Þjóðólfur - 30.12.1910, Blaðsíða 2
2i8
Í>J OÐOLFUR
á eftir, með óðrum orðum, reglulegt þing
ign og aukaþing 1912. Verði auka-
þing kailað saman 1910, þá má sam-
þykkja þar stjórnarskrárbreytinguna, og
svo kemur reglulegt þing 1011. Munur-
inn er sá, að þingið átti að verða 1911
og 1912, en yrði annars 1910 og 1911
kostnaðurinn yrði nákvæmlega sá sami.
Nei, það er ekki kostnaðurinn, sem
Björn Jónsson setur fyrir sig, heldur hitt,
að hann vill halda einveldinu sem lengst.
Nú sem stendur breytir hann eins og
einvaldur konungur gerði á miðöldunum.
Vald Noregskonungs, sem Islendingar lutu
um eitt skeið, var meðal annars það, sem
hér segir: Hann átti landið alt, svoog
fólkið, sem í var landinu, Hann átti það
á sama hátt og menn eiga naut og sauði
og annan fénað, það, sem hann bannaði,
var hegningarvert, hvort sem það var rétt
eða rangt, Hann hafði hið æðsta hegn-
ingarvald. Hann einn hafði vald til að
veita grið. Hann var hinn æðsti dóm-
ari. Hann var einvaldur yfir embættis-
mönnum, lenum og jarðeignum krúnunn-
ar og öllum ríkistekjunum. Hann átti
ótakmarkað vald yfir öllum utanríkis mál-
um. Hann réði yfir verslun við útlönd,
og hann bar enga ábyrgð nema fyrir guði.
Svona mikið vald í eins manns hönd-
um telur við menning vorra tíma óviður-
kvæmilegt, og sérstaklega, þegar einn
maður hrifsar það til sín, án samþyktar
úr nokkurri átt.
‘Margir spyrja sjálfa sig á þessa leið:
Hversu lengi á þetta að ganga? Hversu
lengi ætla íslendingar að líða þetta ? Hví
er ekki haldinn allsherjar þjóðfundur á
hinum fornhelga stað, Þingvelli, og ráð-
gjafanum þar gerðir tveir kostir: Annað-
hvort að hlýða dómum og lögum þjóðar-
innar og kalla saman aukaþing, þar sem
aðalágreiningsmálið verði útkljáð, eða að
öðrum kosti víkja sæti? Eða ef hann
neitar kröfu meiri hluta þingsins, því kalla
þá ekki; forsetarnir saman þing án hans
og hrópa hann af? Eða hví skrifa þeir
ekki konungi og krefjast þess, að hann
skipi ráðherra að kalla þing saman þegar
í stað ? Ætlar þjóðin og fulltrúar hennar
og fulltrúar konungs að beygja sig undir
þrældómsok Nerós? Ætlar hún og þeir
að kyssa á vönd Calicule ? Ætlar hún
og þeir að vera flugur Domitians ? — Já,
svona spyrja menn, og mér finst það í
alla staði afsakanlegt.
Hugleiðmg um farmtoim o.fl.
Eftir Stefán B. Jónsson.
Mikið tala menn um það nú, að auka
tekjur landssjóðssins með breyttum, og
auknum tolla- og skatta-álögum; tíl þess
fyrst og fremst, að bæta honum líklegan
tekjumissi af aðflutningsbanninu fyrirhug-
aða; og svo til þess, að mæta hinum sí-
vaxandi fjáraustri þings og stjórnar í allar
áttir. — En menn tala minna um það,
hvernig auðið sé, að minka eða takmarka
útgjöld tandssjóðsitis, rétt eins og að það
sé annaðhvort óþarft eða ómögulegt—-og
þó ættu allir að vita (og jafnvel einnig
þeir sem hæst hafa launin og lægstu út-
gjöldin tiltölulega til hins almenna), að
gjaldþol landsmanna er mjög takmarkað,
og það svo, að því er vissulega nóg boðið
nú þegar, og fátækari hluta fólksíns of-,
boðið í því efni; með fram vegna þess,
hve álögunum er óhentuglega og órétt-
látlega fyrir komið að sumu leyti. Það
virðist því eiga fult eins vel við, að ræða
um og uppgötva, ný og öflug ráð til þess
að auka tekjnr landsmann, svo að hann
geti hæglega risið undir álögunum tij
landssjóðsins og annara almennra þarfa,
sem alt af fara vaxandi, eins og óhjá-
kvæmilegt er.
Þingið og stjórnin ætti- fyrst og fremst
og um fram alt, að uppörfa almenning og
styðja hann öfluglega á allan hátt í því,
að nnka framleiðsluna í lnndinu fyrir það
fyrsta um helming, og svo áfram. — Það
er nndirstaðan — það er, að auka tekjur
almennings; það, og það eitt, er að auka
auðinn 1 landinu, og gjaldþol almennings,
— og þegar það er orðið, þá mun oss
alt annað gott tilleggjast, og þá verður
ánægjulegra og auðveldara en nú, að auka
tekjur landssjóðsins eftir þörfum, með
auknum skatta-álögum; en allra helst þó,
ef fjárráðamönnum þjóðarinnar, lærist
jafnframt, að fara ráðdeildarlegar en nú,
með þann vorn sameiginlega sjóð.
Nú sem stendur, munu gjöldin til lands-
sjóðsins nema um eða yfir 20 kr. á hvert
mannsbarn í landinu, árlega. Auk þess,
hvíla á almenningi, líklega alt að því önn-
ur eins gjöld, til annara sameiginlegra
þarfa innan héraðanna, auk þungra vaxta
og afborgana af einka-skuldum fólksins,
sem nema miljónum. Og þó að þau gjöld
séu ekki hærri, á mann, en gerist sum-
staðar erlendis meðal velmegandi þjóða,
þá eru þau þó einmitt tilfinnanlega há
orðin hér, samanborin við þjóðarauðinn í
heild sinni, og það er aðal-atriðið.
Engu að slður er það mikilsvert um-
ræðuefni, hvernig auðið sé að jafna álög-
unum niður á almenning, svo að sem
hagfeldlegast og réttlátlegast sé; og þá
einnig hinum r.ýu skatta-álögnm — sem
hinum eldri —, ef að þær hinar nýu eða
fyrirhuguðu skatta-álögur, eru annars ó-
hjákvænfilegar, nú þegar. — En pað parf
að fara varlega i pcer sakir. — Og það
þarf þá jafnframt, að leggja aðal-áhersluna
á aðal-atriðið, það, að efla gjaldþol lands-
manna.
Um farmgjalds-hugmyndina eða faktúru-
tollinn, er það að segja, að hann er efaj
laust eins heppilegur, — með tveimur skil-
yrðum þó —, og flestar aðrar útgjalda-
kvaðir, sem á oss hvíla nú, ef ekki skyn-
samari en þær flestar. En þau 2 skilyrði
eru: 1. Að hann sé svo einfaldur og ó-
brotinn, að komist verði sem mest hjá
sérstakri tollgæslu og innheimtu-kostnaði,
án þess þó að örfa freistinguna til tollsvika,
um fram það, sem nú er. — 2. Að allar
eða flestar þær vörur séu undanskyldar
þeim tolli, sem óhjákvæmilega verður að
flytja til landsins, hvað sem þær kosta og
hvernig sem árar. — Vörur, sem ómögu-
legt er án að vera, og sem land vort hefir
engin, eða ekki hagfeld skilyrði til að
framleiða. Svo sem: Rúg-korn, bygg og
bankabygg, baunir, hafra, haframil, hris-
grjón, hveiti, mais-korn, kaffibaunir, kand-
Issykur, kol, steinolía, salt, baðmeðul, dburð-
arefni, kaðlar, færi, sement, kalk, þakjdrn,
jdrn og stdl í stöngum, gtrðingavír og
stólþar, timbur, ofnar og allskonar vélar.
Þó að allar þessar upptöldu vörur verði
undanskyldar farmtollinum, þá verða þó
eftir til toll-afgjalds alt að 1—200 þúsund
tonn af aðfluttum vörum frá útlöndum,
árlega, upp á alt að 8 miljónir króna,
eftir því sem verið hefir, og er það álit-
legur gjaldstofn. Þó nú svo færi, að þær
tölur lækkuðu um helming, vegna hins
nýa tolls — og sennilega, lækka þær tæp-
lega meira en það, fyrstu árin, enda vafa-
samt, hvort þær mundu fremur lækka en
hækka; — þá samt gæfu þær landssjóði
alt að 600 þús. kr. tekjur árlega, þó að
tollurinn væri ekki yfir segjum 10 aurar
á 100 pund og 10 aurar á krónu. En ef
að það þætti ekki nóg, þá væri auðvitað
hægt, að hafa tollinn hærri, — það væri
líka langtum þolanlegra, þegar allra llfs-
nauðsynlegustu vörurnar væru undan-
skyldar.
Með þessu, að leggja farmtollinn á allar
aðfluttar vörur, að undanskyldum þeim
allrá nauðsynlcgustu, er tvent unnið í einu:
1. Að afla landssjóði tekja, af þeim vörum,
sem að þarflausu og til skaðræðis, eru nú
fluttar inn í landið, fyrir mörg hundruð
þúsunda kr. árlega; — þó að auðvitað sé,
að mikið af þeim vörum, eru að meira
eða minna leyti nauðsynlegar. — 2. Að
styðja að þvf, að draga úr innflutningi
óþarfa varningsins (sé það annars auðið),
og spara með því mikil óþarfa fjárútlát
út úr landinu.
Þegar þvl 'skal svara, hvort að þessi
farmtollur sé sanngjarn, þá kemur það
fyrst til greina, hvernig honum verður
fyrirkomið og það, hverjar vörutegundir
verða undanþegnar. — Og svo vaknar þá
líka sú spurning, eins og ósjálfrátt, hvers-
konar aðrar álögur að séu sanngjarnar.—
Og min skoðun er sú, að yfirleitt séu
engar álögur fullkomlega sanngjarnar,
nema hundraðsgjöld af skuldlausum eign-
um, og nettó arði af atvinnurekstti eða drs-
launatn, að frádregnu nauðsynlegu viður-
væri og öllum öðrum óhjákvæmilegum
kostnaði, — Eða getur nokkur kallað það
sanngjarnt, að beita lagalegri þvingun,
til að taka ögn af hverjum bita frá munn-
inum á fátæklingnnum, sem eru alla daga
að vinna fyrir knöppu viðurværi sínu og
sinna, og neita sér um flest eftirsókt þæg-
indi lífsins, vegna skyldunnar, og hafa þó
lítinn eða engan afgang ? Getur það verið
sanngjarnt, að leggja nokkur gjöld á þann
sem ekkert á, nema máske börn, sem
hann er að reyna að ala upp fyrir þjóð-
félagið, og svo meiri eða minni skuldir,
sem hann sér, ef til vill, lftil eða engin
ráð til að borga? Nei, ekkert getur rétt-
lætt slfka aðferð, þótt hún sé gerð Iögleg
og sé vanaleg; svo lengi. sem nokkur
skuldlaus eign er til 1 þjóðfélaginu. Og
ekkert getur réttlætt sllka aðferð, að þvinga
gjöld út af fólki, undir neinum kringum-
stæðum, nema óhjákvæmileg almtnn nauð_
syn krefji. — Ekkert annað en velferð þess
mannfélags, alment, sem í hlut á, getur
réttlætt slíka takmörkun eignarréttarins,
jafnvel þótt rlkir menn eigi í hlut, hvað
þá gagnvart öreigunum. — Löngun ein-
stakra manna í há laun, um fram sanna
þörf, eða fjárausturs-tilhneiging löggjafanna
eða framkvæmdavaldsins, til að gleðja og
auðga fáeina menn getur engan veginn
réttlætt slfkt ofbeldi.
Að leggja toll á allar lífs-nauðsynlegustu
vörur, sem enginn getur án lifað, álít eg
því með öllu ógerlegt. En verði séð fyrir
því, að frarnantaldar nauðsynjavörur verði
toll-fríar, og því jafnframt, að tollgæslu-
kostnaður eða tollsvik, leiði ekki af farm-
tollinum, þá álít eg, að hann sé fult eins
sanngjarn, í það minsta og nokkur annar
núgildandi tollur á landinu, hvort sem
hann miðast við þyngd að eins, eða bæði
þyngd og verð vörunnar.
* . *
Athugas. Vér getum ekki séð betur, en
að afleiðingin af því, að hafa ýmsar vörur
undanþegnar fármgjaldi eða faktúrugjaldi,
sé sú, að óhjákvæmilegt sé, að hafa toll-
eftirlit; verði það haft, eins og nú
er, að treysta yfirlýsingum kaupmanna
sjálfra, sem undir hælinn er lagt, að ætfð
væru réttar, að minsta kosti er mikil
freisting til þess íyrir þá, að tíunda ekki
sem best. Eftirlit með því, að þeir telji
rétt fram, er ókleyft án tollgæslu. En sé
gjaldið aftur jafnt af öllum vörum virðist
þess ekki freraur þörf en nú. En þá er
farmgjaldið eigi sem réttlátast, er jafnt á
að greiða af kolatonni og farmi af dýrum
silki og gullvarningi. Ritstj.
Mannalát. Nýdáin er húsfreya
Guðfinna Jónsdóttir frá Deild, kona Ólafs
oddvita Björnssonar í Gestshúsum á Álfta-
nesi. Hún dó af barnsförum. Mesta
merkiskona.
Verðlai lír Ræktunarsjóði.
Af vöxtum Ræktunarsjóðsins 1909
veitti stjórnarráðið 6. Október eftirnefnd-
um 49 mönnum þessi verðlaun fyrir
unnar jarðabætur:
200 kr, fékk: Magnús Gfslason,
Frostastöðum, Skagafj.s.
160 kr. fékk: Sigurjón Jónsson, Ós-
landi, sömu sýslu.
126 kr. fékk: Hjálmar Þorgilsson,
Hofi, sömu sýslu.
100 kr. fengu: Þorsteinn Davlðsson,
Arnbjargarlæk, Mýras., Vigdís Jónsdótt-
ir, Deildartungu, Borgfj.s. og Bjarni
Arason, prýtubakka, Þingeyars.
76 kr. fengn: Einar Árnason, Holti,
Skaftafs., Einar Árnason, Miðey, Rang-
árvs., Guðmundur Jónsson, Baugstöðum,
Árness., Eggert Finnsson, Meðalfelli,
Kjósars., Jón Pálsson, Fljótstungu,
Mýras., Jón Guðmundsson, Skarði, Dalas.
Ragúel Olafsson, Guðlaugsvík, Strandas.,
Kristófer Jónsson, Köldukinn Húnavs.
Sigurður Jónsson, Litlu-Seilu (Brautar
holti), SkagaQs,, Stefán Stefánsson, Hlöð-’
um, Eyafjs., og Guttormur Einarsson,
Ósi, sömu sýslu.
60 kr. fengu: Friðrik Björnsson,
Litlu-Hólum, Skaptaf.s., Vigfús Gunn-
arsson, Flögu, sömu sýslu, Bárður Bergs-
son, Eyvindarhólum, Rangárvs., Albert
Á. Eyvindsson, Skipagerði, sömu sýslu,
Jón Bárðarson, Drangshlíðardal, sömu
sýslu, Kristinn Jónsson, Hömrum, Árness.,
Guðjón Finnsson, Reykjanesi, sömu
sýslu, Guðmundur Snorrason, Læk, sömu
sýslu, Gísli Pálsson, Kakkarhjáleigu, sömu
sýslu, Ingvi Þorsteinsson, Snæfoksstöð-
um, sömu sýslu, Jens Pálsson, Görðum,
Gullbrs., Bjargmundur Guðmundsson,
Bakka, sömu sýslu, Jón Halldórsson^
Káranesi, Kjósars., Ólafur Stefánsson,
Kalmanstungu, Mýras., Guðmundur Sig-
urðsson, Helgavatni, sömu sýslu, Sveinn
Torfason, Hafþórsstöðum, sömu sýslu,
Steingrímur Andrrjsson, Gljúfurá, sömu
sýslu, Sigurður Magnússon, Stóra-Fjalli,
sömu sýslu, Þorsteinn Bjarnason, Hurðar-
baki, Borgarfj.s., Sveinn Finsson, Kolls-
stöðum, Dalas., Pétur Hjálmtýsson,
Hörðubóli, sömu sýslu, Guðbrandur Jóns-
son, Spákelsstöðum, sömu sýslu, Sigur-
björn Bergþórsson, Svarfhóli, sömu sýslu,
Andrjes Magnússon.Kolbeinsá, Strandas.,
Björn Guðmundsson, Örlygsstöðum,
Húnavs., Halldór Jóhannsson, Vöglum,
Skagafj.s., Jósafat Guðmundsson, Krossa-
nesi, sömu sýslu, Jóhann Helgason,
Syðra-Laugalandi, Eyafj.s., Jónas Jóns-
son, Lundarbrekku, Þingeyars., Björn
Björnsson, Laufási, sömu sýslu, Gísli
Helgason, Skógargerði, N.-Múlas., og
Gísli Þorvarðsson, Papey, S.-Múlas.
Stúlinn »Gryðja* er án e^a sú
góðtemplarastúkan hér í b»i sem starfar
nú af mestu fjöri og kappi, eru fundir
hennar líka mjög vel sóttir og engin stúka
hefir tekið inn jafnrnarga nýa meðlimi og
hún, enda hefir hún þrefaldað meðlima-
fjölda sinn á yfirstandandi ársfjórðung.
Fundir þar eru skemtilegir, fjörugir og
fræðandi. Þeir er óska að ganga 1 stúk-
una og vilja þar af leiðandi fá upP*ýs"
ingar um hana, geta snúið sér til ritstjóra
þessa blaðs eða starfsmanna stúkunnar.
Fundir á Fimtudagskveldin.
Björn Jónsson. Símað er frá
Höfn 23. þ. m.: „Ráðherra heldur fyrir-
lestra 1 lýðháskólum á Jótlandi. Óskar
samhygðar og brúlagningar mill* Danmerk-
ur og Islands.
Stjórnarblaðið „Riget" krefst af ráðherra
skýringar á framkomu ísafoldar".
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Pétur Zóphóniasson
Prentsmlðjan Gutenberg.