Þjóðólfur - 10.02.1911, Side 1
63. árg
Reykjavík, Föstudaginn 10. Febrúar 1911.
| JV 6.
Stöðulöpin, stjórnarfiokkiirina
Ofl
dr. Jón Porkelsson.
Á fjórða þingmálafundi í Bárubúð 27. f. m.
neitaði i.þingmaður Reykvikinga, dr. Jón
Þorkelsson, harðlega gildi stöðulaganna
fyrir Island.
Hefir þingmaðurinn í þessu atriði breytt
skoðun sinni síðan á alþingi 1909? Eins
og kunnugt er, þá bar hann upp frum-
varp um stofnun hæstaréttar á íslandi.
Meðal annara laga sem frumvarpsflytjandi
(o: dr. J. Þ.) vildi láta afnema með hæsta-
réttarlögum sínum, var I. liður 3. gr. stöðu-
laganna 2. Jan. 1871, sjá Alþtíð. 1909 A. bls.
286, þingskjal 1*4, sbr. B. II, 1619. Það
hefir varla verið tilætlun þingmannsins,
að fara að afnema lög, sem ekki væru í
gildi, og þessvegna hlyíur pingmadurinn
pá að hafa talið að minsta kosti pessa grein
stöðulaganna skuldbindandi fyrir ísland.
í 6. gr. fjárlaga fyrir 1910—ign — en
sjálfstæðisflokkurinn réði auðvitað þeim
eins og öðru á því þingi — stendur svo:
Úr ríkissjóði greiðist 1910 kr. 60,000; 1911
kr. 60,000. Alls kr. 120,000.
Hvar skyldi heimildin vera fyrir þessari
upphæð ?
Hún er í stöðulögunum 1371, 5. gr., og
hvergi annarsstaðar. Þess má geta, að
Björn Jónsson og Skúli Thoroddsen voru
skrifarar og framsögumenn tjárlaganefnd-
arinnar. Þeir hafa þá bygt á stöðulögun-
um, blessaðir.
Og þessa grein fjárlagauna (o: 6. gr.)
samþykti auðvitað allur „sjállstæðisflokkur-
inn", Björn Jónsson, Skúli Thoroddsen,
Jón Þorkelsson, Bjarni frá Vogi, Ben.
Sveinsson o. s. frv.
Og hver er þessi rikitsjóðuri>
Björn Jónsson snýr því svo á dönsku,
að hann kallar þenna ríkissjóð aðeins
„Stat8/f<ww»“.
Það skyldi þó ekki vera, að hann ætti
við, með orðunum rikissjóður og Stat8/ía«<«,
sjóð, sem Danaríki ætti.
Það virðist ennfremur vera gengið út
frá því, að rikil sé eitt, þvf annars hefði
Ifklega verið tekið fram, að það vaeri úr
ríkissjóði Danmerkur, svo það væri auðséð,
að ísland heyrði að minsta kosti ekki
undir petta ríki.
"Sjdlf slœðismcnn“ á þingi 1909 hafa pá
bœðt bygt lagasetningar s'tnar d pví, að rikið
v<zri eitt q. danska ríkið), liklega „Det
samlede danske Jtige", og að stóðulögin, sem
sett voru tslandi af pessu „safnaða danska
ríki“ Vtzru gild d Ulandi.
„FóBtbr©ður“ nefnist fámennasta
söngfélagið hér í bænum. j þv( eru þejr
bræður Pétur bóksali og Jón bankaritari
Halldórssynir og þeir bankaritararnir
H. V. Björnsson og Einar Indriðason. Alt
góðir söngmenn. Þeir héldu söngskemt-
un á Miðvikudagskvöldið í Bárubúð og
sungu mætavel að vanda. Þar var hús-
fyllir.
Þmgmálafundir Eyfirðinga.
Stefán Stefánsson alþm. í Fagraskógi
hélt fimm þingmálafundi í Eyafjarðarsýslu.
1. fundurinn var í Saurbæ 16. Des.
Þar voru samankomnir 20—30 kjósend-
ur. Fundarstj. Bened. Einarsson hreppstj.
á Hálsi.
2. fundurinn var 17. Des. að Þverá í
Staðarbygð. Fundarstj.: Kristj. H. Benja-
mínsson á Tjömum.
3. fundurinn 18. Des. á Möðruvöllum.
Fundarstj.: Kristján Jónsson í Glæsibæ,
skrifari Ludvig Möller Hjalteyri.
4. fundur í Dalvík. Fundarstj.: Sigur-
jón Jónsson læknir.
5. fundur 18. Jan. í Staðartungu. Fund-
arstj.: Guðm. Guðmundsson á Þúfna-
völlum.
Aðalmálin á fundum þessum hafa verið:
1. S a mb a n ds m á 1 i ð.
»Fundurinn skorar á alþingi að sam-
þykkja sambandslagafrumvarp það, er
sambandslaganefndin lagði fyrir sfðasta
alþingi, ásamt breytingum minni hlutans
á því, og lýsir megnri óánægju yfir með-
ferð síðasta alþingis á málinu, og jafn-
framt meðferð ráðherra á því eftir að
;i lauk.
Á I. fundi samþykt 16 móti 2.
- II. — — 14 — IO.
- III. — — 18 — 8.
- IV. — — um 60 — enginn.
- V. — var samþykt í einu hlj.
svohlj. tillaga:
»Fundurinn lýsir óánægju yfir meðferð
meiri hlutans f sambandsmálinu«.
2. Stjórnarskrármálið.
Á 1. fundi var samþykt í e. hlj. svo-
hljóðandl tillaga: »Fundurinn skorar á
alþingi, að samþykkja breytingu á stjórn-
arskránni í lfka átt og lá fyrir sfðasta
alþingi. ;
Á 2. fúndi var óskað þessara breyt-
inga:
a. afnám konungkjörinna þingmanna
með 11 : 9,
b. afnám eftirlauna ráðherra með 11:9,
c. þrjá ráðgjafa með 11 : 9,
d. afnám opinberrar gjaldskyldu sem
skilyrði fyrir kosningarétti 11 : 9,
e. færa kosningarrétt niður í 21 ár með
S '- 4-
Á III. fundi voru liðir a., b. og d, hér
fyr samþ. með 26 samhlj. atkv., en auk
þess
f. að þingmenn séu búsettir í landinu
með 26 samhlj. atkv., og vakin athygli
alþingis á c-lið,
á 4. fundi var samþ. í einu hlj. stjórn-
arskrárbreyting, og á
5. fundi var a og b-liður samþ. og
ennfremur
g. að tryggja þjóð og þingi skjót úr-
ræði gegn hverskonar gerræði stjórnarinn-
ar og
h. að kosningar og kjörgengi til efri
deildar tryggi þjóðinni meiri staðfestu f
málum hennar, en ætla má með einföld-
um kosningum.
3. Bankamál.
»Fundurinn telur aðfarir stjórnarinnar
gegn Landsbanka Islands mjög athuga-
verða stjórnarráðstöfun og frávikning
gæslustjóranna brot á gildandi lögum og
skorar alvarlega á alþingi að rannsaka
þetta mál eftir föngum og koma fram á-
byrgð á hendur ráðherranum fyrir fram-
komu hans f þvf máli.
Á 1. fundi samþ. með 11 atkv. gegn 3,
-2. — — — 15 — — 10,
- 3. — — — 18 - - 8,
- 4. — — — nær öllum atkv.
Á 2. og 3. fundinum var ennfremur
samþ. svohlj. tillaga:
»Fundurinn skorar á alþingi að efla
hag Landsbankans eftir því, sem ráð
verða til, svo hann verði því færari um
að fullnægja þörfum þjóðarinnar*.
4. Skattamál.
Á 1. fundi var samþ., að ráða ekki
skattamálinu til lykta, án þess að þjóð-
inni gefist kostur á að greiða atkv. um
það.
Á 2. fundinum var mælt með verslun-
argjaldi, en mótmælt hækkun á kaffi og
sykurtolli.
Á 3. fundi var borin upp samskonar
tillaga og á 2 fundi, en feld með 21 atkv.
móti 5, en í stað þess samþ., »að skora
á alþingi, að fresta framkvæmd bannlag-
anna, þangað til búið er að bera undir
atkvæði alþingiskjósenda hvern gjaldamáta
þeir vilja aðhyllast, hvort heldur toll á
kaffi og sykri, eða verslunargjald af að-
fluttum vörum. Samþ. 22 atkv. gegn 5.
Á 4. fundi var frestun bannlaganna
feld með 39 atkv. gegn 20, en aðhyltist
verslunargjald.
Á 5. fundi var samþ.: »svo framarlega
sem bannlögin verði ekki numin úr gildi
eða þeim frestað, tjáir fundurinn sig með-
mæltun hækkuðum tolli á þeim tollastofn-
um, sem þegar eru lögboðnir að undan-
skyldum sykri*.
5. Samgöngumál.
a. Nægilegt fé til brúargjörðar á Eya-
fjarðará. Samþ. á 1., 2. og 3. fundi.
b. Nægilegt fé til brúar á Svartaðar-
dalsá. Samþykt á 4. fundi.
c. Framhaldsbraut frá Grund að Saur-
bæ. Samþ. á 1. og 2 fundi.
d. Akvegar-áframhald fram Hörgárdal
að Bægisá. Samþ. á 3. og 5. fundi.
e. Akbrautaráframhald inn Svarfaðar-
dal. Samþ. á 4. fundi.
6. Búnaðarmál.
a. Ýmsar breytingar á girðingalögun-
um. Samþ. 1. fundi.
b. Búnaðarfélagastyrkur verði ekki
lækkaður. Samþ. 1., 2., 3. og 4. fundi.
c. Lagafrumvarp frá síðasta þingi um
ábúð jarða o. frá 12. Jan. 1884 verði
samþykt. Samþ. 1., 2., 3. og 4. fundi.
d. að rjómabúastyrknum verði haldið
áfram. Samþ. á 3. fundi.
7. Ábyrgðarfélög.
»Fundurinn skorar á alþingi að semja
lög um eftirlit af hálfu hins opinbera með
öllum útlendum ábyrgðarfélögum sem
starfa hér á landi, þar sem það sé tekið
fram, að þau hafi hér varnarþing ognægi-
legt tryggingarfé undir umsjón iandstjórn-
arinn og umboðsmenn félaganna verði að
fá leyfi landstjórnarinnar til þess að tak-
ast starfið á hendur.
Samþ. á 1. fundi 12 samhlj. atkv.
— - 2. — með öllum atkv.
8. Afnám eftirlauna.
»Fundurinn skorar á alþingi, að af-
nema öll eftirlaun embættismanna (sér-
staklega eftirlaun ráðherrans)*.
Tillaga þessi var samþ. á fjórum fund-
um, nema »sérstaklega eftirlaun ráðherrat
var aðeins samþ. á 1. og 5. fundi.
9. Bitlingar.
Á. 1. fundi samþykt svohlj. tillaga í
einu hljóði:
»Fundurinn skorar á Alþingi að af-
nema, sem mest öll skáldalaun en veita
stjórninni til umráða fé til verðlauna fyr-
ir sérstök bókmentaleg listaverk eftir mati
þingkosinna mannac,
Tillaga þessi var og samþ, í einu hlj.
á 3. fundi.
10. Berklarannsökun á
nautgripum.
Nauðsynleg var talin berklaveikisrann-
sókn á öllum nautgripum í landinu á
1. 2. fundi.
11. S ó k n a r g j a 1 d a 1 ö gi n.
Þeirra breytinga var óskað á þeim á
2. fundi að vitskertir menn og karlægir
verði undanþegnir gjaldinu.
12. Bannlögin.
Á 1. fundi var það mál ekki tekið
fyrir, álitið óþarft, þar sem um gildandi lög
er að ræða, er eiga að koma 1 fram-
kvæmd.
Á 2. fundi var samþ. að halda fast
við gerðir síðasta þings 1 því máli með
13 atkv. gegn 5.
Á. 3. fundi var undir skattamálum
óskað frestunar með 22. atkv. gegn 5.
Á 4. fundi var samþ. að halda fast við
gerðir síðasta þings með 39 móti 20, og
16 kjósendur er eigi gátu mætt á fund-
inum sendu til fundarins skriflega yfirlýs-
ing og áskorun um að bannlögunum
yrði ekki frestað. Þar eru því 55 : 20.
Á 5. fundi var frestun samþ. með 9
atkvæðum.
í allri sýslunni hafa því 73 greitt atkv.
með lögunum en 56 á móti.
13. Stjórnarráðstafanir,
Á 5. fundinum var samþ. 1 einu hlj.
svohlj. tillaga:
>Fundurinn skorar á næsta alþingi að
skipa þingnefnd, til að rannsaka aðgerðir
stjórnarinnar í landsbankamálinu, Thore-
samninginn, lántökuna í útlöndum, leigu
silfurbergsnámanna sem og alt annað er
að fjárstjórn stjórnarinnar lýtur er orkað
hefir tvfmælisc.
Viðaukatillaga: »Fundurinn krefst
fullrar uppreisnar fyrir hina ólöglega af- •
settu gæslustjórac og var tillaga þessi
Ifka samþykt.
Slys. Nýlega datt Sigurður bóndi
Sigurðsson á Húnsstöðum í Húnaþingi af
hestbaki og meiddist svo, að hann beið
bana af. Sigurður var duglegur bóndi og
fékst eitthvað við sveitarmál.