Þjóðólfur - 26.01.1912, Side 4

Þjóðólfur - 26.01.1912, Side 4
12 ÞJOÐOLFUR. hafði hann staf í hendi og poka við hlið og greip bóndi það hvorttveggja og hljóp til Bústaða, þar hann bjó. Vaknar þá komutnaður og elti hann. Kallaði bóndi þá til konu sinnar og bað hana senda skyldi meystelpu, er hjá henni var, gegn- um reykháf á eldhúsi til Reykjavíkur, að vara bókhaldara, að láta bregða við sem skjótast, því að mjög litist sjer illa á gest þann, er til sín væri kominn. Snerist nú bóndi við í bæjardyrunnm og hafði járn í hendi. Bar þá komumann skjótt að og var það Arnes og krafðist stafs síns og poka, en bóndi vildi ekki laust láta og kvað hann ganga skyldu eftir því 1 dyrin. Arnes var trauður til þess, en gekk þó inn og hjelt þá í heitingum með þeim; ljet þá bóndi færa Arnesi mjólk heita og það þáði hann. Neytti bóndi ýmsra bragða að tefja fyrir gesti sfnum, er nú gekk í þungu skapi út og inn um dyrnar og skygndist eftir komumönnum. Hafði þá bóndi sett jarnið um þverar dyrnar og var fyrir innan, en er Arnes leiddist þóf þetta, hljóp hann að járninu og greip það, snaraðist að bónda og slengdi honum fiötum í göngin, tók staf sinn og poka og stökk af bænum yfir á Digranesháls; hafði hann þá sjeð manna- förina úr Reykjavlk innan til á Eskihlíð og inn með Bústaðaholti. Sneri þá bóndi að ánum og voru Víkurmenn þar jafn- snemma komnir; þóttu þeim árnar ófær- ar yfirferðar, voru þeir og gangandi, en bóndi benti þangað í átt, er gestur hans hafði hlaupið. Sneru þeir þá eftir hon- um upp með ánum, en Arnes hafði hlaupið hið efra yfir þær. Snær var fall- inn og mátti gjörla sjá mannaförin, runnu þeir þá eftir honum og voru 30 saman, flest vefarar úr Reykjavfk. Sneri Arnes þá við aftur og hvarf þeim, en þeir fengu rakið spor hans að Hofstöðum; hljóp hann þá af bænum yfir Vífilstaði eður Hraunlæk í Garðahraun; gæuðu þeir þá eftir honum, stiklaði Arnes þá á hraun- strítum einum, svo að ógjörla sáust spor hans. Skildi þá nótt með þeim, og falst hann í hrauninu. Voru þá menn sendir til Hafnarfjarðar, um Álftanes og Garða- hverfi og skipuðust menn í kring um hraunið úm nóttina, þvl eigi átti til að sleppa. Leituðu þeir hans og dag allan eftir, en urðu einskis varir og hurfu við það heim. — Var þá bóndi á Hofsstöð- um og kona hans grunuð um bjargir við Arnes, svo þau voru tekin og meðkend- ust það, að þau hefðu haldið hann um 2 eða 3 vetur á laun, soðið fyrir hann og veitt annan styrk, og sættu fyrir það þungu dómsáfelli Guðmundar sýslumanns Runólfssonar, Jónssonar frá Höfðabrekku, er þá hafði Gullbringusýslu, svo sagt er þau yrðu fyrir fjesekt mikilli. — Víða voru þá stuldir miklir syðra og var það kent útileguþjófum. I I Nýjar Kvöldvökur Fást í bókaverslun Sig. Jónssonar I Kunsten til Folket. Uden Kunst — intet Hí 010. Et virkelig enestaaende Tilfælde, for en Ringe Sum at anskaffe sig flere værdifulde kunstværker nf de mest fremragende Kunst- nere tilbydes herved af Svenska Konstförlaget, som ved fordelagtigt Indköb paa Konkursauktion har erhvervet fölgende Billeder: „Midsommardans", Maleri af Anders Zorn, „Hafsörnar ", Maleri af Bruno Liljefors, „En hjaltes Död “, Maleri af Nils Forsberg, „Efter Snöstormen, Maleri af Johan Tirén (den nylig afdöde Kunstner). Alle disse Billeder findas ellers i Nationnlmuseet i Stockholm. „Pansarfar- tyget Áran", Akvarel af Kaptajn Erik Högg, „Valborgsmðsso- afton“ af C. Schnbert, „Kárlek i skottkarra" af W. Strntt, „Namnsdagsbordot" af Fanny Brate, „Segeltur" af Carl Larsson, „Svenska kronprinsparet', fint udfört eftir Fotografi, samt S Stk. kunstneriske Jui- og Nytaarskort. Zorns Billede er 670X460 mm. stort, de andre ere 470X3 5° mm. Den samlede Pris for alle disse kunstværker en meget höj, men vi vil for et kort Tidsrum sælge den til kun kr, 2,50, Fragt og Toldfrit imed Forudbetaling. Mod Efterkrav maa 1 Krone fölge med Ordren. Obs.í Opgiv tydelig Navn og Adresse. Frimærker modtages ogsaa. Forsöm ikke dette absolnt euestaacnde Tilfælde +.11 at pryde Deres Hjem, eller til at kobe en pragtfuld men alligevel billig Jnlegave I!!j Skriv i dag til Svenska Konstförlaget. Stockholm 7, Sverige. Tóbaksbúðin JlKIMIR", Laugaveg 5. Vjer höfum stærst úrval! Vjer seljum ódýrast: Vindla, Vindlinga, Munntóbak, Neftóbak, Reyktóbak. Munið, að lang-bestu tó- bakskaupin gerast á Lau^ave^ 5. Carl íárnsson. 11 ■ 11 PrenUmiðjan Gutenberg. Fatnaöir fyrir fullorðna og börn, reiðjakkar og yfirfrakkar af öllum stærðum, seljast óvana- lega ódýrt, einnig sjerstakar bux- ur, jakkar og vesti. Sturla Jónsson, I í jarveru lierra Jons Lax- dals eru þeir, sem skulda fyrir Pjóöóif, beönir að snua sjer til Karls JViknlássouar. sem er aö hitta á Smiðjn- Stígr 13, eöa á skrifstofu Steinolíufj elagsins. JB^~Heiðraðir kaupendur blaðs- ins Qær og nær, sem kunna að hafa fengið — eða fá blaðið fram- vegis — með vanskilnm, eru vin- samlegast beðnir að tilkynna af- greiðslnmanni sem fyrst hvaða tölnblað þá vantar, og skal þá bætt úr því svo fljótt sem nnt er. Alt fyrir Ixálft verð. Biðjið um vora stóru, eftirtektaverðu Verðskrá með c. iooö myndum. Sendist ókeypts án kaupskyldu. Mesta úrval á Norðurlöndum af úrum, hljóðfærum, gull- og silfurvörum, glysvarningi, veiðivopnum, hjólhestum o. fl. Nordlsk Vareimport, Kobenhavn N. Ritstjóra „Pjóðólfs“ er að hitta í Bergstaðastrœti 9 Hittist venjulega heima kl. 6-7 e. h. TalSími 172. 69 spurningum hennar út í hött, og með því hún var fyrir löngu vaxin móður sinni yfir höfuð, þorði hún ekki að ganga á hana. En áður en hún gekk til hvílu, las hún enn einu sinni brjef það, sem frú Knudsen hafði sent henni. Lítill bögg- ull með slitnum fötum, óhæfilegum til notkunar, fylgdi brjefinu; og innihald brjefsins sjálfs voru áminningar og jafnvel ávítur. Mágkonan sagði það vera heimskulegt að láta Matthildi fullnuma sig í sönglistinni, og spurði hvort þau ætluðu að gjörspilla stúlk- unni. Þetta voru þungbær orð fyrir hina þjökuðu móður. Frú Knudsen hafði þó ef til vill rjett fyrir sjer í þessu efni. Það var áreiðanlega skynsam- legast fyrir Hildu að fara burt úr bænum um stundarsakir. En hún þóttist viss um, að hvorki hún nje faðir hennar væru því samþykk. Og þó virtist henni þetta eini vegurinn til að freisa veslings barnið hennar, sem ef til vill var umkringt af alls konar 70 hættum. Eftir að hafa beðist fyrir, heitt ög innilega, sofnað veslings móðirin. V. Fjelögum Alberts Trott þótti hann mjög umbreyttur. Ymist var hann skapillur og uppstökkur, eða kátur og skemtilegur, eins og í gamla daga. Menn hristu höfuðið, þegar þeir sáu hann, en gátu ekki skilið hann. En öllum var vel til hans, því hann var ágætur fjelagi. „Hann hlýtur að vera ástfanginn", sögðu menn, og sumir vissu jafnvel hver hún var, sem hlut átti að máli. Albert Trott, sem hingað til hafði aldrei um neitt alvarlegt hugsað, braut nú heilann um ýmsar fyrirætl- anir. Nokkrar vikur liðu, og mr. White ljet ekki sjá sig. Albert spurðist fyrir um hann á veitingahúsinu, en það var árangurslaust. Það var komið fram í marsmánuð. Þau Matthildur hittust mjög sjaldan, 7i en skrifuðu hvert öðru því oftar. Að lokum skrifaði Albert henni, að bróð- sinn væri kominn heim. Nú urðu þau aftur að taka ráð sín saman. Hans vildi sjá hana og tala við hana áður en málið yrði útkljáð. Þau urðu því að hittast aftur f her- bereinu við skemtigarðinn. Matthildur hugsaði sig um. Hún hafði með sjálfri sjer lofað því, að hún skyldi ekki framar gera neitt, sem meitt gæti mannorð hennar. En hún mátti til að sjá Hans og tala við hann, manninn, sem ætlaði að hjálpa henni. Hana langaði til að trúa móð- ur sinni fyrir leyndarmáli sínu, en hún fann, að það var gagnslaust. Móðir hennar mundl ekki leyfa henni að leggja út í slíka hættuför, og því sfð- ur mundi hún nokkuð hjálpa. Svo ásetti hún sjer að halda leiðar sinnar ein, og samþykti því stefnumót þetta. Hún huldi andlit sitt með þykkri blæju og fór af stað með hálfum huga, 72 en þó reiðubúin til að taka hverju því, sem að höndum bæri. Albert faðmaði hana að sjer og sagði henni nýjung, sem kom henni mjög á óvart. Frændi hans hafði gert honum heimboð hinn fjórtánda dag marsmánaðar, og hann hafði ekki minstu hugmynd um, hvað undir bjó. Þetta atvik hlaut að vera mjög heppi- legt fyrir þau, því nú gat hann kynt sjer ástæðurnar, og ef til vill —". „Um fram alt verður að vinda bráð- an bug að þessu", greip Hans fram í. Amerfkumaðurinn horfði rannsókn- araugum á stúlkuna; sem átti að tefla svo djarft. í raun og veru hafði hann ekki ætlað sjer að halda erfðarjetti sínum fram. Hann gat ekki unað sjer í Evrópu til lengdar; honum fanst hann ekki eiga þar heima. Hann hafði aðeins eina ósk — hann vildi ennþá einu sinni ganga fyrir Jobst gamla, sýna honum, að hann væri heill og hraustur og gæti hefnt sín á honum. Þvf það hlaut að vera

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.