Íslendingur - 26.11.1862, Qupperneq 4
112
ur furða, því hvernig er sjálft stjórnarskipulag vort nú?
Og hvernig er stjórninni framfylgt?
J>að er hverju mannsbarni á Islandi kunnugt, að kon-
ungur vor er hjer einvaldur og hefur alþingi sjer til ráða-
ncytis. þessu getur og þorir enginn að mótmæla. Eptir
þessu ættu menn að ímynda sjer að stjórnarrjettur vor
íslendinga væri næsta auðveldur og óbrotinn. En sprengi
þá lagavitringarnir og stjórnfrœðingarnir sig á því, að leysa
ur þessum fáu spurningum. 1. Hvarnig stendur á því,
að í prentfrelsislögunum nýju 9. maí 1855 fyrir þettaland
skuli vera ráðgjört, að ráðgjafar konungs vors, skuli eigi
njóta neinnar sjerlegrar hlýfðar laganna gegn árásum ó-
mildra manna í ritum, sem þeir þó, eins og eðlilegt var,
höfðu eptir tilsk. af 1799? 2. llvernig er enn fremur t.
a. m. verzlunarlögunum nýju fyrir Island varið að því
leyti sem þar stendur, að ríkisdagurinn haíi viðtekið
og konungur vor samþykt þau, þó alþingis sje þar einnig
getið, þá sýnist mjer það lítið ráða úr vandanum, og 3.
Ilvernig stendur á makt og myndugleika hcestarjettar í
Danmörku nú til að dœma í málum hjeðan úr landi, ept-
ir að hans hátign konungur vor, sem þó enn þá þann
dag í dag er vor œðsti jarðneski dómari eptir hinum gild-
andi konungalögum af 14. nóv. 1665, er hættur að dœma
í hæstarjetti í Danmörku, og dómsvaldið gjörsamlega að-
skilið frá veldi hans par ?
Jeg þykist ekki þurfa að setja fram fleiri spurningar
en þessar 3 til að sýna ljóslega, að óbærilegur og næsta
athugaverður ruglingur hafi smeygt sjer inu í merg og
bein á stjórnarskipun vorri, sem vonandi er og óskandi
að sem allra fyrst verði burtrýmt þaðan. En að öðru
leyti lýsi jeg því yfir, hvað rnig snertir, að jeg virði lög
þessi meðan þau standa einmitt af því, að þau eru gefin
út af konungí vorum og engu öðru. En livað virðing og
liylli dóma hæstarrjettar snertir, uggir mig, að hún fari
eptir því, að hve miklu leyti honum tekst að setja sig
hetur inn í lög öll, landshagi og hugsunarhátt Islendinga,
en hjerlendum dómstólum.
Færi jeg nú fyrir alvöru að tala um hvergnig sjórn
öll í íslcnzkurn máiefnum gengur til, mundi jeg verða of
langorður. En af því jeg þó drap á þetta áður þá vii
jeg bcnda á fátt eitt. Æðsta stjórn landsins, þegar kon-
unginum sleppur, er lögð undir ráðgjafa í Danmörku, sem
allt of lítið þekkja til ástands og iöggjafar þessa lands, og
halda jafnvcl t. a. m. að Stykkishólmur liggi langt upp í
landi, kalla aðjunkta skóla vors stórkaupmenn, og mælafram
með embæltismönnum vorum, til hærri launa fyrir það, hvað
þeirsjeu inn í máli voru, þó þessum hinum sömu mönnum sje
annað vissulega betur lánað. Um þetta og fleira því um
líkt má lesa i ríkisdagstíðindunum. |>essa smámuni hefjeg
bent á enganveginn til þess að líta eður hniðra hlutaðeig-
andi ráðherrum, heldur til að minna menn á, hve herfilega
þeir geti villst, af því þá skortir nauðsynlegar skýrslur
um margt, sem þó það í sjálfu sjer sje litlu umvardandi,
samt getur ráðið úrsiitum hinna rnerkustu málefná. Að
visu ætti það nú að bœta nokkuð úr, að málefnin eiga
að ganga í gegnum íslenzku stjórnardeildina, og ríður því
bæði hluteðeigandi stjórnarherrum og oss ísiendingum,
ekki lítið á því, að hún sje sannur hreinsunareldur mál-
efnanna, áður þau koma til stjórnarherranna sjálfra. —
Sat de liis (nóg um þetta).
í>á er það dáindis skringilegt hvernig sjálfum em-
bættunum hjer á landi hefur verið stjórnað um hríð. Sum
hal'a staðið auð nú í mörg ár, svo sem læknaembættin,
suin hver. það er nú orðið svo sem daglegt brauð bjer
á landi að menn sem skortir hina lögboðnu hæíilegleika
stjórni svo áruin skiptir sýslumanna ernbættunum, um það
vil jeg eigi fást, en hitt þvkir mjer sæti meiri furðu, að
amtmannaembættin fyrir vestun og sunnan, og sjálft stipt-
amtmanns embættið skuli ár eptir ár vera látin hanga
svona uppi óveitt, þar sem það er þó alkunnugt, að um
þau hafa sótt menn sem hafa alla þá hæfilegleika í full-
um mæli til að bera, sem löggjöfin og heilbrigð skinsemi
frekast geta heimtað Jeg tiltek t. a. m. etazráð Th.
Jónassen, og assessor Jón Pjeturssvn. Hvað vantar þessa
menn til þess að geta gegnt þessum embættum, og á
hverjum er völ utan lands eða innan sem betur geta stað-
ið í slíkri stöðu, og til hverra liafa Islendingar meira traust?
Ilvort mun nú rjettara og vinsælla fyrir stjórnina að skipa
þessi embætti slíkum mönnum, lieldur en að láta settan
sýslumann í Vesturamtinn stjórna því, þar sem hanri þó
þrátt fyrir marga sína góðu eiginlegleika, vantar hina Iög-
skipuðu hæfilegleika til að stýra því, og þrátt fyrir það að
hann í sinn stað, sem fastur sýslumaður í sínu eigin
amti, hlýtur að nota mann, sem aptur skortir hæfilegleika
að lögum til að vera sýslumaður? Og að veita ekki stipt-
amtmannsebættið etazráði Jónassen, en láta hann þó þjóna
því þrátt fyrir það, að staða hans sem justiziarius í lands-
yfirrjettinum sýnist í mörgum greinum að gjöra það mið-
ur œskilegt? Jeg skal að eins benda á það, hvort það
sje ekki nokkuð aílaga, að sami maðurinn skuli veita gef-
ins málssókn til landsyfirrjettarins og síðan á eptir eiga
að doema í þeim málum, eður ákveða áfrýjun þeirra mála
sem hann annaðhvort seinna á að dœma (áfrýjun til lands-
yfirrjettarins) eður sjálfur hefur dœmt í (áfrýjun til hæsta-
rjettar), að jeg ekki vilji fá mjer til orða, að hann sem
stiptamtmaður og amtmaður opt er kvaddur til að gefa
úrskurð í þeim málum, sem síðan hljóta að koraa til greina
í þeim er þau koma til landsyfirrjettarins. Jeg tiltek t. a.
m. nýbyggingarmál og opinberra stofnana, sem undir stjórn
amtmannsins syðra og stiptamtmannsins eru lögð.
Jeg ætla nú að setja það eins og einskonar fýkju
hjer aptan í, að minna á það, hversu óþolandi það er,
að yfirvöldin hjer á landi ekki skuli hafa ráð á einum
dönskum túskilding til nokkurra fyrirtœkja, en verða að
hlaupa með hvað eina lítilræðið suður til Danmerkur til
að tína upp mola þá, sem falla kunna þar af borðum
hiuna ríku.
Jeg þykist nú hafa týnt upp nógu margt til þess, að
sýna þjer fram á, að jeg hef nokkra ástœðu til að álita,
að nú sjeu komnir hinir seinustu og vestu dagar fóstur-
jarðar vorrar, hvað þá stefnu snertir sem nú er á stjórn
landsins. Eu þá þykist jeg og mega fulltreysta því, að
bráðum byrji betri tiðir, og að Danastjórn annaðhvort taki
fullkomlega að sjer stjórn landsins og stýri því eptirföst-
um reglurn og með fullum krapti, og spari alls ekkert tií
þess, að 'efia og auka alla framfararviðleitni íslendinga,
þó það kosti hana ærna fje, ellegar þá sem tíininn virð-
is,t fremur að benda á og allir íslendingar fremur kjósa,
gefi þeim sjálfnm svo frjálsar liendur í allri stjórn si.nni
að það verði þeirra ábyrgðarhluti, og eigi stjórnarinnar,
ef þeir eigi rísa úr þeirri eymd og volæði, sem þeir nú
eru í.
Allir góðir kraptar í landinu og livað ekki sízt blöð-
in ættu að leggjast á eitt í að stuðla til þess, að stjóru
landsins í öllu falli mætti framfara því til heilla og ham-
ingu, og láta af öllu innbyrðis kýfi og ofsóknum við ein-
staka menn, en skoða og rœða og ranusaka málin með
köldu blóði hlutdrægnislaust.
l'acta loqvuntur (sjón er sögu ríkari).
Ábyrgðarmaður: Benidikt Sveinsson.
Preutatiur í preDtímÆjuuui í Kevlijavík 1Í62. Kiuav pórtiarsea.