Þjóðólfur - 21.01.1910, Page 3
ÞJOÐOLFUR
ii
Bæar-annáll.
„Fj alllcona.n“ er nú flutt til bæ-
arins, og kom fyrsta blaðið út 18. þ. m.
Bæarstjórnarkosningin, —
Eins og áður hefur verið skýrt fra hjer í
blaðinu, fer hún fram 29. þ. m., og er all-
mikill undirbúningur meðal félaga í bæn-
um, en þó eru engir listar enn fram-
komnir. — Til aðstoðar kjörstjórninni hef-
ir bæjarstjórnin valið þessa: Ásgeir Sig-
urðsson konsúl, Eggert Briem skrifstofu-
stjóra, Eggert Claessen málafl.m., Hannes
Thorsteinsson bankaritara, Jón Jensson
yfirdómara, Karl Nikulásson verslunarstj.,
Knud Zimsen verkfræðing, Lárus H.
Bjarnason lagaskólastj., frk. Laufey Vil-
hjálmsdóttur, Odd Gíslason málaflm., Ólaf
Rósenkranz kennara, Pálma Pálsson kenn-
ara, frú Ragnh. Hafstein, frú Steinunni
Bjarnason, frú Stefaníu Guðmundsdóttur,
Þórð Thoroddsen læknir og frú Þórunn
Jónassen.
Dúnir. 5. jan.: Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, ungbarn, Ránargötu 23.
7. Jan: Lárus E. Sveinbjörnsson háyfir-
dómari.
18. Jan.: Björn Björnsson, ungbarn,
Lindargötu 9.
. 19. Jan.: Elísabet Magnúsdóttir, ekkja,
Ingólfsstræti 4.
Pinglý8ingrar 20. þ. m.: Björn
Sveinsson, Grettisgötu 6, selur Chr. B.
Eyólfssyni ljósmyndara húseign sína á
Grímsstaðaholti með öllu tilh. fyrir 2568
kr. og 2 aura; dags. 7. Des.
Chr. B. Eyólfsson selur Tryggva Matt-
híassyni trésmið húseign sína á Gríms-
staðaholti með öllu tilh. fyrir 2568 kr.;
dags. 28. Des.
Gísli Gíslason, bóndi á Hjalla í Ölfusi,
selur Sigurði Guðmundssyni bónda á Sela-
læk lóð sína við Laugaveg 76 fyrir 550
kr.; dags. 4. Nóv. ,
Ingvar Þorsteinsson bókb. selur Magn-
úsi Blöndal alþm. húseign sína og lóð við
Brautarholt við Bráðræði fyrir 4827 kr. og
76 aur ; dags. 25. Jan.
Jón Þorsteinsson Barónsstíg 20 selur
Andrési Ágúst Guðnasyni á Bræðraborg-
arstíg 10 B. hálfa húseign sína nr. 20 við
Barónsstíg fyrir 1300 kr.; dags. 3. jan.
Jónas Guðmundsson á Grettisgötu selur
Hafsteini Lúter Lárussyni trésmið í Rvík
húseign sfna nr. 22 við Grettisgötu með
öllu tilh. fyrir 5000 kr.; dags. 14. Jan.
Sigurður Guðmundsson bóndi á Sela-
iæk selur Jóni Þorsteinssyni söðlasmið lóð
sína við Laugaveg 74 fyrir 1600 kr.; dags.
10. Jan.
ALEXANDER ROMER:
BÆTT YEIRSJÓN
SöGUSAFN ÞjÓÐÓLFS
XV.
REYKJAVÍK
PRENTSMIÐJAN GUTENBF.RG
1910
Þorsteinn Guðiaugsson, Brautarholti 1
Rvfk selur Ingvari Þorsteinssyni bókb.
húseign sína og lóð í Brautarholti við
Bráðræði; dags. 13. Jan.
„Islands ITalk“, varðskipið, kom
á Miðvikudagsnóttina frá Khöfn. í þess-
ari ferð var skift um skipshöfn. Hinn
nýi yfirmaður heitir Nielsen.
„Ceres“ kom í gærkvöldi frá út-
löndum. Hafði hrept óveður mikið skamt
frá Færeyjum, svo hún var orðin talsvert
á eftir áætlun. Með skipinu komu frá út-
löndum : Jón Gunnarsson fyrv. verslunar-
stjóri, kaupmennirnir Ól. Johnson og Jón
Björnsson, og Viggó Björnsson banka-
ritari.
Skautaf élagið heldur kapphlaup
fyrir drengi á sunnudaginn kemur, kl. 1 */»
síðdegis. En kapphlaupinu um Brauns-
verslunarbikarinn er frestað til 19—20
Febr. Á sunnudaginn hefir Norðmaður
boðið Sigurjóni Péturssyni að þreyta við
sig 5000 metra skautakapphlaup.
Sr. Þorsteinn Briem prédik-
ar í dómkirkjunni á Sunnudaginn kemur,
á hádegi.
Jarðarför L. E. Svein-
björnssonar fór fram í dag að við-
stöddum fjölda manna.
f
Hústrú
Guðrún Jónasdóttir,
kona Samúels Ólafssonar söðlasmiðs i
Rvlk, andaðist 4. sept. 1909.
Þú stóðst svo hraust og hýr á brá
við hlið á maka kærum
og breiddir arm um börnin smá
í blíðu draumum værum,
og verkséð höndin vann sérhvað
af viljakrafti stökum,
og heimilinu hlúði að
með heillarlkum tökum.
Það sást þá oft í sannri reynd,
að samúð rlkti innar,
með alúð lægni, gætni, greind
þú gættir stöðu þinnar,
þitt blíða hjarta bjó um hreint
og beindi hverju spori,
á götu sem að gekstu beint
með göfgu andans þori.
Og friðarsól 1 heiði hló
á Kimni Kfsins björtum,
sem yl og líf og eining bjó
í ásttvinnuðum hjörtum,
Bætt yfirsjón.
Það var hráslagalegur vetrardagur.
Snjóflyksurnar duttu þétt úr loftinu, og
urðu að krepju. En frá norðaustri
andaði nöpur og köld gola.
Ung stúlka, með nótnahylki undir
handleggnum, klædd í þrönga loð-
skinnskápu og með loðhúfu á bjart-
hærða höfðinu, hélt örugg áfram á
móti hríðinni, sem altaf var að aukast.
Andlitið var hrífandi fagurt, stór,
dökk, tindrandi augu, yndisfagur hör-
undslitur og reglulegir andlitsdrættir.
Kápan hafði eflaust eitt sinn verið
verðmætur gripur, en var nú orðin
slitin og hæfði engan veginn þeim sem
hana bar. En gallar hennar sáust
varla, því hin fagra, grannvaxna mær
skygði yfir þá.
Hún beygði fyrir horn, þar sem
1* .
þú kærleikslundin, kala neinn
ei kennast lét 1 orði,
þar vilji beggja var sem einn
1 vitund sem á borði.
En oft er heilla högum breitt
1 harm, á stuttum tíma,
við sköp sem ekki skeika neitt
er skoruð Kfsins glíma,
sem Björk, f storma stríðum leik
frá stofni fellur kalin,
um hádag lífsins hneigstu bleik
1 heljarskuggum falin.
Með brostið hjarta og bleika kinn
þar blundarðu nú lengi,
en heima makinn harmar þinn
ið horfna unaðsgengi,
sem dimmur svipur sorgin fer
og sveimar þar að garði,
þvf horfin llknarhöndin er
sem hlúði best og varði.
Sem stjarna glæstri geislabrá
snýr guðdómshátign viður,
þú Ijómar himni Kfsins á
og lítur, þangað niður,
hvar börnin hjartkær hjúfra sig
að hlýum föðurbarmi,
og trega sárt og tala’ um þig
með tár á döprum hvarmi.
En munarhimni heiðum á,
er horfa þau til baka,
er ljósró yfir alt að sjá
hvar ástarstjörnur vaka,
og lfkt er sem f logasveig
þær láti geisla sklna
en brotna’ í harmabeiskri veig
um bjarta minning þína.
Hún hvíslar andans helgu þrá
og hörmum þungum svalar,
og berst sem hljómþot blævæng á
en barnið litla hjalar,
f hverjum andvarps klökkum klið
um kyrra nótt sem líður,
hún ómar hugans eyra við
sem engilrómur bllður.
Svö. Bj'órnsson.
Hvað er að frétta?
Bruni. „Fjallkonan" getur þess, að
11. þ. m. hafi hús Bjarna Kjartanssonar
bónda á Arnarstapa í Snæfellsnessýslu
brunnið til kaldra kola. Húsið var vátrygt,
en innanstokksmunir eigi.
4
vindurinn gat vel beitt sjer, og hrökk
við, því augum • hennar mætti ungur
maður f hermannabúningi, er gekk fram
undan súlum iðnaðarstórhýsisins og
kom á móti henni.
„Ó, hvað þú gerðir mig hrædda,
Albertl Hefir þú beðið eftir mjer í
þessu veðri?" hvíslaði hún.
„Já, elskan mín. — Efaðist þú um
að eg kæmi? Ætti hermaður að ótt-
ast veðrið, þegar þú hættir þjer út í
það, hjartans litla telpan m(n?"
Hann tók hönd hennar og leiddi
hana inn í skemtigarðinn, sem það
kvöld var auður af fólki. Nokkur
Ijósker köstuðu daufri birtu frá sér,
svo þó einhver hefði verið þar á gangi,
myndi hann naumast hafa þekt þá
sem hann mætti.
Matthildur Lange — svo hét hin
unga mær, og var dóttir fiðluleikara
við leikhúsið — hætti að nota regn-
hlífina, með því að það var stytt upp.
Hann lagaði húfuna á höfði sér,
beygði sig að henni og þrýsti kossi á
varir hennar.
Hiselíiiisj»r6f við háskólann hefir
Gunnlaugur Claessen tekið f
fyrra dag með 1. eink.
Gseisliistióri við Landsbanka-úti-
búið á Akureyri er Sigurður Hjörleifsson
ritstjóri nýskipaður, í stað Björns ritstjóra
Líndals, er hefur verið vikið frá.
Aasberg, sem í mörg ár var skip-
stjóri á „Lauru", og er mörgum hér að
góðu kunnur, tekur nú við skipinu „Bot-
níu", sem bráðlega byrjar ferðir hér við
land.
JCeikfélag Reykjaviknr.
Leikið:
sunnud. 23. Jan. Kl. $ sídd. í
IAnadarmannahúslnu.
í siðasta sinn.
Stúlkur þær, sem ætla að sækja
um upptöku í hússtjórnardeild
kvennaskólans (síðara námsskeið-
ið), gefi sig fram sem fyrst.
Kenslan hefst 1. Febr. og stend-
ur yfir 4 mánuði. Borgunin er
25 kr, mánaðarlega og greiðist fyr-
irfram fyrir hvern mánuð. Nánari
upplýsingar fást á skólanum.
Reykjavík 21. Des. 1909.
Ingibjörg H. Bjarnason.
Cggert @laessen
jlrrttttraáiiiitiiiigiBilir.
Pó«tkB8«trætl 17. Venjulega heima kL
10—11 og 4—5. Tals. 16.
cfiogi dSrytyólfsson
yfirróttarmálaflutningsmaður.
Bankastræti 14.
Heima kl. 1*—I og 41/*—5V»-
5
„Elsku besta rósin mín", hvíslaði
hann í eyra hennar, „eg var nær dauða
en lífi af ástarþrá; hugsaðu þer, við
höfum ekki sést í tvo daga".
Hann hafði fjörleg, broshýr augu,
snoturt yfirskegg og mjúkar varir.
Viðmót hans var þýtt og aðlaðandi,
þótt hann virtist naumast fullþroska.
Útlit hans bar heldur ekki vott um
stöðuglyndi,
En hvers krefst ung stúlka 17 ára
af liðsforingja 24 ára gömlum, nema
skemtunar og ánægju? Ef hann hefir
það til að bera, og er þar að auki
barón, þá er hjarta hennar sigrað.
Unga stúlkan stundi.
„Ó hvað þessi Íeynd er hræðiiega
leiðinleg og þreytandi", hvíslaði hún.
Stundum, þegar eg ekki er hjá þér,
Albert, finst mér þetta ásigkomulag
óþolandi. Hvað eg get þá fyrirlitið
sjálfa mig. Ó, Albert, ef eg ekki bæri
svo ófakmarkað traust til þín".
Hann lagði hendurnar utan um hana
og lokaði vörum hennar með kossi.
„Láttu engar þungar hugsanir