Þjóðólfur - 16.09.1910, Blaðsíða 3
ÞJOÐOLFUR
157
um það og margt annað, er vel
gæti komið i bága við það.
Annaðhvort væru þessir herrar
englar — eða nefndarskipunin er
hneyksli frá almennu sjónarmiði.
Oddur Ófeigsson.
+
¥ *
Grein þessari erum vér eigi sam-
mála í ýmsum einstæðum atriðum
eða ummælum, en nánar verður
vikið að þessu efni siðar.
Ritstj.
Syndir Hafsteinsflokksins.
ísafold 10. þ. m. flytur grein nokkra
með ofantaldri fyrirsögn, og telur þar upp
syndir þær, er hún tekur að Hafsteins-
flokkurinn hafi drýgt, og má vlst vænta
þess, að þar sé alt það talið, er til óvirð-
ingar má telja.
Þótt Þjóðólfur telji sig ekki til Hafsteins-
flokksins, þá vill hann þó athuga grein
þessa, einkum vegna þess, að hún er gott
sýnishorn af ísafoldarspeki og ástæðum.
1. sakargift:
Aðj hann (H.-flokkurinn) beitti öllum
kröftum til að fá þjóðina til að samþykkja
uppkastið.
Svar:
Að þetta sé ásökunarefni, nær ekki
nokkurri átt, það er þvert á móti hrós-
vert, alveg eins og vér teljum það ekki
meðal synda B. J., þótt hann berðist gegn
því. Að berjast fyrir sannfæringu sinni
á hvaða máli sem er, er skylda hvers og
eins. Hitt er annað, þótt menn verði
ekki sammála.
Þannig hafa mótmælendablöðin ekki
fundið að liðsbónarför ráðherra norður,
en fremur er þó ástæða til þess en hins.
Ráðherra á að berjast fyrir stórmálum
þeim, sem eru áhugamál hans, og leggja
öll frumvörp svo fljótt sém auðið er fyrir
þjóðina, svo hún geti athugað þau á þing-
málafundum. En nokkuð seint koma þau
nú, ef þing á að verða haldið á réttum
tíma, því þá verða þingmenn, að minsta
kosti til sveita, að hafa fundina í haust.
Frumvörp hefðu því átt að vera tilbúin í
byrjun þ. m., í stað þess að lítið eða
ekkert er farið að vinna að þeim.
2. sakargift:
sHækkun embættislauna og viðhald
eftirlauna«.
Svar:
Launahækkanir þessar eru hjá læknum
Og prestum, og verður því ekki neitað, að
laun þeirra, eins og þau eru nú, eru alls
ekki of há. Að þjóðin eigi að launa
skammarlega starfsmönnum sínum, er við-
sjál kenning. Betra að launa betur og
krefjast betur rækt starfsins.
Og ekki breytti meiri hlutinn á síðasta
þingi þessari stefnu, síður en svo. Fjölg-
aði starfsmönnum og hækkaði laun, svo
ekki situr á ísaf. að brydda á þessu.
Hvað eftirlaunin snertir, þá voru þau
lækkuð til muna frá því sem áður var.
Almenn ellistyrkslög hafa verið samþykt,
og fær alþýða þaðan einskonar eftirlaun.
Væru eftirlaunin afnumin. ætti og að af-
nema þau lög. Hvorttveggja byggist á
sama grtjndveUinum.
3- Sakargigt.
»Hann æsti upp hégómagirnd manna
með krossa- og nafnbótavirðingum, sem
hverjum ærlegum manni ætti að vera and-
stygð; enda skriðu engir ílatara fyrir
honum en flestir af þessum krossuðu
mönnum«,
Svar:
Vel má það vera, að krossarnir séu
hégóminn einber, en fyrst sá siður er, þá
er eigi nema rétt að honum sé fylgt, því
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
x BOGI BRYNJÓLFSSON %
X yfirréttarmálafiutning8maður X
X Austurstræti 3. X
♦ Tals. 140. Helma 1 1-12 og 4-5. ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
eigi ber þvl að neita, að tildur þetta á að
vera viðurkenning fyrir vel unnu starfi hjá
þeim, er fær það. Og þessi viðurkenning
er réttmæt, jafn réttmæt eins og t. d.
verðlaun úr sjóði Kristjáns konungs IX.
En þessi viðurkenning er mikið ódýrari
fyrir ríkið og handhæg. Og ef ísaf. finst
það rétt vera, að krossarnir séu »hverjum
ærlegum manni andstygð«, hvernig víkur
þvf þá við, að B. J. þáði krossinn af Al-
berti, og að hann hefir krossað aðra. Er
ísaf. með óheiðarlegar aðdróttanii til
hans?
Að þeir, er krossana hafa fengið, hafi
skriðið flatara en aðrir fyrir fótum H. H.,
er rangt mál. Nægir þar að benda á t. d.
Skúla alþm. Thoroddsen, sr. Ólaf Ólafs-
son fríkirkjuprest, Kristján háyfirdómara
Jónsson, Jón yfirdómara Jensson, Magnús
prófast Andrésson, Björn alþingismann
Sigfússon, Axel sýslumann Tulinius, Hall-
dór bæarfógeta Daníelsson, Ágúst bónda
í Birtingarholti Helgason o. s. frv., og
voru allir þessir menn þó eindregnir
andstæðingar H. H., þó sumir þeirra fylgi
nú heldur ekki B. J.
4. sakargift:
»Eftirlitsleysi með undirmönnum«.
Svar:
Þessa ásökun má víst bera á allar
stjórnir. Eða hvaða eftirlit er t. d. 15
mfnútna yfirskoðun ráðherra á sýslumanna-
bókunum, manns sem varla veit hvaða
bækur á að færa og þá hvernig?
5. sakargift:
»Blöðin Lögrétta og Reykjavík«.
Svar:
Blöð þau geta svarað fyrir sig, en oss
virðist að núverandi stjórnarflokkur eigi
sem minst um blaðamensku að tala, með-
an aðalblað þeirra misþyrmir eins sann-
leikanum og þar er gert.
6. sakargift:
»Fjárbruðlun í konungsförinni*.
Svar:
Það er víst alveg rétt, að eigi var hag-
anlega á fé haldið þar, er þar eiga báOir
flokkar óskorið mál. Þess á höf. að
minnast.
í öðru lagi eru eftirtölur um þetta efni
mjög óviðeigandi og ættu ekki að sjást í
neinu blaði, hvaða flokki sem það til-
heyrir. Eftirtölurnar þær eru svipaðar,
og að bóndi, er tekur forkunnarvel við
gesti sínum, segiviðhann: »Mikið andsk.
hefi eg eytt í tilefni af viðtökunum«. Allir
sjá, hversu fráleitt það er.
Þeir er átelja móttökunefndina, eiga
þjóðarinnar vegna að þegja, og til »flokks-
agitationar« er þetta ófært, því b á ð i r
flokkar sátu í nefndinni og þingið í heild
sinni samþykti alt gott og blessað.
(Meira)
Skýrsla lir. Eiuars líenedikts-
sonar. Þjóðólfur flytur í dag svar og
skýringar frá hr. Einari Benediktssyni
viðvíkjandi skýrslum þeim, er hann
hefir ritað til „The British North
Western Syndicate Lim. og prentaður
var útdráttur af í síðasta tbl. Reykja-
víkur.
Blaðið mun sjálft víkja nánar og
ýtarlegar að skýrslum þessum og mál-
um þeim, sem í sambandi við hana
eru.
X fyrsta sinn.
*o
I y
3 S-
O) c
O O)
o
cö CC
O)
C O)
1= o
O)
o c5
cs
*'£•
3 £
<3
>
^lísaía.
Frá 30. Sept. og um nokkurn tíma selj-
um við karlm., unglinga og drengjaföt með 10—30%
afsleetti.
Allar vefnaðarvörur með 100/o afsleetti.
150 ýíljatnaðir nýkomnir.
Mikið af vefnaðarvöru með e/s Sterling og e/s
Ceres, sem selt verður með sama afslætti.
Ásg-. G. Gunnlaug-sson & Co.
9
n
0:
g
9
0
%
p
Morg hundruð
pör af nýum og vönduðum skófatnaði sel eg með gjafverði
til 25. september n. k. — Nú
geta menn sparað
peninga sína, það er öllum í lófa lagt,
með því að
kaupa hjá mér:
Karlm.stígvél. vöndiið og falleg, á aðeins kr. 7.20 (áður 9,50)
Kvenstigvél. skínandi falleg, á aðeins kr. 5,75 (áður 7,75).
Allir ættu að sjá sér liag í að
skifta við
mig, því eg sel allar mínar miklu skófatnaðar-birgðir með afslætti
til 25. sept. n. k.
Virðingarfylst Reykjavík, 14. sept. 1910.
Lárus G. LUðvígsson,
Þingholtsstræti 2.
ív
Eldliúsgögn úr ÁlumiDium
spara eldsneyti alt að þriðjungi, eru sterk og ending-
argóð, haldast ávalt sem ný með mjög lítilli fyrirhöfn,
aðeins þarf að þvo þau úr volgu vatni.
Sóda má alls ekki láta í vatnið sem
þau eru þvegin úr.
Allskonar eldhúsgögn úr Aluminium:
pottar, katlar, pönnur,
skaftpottar o. ft.
best og- ódýrust í verslun
II
P. J. Thorsteinsson S Co.
Reykj&vík. (Godthaab).