Norðanfari - 31.03.1881, Side 4
var önclvegistíð til 5. júlí, en aðfar.i nótt
hins 6., var svo rnikið frost, að pykkur
ldaki var á vatni ]>vi, er úti stóð í ílátum,
kartöflugrasið fraus allt og fölnaði, nema
digrustu leggir (beens), flatbaunir fjellu al-
veg og mais skemmdist mikið, þetta var á
efri lóðum, en á vatnsbökkunum urðu sæðis
kemmdirnar mikið minni. Aðfara nótt
bins fyrsta ágúst, var norðan stórviður og
áköf rigning, þá gekk vatnið víða á land,
braut baklcana sem ba'rstir voru, og uppí
sáðreiti á nokkrum stöðum, svo að rann
npp í engj;ir, er að því lágu, svo að ill
bevjandi varð í þeiin upp frá því. J>egar á
leið ágús't, voru opt rigningar og rosaveður
og allt til 6. sept. J>á um nóttina eptir var
mikið frost og þó enn meira nóttina hins
13., skemmdist þá útsæði manna að nýju,
og síðari hluti þess mánaðar voru nokkrar
lrostnætur, og hefir því uppskera manna
orðið á flestum stöðum með lang rýrasta
móti, eins á bveiti, þó að það frysi ekki,
eyðilagðist það að nokkru af rigningunum,
svo slóu veðrin því sumstaðar niður í sum-
ar, svo það skemmdist.
Lika er beyailinn yfir höfuð mikíð með
minnsta móti, þó tekúr út yfir hvað hann
licfir skemmst í liaust, bæði af rigningunum
og einkum af vatnsflóðunum, því að í sept.
komu ein 3 eða 4 stórílóð af norðanveðrnm,
'svo að mikill bluti eugjanna víðvegar um ný-
lcnduna fylltist af vatni, og hefir mátt róa
stórum bátum millum heystakkanna, má því
nærri geta hvaða skemmdir því líkt vatn
gjörir, það liorfir því til að hinn mesti fóð-
urskortur verði lijá almenningi í vetur, nema
að menn drepi í haust margt af gripum sín-
um, og sýnist þó sro, sem að þeir rnættu
ckki fækka, því nógu nrikil er fátækt manna
hjer samt. Fiskafli heíir verið allgóður hæði
í vor og sumar, en misjafnt hiifa nienn get-
að notið lians, því að ílestir eru einvirkjar og
hafa því mörgu að gegna, þar á ofan hafa
margir menn verið tímum saman upp íMani-
toba, að leita sjer atvinnu, pó misjafnt hafi
gengið að hafa gagn af því, og er því lík-
legt að hjargarpröng verði hjer hjá sumum
inönnum í vetur, þar landsarðurinn hefir
misheppnast svo stórkostlega.
það eru cú fáir farnir að syngja landi
þessu lof, með því «Framfari» hrökk af á
næstl. vetri, og hlaut því að hætta fagurgal-
anum nm ágæti þessa lands, þess glæsilegu
framtíð og ágætiskjör íbúa þess, þó brá fyrir
apturgöngu hans í vor, sem líklega hefir leitt
af því, að hann hafi farist í slæmu skapi til
óvina sinna, cnda hjelt hún dyggilega fram
sínum fornu lífsreglum, að leitast við að ó-
frægja óvinina, en liefja upp gæðinga sína og
hagi landsins eður íbúa þess; hún hvarf þó
fijótt aptur, hvort sem hún hefir verið kveð-
in niður, eður kulnað út á annan hátt.
Allmargir menu hafa flutt úr nýlend-
unni í sumar og flestir til Dakóta, og flestir
þeir sem eptír eru, munu hafa liug á að
fara líka, svo fljótt, sem kringumstæður og
efni leyfa þeim, en efnin hijóta að ráða og
fátækt margra hjer, virðist hefzt of mikil.
HeilSufar mamja hefir verið ailgott í sumar
engir dáið í pessari byggð».
F rj e tti Y.
Á góuþrælinn 21. f. m. var lijer á Ak-
ureyri 32° frost á R., sem er hið mesta
er komið hefir hjer í vetur, en vanalega
16—20 gr., enda er nú allt orðið . fullt apt-
ur með liafís það augað eygir af fjöllum til
Jwfs og samfrosta víð lagísinn, og nú lengi
— 52 —
engin björg fengist úr sjó, þar til nú fyrir
fám dögmn að fiskvart hefir orðið upp um
ísinn á Arnarnesvík, undan Hjalteyri og hjer
innra undan Oddeyri. Fáir hafa enn, að
sögn, skorið af fóðrum, en flestir í voðameð
skepnur sínar batni ekki því fyrri og-betur.
— Víða í sveitum getur fólk ekki varið sig
fyrir frostgaddi sem kominn er inn í bæina,
og sumstaðar kvað fólk ekki fara úr rúmun-
mn til niðri- og útiverka, nema það sem
vinnufærast er, enda eru ofnar mjög óvíða í
baðstofum; fólk kvað og ráðalaust með mat-
björg sína í búrum og verða að færa hana
í baðstofur, t. d. mjólk, grauta, skyr og slát-
ur, en kjöt í fjárhús, svo er og almenn um-
kvörtun með eldiviðarskort, kemur það að
nokkru leyti af því, að mór er allt of lítill
og óvíða skorinn til eldsneytis, og svo af
því, að veturinn í fyrra var eins sjaldgæfur
með veðurblíðu og snjóleysur, svo fje gekk
þá meira og minna sjálíala, sem þessi vetur
er dæmafár með frostgrimmd, ísalög, fann-
fergju og jarðbannir. — Sumstaðar hafa fjós
og fjárhús ekki orðið varin fyrir gaddinum og
kýr þess vegna gjört minna gagn en venju-
lega og annað bjargræði því orðið uppgangs
samara.
Taugaveiki og fuugnabólga liefir á stöku
stöðum stungið sjer niður, og kíghósti víða
þjáð börn, einkum í Skagafirði og Húna-
vatnssýslu og nokkur þeirra dáið, og er ekki
ólíklegt að slíkt orsakist af hinum mikla
kulda, sem börnin verða ekki varin fyrir,
enda í rúmunum.
Fjárveikindi liafa óvíða gengið, nema
bráðapestin, sem drepið hefir talsvert á stöku
hæjum. Skjögur- eða aílleysisveiki á hross-
um kvað ganga í Skagafirði og liefir á sumum
bæjum orðið skæð, einkum á Eybildarholti,
hvar 7 eru dauð og fleiri veik or síðasfc spurð-
ist; þegar þnu eru bírkt sjest mest á lung-
um þeirra, þau drepast engu síður feit en
mögur, það er mjög líklegt að þetta orsalnst
af óhæfilega mismunnndi bita og kulda á
hrossum, þar scm þau cru úti á gaddinum
um daga, en menn neyddir til að troða þeim
of mörgum í sama hús uni nætur.
Nýlega befir maður komið vestan úr
Skagafirði, varð liann pósti samferða vest-
ur, liafði póstur orðið 2 daga hríðtepptur á
Víðivöllum og fengið þaðaft vestur yfir og í
Húnavatnssýslu ákaflega vonda færð. Maður
þessi segir fannfergjuna í Skagafjarðar- og
Húnavatnssýslum engu minni enu bjer, ísa-
lög hin sömu á Skagafirði, svo ganga mátti
hann hringiun í kring, út fyrir Tindastól að
Sævarlandi í Ytri-Laxárdal, úr landi fram
til Málmeyjar og máskje Drangeyjar. Fjarska-
mikill hákarlsafli í Málmey og austanvert
Skagafjarðar upp um ísinn, þar kvað og hafa
fundist, á ísnum mikið af dauðum æðarfugli
er hungrað og frosið hefir í hel, og má nærri
geta að petta muni víðast kringum landið, (vjer
liöfum áður getið þessa að austan) og verður
þetta að líkindum stórtjón fyrir varpeigendur.
Hvalir liöfðu sjezt að nýju, í vök djúptnorð-
ur og vestur af Málmey. Fyrir skömmu
sáust 3 bjarndýr á Reykjum í Hjaltadal og
hafði slóðin eptír þau legið ‘norðanyfir Hjalta-
dalsheiði, þaðan hjeldu þau ofan dalinn og
sást síðast til þeirra upp í Svonefndum Ing-
veldarstaðahnjúk. Dýr þessi eru aðlíkindum
birnan með 2 húnum er sást fyrst á Tjör-
nesi, síðan á Brettingsstöðum á Flateyardaí
hvar þau komu að fjárhúsi til manns er var að
hyrgja það; maðurinn hafði járnreku í hendi,
en pá hann leit við var birnan komin að
honum og ætlaði að slá hann með liramm-
Ienti höggið á vanga dýrsins og blóðgaði hann,
svo að hún hörfaði þegar undan , síðan var
þeim af fieiri mönnum veitt eptirför, en þá
fór hún að herða gönguna svo hún komst
með krakka sína undan. Seint á Góunni
hafði hæli eptir bjárndýr sjeðst utan undir
baðstofustafninum í Laufási, en var komið
þaðan er á fætur var farið. |>að mun sjald-
an, eptir sem sögur fara af, að jafnmikill
bjarndýragangur liafi verið lijer á landi sem
í vetur, og væri þess óskandi, að þau yrðu
lijer ekki eptir þá ísinn leysir frá landi, þau
mundu ekki verða góðir gestir hjer á afrjett-
um heldur enn í Noregi, hvar þau eru og
drepa bæði fje og stórgripi.
Hvergi vestra hafði þess vevið getið
að menn gjörðu ráð fyrir niðurskurði á
skepnum, þó liöfðu 10 bæir verið komnir
í heyþrot, ekki samt þeir, er flest hafa á
fóðrurn, svo sem á Reynistað, Glaumbæ og
Miklabæ, og sagt er þó að á hverjum þess-
ara bæja sjeu um 80 hross á gjöf, og
hafa másk je nóg fóður handa skepnum
sínum; sama er og sagt um sjera Arnljót
á Ytri-Bægisá, sem hefur á gjöf á sjötta
liundrað fjár, 8 nautgripi og 20 liross. I
Ejafirði, er sjera Jón Austmann á Saurbæ
sagður hinn byrgasti innan og utan bæjar,
harin hefur þegar tekið af öðrum til fóðurs
um 100 fjár og 10 hross, auk þessa miðlað
matbjörg til margra þurfandi, og tekið
heim til sin nokkur fátækra manna börn;
ættu því auð- og efna-menn vorir, að
láta sjer slikt veglyndi og mannelskudæmi
að kenningu verða, því að kríngum þá
munu vera fátækir, sem annarstaðar. það
er ekki núna fyrst, sem að sjera Jón og
kona bans bafa verið. slíkir höfðingjar og
hjálparvættir sem 'nú, heldur optast á
liverju ári að undan förnu meira og
minna.
E'yrir nokkru frjettist liingað, að óðals-
bóndi þorkell Pálsson á Frogtastöðum í
Skf. væri búinn að kaupa Hóla í Hjaliadal
fyrir 12,000 kr. að herra Benedikt Jóns-
syni sonarsyni sjera Benedikts sál. prófasts
Vigfússonar, er þessi hafði gefið nefndum
sonarsyni sínum til fullrar eigriar eptir
sinn dag, en þeir feðgarnir á Reynistað
berra sýslumaður Bríem og lierra Gunn-
laugur viljað fá þetta gamla bisknps- og
skólasetur keypt fyrir 13 eða 14.000 kr., í
þeim tilgangi, að þar verði sett fyrirmynd-
arbú og búnaðarskóli fyrir báðar sýslurnar
Skagaíjarðar-og Húnavatns, en verðið fyrir
þetta stórbýli, er ætlast til að fáist úr lands-
sjóði, eður að öðrum kosti, landssjóðurinn
eignist það síðan, legi það fyrirmyndarbúinu
Og búnaðarskólanum; gæti það nú á komist,
að Hóla staður ásamt gömlu dómkirkjunni,
yrði aptur þjóðeigti og þar verða stofnað-
ur búnaðarskóli og fyrirmyndarbú, þætti
oss vel ráðast úr apturför og niðurlæing
Hólastaðar og gönilu dómkirkjunnar.
Sagt er bjer eptir manni úr þingeyjar-
sýslu, er kom vestan úr Húnavatnsýslu, að
hvalur hafi náðst í ísnum undan Háagerði á
Skagaströnd, mælt er að hann hafi verið sex-
tugur ’milli sporðs og höfuðs.
— Fjármark sira Árna þorsteinssonar á
Saurbæ: sýlt i hamar hægra; heilrifað
vinstra. Brennimark Á p þ.
— Erfðamark Bjarnar Stefánssonar Thor-
arensens á Akureyri, er blaðstýft framan hæði
eyru og bitar aptanuudir á báðum.
Eigandi og ábyrgðarm.: Iljöni Jónsson.
Prentsmiðja Norðajif. Guöni. Guðinurrdsson