Þjóðólfur - 30.07.1918, Page 3
ÞJÓÐÓLFUR
79
Athugasemdir við framanskráð frumvarp.
Um frumvarpið alment láta dönsku nefndarmennirnir þessa getið:
Dansk-íslenzka nefndin frá 1907 segir í áliti sínu, dagsettu 14. mai
1908, að með samþykt þeirrar stjórnarskipunar, sem nefndin stakk
upp á, mundi ríkisréttarsamband Danmerkur og íslands verða alger-
lega annað en lögin frá 2. janúar 1871 gera ráð fyrir: »í stað þess
að skipað var fyrir um það einhliða með dönskum lögum að eins,
þá verður sambandið framvegis bygt á samhljóða lögum, sem sett eru
eftir samningi beggja aðilja og samþykt af löggjafarvöldum beggja
landa«. ísland mundi samkvæmt þessu vera frjálst og sjálfstætt land,
er. eigi yrði af hendi látið, í sambandi við Danmörku um einn og
sama konung og um þau mál, er talin eru sameiginleg í frumvarpi
nefndarinnar, og þannig eins og Danmörk sérstakt ríki með fullræði
yfir öllum málum sínum, nema að því leyti sem beint er ákveðið, að
þau skuli sameiginleg.
Sameiginleg mál skyldu vera þessi: Konungsmata og gjöld til kon-
ungsættar, utanríkismálefni, hervarnir ásamt gunnfána, gæzla fiski-
veiðaréttar, fæðingjaréttur, peningaslátta, hæstiréttur, kaupfáninn út á
við. Að 25 árum liðnum gátu ríkisþing og alþingi krafist endurskoð-
unar. Ef hún yrði árangurslaus, gat hvor aðili krafist, að sambandinu
yrði slitið um öll þau mál, er að framan greinir, að undanskildum
þrem hinum fyrstnefndu.
Frumvarp það sem hér liggur fyrir fer í sömu stefnu sem ætlast
var til samkvæmt því, er að framan greinir, að frumvarpið frá 1908
færi, og leitast við að marka hana enn skýrar til þess að koma í veg
fyrir nokkurt tilefni til ágreinings framvegis. Samkvæmt þessu frum-
varpi eru Danmörk og Island jafn rétthá, frjáls og fullvalda ríki, í
sambandi um einn og sama konung og um samning gerðan af frjáls-
um vilja beggja.
Þessi samningur fjallar um sömu mál sem frumvarpið frá 1908
með þessum undantekningum: Greiðslur og ríkisfé til konungs og ætt-
manna hans ákveður hvort ríkið fyrir sig (5. gr.); ísland hefir eiginn
kaupfána, einnig út á við; umtal um sameiginleg hermál er fallið
burt, með því að ísland hefir engin hermál og ekki heldur gunn-
fána (19. gr.)
Að því er snertir endurskoðun samningsins og uppsögn, ef til kem-
ur, eru settir nokkru styttri frestir heldur en í frumvarpinu frá 1908,
en jafnframt eru þau skilyrði sett fyrir samningsslitum, að ályktun
um það sé samþykt í öðru hvoru landinu með tilteknum meiri hluta
atkvæða bæði af löggjafarþinginu og við atkvæðagreiðslu meðal kjós-
enda (18. gr.).
íslenzku nefndarmennirnir óska að taka fram það, er hér segir:
f upphafi var það uppástunga íslenzku nefndarmannanna, að gerð-
ur væri sérstakur sáttmáli um konungssambandið og önnur grund-
vallaratriði um samband landanna, íslands og Danmerkur. En síðan
skyldi annar samningur gerður um önnur mál, er sæta kynnu sam-
eiginlegri meðferð eða varða kynnu ríkin bæði á annan hátt. Dönsku
nefndarmennirnir töldu ríkisþing Dana eigi geta haft aðra aðferð, er
það samþykti ákvæðin um samband landanna en þá, er lög væru
samþykt. Það var allri nefndinni ljóst, að það væri aukaatriði, hvaða
aðferð höfð væri um samþykt sambandsákvæðanna. Hvor aðili færi
með það eftir ákvæðum sinna stjórnskipunarlaga og þingskapa. Svo
var og báðum nefndunum ljóst, að það væri einnig aukaatriði, í
hvaða form sambandsákvæðin væru búin, hvort þau væru heldur í
einu eða tvennu lagi, því að form ríkjasamninga er hvergi föstum
reglum bundið. Alt veltur á efninu. Á því telja nefndirnar engan vafa
vera. Sambandsákvæði þau, er hér greinir, verða til fyrir samkomu-
lag, þar sem tveir jafnréttháir aðiljar semja um ákveðið samband sín
á meðal og báðir binda sig aðeins samkvæmt sjálfs sín vilja og eru
af engu öðru valdi til þess knúðir.
Samkvæmt þessu hafa íslenzku nefndarmennirnir eigi heldur talið
það máli skifta, þó að sambandsákvæðin væru nefnd »SambandsIög«
á íslenzku og »Forbundslov« á dönsku, enda þar fyrir auðsætt, að
efni þeirra, að undanteknu konungssambandinu, byggist á samningi,
sem og er viðurkent í 1. og 18. gr.
Nefndirnar báðar láta það um mælt, er hjer segir, um einstök at-
riði frumvarpsins:
Um 6. gr. — Sjálfstæði landanna hefir í för með sér sjálfstæðan
ríkisborgararétt. Þess vegna er af Dana hálfu lögð áherzla á, að ský-
laust sé ákveðið, að öll ríkisborgararéttindi séu algerlega gagnkvæm
án nokkurs fyrirvara eða afdráttar. Af þessari gagnkvæmni leiðir það,
að afnema verður allar þær takmarkanir, sem nú eiga sér stað á fullu
gagnkvæmu jafnrétti (svo sem mismun þann á kostningarrétti, sem
kemur fram í 10. gr. stjórnarskipunarlaga íslands frá 19. júní 1915).
Með því að hvort landið fyrir sig veitir ríkisborgararétt (fæðingja-
reft), sem einnig hefir verkanir í hinu landinu — en sú skipun er
svipuð því, sem nefndarfrumvarpið frá 1908 kveður á um í því efni
er gert ráð fyrir, að fyrirmælin um það, hvernig menn öðlast og
missa ríkisborgararétt, verði sem áður innbyrðis samræm í báðum
löndunum.
Að því er sérstaklega snertir hinn gagnkvæma rétt til fiskiveiða í
landhelgi, hefir því verið haldið fram af hálfu íslendinga, að eins og
ástatt er, sé þessi réttur meira virði fyrir Dani en íslendinga. Það
hefir því komið fram ósk um, að íslendingum veitist kostur á að
stunda fiskiveiðar í landhelgi Grænlands. Þetta getur ekki orðið með-
an stjórn Grænlands er með þeim hætti sem nú, en það er einsætt,
að ef dönskum ríkisborgurum verður að meira eða minna leyti veitt-
ur kostur á að stunda fiskiveiðar í landhelgi Grænlands, þá munu
íslenzkir ríkisborgarar einnig verða sama réttar aðnjótandi.
Um 7. gr. — Enda þótt danska utanríkisstjórnin, sem fer með ut-
anríkismál íslands í þess umboði, hljóti að vera ein, undir einni yfir-
stjórn, til þess að girða fyrir gagnstæðar ályktanir og framkvæmdir,
hafa þó verið sett ákvæði til þess að tryggja það, að utanríkisstjórnin
eigi við meðferð íslenzkra mála kost á nægilegri sérþekkingu bæði í
utanríkisstjórnarráðinu og við sendisveitirnar og ræðismannaembættin.
Til þess að þessi ákvæði geti komist í fulla framkvæmd er þess að
vænta, að íslendingar, frekar en verið hefir að undanförnu, sæki um
og fái stöður í utanríkisstjórnarráðinu til þess að afla sér þeirrar
fullkomnunar, sem þörf er á.
Þar sem í frumvarpinu segir, að íslenska stjórnin geti eftir nánara
samkomulagi við utanríkisráðherrann sent sendimenn úr landi til þess
að semja um málefni, sem sérstaklega varða ísland, er þetta ákvæði
ekki því til fyrirstöðu, að þegar sérstaklega brýna nauðsyn ber til, og
ekki æfinlega er unt að ná til utanríkisráðherrans áður, geti íslenzka
stjórnin eigi að siður neyðst til að gera ráðstafanir, eins og þegar
hefir átt sér stað á tímum heimsstyrjaldarinnar. Það er gengið að því
vísu, að utanríkisráðherranum verði skýrt frá hverri slíkri ráðstöfun
svo fljótt sem því verður við komið.
Það leiðir af sjálfstæði landanna, að ekki verður gerður nokkur
samningur, er skuldbindi ísland, nema samþykki réttra íslenzkra
stjórnvalda komi til, og má eftir ástæðuin veita það samþykki ann-
aðhvort áður eða eftir að samningurinn er gerður.
Um 8. gr. — Danmörk ber kostnaðinn af þeirri fiskiveiðagæzlu,
sem hún hefir á hendi. Danmörku ber eigi skylda til að auka hana
frá því, sem verið hefir.
Um 10. gr. — Á meðan hæstiréttur hefir á hendi æðsta dómsvald
í íslenzkum málum, skal skipa í eitt dómarasæti íslending með sér-
þekking á íslenzkum lögum og kunnan íslenzkum högum, sem auk
þess verður að fullnægja hinum almennu skilyrðum til þess að geta
orðið dómari í hæstarétti. Það getur því orðið þörf á að breyta 43.
gr. í hinum dönsku lögum um dómgæzlu.
Um 12. gr. — Meðal þeirra málefna, er við koma dómgæzlunni og
æskilegt væri að gera nánari samninga um, hefir af hálfu íslendinga
meðal annars verið bent á aðfararhæfi dóma.
Um 13. og 14. gr. — Samkomulag er um það, að öll skuldaskifti
milli Danmerkur og íslands, sem menn hefir greint á um, hvernig
væru til komin, eigi að vera á enda kljáð, eins og líka var tilætlunin
í nefndarfrumvarpinu frá 1908, og því er lagt til, að fjárhæð sú, að
upphæð 60,000 kr., sem ríkissjóður Danmerkur hefir undanfarið ár-
lega greitt, skuli falla niður.
Sömuleiðis fellur niður kostnaður Danmerkur af skrifstofu stjórnar-
ráðs íslands í Kauþmannahöfn og forréttindi íslenzkra námsmanna
til hlunninda við Kaupmannahafnarháskóla.
Jafnframt er lagt tíl að Danmörk greiði 2 miljónir króna, er verja
skal til að efla andlega samvinnu milli landanna, styðja íslenzkar vís-
indarannsóknir og aðra vísindastarfsemi og styrkja íslenzka námsmenn.
|
Um 15. gr, — Það er nauðsynlegt, að hvort landið um sig hafi í
hinu landinu málsvara — í líkingu við núverandi skrifstofu stjórnar-
ráðs íslands í Kaupmannahöfn, — sem hafi það hlutverk að tryggja
samvinnu milli stjórnanna og gæta hagsmuna borgara síns Iands. En
hvort land er látið sjálfrátt um að ákveða, hvernig það kynni að vilja
haga þessu fyrirsvari.
Um 16. og 17. gr. — Það hefir náðst fullkomið samkomulag um
stofnun og skipun tveggja nefnda, annarar ráðgjafarnefndar, sem hefir
það hlutverk að eíla samvinnu milli landanna, stuðla að samræmi í
löggjöf þeirra og hafa gætur á því, að engar ráðstafanir séu gerðar af
öðru landinu, sem geti orðið til tjóns fyrir hitt landið, — hinnar gerð-
ardómsnefndar til þess að skera úr ágreiningi, er rísa kynni um skiln-
ing sambandslaganna.
Um 19. gr. — Yfirlýsing íslands um ævarandi hlutleysi hvilir á
því, að samkvæmt eðli þessara sambandslaga getur annað ríkið verið
hlutlaust, þó að hitt lendi í ófriði.