Ný tíðindi - 30.01.1852, Síða 4

Ný tíðindi - 30.01.1852, Síða 4
16 Hvað mun heilög boða himinferð að sverði foldar, geislum faldins friðar - gjafans blíða ? Líða yfir leiðir Ijósar bjartra rósa kinna, hreta hrönnum hulin tárin sáru. Ifví mun skuggi skyggja skraut á röðulbrautum ? hví mun grátur geta gumum þjakað sumum? Veit Jiá engi, að ungum aldurtili kaldur nú hefur bragningi búið banasæng und vængjum ? Grátið mundirðu geta, góða jökla - móðir! böðuð legi breiðrar báru, köldum tárum, þegar líða af láði leiztu, förum geystum dauða, af bana beði ^ bezta soninn og mesta. Hugðum vjer, að hyggðist himindísin vísa hjörtun helgri birtu og hýrum anda skýra — dró af dökkum sævi drunga, tárum þrunginn , meðan geisli glæðir grund um morgunstundu. því ei í sögum einum , nje unn horfinnar gunnar leit með geisla gliti gólf Dellings Brynjólfur; leit hann frelsi feta fagurt vegu lagar, og vitur lið nam veita, vargur að þröngdist fargi. Nú er ljósið Ijósa liðið burt með friði, marga sem að mörgum mærast hjálp nam færa. Víða liggja lciðir lagar - þungra daga , eins þó alla gyllir uppheims - hjólið sólar. ■ Kveðju láta lýðir líða upp að fríðum boga bjartra daga bragning kætandi slingan — lof og minning lifir lcngi, þó dauðans engill nú hafi Brynjólfi búið banasæng und vængjum. B. Gr. Helgi Helgason (f 15. jan. 1852) var fæddur í Vogi á Mýrum 9. d. júlímán. 1783. Foreldrar hans voru þau Helgi Helgason hreppstjóri, sem var uppalinn í Vogi og bjó þar. allan sinn búskap, og Elín Egils- dóttir frá Arnarholti í Stafholtstungum. Árið 1814 gekk Helgi að eiga Ingibjörgu, dóttur sjera Jóns aðstoðar- prests í Hítarnesi. þau áttu saman 8 börn; þar af dóu 3 ung, en 5 lifa. Helgi tók við hreppstjórn skömmu síðar en hann kvongaðist, og sleppti henni ekki fullu missiri áður en hann dó. Árið 1835 gjörði konungur hann að dannebrogsmanni fyrir vandaða skipsmíð, og dugnað. Alþingismaður varð hann 1844. Prestaköll. Oveitt: Hellnaþing í Snæfellsnessýslu metin 32 rbdd. 2 mkk., augl. 18. d. janúarm. 1852. Garður í Kelduhverfi, og Kálfafell á Síðu. M annalát. Brynjólfur Pjetursson, jústitsráð, forstöðu- raaður hinnar ísl., grænl. og færeysku stjórnardeildar í Kaupmannahöfn, dó 18. d. októberm. 1851. Jósep Magnússon prestur í Hellnaþingum dó 9. d. nóvemberm. 1851. Sigríður Ilelgadóttir, kona Skúla læknis Thor- arensen á Móeyðarhvoli, dó 12. d. janúarm. 1852. Guðrún Pálsdóttir, kona Guðmundar bónda á Keldum í Rangárvallasýslu, dó 18. d. s. m. Fermdir, fœddb', dánir á Islandi 1850. Fermdir 1326 (þar af 636 piltar, 690 stúlkur). Fæddir 2351 (þar af 1199 piltar, 1152 stúlkur). Dánir 1509 (þar af 758 karlk., 751 kvennk.). Eru þá 842 fleiri fæddir en dánir þetta ár. (Af hinum dánu eru 38 drukknaðir, 12 dánir af ýuisum öðrum slisförum, en hinir 1459 á sóttar- sæng). Ritstjóri: M. Grímsson.

x

Ný tíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný tíðindi
https://timarit.is/publication/77

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.