Íslendingur - 21.12.1860, Page 1

Íslendingur - 21.12.1860, Page 1
 21. desemb. M 3' Með því oss er kunnugt, að íslendingar hafa jafnan liaft mætur á náttúrufrœði, euda er hnn undirstaðan, eigi síður lijer á landi en annarstaðar, að ílestu því, sem lýtur að framförum í húsæld manna, þá leyf- um vjer oss að bjóða þeim eptirfarandi grein, sem rituð er af nafnkertndum þýzkum náttúrufrœðingi; enda virðist oss hún vera rituð á svo ljósu máli, að auðskilin sje liverjum greindum bóndamanni. Skyldi nú svo fara, sem vjer þvkjumst ganga að vísu, að mönnum geðjist að grein þessari, liöfum vjer í hyggju að koma smátt og smátt með fleiri slíkar. Ritst. Frnmefna-breyting'. Eptir Dr. Julius Adolph Stöchhart. (Snúit) úr þý/kn). Hverjum og einum er það kunnugt, að þegar járnið verður glóandi, breytist það í sindur, og er það liggur i raka eða í jörðu, verður það að ryði; aö vökvi sá, sem kreistur er úr vínberjunum, verður smátt og smátt að víni, og vínið aptur að ölvínan (ediki); að viðurinn verð- ur að engu, þegar honum er brennt, og sömuleiðis við- smjörið í lampanum; að efni dýranna og jurtanna spillast með tímanum, leysast í sundur, og loks hverfa meö öllu. Sindur og ryð er hreytt járn; járnið er hart, seigt, grá- hvítt og gljáandi; en er það hefur verið gjört glóandi, verður það svart, gljálaust og stökkt; í raka verðurþað dökkgult og dustkennt. Vínið er breyttur vínberjalögur; hið sœta bragð vínberjalagarins verður alls eigi fundið; það er á- fengt á bragðið, hleypir hita i þann, sem þess neytir, og svífur á hann, en það gjörir eigi vínberjalögurinn. ÖI- vínanin er breytt vín ; það er súrt á bragðið, en eigi á- fengt, og leggur af því súran daun; það svífur eigi á, þótt þess sje neytt, en er miklu fremur svalandi og deyf- andi. Viðar þess og viðsmjörs, sem liverfurvið brennsl- una, verðum vjer að leita í loptinu; hvorttveggja þetta efni breytist þá í lopttegundir; breyting þessari verður liiti og ljós samfara, og það er eldurinn. Líkar eru breyt- ingar þær, sem á verða efnum dýra og jurta, er þau eru lengi geymd; þegar þau rotna eða skrælna, verða þau smásaman að lopttegundum, og liafa þær að sumu leyti næsta óþægilegan daun. Slíkar breytingar eru nefndar efnabreytingar (chemische Processe), þegar þungi, lögun, festa, litur, bragð og þefur og áhrif hlutanna breytast, svo að úr þeim verða aðrir hlutir með allt öðrum eiginlegleikum, og verður þessum hreytingum opt samfara hiti og eldur. 2. Hvert sem vjer rennum augum vorum á þessari jörð, verðum vjer alstaðar varir efnabreytinga, hvort sem heldur er á þurrlendinu, eða í loptinu eða dýpi sjávarins. Hið harða stuðlaberg og hin glerkennda hraunleðja, hvort- tveggja veröur það smátt og smátt meyrt, hinn dökkvi litur þess verður ljósari, það dettur í sundur í æ minni og minni hluta, og verður loks að jörðu. Kartaplan, þeg- ar hún er lögð í jörð, verður kröm, hragð hennar, sem áður var mjölkennt, verður sœtt, og loks rotnunarkennt. Frjóanginn, sem út úr henni vex, verður í myrku jarð- húsi smágjörður, bleikur og veiklulegur, en í birtunni að stvrkri, stinnri og grœnni jurt. f>essi jurt sýgur nœringu sína úr jörðunni og loptinu, og myndar úr henni nýja líkami, sem áður fundust hvorki í jörðunni, nje í vatninu, nje heldur í loptinu. Um alla plöntuna liggur völundar- hús af kompum og pípum, og við það fær hún festuna; vjer nefnunr það plöntutaugar (Pflanzenfaser; angehendes IJolz). í safa þeim, sem rennur úr og í kompurnar, er eggjahvita og önnur slímkennd efui; í blöðunum og stöngl- inum er grœnt litarefni, blaðgrœnka, og í hinum full- þroska knöppum eða hnúðum er eins konar mjölkennt efni, línsterkjan (Stivelse). Öll þessi efni eru ósaknæm fyrir Jieilsu manna. En vaxi kartöplurnar aptur á móti í dimmu, og eigi í jörðu, t. a. m. í jarðbúsum eða kjöll- urum, þá verða frjóangar þeirra langir og bleikir á lit, og myndast í þeim mjög rammt eitur, sem nefnt er Solanin. Hnúðar kartöplujurtarinnar eru einhver hin helzta fœða vor, Línsterkjumjöl það, sem í þeim er, verður eigi sund- 289 Vizkusalinn. Eptir Ch. Diclcens. Snúií) nr enskn. þegar þú gengur til einhvers skeggrakara á Eng- landi, óg lætur raka þig, þá fer hann optast nær að rœða um stjórnfrœðismálefni. Einu sinni Ijet jeg raka skegg mitt í Cairo'1, og sagði rakarinn mjer þá sögu þá, sem lijer fer á eptir. Einhverju sinni var í Cairo maður einn að nafni Iiadawan; hann bjó í grennd við Bab el Fontonah. Hann var söðlasmiður; liann var maður kvæntur; kona hans var ung að aldri, cr sagaþessi gjörðist, og áttu þau einn son barna. Badawan var fremur lítilsigldur, en mikils metinn af nágrönnum sínum. Hinn mesti unaður hans var sá, að sjá allt í röð og reglu í húsi sínu, er hann kom heim á kveld- in úr sölubúð sinni, en það var ávallt um sólsetur. J>jón- ustusveinn hans, svartur á hörundslit og strykinn mjög, stóð þá búinn að opna fyrir honum dyrnar. Eldabuskan, 1) HCfutlboig Kgyptalands. 290 sem og var svört áhörundslit, hjelt þáátrjesleif í hendinni og var að enda við matreiðsluna Kona lians, sem var lítil vexti, en þó þrifleg, hún hljóp á móti honum niður í miðjan stigann, og krakkinn, rnesta efnisbarn og holdahnyðja, lá í gamalli útskorinni vöggu í einu horninu áherberginu, og var að naga á sjer hnýttar hendurnar. Badawan fann þá til þess, að hann var eins konar smákonungur, og að þegnar hans voru honum hlýðnari, en þegnar margra hverra ríkra einvaldshöfðingja eru þeim; að liann var elskaður, og þó lotning fyrir honum borin; því að Badawan var, eins og margir lítilsigldir menn, að hann hafði gaman af því stundum, að ímynda sjer, að hann væri harðráður og grimmúðugur. Nú skulum vjer segja sögu lians einu sinni, erhann var sem drambvísastur í huga. J>að var kveld eitt, að hann gekk inn í hús sitt; liann hleypti þá brúnum, og skældi sig í framan, sem lionum var framast auðið, þótt það veitti honum torvelt, með því hann var góðlátlegur ásýndum, til að setja á sig sama reiðisvip, og hann hafði sjeð á œðsta lögreglustjóranum, þá er hann reið um sölu-

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.