Norðanfari - 17.08.1881, Blaðsíða 4
- 108 -
þeim, ekki einungis þetta sumar, heldur og
áður. Yar jeg húinn að ámálga það við
eigendurna, að geyma þeirra betur, annars
mundi jeg láta taka þær fastar. |>enna
dag, er þær voru teknar, var búið að reka
þær tvisvar úr engjunum, en þær komu enn
aptur. Yoru þær þá reknar lieim skömmu
fyrir miðjan aptan og rjettaðar. Gestur
kom til mín nokkru seinna um kveldið, og
átti leið að Jórvik. Yar hann beðinn að
skila til Jórvikur að kýrnar væru hjá mjer
geymdar. Maður kom og sótti þær um
liáttatíma
J>að er fyllilega áreiðanlegt að Jón
bóndi hefir ekki sjálfur ritað greinina, held-
ur farið i smiðju. Mjer er líka nokkurn-
veginn ljöst, hver er hinn sanni höfundur
hennar. Ef það er nú sá hinn sami
maður sem ritaði ,,draumvitranina“ um
ðrið, sem þykist vera glöggskyggn um lýti
annara, en er glámskyggn um sin eigin; ef
það er sá maður, sem fjekk það orð á sig
einu sinni, er hann bjó með efnaðri ekkju
að hann hefði dregið undan tíund sina eigin
gripi og viljað komast hjá öllum opinberum
gjöldum, sem talinn var að hafa stjórnað
búi ekkjunnar svo vel, að hana mátti fje-
litla kalla, er hann för frá henni, og sem
það orð ljek á, að hann liefði dregið undir
sjálfan sig sem því nam, er eigur hennar
minkuðu um; ef það er sá maður, sem
varð í sveit sinni svo vinsæll, að hann sem
var af góðum ættum, var ættarskömm kall-
aður, og að honum var þar ekki vært lengur
heldur hlaut að brökklast burtu og hefir
siðan veiáð ýmisra sveita kvikindi; ef þa.ð
er sá maður sem talinn er að hafa komið
sjer viðast hvar illa með undirferli og æs-
ingum, — þá munu skynsamir menn eiga
liægt með að gjöra sjer ljósa hugmynd um,
hversu elskur hann er að sannleikanum og
hversu rjett ummæli lians um aðra eru, sjer
i lagi þegar hann ritar undir nafni annars
manns.
J>að er hugheil ósk mín til þeirra nafna,
nafnhöfundarins og hins sanna höfundar,
að þeir hermi rjettara og sannara, er þeir
leggja næst saman til nð smiða greinarstúf,
svo og að þeir hver um sig gæti betur
framvegis en bingað til, að bjálkanum i sínu
eigin auga.
Af því að sumir hafa getið þess til við
mig, að Jón nokkur Magnússon smiður væri
höfundur að grein nafna sins i Dölum, tek
jeg það hjer fram, að jeg er ekki i þeirra tölu.
Hjaltastað, 15. júlí 1881.
Björn J>orláksson.
Fnndarliald.
Safnaðarfundur fyrir Akureyrar sókn var
haldinn á Akureyri 7 ágúst. Á fundi voru
32, er atkvæði greiddu.
Fyrst var rætt um uppfræðingu barna.
J>að þótti ráð að koma sem flestum börnum,
einkum þeim, sem eru í nánd við kaupstað-
inn, í barnaskólann á Akureyri ogvoruflest-
ir fundarmenn af Akureyri því meðmæltir,
að leyfa skuli börnum úr sveitinni aðgang að
skólanum með sömu kostum og kaupstaðar-
börnum. Að öðru leyti skyldi á vissumbæj-
um, er hentastir þykja, haldinn kennari
nokkurn tírna í vetur, og önnur börn ganga
þangað til kennslunnar.
J>á var rætt um aðgjörð á grundvelli
kirkjunnar. Kom mönnum saman um, að
ekki mætti draga lengur en til haustsins að
hlaða grundvöllinn að nýjn, en kölkun mætti
bíða vors. Menn skyldu skyldir að leggja
til vinnu til hleðslu á grundvellinum úr því
kominn er 20. september í haust.
Sveinbjörn bóndi á Stokkahlöðum bar
fram þá beiðni 5 búenda syðst í Akureyrar-
sókn, að fundurinn veitti meðmæli bón þeirra
um að mega eiga kirkjusókn að Grund eða
Munkaþverá. Óþarfi þótti að bera málið
upp til atkvæða, þar eð almennur fundur
lijer í sókn hefði nýlega sagt um það álit
sitt.
Samþykkt var, að frá veturnóttum til
þorraloka skuli messugjörð í kirkjunni byrja
stundu fyrir bádegi.
Samþykkt var, að halda almennan hús-
lestur í kirkjunni þá sunnudaga, sem ekki
er messað á Akureyri.
J>á var kosin sóknarnefnd: Friðbjörn
Steinsson Jón Davíðsson á Kroppi og Jónas
Jónsson á Kjarna.
Loksins var kosinn .safnaðarfulltrúi á
lijeraðsfund Skapti ritstjóri Jósepsson.
J>akkarávarp.
J>egar jeg haustið 1879 yfirgaf prest-
þjónustu í Grundar- og Möðruvalla presta-
kalli í Eýjafirði, þá.tók liáæruverðugur herra
prófasturinn riddari af dannebrog sjera Dan-
jel Halldórsson á Hrafnagili að sjer prests-
þjónustuna í Grundarsókn, en liinn ríki
prestaöldungur sjera Jón Austmann prests-
þjónustuna í Möðruvalla sókn. Átti jeg að
gjalda prestum þessum fulla borgun af presta-
kallsins tekjum. Ljet herra prófasturinn
gegna prestsþjónustu í Grundarsókn til næst-
liðinna fardaga 1881, átti jeg þá að standa
honum skil á launum hans, sem hefðu orðið
300 lcr. að ijettum reikningi, en hann gaf
mjer þetta alltsainan.
Fyrir þessa liöfðinglegu gjöf þakka jeg
herra prófastinum innilegast og bið Drottinn
að endurgjalda honum þetta margfaldlega.
Grund í Eýjafirði 1 dag ágústm. 1881.
Sigurgeir Jakobsson.
t
1, þ. m. Ijezt húsfrú Sopliie Jakobine
Havsteen borin Thyrrestrup, á 68. ári, eptir
langa og þunga sjúkdómslegu. Hún hafði
lifað 46 ár í ástúðlcgu hjónabandi með manni
sínum kaupmanni Jóhanni Gottfred
Havsteen og þau eignast saman 13 börn,
af hverjum 7. eru dáin en 6 lifa, 2 synir og
4 dætur; J>eir eru: amtmaður Jóhannes Júlí-
us og verzlunarstjóri Jakob Valdemar á Odd-
eyri, en þær eru Jörgina Petrea, Maren Ja-
kobea, Nielsine Sophie, ekkja eptir verzl-
unarstjóra Jensen sál. og Sophie Gerthrud
Katrín gipt bjeraðslækni J>orgrími Johnsen.
Húsfrú Sophie Jakobine sálaða var að allra
dómi, sern þekktu hana, álitin meðal hinna
ágætustu kvenna hjer á landi að gáfum,
menntun, atgjörfi og siðprýði, ástrík og um-
hyggjusöm eiginkona og móðir barna sinna,
stjórnsöm og reglusöm húsmóðir.
12. þ. m. framfór jarðarför hennar að
fjölda fólks viðstöddum, og þar á meðal 3
prestar er allir fluttu sína ræðuna hvor, sjera
Guðmundur Helgason húskveðjuna, sjera Da-
víð prófastur Guðmundsson í kirkjunni og
sjera Jón Austmann yfir gröfinni. Altaris-
taflan að ofan og niður eptir hliðunum, alt-
arið, gráturnar, prjedikunarstóllinn og bitinn
ínilli kórs og kirkju tjaldað svörtum dúkum
og eíri hluti líkkistunnar, þakin blómsveigum.
f J>ann 8 júní næstliðinn andaðist Tóm-
as Skúlason, að Granastöðum í Köldukinn,
eptir þunga legu, frá því um jól, dauðamein
hans var krabbamein, sem óx í kríngum
annað augað, mest hinn síðari hluta vetrar-
ins. Sjúkdóm sinn bar hann, með miklu
þreki, og stillingu, sem lionum var eðlileg
þegar á reyndi.
Fr j e11ir innlentlar.
Sunnudaginn 7. þ. m. kom gufuskipið,
«Camoens» frá Englandi hingað og með því
40 útlendir farþegjar, 49 manns af Suður- og
Yesturlandi, er fengu far í skipinu á Borðeyri
og ætla til Vesturheims og hjer voru komnir
fyrir 50 manns, sem líka ætla vestur um
haf. Hestakaupmaður Cogliill beið hjer með
hross á fjórða liundrað, er hann hafði keypt
í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum og fáein
lijer. Skipstjóri fór fram á það, að vestur-
farar þeir er komu frá Borðeyri færi hjer í
land og biðu ásamt þeim vesturförum er lijer
voru fyrir í landi, þangað til þeir j>ætu sent
nýtt skip eptir þeiin, er mundi verða iunan
hálfsmánaðar, þar skipið hefði steitt á kletti
á Húnaflóa og staðið þar 3 klukkutíma og þeir
því ekki, þótt enginn leki fyndist á skipinu,
gætu ábyrgst að það værihaffært. Amtmað-
ur J. Havsteen áleit, að ef óhætt væri að 40
káetufarþegar færu ineð skipinu, væri ekki
i meiri hætta fyrir vesturfara, svo að eptir að
I liinn setti bæjarfógeti hafði tilkynnt öllum
| vesturförum bæði þeim, sem voru út á skip-
| inu og eins þeim er voru í landi slys það sem
hafði komið fyrir skipið og spurt þá að, hvort
’ þeir væru viljugir til að farameðþví, oggef-
ið skipstjóra þar að lútandi vottorð, varð það
! úr, að aílir vesturfararnir fóru með skipinu.
11. þ. m. kom og hingað gufuskipið «Valdi-
i mar» á leið sinni frá Kaupmannahöfn og til
Reykjavíkur og með því ýmsir farþegjar. Eng-
ar nýungar liöfum vjer að þessu sinni fengið
frá útlöndum og heldur ekki af þinginu,
nema að verzlun megi fara fram á Kolkuósi í
Skf., Hesteyri í Jökulfjörðum í ísafjarðarsýslu
og á Sandvík í Grímsey í Eyjafjarðarsýslu.
Veitt brauð: Fjallaþingin sjera Gutt-
ormi Vigfússyni á Svalbarði, Brjámslækur
Sjera Arngrími Bjarnasyni á Alptamýri.
Ó v e i 11 brauð: Mjóifjörður, Svalbarð
í Jústilfirði, Hof í Vopnafirði, Helgastaðir í
Reykjadal, Glæsibær i Kræklingahlíð, Hof og
Spákonufell á Skagaströnd, Eyri við Skutulfjörð.
Auglýsinga r.
— Hjermeð aðvarast landsetarnir á Möðru-
vallaklausturs umboðsjörðum, sem og einnig
gjaldendur til Möðruvallaklausturs kirkju, sem
enn eiga ógoldin áfallin gjöld til umboðssjóðs-
ins og kirkjunnar, um að greiða gjöld þessi
til mín fyrir 8. september næstkomandi þar
þau að öðrum kosti verða tekin lögtaki,
Akureyri, 15. ágúst 1881.
Pjetur Sæmundsson.
settur.
Stórkiiujm-fislivcrzlim
William Jamieson’s
15 Pitt Street
Liverpool
— stofnuð árið 1821 —
tekst á hendur að kaupa og selja í umboði
annara, skipsfarma af íslenzkum og færey-
iskum saltfiski, löngu og ísu.
Banki verzlunarinnar er:
Liverpool Union Bank
— Hjer með sel jeg og afhendi fjármark
mitt, stúfrifað hægra biti framan hvatrifað
vinstra, Hansi Magnússyni á Húsavík í þing-
eyjarsyslu,
Staddur á Akureyri 6 ágúst 1881.
Jón Jónsson.
— Fjármark Vilhjálms Jónassonar á Sýla-
læk í Helgastaðahreppi er: sneiðrifað framan
hægra og tvírifað í stúf vinstra. Brennimark:
Vilh. J.
— Fjármark Jónasar Jónassonar áSýlalæk
er: sneiðrifað fr. hægra og þrjár fjaðrir aptan
vinstra. Brennimark: J. J s Á.
— Fjármark Jóns Guðmundssonar á Finna-
stöðum í Grýtubakkahrepp: Tvístýft aptan
hægra. Brennimark: J Q.
Eigandi og ábyrgðarm.: Bjðrn Jónsson.
Prentsmiðja Norðanf. B. M. Stephánsson.