nes við Sel-
tjörn var eitt af höfuðbólum þeirra frænda,
og þar bjuggu þeir fram á 14. öld. Voru
þeir síðastir er menn þekkja Hafurbjörn
ríki Styrkársson í Nesi, sem lifði enn 1284,
þá Gissur í Nesi, sonur hans, sem and-
aðist 1305, og eftir hann Styrkárr Gissur-
arson í Nesi, sem lézt 1341. Laugar-
nes ogEngey virðast hafa verið eign
þessara ættmanna allar götur fram á 16.
öld. Og Brautarholt að vísu fram
á 15. öld.
Hverir bjuggu í Reykjavík á fyrri
öldum er ekki fullljóst, en þar má ætla
að niðjar Ingólfs hafi lengi ráðið heim-
kynnum. A það bendir ræktin við menj-
ar hans. I máldaga Víkurkirkju frá 1379,
er Oddgeir biskup hefur sett Þorsteinsson,
er svo komist að orði: »Þar skal vera
heimilisprestur, e f b ó n d i v i 11 «. Þar
ráða þá svo rlkir fyrir garði, að biskup-
inn þorir ekki skilyrðislaust að segja, að
þar s k u 1 i vera heimilisprestur. Það er
ekki vilji biskupsins, sem þar hefur kirkju-
valdið. Það er vilji bóndans í
Vík.
I máldaga Vilkins biskups frá 1397 er
tekið svo til orða, að þar skuli vera
graptarkirkja, og hefur því biskup enn
ekki þorað að skipa, að þar skyldi vera
heimilisprestur. Þá hafði um hríð búið í
Reykjavík bóndi sá, er þorlákur hét. Að-
alkirkja var þá í Nesi við Seltjörn, en
kirkjur voru einnig í Engey og Laugar-
nesi.
Á 15. öld fara litlar sögur af Reykja-
vík, og vitum vjer það fyrst af henni á
þeim tímum, að þá eru 20 hndr. úr jörð-
inni orðin eign Munkaþverárklausturs í
Eyjafirði. Ekki vita menn, á hvern hátt
það hefur mátt verða. En þenna hluta
jarðaiinnar selur Einar ábóti Isleifsson
hins beltislausa Árna bónda Höskuldssyni
1478. En dóttir Árna, er Ragna hét, og
gift var Þorvarði syni Steinmóðar ábóta
Bárðarsonar < Viðey, erfði þenna hluta
jarðarinnar eptir föður sinn. 1487 selja
þau Þorvarður og RagnaÓlafi Ásbjarnar-
syni þessi 20 hndr. í jörðinni Vík fyrir hálft
Búland í Skaftártungu. 1505 býr meðal
annars sá bóndi í Reykjavík, er Ólafur
hét Ólafsson, þá er Stefán biskup hafði
þar kirkjuskoðun, og er Ólafur sá að
líkindum einmitt sonur Ólafs Ásbjarnar-
sonar. Hafa þeir frændur átt þenna part
jarðarinnar og búið á honum fram til
1569. Þá kaupir Narfi Ormsson af Þórði
og Jóni Ásbjarnarsonum, Jónssonar, ein-
mitt 20 hndr. í jörðinni Reykjavík. Að
öðru leyti bjó f Reykjavík (án efa á 30
hndr., því öll jörðin var 50 hndr. að
dýrleika) um og eptir miðja 16. öld gild-
ur maður, Ormur Jónsson sýslumaður í
Árnessýslu, er lézt 1566. Það eru rök
fyrir því, að hann hafi haft á sér fyrir-
mannabrag og haldið sig ríkmannlega,
því það er skjalfast, að hann hélt viki-
vaka á jólanótt 1555, og hafði þá í boði
sínu Pál Stígsson, höfuðsmann á Bessa-
stöðum. Eptir Orm bjuggu í Reykjavík
og áttu Reykjavlk niðjar hans, allt þar
til konungur náði eign á jörðinni. Eptir
að konungsvaldið tók að magnast hér f
landi, eru deili til þess, að þeim hafi
leikið sérstaklega augastaður á Reykja-
vík. Því svo segja sagnaritarar, að Laur-
itz Kruus höfuðsmaður hafi með ofríki
og ólögum neytt Narfa Ormsson 1590
til þess að gefa upp eign og ábúð við
konungsvaldið á nokkrum hluta jarðar-
innar. En ekki náði þó konungsvaldið
kaupum á Reykjavlk fyrr en 19. apríl
1616 í makaskiftum af Guðrúnu Magnús-
dóttur ekkju Narfa Ormssonar og son-
um hennar. Og voru þá goldnar fyrir
jörðina í Reykjavík jarðirnar Bakki, Lauga-
vatn í Laugardal og Kiðafell í Kjós.
Ummerki eða landamerki jarðarinnar
Reykjavíkur voru þesssi:
»Milli Víkur og Erfæriseyjar frá Granda-
höfði út í gegnum miðja hólma, frá Gianda-
höfði og fram að Eiðsgarði hinum minna,
þaðan og vestur í grjótgarð fyrir sunnan
Eiðstjörn og ofan þar sem garðurinn
gengur suður í sjó fyrir austan Lamba-
staði, þaðan og austur með sjó allt að
Hangahamri, þar sem varðan stendur,
þaðan sjónhending upp á Hlíðina (Eski-
hlíð) að þúfunni þeirri, er þar stendur.
Þaðan sjónhending í otanverðan Fúla-
tjarnarlæk, og sjónhending þaðan í móts
við Rauðará vestur í síkið fyrir vestan
Rauðarárgrafir. Þar ofan í grófina og
fram í sjó«.
Eptir að konungur var orðinn eigandi
að Reykjavík, þá má sjá, að farið hefur
að magnast kaupstaður sá, sem kallaður
var í Hólmur, sem var í Örfirisey og hólm-
unum í grenndinni. Víst er það, að kaup-
staður er þar og sigling þangað 1627.
Þegar »innréttingarnar« svo nefndar, eða
verksmiðjur komust á hér á landi á 18.
öld, þá lagði konungur 1752 Reykjavfk
til »innréttinganna«. En »innréttingarnar«
liðu undir lok seint á 18. öld, eins og
kunnugt er. Þá var og tekið að brjóta
mjög fyrir sjó kaupstaðarstæðið í Hólmi,
svo að sýnt þótti, að það mundi ekki
geta haldist við verzlun til frambúðar.
Var því lagt land úr Reykjavfkurjörðu
undir nýjan verzlunarstað. Fór útmæling
sú fram árið 1786, og framkvæmdi það
verk Vigfús Þórarinsson, sýslumaður 1
Kjalarnesþingi. Eg hef að vísu ekki fyrir
mér útmælinguna nú sem stendur, en lóð
sú, sem lögð var til verzlunar, var þar
sem nú er kallaður Miðbærinn, frá Lækjar-
mynni upp I I.ækjarbotn, þaðan vestur f
Tjarnarbotn og síðan norður fyrir neðan
Grjóta og niður I Giófina.
Eptir ummerkjum Reykjavfkur að dæma,
mundi hún annarstaðar á landinu vera
kölluð landlítil og jafnvel kotjörð, þó að
hún hér á þessum stað væri haldin 50
hndr., og þar við er enn að atbuga, að
Arnarhóll virðist ekki vera talinn með í
þessu mati. Því að 1535 og síðan hefur
hann verið talinn sérstök jörð. Annars
var Arnarhóli lagður til Tiptunarhússins
1764, en 1819 var llPP llr Tiptunarhús-
inu gert Stiptamtmannahúsið (nú Stjórnar-
ráðshúsið) og þá var Arnarhólsjörðin lögð
stiptamtmönnum til ábýlis, ogslðanhefur
hún jafnan veiið ætluð til afnota æðstu
valdsmönnum þessa lands allt fram til
1904.
Síðasta hluta 18. aldar og fram um
1800 urðu miklar breytingar hér á landi,
sem allar hnigu að því, að valdstjórn öll
og menntastofnanir drægist hingað suður
á bóginn, og síðan hefur, eins og Sveinn
biskup komst að erði um Skálholt, Reykja-
vfk stöðugt »aukist og eflst með herra-
dæmi«. Skálholt skyldi leggjast niður
sem biskupssetur, og biskup eiga aðsetur
fyrir neðan Heiði. Skálholtsskóli var
fluttur til Reykjavíkur 1786, Hólaskóli
slfkt hið sama 1802, þó að ekki yrði hér
fast skólasetur fyr en 1846, eptirað Bessa-
skóla var lokið. Reykjavík dró að sér
alþingi frá Þingvöllum tveim árum áður
en það var lagt niður. Klerkaþing var
hætt að halda á Þingvöllum um sama
leyti og tekið var að halda það í Reykja-
vlk. Landsyfirréttur kom hér 1800. Einn-
ig landfógeti hafði tekið hér aðsetu. Land-
læknir hafði búið í Nesi við Seltjörn, en
fluttist einnig hingað, þegar fram í sótti.
Hér varð og biskupssetur allt fram til
1825, að biskupi var ætlað aðsetur f
Laugarnesi, sem þó var lagt niður af
litlum manndómi 1855. Stiptamtmenn
tóku hér og aðsetur eptir 1806, að Ólaf-
ur Stefánsson lét af embætti. Bæjarfógeti
varðhér fyrst 1804. Síðan hefur að Reykja-
vík hlaðist svo, sem kunnugt er, að þar
eru nú allar helztu þjóðstofnanir landsins.
Lengi vel þótti hún óþjóðleg og dönsk.
Kaupmannastéttin og embættismannastétt-
in voru þar aðalstéttirnar. Kaupmenn
voru flestir danskir og sumir af embættis-
mönnum lfka. Alþýðu manna gætti þar
lítt. Danskan þótti sitja þar 1 fyrirrúmi,
bæði um mál og háttalag. Hver maður,
sem nokkurt mannsmót var að, mátti
hafa það, að vera kallaður sen eða jafn-
vel s e n s og fleira því um líkt, sem
gamlir menn þeir, er uppaldir eru hér í
þessum bæ og langt muna, mega kunna
betri grein á en eg.
Með árinu 1874 ætla eg, að hafi gerst
algerð umskipti í þessum bæ, eins og
raunar á öllu landinu. Þá tókum vér í
rauninni við oss sjálfum og voru eigin
forræði. Og nú ætla eg sé óhætt að
fullyrða það, að engum detti í hug að
kalla Reykjavík lengur óþjóðlega. Án
efa er hún þjóðlegasti kaupstaður landsins.
Og eg er ekki viss um, að það sé ofsagt,
þó eg segði, að hún væri þjóðlegasti stað-
urinn á landinu. Heldur margt til þess.
Hér eru nú þjóðsöfn vor, tiltölulega auð-
ug. Hér er og saman komið mannval úr
öllum áttum landsins. Og hér er miðstöð
allrar menntunar í landinu.
Reykjavík er óþekkjanjeg nú frá þvf
sem hún var fyrir 30—40 árum. Hér
hafa verið miklar framkvæmdir á marga
vegu.
Gatnalagningar hafa hér stórum batnað
frá því sem áður var, þó að margt þyki
mönnum þar f misgert nú, því alltaf sjá
menn betur á eptir en fyrirfram.
Húsabyggingar hafa aukizt afarmikið
og tekið afarmiklum framförum, bæði til
fegurðar og hagræðis. Fyrir frekum
mannsaldri síðan var allur þorri húsa hér
svartur fyrir tjöru, og bærinn yfirlits
ófagur. Þessu er nú snúið á annan og
betra veg. En ekki er það svo að skilja,
að eg geti að öllu hælt þeim byggingar-
hætti, sem nú hefur verið rekinn svo
hörðum höndum hér um mörgár, að margir
menn hafa sjálfsagt »byggt óþægilega yfir
sig«. Á eg við það, að hér hefur verið
hróflað upp hverju timburhúsinu eptir
eptir annað, en steinhús sjást varla. Byggt
úr einum saman viði í landi, þar sem ekki
vex ein hrísla raftlæg landshornanna
milli, en við fótum troðum daglega hið
bezta byggingarefni, sem við eigum sjálfir!
Við höfum nú á hinum síðustu áratugum
kastað svo miljónum króna skiptirút fyrir
húsaefni frá útlöndum, sem við eigum
betra og getum tekið hiá sjálfum oss,.