Þjóðólfur - 01.07.1910, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 01.07.1910, Blaðsíða 3
ÞJOÐOLFUR 107 harðvelli. Þá kæmi sér vel tilbúinn á- burður frá Gullfossi. En því miður dregst það líklega nokkuð en þá, að Fóinn taki þeim breytingum sem hann getur tekið til umbóta. Kostnaðurinn verður ætíð mikill, en féð torfengið. Naumast verða þó héðanaf lagðar árar 1 bát til lengdar. („Suðurland"). Ösknfall. I Landmannahreppi og víðar hér eystra hefir orðið vart við ösku- fall. Einkum þann 18. þ. m. Askan sást gróft á vatni og gerði hvítt fé dökkgrátt, sumstaðar. Eigi vita menn hvaðan aska þessi er komin. („Suðurland"). Málaferli. Síðan Björn Jónsson, fyrv. ritstjóri ísaf., settist f ráðherraembættið, hafa meiðyrða- mál aukist allmjög. Annars hefir hinn fyrv. ritstjóri „ísafoldar" átt einna mestan þátt í málaferlum út af blaðagreinum, og þarf ekki að minna á annað en málaferli hans við ritstjóra „Þjóðólfs" og „Þjóðviljans" hér á árunum ; en jafnan fóru svo leik- ar, að jafnskjótt sem hann var búinn að senda stefnu frá sér, fékk hann sjálfur aðra, því ritháttur hans var ekki alf af þeim mun prúðari, að ekki væri hægt að finna eitthvað, er hægt væri að stefna fyrir. — Eitt sinn var hann búinn að stefna ritstjóra Þjóðólfs 10—20 stefnum, en fékk um hæl jafnmargar, og þá gafst hann upp og málin féllu öll niður. — En síðan hann varð ráðherra hefir orðsýki hans aukist, og nú sfðustu dagana hefir hann látið birta ritstjóra „Lögr.“ 30 stefnur og er jafnvel búist við fleirum, og er það óneitanlegu vel af stað farið. — í dag lét hann og birta ritstjóra Þjóðólfs 8 stefnur; var tækifærið nötað, þegar ritstjórinn var farinn úr bænum, og verður vonandi ekki látið hér staðar numið. Landsjóði veitir lík- lega ekki af því, þótt nokkrar krónur ber- ist þangað, því ekki fara þeir ritstjóri Lögr. og Þjóðólfs og aðrir þeir, er ráð- herrann sýnir það lítillæti að taka svo mikið tillit til orða þeirra, að lesa þau, að taka orð sín aftur og eta alt ofan í sig eins og ritstjórn „ísafoldar" gerði ný- lega. — Annars er eftirleikurinn óvand- ari, og getur ritstjóm ísafoldar huggað sig við það, og lifað í þeirri von, að ein- hver nenni að lesa það blað, því að ekki þarf lengi að leita, svo að hægt verði að gera henni sömu skil. Og misskilin mis- kunnsemi væri það, að hlífa henni. Meðan Hannes Hafstein sat að völdum, lét hann bæði Björn Jónsson og aðra andstæðinga sína óáreitta, þótt ekki væri honum altaf vandaðar kveðjurnar. En þ a ð taldi Hannes Hafstein sér ekki sam- boðið, að elta andstæðinga sína með mál- sóknum út af hverju smáatriði. Allir muna, hvað mannalega Björn Jónsson bar sig, þegar hann tapaði í hæsta rétti meiðyrða- málunum við Lárus H. Bjarnason. — Vilja menn ekki annars lesa ummæli hans um hæstaréttardómana, Þau hljóða svo (sbr. ísafold XXXIV. árg. 69. tbl., bls, 273): »Heimasljórnar-sigur« er pað mikill, rcttnefndur »njjr sigur heima- stjórnarmannaa, og því œrið fagn- aðarejni fgrir alt það lið: húsbónd- ann, máginn og alla þeirra hús- karla. Hann gerir efnalítinn »vin« þeirra hátt upp í 2000 krónum fá- tœkari eti áður, — þegar með er talinn fyrri dómurinn, sá frá í sumar. Pað er notaleg svölun mœddum skapsmunum. Pað er innilegt fagnaðarefni. En — hvort sigurinn er þar eftir glœsilegur, með þeim ráðum, er hann hefir unninn verið, það er annað mál. Pað ætlar ísafold lesendum sín- um að dœma«. Jóhann Krist/ánsson. Bæar-annáll. Aage Meyer Benedictseu rithöfundur lagði af stað héðan í ferðalag sitt á Þriðjudaginn var, Fer hann fyrst austur undir Eyjafjöll, síðan til Gullfoss, Geysis og Þingvalla, þaðan til Surtshellis, en síðan vestur um Borgarfjörð og Mýrar til Stykkishólms. Þaðan fer hann með skipi um Vestfirði og alt til 'Borðeyrar. Frá Borðeyri fer hann landveg um Norð- urland norður í Þingeyjarsýslu, en með skipi frá Húsavík til Eskifjarðar. Þaðan ætlar hann upp á Fljótsdalshérað, og þar með er ferð hans hér um land lokið. Fer hann síðan beina leið heim ffá Austfjörð- um. >1 t-nt :i <>1 i iiii. í gær útskrifuð- ust þaðan 15 stúdentar og eru þeir hinir fyrstu, er útskrifast hafa eftir nýju reglu- gerðinni : I. Þórhallur Jóhannesson . • 79 stig 2. Helgi Guðmundsson . . • 73 — 3- Laufey Valdimarsdóttir . . 72 — 4- Ólafur Jónsson .... • 7° — 5- Steingrímur Jónsson*. . . 68 — 6. Helgi Skúlason* . . . . 62 —- 7- Sigtryggur Eiríksson* . . 6l 8. Jón Ásbjörnsson* . . . . ÓO 9- Skúli Skúlason*. . . . • 59 — IO. Brynjólfur Árnason . . • 58 - II. Halldór Hansen* . . . ■ 58 - 12. Sigurður Sigurðsson . . • 58 - !3- Þorsteinn Þorsteinsson . • 58 - 14. Sighvatur Blöndal* . . ■ 56 - i5- Guðm. J. Kamban* . . • 53 — Lágmaik stigatalsins við stúdentapróf er 52 stig. Gagnfræðapróf tóku þessir nemendur: I. Erlendur Þórðarson . . . 78 stig. 2. Halldór Gunnlaugsson . . 73 — 3- Jón Benediktsson .... 7i — 4- Páll Skúlason 7* — 5- Guðmundur Guðmundsson 69 — 6. Jón Bjarnason* .... 68 — 7- Valgeir Bjarnarson* . . . 68 — 8. Rögnvaldur Guðmundsson* 64 — 9- Gísli Magnússon* . . , . 63 — IO. Karl J. Magnússon . . . 6l — II. Sigfús Þ. H. Blöndal* . . 59 — 12. Leifur Sigfússon* .... 57 — 13- Kristján Arinbjarnarson . 57 — 14. Eiríkur Helgason .... 56 — i5- Gunnar E. Benediktsson . 56 •— l6. Kristín Thoroddsen . . . 52 -- i7- Rögnvaldur E. G. Waage* 52 — 18. Sigurgeir Sigurðsson* . . 49 — Þeir, sem eru með stjörnu, eru utan- skólasveinar. 18 nýsveinar gengu í vor inn í skólann. Fyrirlestur 11111 Indland und- ir veldi Breta hélt hr. AageM. Benedictsen f Bárubúð slðastl. laugardagskvöld. Tal- aði hann um, hvernig Indland hefðikom- ist undir yfirráð Breta og hver tildrög hefðu verið til þess. A eftir fyrirlestrin- um sýndi hann allmargar skuggamyndir frá Indlandi af landi og þjóð, og skýrði um leið frá náttúru landsins og lifnaðar- háttum landsbúa. — Fyrirlesturinn var mjög vel sóttur og var gerður að bonum hinn besti rómur, enda eiga menn hér sjaldan kost á að hlýða á fyrirlesta flutta af jafnmikilli mælsku og fjöri. Lœknaskólinn. Burtfararprófi hafa lokið þar: Hinrik Erlendsson (25. f. m.) með 2 eink. betri og Magnús Júlíusson (27. f. m.) með x. eink. Miðpróf hafa þeir tekið: Árni Árna- son (með ág.einkunn f öllum náms- greinum) Björn Jósefsson (með 2. eink. betri) og Konráð Konráðsson (með 1. eink.). En upphafrpróf (próf í efnafræði) tóku þar 29. f. m.: Bjarni Snæbjörns- son, Guðm. Ásmundsson, Halldór Krist- insson, Ingvar Sigurðsson og Jónas Jón- asson. Prestvígslur. Vígðir voru þeir 26. þ. m., Bjarni Jónsson og Brynjólfur Magnússon, eins og getið var um í sfð- asta blaði. Skipaferðir: „Vesta“ kom frá út- löndum norðan og vestan um land og fór aftur í gær. Með henni fóru Þórhallur biskup Bjarnarson norður að Hólum í Hjaltadal til að vígja vígslubiskup Hóla- biskupsdæmis hins foma, séra Geir Sæ- mundsson. — Guðm. Björnsson landlækn- ir fór til Vestfjarða í eftírlitsferð. »Ceres« kom trá útlöndum 27. f. m. með marga farþega; þar á meðal var Bogi Melsteð sagnfræðingur. „Pervie" kom úr strandferð f gærkvöldi og „Austri" í morgun. Bitstjóri Þjódólfs fór f gær landveg norður 1 Skagafjörð og með hon- um Jóhann kaupm. Jóhannesson. Þeir urðu samferða Matthíasi fornmenjaverði Þórðarsyni og fóru þeir fyrst til Þing- valla, en síðan til Kalmanstungu, og skoða Surtshelli, en þaðan er ferðinni heitið norður fjöll. Barn rotawt. Á þriðjudagskvöld- ið datt á Grettisgötu 8 ára gamall piltur, sonur Haraldar Jónssonar á Grettisgötu 54, og rotaðist til bana. 16. Júní: Hallgr. prentari Benediktsson selur Benedikt gull- smið Ásgrímssyni húseign nr. 19 við Berg- staðastræti með tilh. fyrir 2000 kr. Dags. 12. Júní. Þinglýsingar 23. Júní: Einar J. Pálsson trésm. selur Helga úrsmið Hannessyni húseign nr. 13 við Oðinsgötu með tilheyr. fyrir 7000 kr. Dags. 17. Júní. Helgi úrsmiður Hannesson selur Einari J. Pálssyni trésmið hálfa húseignina nr. 23 við Ingólfsstr. með tilh. Dags. 17. Júnf. Kristján múrari Kristjánsson selur Ein- ari J. Pálssyni trésmið húseign nr. 13 við Óðinsgötu með tilh. fyrir 8720 kr. Dags. 7. Ágúst 1908. Kapphlaup. Síðastl. Sunnudag var kapphlaup háð frá Árbæ til Reykjavíkur, og er það míla vegar ; hljóp Siguijón Pétursson glímukappi hana á 28 mín. og 14. sek., og varð hann fljótastur allra. Sex aðrir tóku þátt í hlaupi þessu og voru það þeir: Jóel Ingvarsson í Hafnar- firði (28 mín. 59 sek.), Ólafur Magnússon ljósm. í Rvík (29 mín.), Guðm. Jónsson í Hafnarf. (30 mín. 20 sek.), Bjarni Magn- ússon 1 Rvík (30 m. 40 s.), Sigurður Sig- urðsson úr Hornafirði (31 m. 28 s.) og Tómas Tómasson af Seltjarnarnesi (32 m. 1 s.). — Sigurjón Pétursson er frægastur íþróttamaður bæarins. — Hann hefir að sigurlaunum Braunsbikarinn fyrir að vera fljótastur skautamaður bæjarins, Ármanns- skjöldinn sem besti glímumaður Reykvík- inga og Grettisbeltið sem mesti glímumað- ur landsins, og meö honum vann hann heitið: „Glímukongur Islands". 35 ára stúdentsafmæli sitt héldu þessir stúdentar frá 1885 með sam- sæti í fyrra kvöld: Séra Gísli Einarsson í Hvammi, Lárus H. Bjarnason lagaskóla- stjóri, Magnús Bjarnarson próf. á Prests- bakka, Pétur Hjaltested cand. phil., Ric- hard Torfason uppgj.prestur og Þórður Jensson cand. phil. — 4 stúdentar frá 1885 eru dánir, en 17 eru enn á lífi. 50 íii’ci stiKlentiir eru 3 á lífi: dr. Jónas Jónassen, Þorgrímur Johnsen fyrv. héraðslæknir og Þorstemn Egilsson kaupm. í Hatnarfirði. Helgisiðabók heitir hin nýa end-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.