Þjóðólfur - 11.09.1918, Qupperneq 2
102
ÞJGÐOLFUR
fóru fram hjá Libermont og réð-
ust á nágrennið við Esmery Hallon
og tóku Hopital skóginn. Sunnar
liggur herlína Frakka um Freniches,
Guiscard, Beaugies, Grandru, Mond-
éscourt og Appilly. Að austan
liggur hún um Aillette og nær að
Marizelle (fyrir norð-austan Man-
ieamp). Frakkar hafa náð afÞjóð-
verjum fjölda fanga, fallbyssum,
hergögnum og allmiklum vista-
birgðum. Milli Ailette og Aisne
heldur hardaganum áfram á slétt-
unni fyrir norðan Soisons. Hægri
herarmur Þjóðverja heflr verið
neyddur til að hörfa undan fyrir
norðan Vesle. Frakkar hafa tekið
Bucy le Long og Moncel fyrir
norðan Aisne. Lengra til hægri
hafa Frakkar farið yflr Vesle á
30 km. svæði, farið um Chasseny,
Breuelle, Vauberlin, Vauxeré,
Blanzy og hafa fótfestu á virkis-
görðunum fyrir norðan Baslieux.
París 5. sept. kl. 15.
í nótt áttu hersveitir Frakka í
höggi við afturliðssveitir Þjóðverja
og héldu áfram sókn fyrir austan
Canal du Nord og í áttina til
Aisne.
Austan við Nesle hafa hersveit-
ir Frakka farið yfir Somme skurð-
inn í grendinni við Voyennes og
Oflfoy. — Sunnar hafa Frakkar
farið fram hjá Hombleux, Emery-
Hallon og Falvy-le-Meldeux og
fært herlínuDa norður fyrir Guis-
card í grend við Berlancourt.
Milli Ailette og Aisne hafa
Frakkar hrundið gagnáhlaupum
Þjóðverja við Mont de Tombes
austan við Locilly og halda stöðv-
um sínum.
París 6. sept. kl 0,05.
í gærdag héldu liðsveitir Frakka
áfram að veita óvinunum eftirför
á undanhaldi þeirra á vígstöðvun-
um við Canal du Nord og Vesle
og hafa haft þýðingarmikinn fram-
gang, þrátt fyrir mótstöðu hér og
hvar, er þeir hafa mætt á stöku
stað.
Á norðurbökkum Somme-skurðs
hafa Frakkar á valdi sínu Falvy
og Offoy. Sunnar nálgast víglína
þeirra Ham veginn, sem þeir hafa
tekið alt frá Plessis-Patt d’Oie til
Berlancourt. Suðaustan af þessu
þorpi er víglína Frakka um Guivri,
Caillonel-Crepigny, norðan við
Marist-Damercourt og Lisieres, suð-
ur að Abbecourt.
Frakkar hafa sumstaðar sótt
fram um 6 km.
Á öllum Aiiette vígstöðvunum
voru Þjóðverjar yfirkomnir orðnir
af sífeldum bardögum síðan 20.
ágúst og byrjuðu í gær um ki.
3 að láta undan síga fyrir her-
sveitum Frakka. Sameinaðar her-
sveitir Frakka hafa rekið eftir aft-
urliðssveitum Þjóðverja og sótt
íram hraðfara fyrir norðan Ailette.
Pierremande og Autreville eru á
valdi þeirra og mikill hluti skóg-
arins hjá Coucy. Austar er Follen-
bray, Coucy-le Chateau og Coucy
le Ville á valdi Frakka og hafa
þeir sótt áfram alt að 6 kílo-
metra fyrir sunnan Fresnes. Til
hægri handar liggur herlínan fyrir
vestan Landricourt. Fyrir sunnan
Ailette halda Frakkar línunni Neu-
ville-sur Margival, Vregny og
Pentes austan við Condé-vigi.
Yfir 30 þorp tóku þeir í gær á
þessum slóðum. — Fyrir norðan
Vesle hafa Frakkar stöðu hjá Aisne
milli Condé og Vielarey. Að aust-
an er lína Frakka komin norður
fyrir Huizel til Barbonval og á
sléttuna hjá býlinu Beaurgard.
Innlendar fréttir
og tíning’ur.
E/s Sterling kom úr strand-
ferð um mánaðamótin síðustu;
hafði fjölda farþega innanborðs.
Ættarnafn. Páll Guðmundsson
frá Torfalæk á Kólgumýrum í
Húnavatnssýslu, hefir fengið lög-
festu á ættarnafninu Kolka.
Stór húsbruni á ísaflrði. A
mánudaginn 2. þ. m. kom upp
eldur í einu hinu stærsta og há-
reistasta húsi á ísafirði og brann
það til gruDna á hálfri annari
klukkustund. Hús þetta var eign
þeirra kaupmannanna Elíasar J.
Pálssonar og Jóns Edvalds. Var
það tvílyft og all reisulegt hús.
Á neðri hæð þess var sölubúð og
íbúð Jóns Edvalds kaupmanns, en
á efri hæð bjó meðal annara Guð-
mundur Jónsson cand. theol. bæj-
argjaldkeri ísafjarðarkaupstaðar. 1
kjallara var brauðgerð, er átti
Helgi Eiríksson. Eldurinn kviknaði
á þann hátt, að sprungið hafði
„primus“vél, sem verið var að
elda á, og læstist eldurinn þegar
í rúmföt, í herberginu. Það var á
efsta lofti. Brann þar og annað
hús lítið, sem var eign sömu
manna. Varð nokkru bjargað af
vörum úr búðinni og einhverju af
húsgögnum af neðstu hæð húss-
,ins en engu annarsstaðar. Misti
hr. Guðmundur Jónsson bæjar-
gjaldkeri þar aleigu sína, þar á
meðal bókasafn mjög gott. Enn-
fremur fórust þar í eldinum skjöl
öll ©g reikningsbækur ísafjarðar-
kaupstaðar.
Er það haít til írásagna hversu
rösklega ísfirðingar gengu fram til
að stöðva eldinn og verja önnur
hús ágangi af hans völdum. Báru
þeir og sigur af hólmi sem betur
fór; brann eigi fleira en ofan er
talið, en skemdir urðu nokkrar á
næstu húsum og skúrum við þau.
Var pósthús bæjarins lengi í hættu
af eldinum og hefði eigi tekist að
verja það er talið víst að fjöldi
annara húsa hefði þá brunnið líka.
Brunasár og meiðsl hlutu nokkrir
menn þar í viðureigninni við eld-
inn. Er það augljóst að eigi hafa
menn þar legið á liði sínu við
björgunartilraunirnar. Þeir sem
brendu sig voru: Helgi Eiríksson
bakari og Marís M. Gilsfjörð kaup-
maður, fengu báðir brunasár á
hendur, Helgi Eiríksson brendist
þegar hann var að bjarga gamalli
konu úr eldinum ofan af efstu
hæð hússins. Þá fótbrotnaði þar
Jóhannes Jensson, skósmiður, en
annar maður, Jón Albertsson, hlaut
meiðsl af múrsteinum, sem hrundu
ofan á hann úr reykháf.
Mestur hluti þess, sem brann
eða spiltist við bruna þenna, var
vátrygt, en tjónið er þó ætíð mjö'g
tilfinnanlegt, er slíkt skeður og
eigi sízt nú á þeim timum, sem
nú standa yfir.
Fallega gert. Hlutafélag á
Seyðisfirði — Framtíðin, hefir gefið
Radíum-sjóðnum 1000 krónur ný-
verið. Er það minningargiöí um
Jón heit. Jónsson frá Múla.
Dr. Helgi Pjeturss, er ný-
kominn heim aftur úr sumardvöl
sinni, austur í Eystri-Hrepp í Ár-
nessýslu. Hefir hann lofað að rita
í Þjóðólf við og við, þegar tími
hans leyfir, og þykir oss gott að
færa lesendum Þjóðólfs þau tíðindi.
Landveg að norðan kom hing
að nýlega Steingrímur lœknir
Matthíasson frá Akureyri, ásamt
sonum sínum tveimur. ungum að
aldri. Dvelja þeir feðgar hér nokkra
daga.
Stefán Jónsson læknir er ný-
kominn úr kynnisför norðan úr
Húnavatnssýslu, um átthaga sína.
Eru um 13—14 ár síðan hann
kom þar síðast.
Lagarfoss kom frá New York
þ. 6. þ. m. Hafði hann hér skamma
dvöl, en fór síðan vestur og norð-
ur um land með vörur, sem þang-
að áttu að fara. Vörur þær, sem
hingað áttu að komast, verða að
bíða í skipinu þar til það kemur
aftur úr hringferð, þar eð þær eru
neðstar í lestinni. Hér var aðeins
skipað á land nokkrum bifreiðum,
sem Lagarfoss hafði á þiífari og
einhverju af „benzíni".
Prófessor Haraldur Níelsson
og Einar Hjörleifsson Kvaran,
skáld, komu heim aftur með
Sterling siðast, úr fyrirlestraferð
um Norður- og Austurland.
Sigurjón Markússon sýslu-
maðnr í Suður-Múlasýslu var hér
á ferð í bænum nýverið.
Síra Jósef Jónsson, sem und-
anfarið hefir verið prestur á Sauða-
nesi á Langanesströndum og síra
Björn Stefánsson frá Bergstöð-
um í Húnavatnssýslu eru staddir
hér þessa dagana.
Um kaffl, ofát o. fl. þess hátt-
ar góðgerðir manna við sjálfa sig,
hélt Steingrímur læknir Matthías-
son fyrirlestur á sunnudaginn var
og mæltist ágætlega að vanda.
Var fyrirlesturinn allvel sóttur.
Al]»ingi var slitið á þriðju-
daginn var og fóru margir þing-
mennirnir með Sterling samdæg-
urs. Hafðí skipið beðið eftir þeim,
hefði átt að vera farið af stað
fyrir nokkrum dögum síðan í
strandferð.
Ólafur Ó. Lárusson læknír á
Brekku í Fijótsdalshéraði, og
Ginðm.fljuðflnnsson læknir á Hvoli
á Rangárvöllum, dvelja hér í bæn-
um sem stendur.
Stöðugt fer hifreiðunum
íjölgandi og er mörgum farið að
þykja nóg um þær hér í Reykja-
vík, hvað sem annarsstaðar kann
að vera. Nú með „Lagarfoss*
bættust eigi allfáar í hópinn, —■
segja sumir 7 — sumir fleiri.
Hvað um það, lítur helzt út
fyrir að bifreiðar séu það eina,,
sem almenningur hefir ráð á að
eignast og nota á þessum tímum,
svo fjölgar þeim. Má búast við
því, að mönnum fari bráðum að
þykja það óYiðeigandi að fara
nokkuð fótgangandi, — enda er
það líka erfiði. En aðeins lítið af
„benzíni" hvað hafa komið með
„Lagarfoss”, svo eflaust verður
það, sem áður engum falt nema
bifreiðastjórum, enda eru bifreið-
arnar „hið eina nauðsynlega" nú
orðið.
Með „Sterling* fór héðan al-
farinn, Ouðmundur Vigfússon„
smáskamtalœknir, sem fyrrum bjó
að Laugarási í Biskupstungum og
mörgum er að góðu kunnur þar
eystra ekki síður en hér. Flyzt
hann norður á Raufarhöfn til fóst-
urdóttur sinnar, sem er gift Þór-
halli Jóhannessyni lækni þar norð-
ur.
Síldarveiðin er nú víst að
mestu búin þetta sumar og hefir
orðið fremur rýr. Talið er að vart
muni vera búið að afia meiri síld-
ar, en þeirrar, er leyfi hefir feng-
ist fyrir hjá Bretum og Banda-
mönnum, að selja til Svíþjóðar.
Botnvörpungar þeir og önnur skip,
sem héðan hafa stundað sildveið-
ar við Norðurland í sumar, eru
nú flest komin suður aftur. Þó
hefir heldur glaðnað yfir síldar-
veiðinni á Yestfjörðum nokkra
undanfarna daga, hafa nokkrir bát-
ar þaðan fengið dágóðan afla í
reknet. en gæftir hafa verið óstöð-
ugar, svo þetta hefir eigi nýzt
mönnum til fulls.
Skrijstoja og
ajgreiðsla þjéðitjs
cr í Hafnarstræti 16 (niðri). Op-
in virba daga kl. 1—4 e. h.
Par er auglýsingum veitt
móttafea og þangað eru menn
beðnir að snúa sér með alt sem
blaðið áhrærir.
keyptar hæsta verði
(hvor tegund fyrir sig) í
V0ruhúsinu.