Íslendingur - 26.11.1862, Síða 3
111
vor íslendinga er einungis að guðs og manna lögum,
íölgin í því, að verzlunin skyldi oss gefin frjáls. Ættu
hin sömu lög og sömu reglur, sem gilda einstakra manna
í millum, og sem jafnvel einnig gilda þeirra þjöða í mill-
um, sem eigi geta eður vilja troða hverrar annarar rjett
undir fótum sjer, einnig að skera úr rnálum milli vor og
Dana í þessu efni, þá uggir mig, að Danir liafl eigi að
eius verið skyldir til, að láta af þeim alheimsóvana og
rangindum, að einoka verzlun vora, heldur einnig að bœta
oss allan þann skaða, sem þeir hafa ollað landi voru með
þeim ójöfnuði, að halda verzlun vorri í einokun í svo
langan aldur. Og væri þetta rjett, sem jeg vona að sje,
ættu þeir að minnsta kosli ekki að skorast undan að viðhafa
fje ti! það nýrra verziunarhagsmuna hjer á landi, sem þeir hafa
dregið út úr landi voru á timum einokunarinnar, til þess
að vjer ekki dæjnm úr lmngri, sökum eðlilegra afleiðinga
af ofríki og rangindum þeim, senr þeir hafa sýnt oss um
liðnar aldir. Og svo ætti og Danastjórn, sem veit þetta
allt saman betur en jeg, og án efa elskar og ber um-
hyggju fyrir öllum þegnum sínum eins og rjettlátur faðir,
er eigi gjörir sjer neinn mannamun, víst ekki að sýna
neina tilhliðrunarsemi við slíka eigingirni og ágengni sam-
þegna vorra í Danmörku, þó hún aldrei nema kunni að
vera mannleg.
Jeg ætla nú ekki lengnr, að þessu sinni, að vera að
mœða þig á þessu búskapar og búnaðarhnauki, en snúa,
orðum mínum að hinum œðri og andlegri lífsstefnum, er
vjer Islendingar, þó vjer sjeum að öðru leyti aumir og vesæl-
ir, þykjumst geta borið eins mikið skynbragð á, þegar öllu er
á botninn hvolft, og hinar siðuðu þjóðir erlendis. Reyndar
veit jeg ofurvel, að vjer getum ekki stœrt oss af hinum
glœsilegu erða og hagmyndabúningi, sem menntun hins
nýja heims, einkum er fólgin í, en vjer höfum aptur ann-
an fjársjóð, sem vjer erum ög þykjurnst, að svo komnu,
inega vera stoltir af, það er úmengaður lijarni hinna and-
legu auöœfa, sem forfeður vorir, hinir gömlu og góðu
rsorðmenn, fluttn og varðveittu í og á hólma vorum í
norðurhafi. Á þessuin auðœfum höfum vjer legið og liggj-
um enn eins og ormar á gulli þrátt fyrir allar þær hörm-
ungar og harmkvæli, sem yflr oss dynja, bæði frá hendi
liinnar óbliðu náttúru, og eins af manna völdum. En
hvílikar stjórnlegar ráðstafanir sjer maður hjer á landi til
viðurhalds og eflingar þessum andlegu fjársjóðum vorum?
Jeg veit það ofurvel, að vjer eigum einn latínuskóla
í Revkjavík (nú er af sem áður var, að landið hafði þá
2, bæði á Ilóium og Skálholti). f>að er nú að vísu svo
mikið i munni af pví, að hann er í Reykjavík. En oss,.
sem búum upp í landinu, hefði samt verið eins kjærkom-
ið, að þessi eini skóli heí'ði setið kyr á Bessastöðum, og
að skóli vor liefði átt það ofurfjár óeytt, sem komið er í
fúasprekin í þessu mikla nýja skólahúsi, er enn ekki hef-
ur látið frá sjer koma öllum mun fleiri eður menntaðri
ungmenni árlega en skólahúsið á Besaastöðum, sem landið
átti og litlu sem engu hefði þurft til að kosta til þess,
að það hefði verið jafnoki skólahússins í Revkjavík. Jeg
get því fremur hlýfzt við að fjölyrða um skóla þenna,
stjórn hans og alla tilhögun, sem alþingi vort seinast fór
fram á verulegar hreytingar á þeim aðalgöllum, sem á
lionum þóttu vera, og stjórnin eptir uppástungu þingsins
hefur látið setja niðnr nefnd til þess, að íhuga þetta mál,
og vona jeg, að tillögur hennar muni verða góðar, því
fremur sem hún i raun og veru eigi þurfti annað að gjöra,
en halda sjer fast við grundvallarreglur alþingis, er bæði
voru skynsamlegar og þjóðlegar. Að öðru leyti tel jeg
það sjálfsagða skyldu nefndarinnar, að auglýsa sem fyrst
á prenti, uppástunguatriði eður frumvarp sitt, svo lands-
menn, sem mál þetta liggur svo ríkt á hjarta, geti sem
bezt fylgt öllum gangi þess.
Nú eru þá upp taldar allar hinar lægri menntunar-
stofnanir lands þessa. En hvað líður þá hinum œðri?
Ekki er land vort fjölskrúðugra af þeim. Að vísu muna
allir eptir því, að hinn hásæli konungur Kristján 8. gaf
oss meðal annars góðs, prestaskólann, sem óneitanlega
að mörgu leyti hefur borið og mun bera heillaríka ávexti
fyrir landið, og jeg vona, að þetta spánýja skikkunarvald
stiptsyfirvaldanna, hvar prestaskólamennina snertir, verði
sem fyrst úr lögum numið, því það er auðsjeð, að það
verður ella skólanum til hins mesta hnekkis. En hjer
stendur nú hnífurinn i kúnni. Alþingið liefur reyndar
einlægt frá fyrstu stofnun verið að kveina og kvaka fram-
an í stjórnina um það, að hún kæmi hjer á fót œðri stofn-
unum í öðrum vísindagreinum, sem landinu eru jafnómiss-
anlegar og prestaskólinn, einkum í lögfrœði og læknis-
frœði. þetta er nú ekki til mikils mælzt, ef menn eiga
ekki að deyja hjer hjálparlausir eins og skepnur, sem þó
í siðuðum löndum nú víða verða læknishjálpar að njótandi,
eður land vort eyðast af lagaleysi. Allt fyrir þetta hafa þó
þessar rjettlátu bœnir alþingis ekki getað náð áheyrzlu
hjá stjórninni. Að vísn hefur nú loksins í þessu efni á-
unnist svo mikið, að stjórnin nú hefur leyft landlækninum
að kenna læknisfrœði, og að til þess mætti verja allt að
600 rdd. árlega úr hinum svo nefnda læknasjóð, cður
rjettara spítalasjóðunum. En aliir sjá á hvað völtum fœti
þessi tilhögun þó er byggð. Deyji landlækninn, sem nú
er og með liíi og sálu liefur barizt fyrir sigri þessum, er
allt komið í gamia horfið með læknakennsluna, nema því
að eins, að eptirmaður hans vilji leggja á sig þvílíkt ó-
næði og starfa, auk annara embættisanna sinna, sem varla
er ráð fyrir gjörandi. Ekki mátti þetta vera fastur skóli,
lieldur allt í lausu lopti!
Að gefa íslendingum fœri á því, að nema nokkurn
snefil af lagaþekkingu í landinu sjálfu, held jeg megi full-
yrða, að stjórnin álíti einhverja óhœfu, úr því þessari
margítrekuðu bœn þings vors ogþjóðarinhar hefur, enn sem
komið er, alls enginn gaumur verið gefinn, og þó er þetta
einmitt sú bœnin, sem þjóðin ílestu, ef ekki öllu fremur,
bæði vill og vissulega þarf að fá uppfyllta. Svo að þetta
árangursleysi um lagaskólann fer að verða hvað af hverju
heldur en ckki óskiljanlegt. Mótbárurnar á móti lagaskól-
anum, sem einstöku rnenn hafa fundið upp á, eru, eins
og allir vita, þannig lagaðar, að þær hafa meðal annars
einmitt opnab augun á þjóðinni fyrir nauðsyn lagaskóla
hjer á landi, og sannfœrt hana um hve ómissandi hann
væri, og að hún sem allra fyrst og jafnvel öllu fremur
verði að komast úr því andlega niðurlægingarstandi, bæði
að vera án hans og eiga það skilið, sem mótbárurnar ein-
mitt og eingöngu byggja á og bera henni á brýn — ef
þær annars hafa nokkuð við að styðjast — það sumsje,
að Islendingar sjeu orðnir svo andlega volaðir — þvi það
vorum vær þó eigi i fyrndinni — að innlend og þjóðleg
lögvísi eigi geti þrifizt á þessu landi.
Jeg hefi nú að eins drepið á þær vísindagreinirnar,
sem menn verða að nema í hverju landi sem er, til þess
að hinalmennustu embætti verði skipuð nýtum mönnum, og
þegar nú þessar stofnanir vanta hjer á landi, er það eng-
in býsn, þó oss skorti þvílíkar vísindastofnanir, þar scm
menn geta numið hinar aðrar vísindagreinir, sem þó eru
álitnar ómissandi í öðrum siðuðum löndum, svo sem mál-
frœði, heimspeki, náttúruvísindi, og svo frv.
I>ó jeg ljeti hjer nú staöar nema, þœttist jeg liafa
rjettlætt það sem jeg áðan sagði, að margt gengi hjer í
stjórnlegu tilliti, á leggjarhöfðunum. Enernú þettanokk-