Þjóðólfur - 04.06.1910, Síða 1
Þ JÓÐÓLFUR.
62. árg,
Reykjavlk, Laugardaginn 4. Júní 1910.
M 23.
þingmönnum. Ennfremur viljum
mótor-steinoliu t«
Þá sem eg sjálfur álít vera besta, eða þá, sem seljand-
inn segir að sé bestf
ll?
Auðvitað nota eg þá olíu, sem eg sjálfur af eigin reynslu veit
að er áreiðanlega langbest, nefnilega
Gylfie mótor-steinolia
frá
SkaadinaTisk-Amerikansk Peíroleums Aktieselskab,
Kongens Nytory 6. Köbenhayn.
Ef þér viljið reyna Gylfie-mótor-steinolíu, mun kaupmaður yðar
útvega yður hana.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
| BOGI BRYNJÓLFSSON ♦
^ yfirréttarmálaflutningsmaður ♦
♦ er fluttur í Austurstræti 3 (fyrv. J
♦ afgreiðsla Þjóðólfs). ♦
♦ Tals. 140. Helma 1 1 — 12 og 4—5. J
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
■(■MiiiiiaiiiiiiiniaiiiaiBiaiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiaiaiaiaiiiiiaiiiiiiiiiaiaiaiaiBiaiiiBiaiiiaiaiaiBiiiiiiia
Meiri hluti alþingismanna
krefst aukaþings.
Stjórnin í minni hluta.I
í dag gerðist sá mikli atburður, að
deildarforsetar alþingis, hr. Hannes
Porsteinsson og hr. Kr. Jónsson af-
greiddu til ráðherra skriflegar áskor-
anir frá 21 þingmanni, um að halda
ankaþing í sumar út af bankamál-
inu svokallaða, og öðrum ónefndum
þrekvirkjum ráðherra.
Bréf forsetanna hljóðar svo:
» Við undirskrifaðir forsetar efri
og neðri deildar Alþingis höfum
meðtekið áskorun til yðar, ráð-
herra íslands, frá ýmsum alþing-
ismönnum um, að þér gerið ráð-
stafanir til þess að aukaalþing
verði haldið svo ftjótt í sumar, sem
unt er, til þess að taka til með-
ferðarhið svokallaða Landsbanka-
mál o. fl. Eftir beiðni þingmann-
anna sendum við yður hér með
þessar áskoranir, en þœr eru frá
Agúst Flygenring 3. kkj. þm.
Eggert Pálssyni 1. þm. Rangv.
Einari Jónssyni 2. þm. Rangv.
Eiríki Briem 2. kkj. þm.
Hannesi Hafstein 1. þm. Eyf.
Hannesi Porsteinssyni 1. þm. Árn.
Jóh. Jóhannessyni 2. þm. N.Múl.
Jóni Jónssyni 1. þm. N.Múl.
Jóni Jónssyni 1. þm. S.Múl.
Jóni Magnússyni þm. Vestm.
Jóni Ólafssyni 2. þm. S.Múl.
Júlíusi Havsteen 1 kkj. þm.
Kristjáni Jónssyni þm. Borg.
Lárusi H. Bjarnason 5. kkj. þm.
Pétri Jónssyni þm. S.Ping.
Stefáni Stefánssyni 6. kkj. þm.
Stefáni Stefánssyni 2. þm. Eyf.
Steingrími Jónssyni h. kkj. þm.
Áskoranir í sömu átt frá þing-
mönnum Skagfirðinga Ólafi Briem
og Jósef Björnssyni og frá þing-
manni Mýramanna, Jóni Sigurðs-
syni, hafa yður áður verið send-
ar beina leið, sbr. og 2 meðfylgj-
andi símskeyti.
Eru þannig komnar áskoranir
um aukaþing til yðar frá 8 efri-
deildarþingm. og 13 neðrideildar-
við geta þess, að áskoranir sama
efnis um aukaþingshald í sumar
hafa verið samþyktar á almennum
kjósendafundum í Seyðisfjárðar-
kjördæmi og Akureyrarkjördæmi
og víðar.
Allir beiðast þingmennirnir þess,
er áskoranir hafa sent, að þeir
fái sem fyrst svar upp á mála-
leitanir þeirra, og búumst við við,
að svarið verði sent til okkar
undirskrifaðra.
Reykjavík, 4. Júní 1910.
Kristján Jónsson. HannesÞorsteinsson.
Til ráðherra íslands«.
Hér með er meiri hluti alþingis
ómótmælanlega snúinn gegn stjórninni.
Og ekki nóg með það. Heldur er
stjórnin komin í minni hluta í hvorri
deild um sig. í efri deild standa 8
af 14 inóti henni, og í neðri deild
13 af 25, því að ráðherra, sem á sæti
í deildinni sem þingmaður, er málsaðili,
eða réttara: sökudólgur, og getur
því ekki talist til atkvæðisbærra þing-
manna um frammistöðu sína.
En auk hérnefndra 21 þingmanna
veit maður með áreiðanlegri vissu,
eftir bréfum mannanna sjálfra eða sam-
tali við þá, að margir fteiri þing-
menn eru öldungis móthverfir stjórn-
inni. Og enginn þingmaður hefir feng-
ist til að ljá stjórninni liðsyrði, nema
nýsveinarnir Sigurður Hjörleifsson og
Benedikt Sveinsson, sem báðir eiga
atvinnu sína og þar með tímanlega
velferð sína undir ráðherra.
Og af kjósendum víðs vegar um
landið er það að segja, að komnar
eru fundargerðir eða skriflegar áskor-
anir því sem næst úr öllum kjördæm-
um landsins. Og í öllum þeim er
sama hljóðið, nema hvað stjórninni
hefir tekist með sérstökum eftirgangs-
munum að sníkja bréfleg mótmæli út
úr alimörgum kjósendum í kjördæm-
ráðherra og 2 til 3 hreppum í öðrum
kjördæmum af 183 hreppum og kaup-
stöðum alls á landinu utan Barða-
strandarsýslu. í 3 kjördæmum, er
kjósa til samans 4 þingmenn, sem sé
i Rvík, á Akureyri og Seyðisfirði, og
jafnvel í Vestur-ísafjarðarsýslu og
Vestur-Skaftafellssýslu er fengin áreið-
anleg vissa fyrir því, að meiri hluti
allra kjósenda þessara kjördæma er
aukaþingskröfunum fylgjandi. í raun-
inni ætti því að mega bæta þeim
4—6 við tölu ofanritaðra, enda
talið víst, að 3 þeirra muni snúast
móti stjórninni, þegar á þing kemur.
Það er óþarfi að fara að spá um fylgi
stjórnarinnar á þingi, en nærri mun
láta, að það fari ekki fram úr 8—9
alls, og hefði hún þá tapað 16—17
eða 2/3 hluta þingmanna sinna á rúmu
ári. Og má það heita vel á haldið,
á ekki lengri tíma.
Nú er aðeins eftir að vita, hvenær
þingið kemur saman, því aðfþað mun
elcki þurfa að efa, að hr. B. J. muni
þá þegar bregða við og leita leyfis
konungs til þinghaldsins. Svo mikið
hefir maðurinn sá skrafað um þing-
ræði og þjóðræði.
Annars kvað þingmenn krefjast til-
sagnar ráðherra um það, hvort hann
ætli að verða við tilmælum þeirra
eða ekki. Og er sagt, að það merki
að [önnur leið muni verða farin, ef
ráðherra lætur ekki strax að stýrinu.
Þingmálafundur
í Suður-Múlasýslu.
Þann 12. þ. m. var haldinn fulltrúa-
fundur á Búðareyri í Reyðarfirði, sam-
kvæmt fundarboði frá 1. þingm. kjör-
dæmisins Jóni Jónssyni frá Múla.
Til fulltrúakosninganna var stofnað
á þann hátt, að kosinn skyldi 1 fulltrúi
fyrir hverja 20 kjósendur á kjörskrá, eða
því sem næst, með sérstakri kosningu
í hverjum hreppi.
Fulltrúakosningar höfðu fram farið í
öllum hreppum kjördæmisins, nema Beru-
nesshreppi, þar sem fundur fórst fyrir
sökum óveðurs; óvíst um Mjóafjarðar-
og Eiðahreppa.
Þessir fulltrúar mættu á fundinum:
Fyrir Vallahrepp: Gunnar Pálsson
hreppstjóri á Ketilsst. og Vigfús bóndi
Jónsson 1 Tunguhaga.
Fyrir Helgustaðahrepp: Halldór Jóns-
son bóndi á Svínaskálast., Ólafur Helga-
son bóndi á Helgusstöðum og Asmundur
Helgason hreppsnefndaroddv. á Bjargi.
Fyrir Eskifjarðarhrepp: Anton Ja-
kobsen gestgjafi á Eskifirði, Bjarni Sig-
urðsson hreppsn.oddv s.st., Jón Brynj-
ólfsson útvegsb., s. st. og Símon Jóns-
útv.b. s. st.
Fyrir Reyðarfj.hr: Jónas Eyjólfsson
bóndi í Seljateigshjál., Sigurjón Gíslason
bóndi í Bakkagerði og Hallgrímur Bóas-
son húsm. í Teigagerði.
Fyrir Fáskrúðsfj.hr.: Oddur Oddsson
(fyr bóndi) húsm. í Hvammi, Einar Frið-
riksson bóndi á Hafranesi og Stefán Þor-
steinsson bóndi á Eyri.
Fyrir Búðahr.: Gísli Högnasonhrepps-
nefndaroddv. á Búðum, Ólafur Oddsson
myndasmiður á Sunnuhvoli.
Fyrir Breiðdalshr.: Björn R. Stefáns-
son verslunarstj. á Breiðdalsvík og Guðni
Arnason bóndi á Selnesi.
Fyrir Geithellnahr.: Páll Jónsson versl-
unarm. á Djúpavogi og Páll Benjamíns-
son kennari s. st.
Af kosnum fulltrúum voru forfallaðir
og mættu ekki þessir:
Fyrir Skriðdalshr.: Benedikt hreppstj.
EyjólfssonáÞorvaldsstöðum. Hann sendi
á fundinn ályktun kosningafundarins í
þeim hreppi, þar sem krafist er auka-
þings í sumar.
Fyrir Búðahrepp: Sveinn bóndi Bene-
diktsson, er gat ekki mætt sökum veik-
inda.
Fyrir Stöðvarhr.: Carl J. Guðmundss.
kaupm. á Stöðvarfirði, er tjáði forföll.
Fyrir Breiðdalshr.: Páll Benediktsson
hreppstj., Gilsárstekk.
Þessir fjórir fulltrúar höfðu verið kosn-
ir til að framfylgja aukaþingskröfunni.
Hvað Norðfjarðarhrepp snertir, höfðu
að vísu borist fregnir af því, að þar
hefði farið fram fulltrúakosning og verið
kosnir 4 eða 5 fulltr., andstæðir auka-
þingi í sumar; en hvorki tjáðu þeir for-
föll, né sendu nein skeyti til fulltrúa-
fundarins.
Þingtnaðurinn setti fundinn, skýrðifrá
tildrögum hans og tilgangi. Hann kvað
það gleðja sig, að svo margir fulltrúar
væru mættir, þrátt fyrir afskaplega stirða
veðráttu og ýmiskonar örðugleika. En
það, sem sjer þætti á skorta, væri það,
að enginn hinna kjörnu fulltrúa úr Norð-
fjarðarhreppi væri hjer viðstaddur til að
halda uppi svörum fyrir stjórnarflokkinn
og hreifa mótmælnmjgegn væntanlegum
ályktunum þessa fundar. Því næst bað
hann menn að kjósa fundarstjóra og
fundarskrifara.
Fundarstjóri var kosinn Gísli Högna-
son, skrifarar Páll Jónsson og Ólafur
Oddsson.