Þjóðólfur - 25.08.1911, Síða 1

Þjóðólfur - 25.08.1911, Síða 1
Þ JOÐOLFUR. 63. árg. Reykjavík, Föstudaginn 25. ágúst 1911. Jti 32. Mcð þessu blaði tek jeg við rit- stjórn y>Pjóðólfs«. Jeg mun gera mjer far um að hafa efni blaðsins svo fjölbrcytt og pólitiska stefnu þess svo fasta, sem mjer er unt. Jeg vona, að kaupendur hins gamla blaðs haldi sömu irygð við það og hingað til. jírni Pálsson. flokkaskijtingin við nzstu kosningar. Þess tjáir ekki að dyljast, að það verður sambandsmálið, sem verður efst á baugi í huga þjóðarinnEr við kosn- ingar þær, sem fram eiga að fara í haust. Flokkarnir munu skiftast eftir afstöðu þeirra til þess máls, bæði við kosningarnar og eftir þær. Raddir hafa þó heyrst í þá átt, að svo ætti ekki að vera. Þjóðin ætti við kosningarnar að segja skoðun sína um stjórnarskrá þá, sem samþykt var á síðasta þingi. Og satt er það, að það sætir kynjum og sýnir betur en flest annað, hve óholt og öfugsnúið alt pólitiskt ástand þessa lands er nú, að skoðanir manna um þau stórvægilegu nýmæii, sem voru gjörð í grundvall- arlögum landsins á síðasta þingi, ráða að öllum líkindum engu um skifting flokkanna. Þetta er þó ekkert nýtt, því að svo hefur verið frá því er al- þingi hófst að nýju. Alla þá stund hefur þetta eina stórmál gnæft yfir öll önnur málefni þessarar þjóðar, staðið þeim í ljósi eða kasað þau undir sjer. Það er verk meiri hluta þess, sem skapaðist við kosningarnar 1908, að svo hlýtur enn að vera, eng- inn veit hvað lengi. 1908 verður sjálfsagt á ókomnum tímum talið eitt hið stórmerkasta ár- tal í sögu hinnar íslensku þjóðar. Eftir langa og stranga baráttu, sem að vísu á stundum hafði gengið nokkuð skrykkj- ótt, en þó svo, að venjulegast höfðu menn haldið nokkurn veginn rjettu horfi, var þjóðin komin að langþreyðu takmarki: hún gat iOSað öll sjermál sín undan valdi sambandsþjóðarinnar, flutt hið æðsta dómsvald inn í landið og lagt traustan lagagrundvöll undir sambandið við Danmörku. Þjóðin fjekk ennfremur vissu um að geta faert út valdsvið sitt eftir ákveðið tímabil, svo að þá urðu ekki nema tvö mál eftir á valdi sambandsþjóðarinnar, ut- anríkismál og hermál,— mál, sem alt fram að þeim degi tæpast höfðu verið nefnd á nafn í allri baráttu íslendinga um endurbaett samband. Enginn hefur enn þá færst f fang að neita því, að með þessu hafi verið fullnægt öllum þeim kröfum, sem alt fram að þeim tíma höfðu komið fram af hálfu íslendinga. Jón Sigurðsson var aldrei svo kröfuharður sem frum- varpið. Frumvörp hans gengu aldrei eins Iangt; og þess mætti færa mý- mörg dæmi úr ritgjörðum hans, — eins og dr. Valtýr Guðmundsson nýlega hefur gjört í Eimreiðinni — að hann hugsaði aldrei svo hátt- Frumvarps- fjendurnir, sem eftir mætti hafa reynt að hafa nafn hans að skildi fyrir hinni gálausu ogvitsneyddu ærslapólitík sinni, hafa þó orðið að játa, að Jón Sigurðs- son hafi aldrei fylgt sömu stefnu og þeir. Enda er vandalítið að sýna og sanna, að hann veitti jafnan slíkum ærslum og uppþotum hina ótvíræðustu mótstöðu, hvenær sem á þeim bólaði um hans daga. Svo gjörði hann á Þingvallafundinum 1873. En til þess að geta þó flaggað með nafni hans, hafa frumvarpsfjendur brugðið því orðskröki við, að ef Jón Sigurðsson væri nú uppi, þá mundi hann fylla þeirra flokk. Staðhæfingin er talsvert djarfleg! Alt lffsstarf mannsins mælir á móti því, öll orð hans og gjörðir benda í þveröfuga átt. Enda er það líkast illum draumi, að hugsa sjer Jón Sigurðsson sem pólitiskan stallbróður „sjálfstæðis‘‘-hertoganna. Hamingjan hjálpi þeim lýð, sem slíku trúir! Það mun því jafnan standa sem ó- hrakinn og óhrekjanlegur sannleikur, að 1908 brást íslenska þjóðin hinni sögulegu stefnu sinni í sambandsmál- inu. Flokkurinn, sem þá settist að völdum, hafði hrint þjóðinni út af þeirri braut, sem hún þangað til hafði gengið. En hvað hefur nú flokkurinn komist áleiðis síðan, og hvert stefnir hann núf í kosningahríðinni miklu 1908 var það eitt hið skæðasta vopn „sjálf- stæðis"-manna, að nefndarmennirnir íslensku hefðu verið linir í sóknum í viðureigninni við Dani, að ná hefði mátt fyllri rjetti íslandi til handa, ef rösklegar hefði verið gengið að Dön- um. Þjóðin veitti þeim óvænt tæki- færi til þess að standa við orð sín. En hvernig hefur þeim tekist þaðf Jú, þeir hafa unnið það þrekvirki, að samþykkja á alþingi sambandslaga- frumvarp, þar sem haldið er fram öll- um hinum ýtrustu kröfum flokksins. Og það er í augum flokksins hjálp- ræðið sjálft, að halda fram hinum ýtrustu kr'ófum, — hitt skiftir minnu, þótt engin von sje til að koma þeim í framkvæmd. Þegar svo frumvarpið kom til Danmerkur, þá leit enginn maður þar í landi við því. Hvorki stjórn nje þing sinti því, fremur en þótt hundur hefði gelt. Og ráðherra flokksins mátti sanna það um seinan, að Danir „glúpna ekki fyrir sjónunum einum saman". Hvað sem segja má um þessa að- ferð Dana, þá er hitt víst, að öll fram- koma sjálfstæðisflokksins í þessu máli hefur verið eitt einasta gönuhlaup frá upphafi til enda. Þeir höfðu borið þær sakir á landa sína, nefndarmennina ís- lensku, að þeir hefðu rekið erindi ís- lands slælega í millilandaneindinni. Reynslan hefur sýnt, að þeir hafa ekki getað þokað málinu einu þverfeti lengra áleiðis, þrátt fyrir hinn óvænta og óvenjulega stóra sigur, sem þeir unnu við síðustu kosningar. Þeir þóttust a;tla að afla íslandi fyllri rjettar, skipa þjóðinni í hærri sess gagnvart sam- bandsþjóðinni, heldur en frumvarp nefndarinnar gerði ráð fyrir. Þeir hafa unnið það eitt á, að þeir hafa gefið stjórnarvöldunum og ríkisdegin- um í Danmörku tækifæri til þess að sýna alþingi þá fáheyrðu fyrirlitningu, að taka ekki einu sinni til umræðu það sambandslagafrumvarp, sem mikill meiri hluti alþingis hafði saroþykt. Og þann vansa hafa þeir — og auð- vitað öll íslenska þjóðin með þeim — orðið að þola bótalaust. Enda var ekki við öðru að búast, þegar kastað var fyrir borð þeirri hinni sjálfsögðu hyggindareglu hverrar lítillar þjóðar, sem á í höggi við stærri þjóð, að fara aldrei lengra en hún kemst og treysta aldrei á ysta hlunn. Nú hefur það eitt áunnist, að fullkomið úrræða- leysi íslands og máttleysi gagnvart Danmörku hefur orðið lýðum ljóst. Þetta eru þá afrek flokksins í sam- bandsmálinu, að hafa siglt því strand, og mætti ætla, að það lægi svo í augum uppi, að ekki fyndist ein einasta sauðkind í landinu, sem bæri brigður á það. En auðvitað hafa „sjálfstæðis‘‘-leiðtogarnir ekki vilj- að gangast við því. Sumir þeirra hafa snúist á móti foringja sínum, Birni Jónssyni, og kent honum um alt saman. Það er vissulega ekki hlut- verk þessa blaðs að verja pólítíska framkomu þess manns. En það er þó ekki nema sjálfsögð sanngirni að viðurkenna það, að skipbrot sam- bandsmálsins var ekkert aftnað en bein og fyrirsjáanleg afleiðing af pólitík „sjálfstæðis“-flokksins, en orsakaðist alls ekki af handvömm eða slælegri framgöngu Björns Jónssonar. Hann bar sjálfur og manna mest ábyrgð á allri þeirri pólitík, og að því leyti má segja, að hann hafi fengið makleg málagjöld. En hitt má ekki gleymast, að það hefði staðið nákvæmlega á sama, hvern af leiðtogum sínum „sjálf- stæðis" flokkurinn hefði sent til Dan- merkur með sambandslagafrumvarp sitt. Málið var fyrirfram dauðadæmt, ósigurinn viss og fyrirsjáanlegur. En hvað mun þá flokkurinn ætla fyrir sjer? Sjer hann nokkurn veg út úr ógöngunum, sem hann hefur leitt þjóðina út í? Mönnum hefur helst getað skilist, að það sje áform flokks- ins að samþykkja sambandslagafrum- varp sitt í annað sinn, fá þjóðina í annað sinn tíl þess að rjetta fram kinnina undir löðrunginn. Bæði sjálf- stæðis“-menn og aðrir vita auðvitað, að vonlaust er um allan árangur af slíkri pólitík. En hvað um gildir, — flokkurinn er þó ekki með öllu iðju- laus meðan hann heldur áfram að samþykkja frumvarp sitt, þótt dauða- dæmt sje fyrir fram, og hann hefur þegar fengið nokkra reynslu um það, að þolinmæði kjósendanna er mikil. Inn á við mun flokkurinn halda upp- teknum hætti um það, að lýsa land- ráðasökum á hendur öllum þeim mönn- um, sem halda fram hinni sögulegu stefnu íslands í sambandsmálinu. „Inn- limunarmenn" eru þeir nú allir orðn- ir, „danskir íslendingar" og „Dana þý“. Það tjáir víst ekki að fást um það við flokkinn, hvað þrælsleg bar- dagaaðferð þetta er. Hitt ættu „sjálf- stæðis“ menn að geta sjeð, að það er íslensku þjóðinni enginn virðingarauki og enginn styrkur fyrir þá, sem þykj- ast vera að berjast fyrir frelsi og sæmd landsins, að sú skoðun sje breidd út, að landið sje fult af föður- landssvikurum. Og það bætir ekki úr skák, þótt það sje lýðum ljóst, að þessi sakargift er ekki annað en ó- skammfeilnisleg kosningarlýgi. Það mun jafnan verða virt þjóðinni til smánar, að menn hafa getað beitt slíkum vopnum með góðum árangri. Hjer skal ekki að þessu sinni minst á afrek flokksins í öðrum málum. Það mun vera næstum því einmælt, einnig meðal „sjálfstæðis“-manna, að sjaldan hafi nokkur flokkur farið ver með völd sín en „sjálfstæðis“-flokkur- inn síðan hann settist við stýrið. Og samlyndið innan flokksins hefur verið eftir því. Það var mælt á síðasta þingi, að í flokknum fyndist enginn maður sem ekki fyrirliti alla hina. Sjálfsagt hefur þetta verið talsvert orðum aukið. En víst er það, að illa höfðu þeir klórað hvor annan, sumir vinirnir, um þær mundir, er þingi sleit. Því hefur verið haldið fram af ein- staka frumvarpsmanni, að rjett væri, að hreyfa ekki við sambandsmálinu um hríð og helst aið taka það með öllu út af dagskrá í nokkur ár. En þó að nú allir frumvarpsmenn væru ásáttir um þetta, þá mundi það samt ekki heppnast og ber margt til þess. í fyrsta lagi má „sjálfstæðis‘‘-flokkurinn með engu móti missa af þessu máli. Frægðarverkið mikla, dráp frumvarps- ins og hræðslan um það, að trum- varpsmönnum muni takast að koma aftur vitinu fyrir þjóðina, er hið eina band, sem heldur flokknum saman. Þótt frumvarpsmenn væru alráðnir í' því, að láta málið eiga sig, mundu „sjálfstæðis‘‘menn því ekki linna látum um það að telja þjóðinni trú um, að meiningin væri að ginna hana í gildr- una, „smeygja fumvarpinu yfir land- ið“ 0. s. frv. í öðru lagi gætu frum* varpsmenn, þótt þeir ef til vill aföðr- um ástæðum vildu hafa vopnahlje um stund, ekki setið rólegir yfir því, að sá flokkur fylkti liði inn á þing, sem ráðinn er í því að spilla öllum þeim umbótum á sambandinu, sem fram- kvæmanlegar eru. Og loks er rjett- arstaða íslands gagnvart Danmörku, eins og hún er nú, svo viðsjárverð og hættuleg, að enginn góður íslending- ur ætti að geta hugsað til þess að halda landinu í slíku ástandi stundinni lengur, ef svo kynni að vera, sem þó er allsendis óvist, að sú stórkostlega rjettarbót, sem oss stóð til boða 1908, væri ennþá fáanleg Alt ber því að einum brunni um það, að sambandsmálið verður eins hjer eftir eins og hingað til höfuð- málið á dagskrá þjóðarinnar. Það er einhuga og ákveðinn vilji allra frum- varpsmanna, að ráða málinu aldrei til lyktá án þess að þjóðaratkvœðis hafi venð lettað mn það' Og um það eru þeir væntanlega einnig sammála, að ekkert hlje eigi að verða á baráttunni, ekkert hvik undan merkjum, fyr en Þorkell hákur hefur sest niður og slíðr- að brauðhnífinn.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.