Íslendingur - 21.12.1860, Side 2

Íslendingur - 21.12.1860, Side 2
146 ur leyst í vatni, en í maga manna breytist það skjótt, svo að það verður að rennandi vökva, þá er það er sundur leyst eða meltist, og getur þá runnið saman við blóðið. I lungunum lendir blóðinu saman við loptið, er vjer önd- um að oss; við það breytist litur blóðsins; við það breytist eðli loptsins, og við það verður hitinn, sem vjer flnnum til í líkama vorum; vjer hljótum því einnig að ráða af því, að hjer verði efnisbreyting. 3. Meðan líf er í jurtunum eða dýrunum, standa efnabreytingarnar undir stjórn œðra valds, sem oss er Jiulinn leyndardómur, og nefnum vjer það lífsaflið, og þröngvir það efnabreytingunum til að styðja að því, að mynda líkami bæði jurta og dýra eptir ákveðnum lögum. Lífsaflið er eins og húsasmiðurinn, sem gjörir uppdrátt luissins, og sjer um, að eptir honum sje vandlega farið, þar sem efnabreytingin vinnur að sjálfri smíðinni. Við þetta myndast óteljandi nýir líkamir, sem vjer eigi getum eptir stælt með neinni list eða íþrótt, t. a. m. viður, syk- ur, línsterkja, fita, lím og kjöt, o. s. frv. f>etta er nefnt líffœra-samtenging (organische Verbindungen), til aðgreiningar frá steinum og málmum, og öðrum þess kyns hlutum, sem engin lííTœri liafa (unorganische), og sem vjer setjum saman úr pörtum sínum, og getum því með kunnustu stælt eptir. En þegar líflð er á enda í plöntunni eða dýrinu, þá verða efnabreytingarnar yfir- sterkari, og það eru þær einar, sem láta hin fornu sann- leiksorð rœtast, sem væru þær hræbjalla náttúrunnar: »|>að, sem af jörðu er komið, skal aptur að jörðu verða«. Blöð kartöplunnar verða gul, og á endanum mósvört; þau falla af, og breytast smátt og smátt að dökkleitu, dust- kenndu efni (humus), og þegar tíniar líða, hverfur þetta efni með öllu, svo að ekkert verður eptir, nema lítið eitt af ösku, sem eigi verður leyst í sundur. Til þessa þarf heil ár, en ef vjer köstum hinum þurru blöðum í eld, verður það á fáum mínútum. Efnabreytingin verður hin sama, hvort sem heldur er; tíminn einn er ólíkur, scm til þess gengur; breytingin verður skjótt í eldi, en tekur langan tíma, ef blöðin eru látin visna upp af sjálfum sjer í litlum hita. f>að, sem oss virðist vera eyðing, er að eins breyting. Efni þau, sem að engu verða við brennsluna eða visnunina, finnum vjer í loptinu með sínum fulla þunga, en einungis í annari mynd. Efnabreytingin, sem í verður hinum lifandi jurtum, dregur þau aptur úr lopt- inu niður til jarðarinnar. 4. Yjer sjáum af þessu, hversu hið óskiljandi all- 29 L búðirnar um daginn; gengu kallarar fyrir lionum, og buðu mikið fje hverjum þeim, er vísað gæti á ræningja nokkra og manndrápsmenn, sein skömrnu áður höfðu framið óttaleg illvírki, en eigi náðst. f>jónustusveini Eadawans var eigi það gefið, að sjá skap manna af svip þeirra, og kastaði kompánlega á hann kveðju, og hin gilda eldabuska grenjaði út úr eldhúsdyrunum, að maturinn væri búinn, og hefði tekizt vel. En Eadawan ljet sjer eigi bregða, og var eins alvarlegur eptir sem áður, og gekk upp stigann hœgt og drembilega. Iíona hans kom á móti honum út í myrkrið, eins og vandi hennar var til, og lá þá við sjálft, að hann gleptist í dramblæti sínu, er hún fjell um háls honum. En hann stillti sig, og ljet að eins varirnar lokaðar snerta kinn hennar, hjelt upp stigann og inn í herbergið, og er hann kom þar, Ijet hann sem sjeryrði eigi litið til vöggunnar; hann settist niður í end- ann á legubekknum, þar sem hann var vanur að sitja, og var mjög afundinn á að sjá. Ayesha, kona hans, liirti alls eigi um þennan dramb- lætissvip hans, og tók að búa til kveldverðar, án þess að mætti drottins hefur gjört efnabreytingarnar að þjónum sínum, til þess fyrir þær að fram leiða liin eilífu um- skipti, sem vjer dagsdaglega verðum varir umhverfis oss í náttúrunni, og til þess fyrir þær að leiða aptur lífið fram úr dauðanum, svo að aldrei verður hlje á; en þá verður það og að vera einsætt, hversu áríðandi og samboðin hverjum þeim manni, sem nokkra liugsun hefur, vísinda- grein sú er, sem skýrir fyrir honum þessi umskipti, og gefur honum meira skynbrngð á undrum sköpunarinnar. f>etta skynbragð, sem maðurinu fær við þetta, mun eigi að eins afla mannlegri skynsemi œðri menntunar og full- komnunar, heldur hlýtur það og að fylla manninn ennmeiri aðdáun og innilegri lotningu fyrir honum, sem sýnir oss í þessum furðuverkum hið óskiljandi almætti sitt og vís- dóm. Oss verður og að þykja næsta mikið í varið efna- frœðina af öðrum sökum, það er að skilja sakir gagns þess, er vjer getum af henni haft i lífinu. Efnafrœðin kennir lyfsalanum að búa lyf til, og lækninum að stökkva burtu sjúkdómum; hún sýnir eigi að eins málmneman- um málminn, sem felst í grjótinu, heldur hjálpar hún honum einnig til, að bræða hann úr því og vinna hann. Efnafrœðin, í fjelagi með eðlisfrœðinni, hefur einkum verið lyptitól það, sem svo fjöldamargar íþróttir og atvinnuvegir hafa náð svo afarmikiili fullkomnun fyrir á hinum síðasta áratug; sökum hennar hefur oss gefizt kostur á óteljandi þægindum lífsins, sem foreldrar vorir urðu án að vera. |>að er ekkert efunarrtiál, að jarðyrkjumennirnir munu, áður langt um líður, telja vísindagrein þessa vinkonu sína, sem þeir geti eigi án verið; það er þó hún ein, sem frœðir þá um það, hver sjeu frumefni akurlendis þeirra, og hver sje nœring jurta þeirra, er þeir ætla þar að rœkta, og hver sjeu ráðin, að auka frjóvsemi akra þeirra. 5. Sje eittlóð járns gjört glóandi heitt, og þvi hald- ið svo heitu, uns sindurskorpa er komin á það, og það síðan vegið, þá mun það reynast, að það er orðið þyngra en áður; það hlýtur því að hafa bœtzt við það eitthvert það efni úr loptinu, sem vegið verður. þetta efni er lopttegund ein, sem vjer nefnum súrefni; þegar lopt- tegund þessi sameinast járninu, verður hún föst í sjer; en vjer getum með öðrum efnabreytingum gjört hana aptur að lopti. Sje sindrið látið standa í saggaumhríð, verður það smásaman að ryði, og verður aptur þyngra en áður; það hefur þá sogið í sig vatn, og nokkuð af súrefni úrloptinu, og sameinazt því. Sindrið er því sam- 292 hún svo mikið sem spyrði bónda sinn að, hvað að hon- um gengi. Eadawan tók að verða órór í huga; hann sneri sjer á ýmsa vega, beiddi um pípu til að reykja í bjóð- andi róm, eptir því sem hann ætlaðist til, og leit mjög hvasskeitlega til krakkans, þar sem liann lá í vöggunni rjett við, og var að fálma út í loptið með hnýttum hnef- unum, þótt smáir væru. Eadawan hafði einsett sjer, að vera harðráður þetta kveldið, og reyndi til að líta drembi- lega út, og gretti sig og bretti svo mjög í framan, að Ayesha gat eigi varizt hlátri, er hún gekk þar hjá. »Ilví hlær þú? kona«, mælti Eadawan, ogtóksthon- um þá loksins að ygla brýnnar fyrir alvöru. »ílvað er orðið af lotningu þeirri, er þú átt að bera fyrir skeggi mínu ?« »Skeggi þínu, herra«, mælti kona hans, og svo var hún óskammfeilin, að hún tók með annari hendi í þennan helga dóm lians, en lagði hinn handlegginn um háls hon- um. »Hvenær hef jeg sýnt því virðingarleysi? einkum síðan þú, að ráðum nágranna þíns Saads, ljezt það vaxa svo, að það er eins langt og hahn Ali litli þarna«.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.