Norðanfari


Norðanfari - 04.12.1878, Page 3

Norðanfari - 04.12.1878, Page 3
115 — 0 Ííeilbrigði manna og fjenaðar að ððru leyti bað tilspyrst nú, síðan kvefveikin og lungna- bólgan rjenaði. — Hjer er umkvörtun um kð nýbornar kýr reynist illa og að töður og úthey muni vera ljett. Eins og sjálfsagt er að geta hins góða, oðriun til eptirbreytnis og peim til hróss er vinna, eíns er Ííka sjálfsagt að geta hins illa öðrum til viðvörunar, og til að aumkast og hryggjast yfir pví, hvað maðurinn getur fiill- ið og sökkt sjer niðurí svívirðilegustu glæpi. Hjer í miðju pessu fagra og yndæla lijeraði hefir komið upp í haust stórkostlegur sauða- þjófnaður; má pað fremur heita fjelag er stýrir framkvæmdum í pessa stefnu. J>að eru fvrir víst 4 ungir menn og efnilegir, sem við pennan pjófnað eru meira ogminnariðn- ir; þeir ráku fje sumir af peim til afrjettar í vor og höfðu pá með sjer sagir og hnífa til að afmarka fje manna og hornskella. IJndir prófun málsins hefir og fram komið, eptir sögn, hryllileg fúlmennska; einn pessara manna á að hafa lcæft 2 kindur í 'feni, er hann hafði verið nýbúinn að marka sjer peg- ar lcvis var á komið. Sá er talinn er for- sprakki, eptir íramburði hinna, fæst elcki til að meðganga neitt. — IJm leið og pað má- ske lýsir meira preki, lýsir pað spilltu og mjög ósvífnu hugarfari, að játa ekki glæpi sína; sá er meðgengur úttekur sína hegningu og getur sjeð að sjer og lcomist til rjettrar leiðar, og unnið sjer aptur gott mannorð, hinn sem prætir alltaf fyrir ogjjr pó almennt á- litinn sekur, sætir fyrirlitningu meðan hann lífir, og hvað er pyngra að bera í ellinni en úbætta glæpi yngri áranna? Eeykjumí Tungusveit í Skagaf. 20.nóv. 1878. Eiríkur Halldórsson. Kirkjan að Reyhjahiíð við Mývatn. (N iðurlag). í pessum útreikningi til teningsálnanna eru aurabrot færð til milli greinanna svo að allstaðar stæði á aur. — Auk vinnunn- ar við að yfirdraga veggina 273 kr. 20 aur. sem tíl er fært, hefir gengið til pess 138 kr. af kaupverði og heimflutningskostnaði á kalki og Cemehti; og sje pá aðgætt hvað veggirnir hafa kostað óyfirdregnir, pá koma 5 kr. 64 aurar á teningsalin, og svo ef öll efni hefðu verið við höndina kostnaðarlaust að öðru en káupverði kalksins, pá hefði teningsaim í peim vegg eigi kostað nema 4 kr 38 aura. í upphafi var pó eigi bú- íst við fullkomlega svona háum byggingar- kostnaði, enda mundi hann hafa orðið hóti minni, ef pá hefði verið fengin sú pekking- á ýmsu tilheyrandi, sem nú er, fyrir reynsb una, nokkru skýrari. Um efnahag pessarar kirkju er nú pað að segja, að sjóður hennar í fardögum 1877, andvirði gömlu kirkjunnar, og seldra umbúða af kalki og Cementi var að sam- töldu 1584 kr. 64 a., að sóknarmenn hafa lagt til í vinnu og flutningi 352 kr. 88 aur. og að kirkjuhaldari hefir lánað henni 1104 kr. 65 a., er sýnir sömu tölu 3042 kr. 17 aura. |>að sem hún hefir lagt upp af árs- tekjum sínum, pá ekkert hefir gengið til að- gjörðar á henni hefir verið að meðaltali ná- lægt 50 kr., svo af pessu er auðsætt að efnahagurinn er síður enn eigi blómlegur, °g vantar pó enn hvelfingu í hana og nokk- ra aðgjörð á gólfinu. |>að virðist pví frem- ur tillilíðilegt, að lokum, að geta pess, að allmargir hafa pegar rjett henni hjálpar- hönd. Fyrst ;og fremst gengust nokkrar heiðurskonur, hjer í sveitinni, fyrir pví i fyrra vetur, að safna til hlutaveltu í pví augnamiði; með peim hætti áskotnuðust hirkjunni hjer um bil 134 kr., og studdu peir nú að pví með drenglyndi engu siður en aðrir, er áður vóru mótfallnir endur reisn liennar, svo sem að framan er ávikið. Jar 'að auki hafa nokkrir góðgjarnir menn gefið henni; sem orðið er að samtöldu 132 kr., og mun kirkjulialdari síðar gjöra ná- kvæma grein fyrir samskotum pessum, á- samt pví, er væntanlega er enn ókomið. Nú er keyptur fyrir nokkuð af pessu og heimfluttur af sóknarbændum borðviður til hvelfingar, sem í áformi er að smíða á yfir- standandi ári. Skrifað í marz 1878. Einn íbúi Reykjahlíðarsóknar. Í* Eptir nærfellt 7 mánaða pjáningafulla sjúkdómslegu — seinast nokkrar vikur á sjúkrahúsinu á Akureyri — deyði, af lær- meini, 20. dag síðastl. júnimánaðar, heiðurs- bóndinn J>órður Sigurðarson frá Litladal í Eyjafirði 47 ára gamall, fæddur 7. marz 1831 á J>órustöðum í Kaupangssókn. Hann uppólst hjá foreldrum sínum, Sigurði Rand- versyni og Guðrúnu Sigurðardóttur, sem voru alkunn sóma-og ráðvendnishjón. FráJ>óru- stöðum fluttust pau með hann, ungann, að Gröf í sömu sókn og paðan aptur voríð 1852 fram að Leyningi í Hólasókn. Ári síðar, eða 7. október 1853, giptist J>órður sál. ungfrú Áðalbjörgu Jónsdóttur Vigfús- sonar í Litladal; fluttu pau pangað næsta vor 1854 og fóru að búa, fyrst á hálfri jörðinni og seinna á henni állri og bjuggu par síðan. Samverutími peirra hjóna var pannig 24 % ár, blessaði Drottinn pau með 5 börnum af hverjum 3 dóu í æsku, en 2 piltar efnilegir lifa, annar Jón, giptur bóndi í Litladal, hinn 12 ára, Vigfús að nafni. J>órður sál. var af fátækum kominn, og uppólst á peirri tíð, sem menntun al- pýðumanna bæði var — af vel-flestum — álítin ópörf og litt fáanleg; hann minntist pess líka einatt með angri, að kringum- stæðurnar hefðu gjört sig, sem aðra fleiri, háðann forlögum peirra tíma; allt fyrir pað stóð hann — í m'örgum greinum — ekki á baki sumum peim mönnum, er mennt- aðri kaflast, pví honum voru meðfædd pau hyggindi, sem í hag koma. J>ó foreldrar hans eigi skildu honum „auðlegð há, eptirí pessum heim“ pá tók hann í arf eptir pau, sem gulli er betra, trúrækni og guðsótta, og varðveitti pá dýrgripi rækilega til dauða- dags, máttí svo að orði kveða að allt ann- að gott leggðist honum tih Hann eignaðist góða konu, sjer samboðna og samhenta í öllu og með henni töluverðann bústofn, og fyrir einstaka reglusemi, prifnað, atorku og útsjón auðgaðist bú peirra, svo pað var nú orðið eitt hvert hið blómlegasta í pessu sveitarfjelagi. Hann var hjálpsamur, til- lögugóður og hinn skilvísasti í öllum við- skiptum; skyldurækinn, ástríkur og um- byggjusamur ektamaður, faðir og húsfaðir, einlægur, vinfastur, tryggnr, háttprúður og ráðvandur, og hafðí pví á sjer almennings bezta orð. J>órðar sál. mun pví lengi minnst með virðingu og söknuði, ekki einungis af eptir lifandi ekkju hans og börnum, lieldur hka öllum peim sem nokkur kynni höfðu af honum. Jarðarför hans fram fór aðMikla- garði 28. dag júnímánaðar í viðurvist mikils fjölmennis. J>annig getur hins látna, hans mann- dyggða vinur og vottur. K. S. J>akkaVávarp. Jeg finn viðkvæmt til pess, að mjer er skylt að votta opinberlega mitt hjartans pakklæti, nokkrum heiðursmönnum hjer í sveitarfjelaginu, fyrir pá innilegu hlutdeild sem peir hafa tekið í mæðu- og harma- kjörum mínum næstliðinn vetur og vor, pó einkum og sjerílagi fyrir pá alúðlegu vel- vild, er peir í orði og verki auðsýndu, og ljetu í tje, mínum sárt saknaða elskulega ektamanni J>órði sál. Sigurðssyní alla hans löngu og pungbæru banalegutíð. Nafngreini jeg, sem fyrstan og fremstann til pess, presta- öldunginn síra Jón Austmann, sem af ó- preytanlegri mannelsku, svo iðuglega bæði beðinn og óbeðinn vitjaði pess sjúka, útbú- inn með orð huggunarinnar, til pess að stytta honum stundir, og læknislegar til- raunir — sem honum er svo lagið — er optast mýktu eða linuðu, á einhvern veg pjáningarnar í bráðina. Fyrir öll sín mörgu ómök, „recept“ og meðul, hefir hann ekki pegið einn einasta eyrir. Hjer næst get jeg peirra heiðursbænda: Benidikts Jóhann- essonar í Hvassafelli og Jóhannesar Bjarna- sonar í Stóradal, sem ætíð voru boðnir og búnir til pjenustu, ljeðu hvað eptir annað menn og hesta bæði til að sækja læknir og meðul, á samt til fleiri ferðalaga er fyrir komu, og að síðustu pegar minn elskulegi girntist að* komast undir læknishönd á sjúkrahúsið, voru peir ásamt fleiri vinum og venslamönnum fúsir til að takast á hendur — pott torsótt sýndist — að flytja hann íulla 3. milna leíð ofan á Akureyri. J>essum hjer greindu, og öllum peim sem á einhvern hátt leituðust við að gjöra mjer og mínum krossburðinn polanlegri, bið jeg af hrærðu hjarta, pann algóða misk- unnsemdanna föður, rikuglega að endur- gjalda, á pann hátt og peim tíma, sem hans alvízka sjer peim, til beztu blessunar, hent- ast vera. Litladal 19. október 1878. Aðalbj örg Jónsdóttir. Fr jettir. Ur brjefum að sunnan, sem dagsett eru 2. og 3. nóvember 1878: „Póstskipið Fhönix lagði frá Reykjavík 18. f. m. á leið til Kaupmhafnar; mátti pað teljast heppið að vera sloppið hjeðan frá landi, fyrir hin miklu norðanillviður, sem hjer dundu yfir dagana 21.—26. f. m.: strandaði hjer pá skonnorten „Helene“ frá H'amborg, en öllum skipverjum varð bjarg- að. Skip petta, er var mjög brotið í botn- inn og vörurnar sem í pvi voru talsvert skemdar, var með möstrum, rá og reiða selt við opinbert uppboð fyrir 865 kr. I nefndu veðri fuku og brotnuðu skip ogbát- ar í Reykjavík, einníg fuku, biluðu og brotnuðu pil og pök á húsum og úti hús. 'Sagt er að skaðar og skemdir hafi orðið hjer í nærsveitunum á húsum, heyjum og skipum; skip hafði fokið að Móum á Kjal- arnesi út á sjó og annað á Leirárgörðum í Leirársveit, og íbúðarhús af timbri brotn- aði á Leirá. Kaupskip, er fara átti til Borðeyrar, hafði að afstöðnu veðrinu kom- ist inn á Hafnarfjörð, er kvað svo brotið og bilað, að ekki sje annað sýnna en að pað sje ómögulegt viðgjörðar og verði pví að seljast við opinbert uppboð. „Gylfi“, hið nýja skip peirra Geirs Zöega dbrm. og fl.,

x

Norðanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.