Þjóðólfur - 27.06.1919, Page 3
Þjoðolfur
3
Með því að Kaupfélagið Hekla á
Eyrarbakka hefir keypt allar eignir h|f.
Yerslunin Einarshöfn, sem nú er uppleyst
og hætt störfum sínum, þá tilkýnnist hér
með, að Kaupfélagið Hekla annast greiðslu
á öllurn skuldum, sem hvildu á Yerslun-
inni Einarshöfn h|f.
p. p. Kaupfélagið Hekla
S. Suémunéssen.
Raupfélagiá HEKLá
hefir fengið íjölbreytt urval afvefnaðar-
vörum frá Englandi og Ameríku. Einnig
miklar byrgðir af skófatnaði.
Sveitamenn!
Farið eigi langt yfir skamt1
* #####* ####***#*## # ##*##*#######*###*
er sviftur öllu því frjálsræði og
sjálfstæði, sem mönnum er nauð-
synlegt, ef eigi verður öfluglega
unnið á móti umrenningssvallinu
og ótrygðar-hugsunarhættinum,
sem veldur þvi, að margir lenda
á flækingi og verða að engu, í
stað þess að festa yndi í sinni
eigin sveit. Og altaf verður fyrir
manni sama varnarvirkið. Góður
og þjóðlegur skóli heima 1 héraðinu
er það eina, sem fær rönd við
reist. Árnes- og Rangárþing áttu
merkilega sögu og mörg menn-
ingarsetur á meðan þar voru
skólar — bara skóiar. — Fví þarf
endilega 'að kalla það lýðskóla eða
iýðháskóla? Þess konar nöfn gera
mann tortrygginn og minna á
tómar þýðingar, sem eru góðar
með, en það þarf iíka að frum-
semja. Sveitir Suðurlands eru nú
í mesta lagi hjáleigur Reykjavíkur-
menningarinnar og skólanna þar.
Þetta verkar óheppilega á liugsun-
arhátt sveitamanna; drepur í þeim
þann sjálfsmetnað og sjálfstæða
íhugun, sem er samboðið kjörum
þeirra. Hlutverk skólans er að
breyta hugsunarhættinum, svo að
menningarsetrin gömlu, eða önnur
ekki siðri, verði endurreist og
sveitirnar megi blómgast og byggj-
ast af niðjum þeirra, er þar voru
áður, og haía falið þeim, sem
nú lifa, að skila framtíðinni
óskertum arfi.
Ekki gerum vér að svo komnu
neina tillögu um, hvernig hagan-
legast muni að koma skólahug-
myndinni í framkvæmd fjáihags-
lega. En þó ætlar Fjóðólfur, áður
en aðrir taka til máls um það
atriði, að láta þá skoðun sína í
Jjósi, að Sunnlendingaskólinn verður
kostnaðarsamt fyrirtæki, einkum
að því er stofnun hans snertir, og
þvi alls ekki að hugsa til þess,
að héruðin, sem að honurn eiga
afl búa, leggi fram aðalskerfinn.
Skólinn á að stofnast sem alþjóð-
legt fyrirtæki, og á kröfu til og
rétt á að vera gerð’ur út af ríkinu,
«ngu siður en t. d. Austfirðinga-
skólinn, sem þannig er úr garði
gerður.
Þjóðólfur gerir sér vonir um, að
rnargir mætir menn verði til þess,
að skrifa um skólamálið í dálka
hans, og þykir vænt um að fá
álit sem flestra góðra manna,
svo að framkvæmd þessarar hug-
myndar verði síðan bygð á því
samanlögðu, er best verður lagt
til málanna. í næsta blaði hefst
hugvekja eftir ungan og efnilegan
mentamann, sem hefir mikinn
áhuga fyrir skólamálinu, og er
þess vænst, að honum verði gert
kleyft að afla sér nauðsynlegs
undirbúnings, ef hann gerir alvöru
úr því, að helga krafta sína skól-
anum, sem koma skal,
Útlendar og innnlendar fréttir
ætlar Þjóðólfur að flytja lesendum
sínum framvegis á þann hátt, að
yfirlit fáist um það allramerkasta>
er ber við á líðandi tíma. ítarlegra
og langra fréttakafla má ekki
vænta, þar sem blaðið blaðið hefir
ekki þá aðstöðu hér fyrir austan,
að það geti aflað í tíma nauðsyn-
legra gagna til þess að ná tíð-
indum saman, og svo er rúm
þess takmarkað. En eitt er það,
sem blaðið ætlar að leggja sér-
staka áherslu á að fullnægja i
þessu efni, og það eru fróttir um
það sem við ber í þessum héruð-
um, er það hefir, samkvæmt ferða-
áætlun sinni, ákveðið að koma
víðast við í.
Vill Þjóðólfur feginn eiga að
fróða og sannorða sögumenn til
þess að hann eigi því betra með
að segja frá því merkasta, er
skeður í sveitunum. Mun blaðið
á nálægum tíma rifja upp það
helsta, er til tíðinda telst hér
austanfjalls síðan það hætti út-
komu í októbermánaðarlok síðastl.
Friðurinn
langþráði er nú að komast á og
hafa Fjóðverjar gengið að friðar-
kostum banþamanna og skrifað
undir friðarskilmálana. Verður
skýrt frá þessum merkilegu tíð-
indum í næsta blaði.
fingmenn Árnesinga halda
þingmálafundi að nokkrum stöðum
í sýslunni næstu dagana. Má varla
búast við að þeir fundir verði fjöl-
mennir nú í mesta annatímanum.
Útgefendur og eigendur:
: Nokkrir Árnesingar. :
Ritstjóri: Einar E. Sæmundsson.
:: :: Prentsmiðja Þjóðólfs. :: ::
Gerið svo vel og lítið inn í verslun mína. Þar munuð
þér finna besta og ódýrasta vefnaðarvöru, skófatnað og fleiri
vörur, er ykkur kann að vanta.
Virðingarfylst.
Cgill Sr. cTfíorarsnssn
Sigtúnum.
Hið vel þekta liangikjöt vort er
nú á förum, en töluvert fyrirliggjandi
af kæfu og tólg. Sendið pantanir í
síma nr. 8. \
Kiupfél.
HEKLA.
oooocraooooooooooooooooooo
Til athugunar fyrir sv eitamenn.
Undirritaður selur héimagerða vagna, einnig vagnhjól og
kjálka út af fyrir sig og gerir við bilaða vagna og önnur
ökutœki. Hvergi fyr eða betur af hendi leyst,
Kristinn Jónsson
Frakkastíg 12
Ileykjavík.
Aktýgi, ólar,
svipur,
uýkomið í HEKLU.
í sumar höldum við uppi föstum ferðum milli Reykjavíkur
og Eyrarbakka á mánudögum og fimtudögum.
Afgreiðsla á símastöðinni á Eyrarbakka.
Gnnnar ólafsson. Erling Aspelnnd.
,. Sími 391. Simi 665.