Þjóðólfur


Þjóðólfur - 10.10.1918, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 10.10.1918, Qupperneq 2
118 ÞJÓÐOLFUR Jón Brynjólfsson kaupm. og Jen- sen-Bjerg kaupm. Endurskoðendur voru kosnir: Pjetur Þ. J. Gunn- arsson kaupm. og til vara Pjetur Halldórsson bóksali. Nýlega er látinn (4. okt.) Jón Eiríksson lóndi í Bjóluhjáleigu eystra, sem þar bjó lengi. Yar hann gildur bóddi og merkismaður sinnar stéttar í alla staði. Skipafregnir. „Sterling“ fór í strandferð þriðju- dag 8. þ. m. vestur og norður um land. „Borg“ er í hafi, á leið hingað frá Englandi; væntanleg næstu daga. „Botnia“ hafði komið til Kaup- mannahafnar 30. sept. s.l. Landsbanka-útibúið á Selfossi er nú í þann veginn sezt á lagg- imar. Bankastjóri er þar Eirík- ur Einarsson cand. jur. frá Hæli, en gjaldkeri Ouöm. Guðmundsson, Helgasonar, fyrrum prests í Reyk- holti í Borgarfirði. Slys. Þau urðu tvö hér á götum bæjarins 4. þ. m. — Jón Pálsson bankagjaldkeri hrasaði við og datt á leið sinni í bankann og braut annan handlegginn. Hitt var ann- að, áð 3—4 ára gamall drengur varð undir bifreið á Laugavegin- um sama dag og meiddist tals- vert; lærbrotnaði að sögn o. fi., er hann nú talinn vera úr allri hættu þegar þetta er ritað, en fyrst þótti vera tvísýna á lífi hans. Var ætíð varhugavert hversu börn hafa verið látin fara einförum um götur bæjarins og er eigi sízt nú, er umferð af bifreiðum og hjólum íer stöðugt vaxandi. í þetta skifti gat bifreiðarstjórinn alls eigi af- stýrt slysinu þrátt fyrir tilraun til þess. Það þyrfti að koma lögreglu- bann við því að ung börn fari ein ferða sinna um aðalgötur bæj- arins. Póst^jófnaður hafði verið framinn um borð í BSterling“ í síðustu strandferð þess. Hvarf einn póstpokinn og hefir eigi fundist síðan. í honum voru að talið er, c: 2—3000 kr. í peningum eða í ávísunum. Póst- ur þessi var frá Stykkishólmi og hafði verið látinn niður í farm- rými skipsins innan um annan flutning. Er það alt-undarleg ráð- stöfun, þar sem skipið var troð- fult af fólki, bæði þar niðri og annarsstaðar. Verður póststjórnin að hlutast til um að póstflutning- ur verði betur geymdur eftirleiðís; e)la gætu stærri vandræði hlotist af. Bæjarbruni. Bærinn á Illugastöðum í Aust- ur-Fljótum brann til kaldra kola þarm 3. þ. mán. Var alt óvátrygt, bæði hús og innanstokksmunir og engu bjargað. Tjón bónda (Jóns Pálssonar) og heimilismanna skift- ir þúsundum króna. Hafði fólkið ^omist nauðulega úr eldinum. Eld- urinu hafði komið upp í eldhúsi, sem var áfast við íbúðarhúsin. Skólastjórastaðan við Eyða-skólann er auglýst laus til umsóknar. Árslaun 2600 kr-, auk ókeypis húsnæðis, ljóss og hita. Umsóknarfrélstur til 31. des. þ. árs. Verður veitt frá 1. júní 1919. Minningarsjóður. Börn Jóns Einarssonar frá Garðstöðum (Jón Auðunn, Ólafur, Kristján, Karítas og Kristín) hafa stofnað sjóð til minningar um foreldra sína. Heitir sjóðurinn „Frœðslusjóður Ögurhrepps“. Stofn- fé 2500 kr. Sjóði þessum er ætl- að að styrkja unga og efnilega menn í Ögurhr. til að kynnast framförum í búnaði og öðrum nytjamálum. („Morgunbl."). Tíðarfaríð er heldur að skána núna síð- ustu dagana, víðast hvar um land. Væri betur að eitthvað rættist úr því og ekki yrði annar eins fimb- ulvetur og í fyrra. 6ullbrúðkanpsðag áttu þau Þorgerður Jónsdóttir og hr. Markús Jónsson á Bakka- koti i Meðallandi, sunnudaginn 4. ágúst síðastl. (smala-sunnudaginn), í tilefni af því höfðu þau hjón boð inni að heimili sínu allfjöl- ment. Veður var hið bezta. Var fyrst haldið til kirkjunnar og messa byrjuð að beiðni hlutaðeigenda. Flutti sóknarprestur Sig. Sigurðs- son, einkar kjarnorða ræðu, lagði út af orðunum: „Ó, að þú á þess- um degi vissir hvað til friðar þíns heyrir“. Að lokinni prédikun voru gefin saman í hjónaband, ungfrú Þorgerður Runólfsdóttir og hr. Runólfur Bjarnason, sem bæði eru barnabörn gullbrúðhjónanua og til heimilis hjá þeim. Eftir messu var haldið að Bakka- koti, og var þegar sezt til borðs og snæddur miðdegisverður og að gömlum og góðum veizlusið var sunginn borðsálmur fyrir og eftir máltíð. * Að loknu borðhaldi tók síra Sigurður Sigurðsson til máls og talaði einkum um kirkjurækni gamla mannsins, afskifti hans af kirkjumálum og safnaðarlífi og hver áhrif hann hafi haft á kirkju- rækni o. s. frv.; hann hefir verið meðhjálpari, sóknarnefndarmaður og safnaðarfulltrúi árum saman. Þá var sungið kvæði er ort hafði verið fyrir tækifærið. Því næst afhenti dóttir þeirra — gullbrúðhjóna — þeim gjafir frá sér og fóstursystur sinni, silf- urbúinn göngustaf (honum) og úr (henni), hvortveggja með áletruðu fangamaiki og ártali. Þá var skíit barn sem hin ný- giftu hjón áttu — barpa-barna- barn gömlu hjónanna. Eftir það flutti Einar Sigurfinns- son að Kotey ræðu fyrir minni gullbrúðhjónanna. Þá var sezt að kaffidrykkju og setið um stund við samræður og síðast sungin nokkur lög og spil- að á orgel af dóttur-dóttur gömlu hjónanna, Sigríði Runólfsdóttur. í samkvæmi þessu voru fult 100 manna, fór það hið bezta fram og var hið ánægjulegasta. Heillaóskir bárust öldnu ■ hjónun- um allmargar. Þau eru hress og ung í anda og bera ellina vel. „Einn viðstaddur". Þorgerður Jónsdóttir Markús Jónsson 1868—smala-sunnudaginn—1918 Elskan hrein er aflið mesta ávalt sem að dugir bezt, hvernig sem er högum háttað hún er tryggast leiðarnest. Hún er drottins ástgjöí æðsta, öllum þreyttum svalalind. Hún er himins skuggsjá skæra er skírast geymir Jesu mynd. Sólskin var í sá) og huga, sumar hlítt um bygðir lands Þegar ykkar ungu hjörtu unnu heitin kærleikans. Ástin ykkar vonir vermdi, vígði trúin heilög bönd, Guðs í nafni gerðuð nema gæfuvona sólskins lönd. Ljúft. er nú af leiti háu að líta yfir farna braut, þakka guði gæfusporin og gleðina sem féll í skaut. Hálfrar aldar bjúskap ykkar hefir blessað drottins hönd; með heiðri’ og farsæld hafið numið hamingjunnar blómsturlönd. Vandamenn og vinir allir votta þakkir hlýjar nú ykkur fyrir æfistarí, er unnið var í dygð og trú. Æfikvöldið ykkar krýni algæzkunnar kærleikssól, allra sálir auðgi og gleðji ástarskin frá larnbsins stól. Loftskeyti. (Einkaskeyti dagblaðanna í Rvík). Berlin 1. okt. VínarUöðin segja þá fregn frá Sofia höfuðborg Búlgaríu, að her- sveitir frá Austurríki og Ung- verjalandi séu komnar þangað. Tyrkir eru sagðir rólegri, þótt þeim brygði í fyrstu við fregn- irnar úr Búlgaríu, síðan áðurnefnd- ar hersveitir komu þangað. Banda- menn eru að bræða svör sín við friðarumleitunum Búlgara, en halda áfram hernaði þangað til stjórnir þeirra og Búlgara hafa komíð sór saman. Frá Iíristíanín. Yfirflotaforinginn tilkynnir að tundurdufl verði lögð á norskum skipaleiðum milli 59°8' og 59°25' norðurbr. og 5°10' austur). Vegna sprengihættu verði nefndu svæði algerlega lokað fyrir venjulegum siglingum frá 7. þ. mán. Opinber tilkynning frá Pjóð- verjum. , Her Rupprechts hefir tekið nokkur hundruð Belga höndum í áhlaupi. Einnig tókum vér brezka og franska fanga. Áhlaupum hrund- ið milli Fleaux og Hulluch. Bret- ar hófu áhlaup beggja megin við Cambrai. Var þeim hrundið. Her ríkiserfingjans hefir hrund- ið áhlaupum við Somme Py og tekið tvö frakknesk herfylki hönd- um hjá St. Marie-a-Py. Banda- ríkjaher hefir gert áhlaup mikil austan Argonne, áköfust við Ag- geremont og skóginn hjá Montre beau. Allstaðar hröktum vér óvin- ina og biðu þeir stór-tjón. Paris 2. okt. Frakkar sækja fram milli Aisne og Vesle og fylgja eftir áhlaupum og sigurvinningum í Champagne. Er sókh þeirra einkar mikilvæg í Aisne-dalnum. Hafa þeir tekið fjölda fanga og allmikið herfang; þar á meðal yfir 200 járnbraut- arvagna. Síðan 26. sept. hafa þeir tekið milli Suippe og Argonne 7jfir 13000 fanga, 300 fallbyssur og fjölda þeirra stórar. Frá Washington er símað, að stóreignamenn og auðkýfingar Bandaríkjanna hafi heitið stjórn- inni takmarkalausum fjárstyrk. Hefir formaður amerískra banka, Charles S. Hinch, gengist fyrir því og látið það ummælt að bank- arnir muni verja sínum síðasta dollar, ef á þurfi að halda til þess að leiða ófriðinn farsællega til lykta. Eru allir þar á eiuu máli, að hlíta eigi ótimabærum friðar- boðum Miðveldanna. Hafa safnast afskaplegar fjárupphæðir til hern- aðarþarfa, ef á þarf að halda; t. d. hefir Stálfélagið lofað 40.000.000 dollara og „PrudentiaP-hfsábyrgb- arfélags-sambandið hefir heitið 25.000.000 doll. Japanar hafa framgang í Siberíu. Hafa rekið Bolsévika frá Blago- vestchensk og hrekja rauðfylkinga- hersveitir á víð og dreif. Áhlaup Irakka og Breta hjá St. Quentin hafa borið þýðingar- mikinn árangur. Þeir eltu Þjóð- verja á undanhaldi og brutust inn í St. Quentin alt að skurðinum. Þjóðverjar veita þar enn þrálátt viðnám. Frakkar hafa tekið nokk- urn hluta skurðsins milli Troug- noy og Rouvnoy. Sunnar hafa þeir sótt fram á Hindenburg-lín- unni, tvo kilóm. austan við Gauchy. Þjóðverjar hafa neyðst til að sleppa hásléttunni milli Aisne og Reims- héraðs og hörfa undan. Frakkar hafa telcið Maizy, Concevrau, Meurival, Ventelay, Bouvencourt, St. Thierry og fjölda þorpa. Hafa sótt fram og tekið Autry, Autry- skóg og 5 kílórnetra svæði norð- an við Bouconville.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.