Norðanfari


Norðanfari - 06.03.1883, Qupperneq 3

Norðanfari - 06.03.1883, Qupperneq 3
Aður vjer látum línur pessar frá oss, pá leyfum vjer oss, að minnast enn á póstann; má vera peim pyki nóg komið, en oss finnst ekkert sagt um skör fram, og mætti mörgu sönnu bæta við það, sem pegar er komið. Oss hefir ætíð pótt óviðfeldið ogtorskilin ástæðan fyrir pví, að póstar fengu sjerstök laun fyrir pá daga, sem peir bíða á aðalpóst- stöðvum, pað er að segja pá daga, sem peir biða eptir liinn ákveðna brottfarardag peirra. J>að kemur ekki ósjaldan fyrir, að póstur kemst ekki á stað á rjettum degi; hefir komið fyrir að peir hafa beðið liver eptir öðrum, fyrir slóðaskap hins á aðalstöðvunum, og svo náttúrlega báðir farið seinna á stað en ætlað var. — Oss finnst engin ástæða til, að borga pósti pessa bið; hann tapar engri atvinnu við pað, og parf livort sem er að kosta sig og liesta allt árið; eru honum goldnir nægir peningar til framfæris sjer, svo pessi viðauki eða biðpeningar eru greiddir að ópörfu. — |>að eina flýtur af biðinni, að ferð póstsins færist til, en jafn margar verða pær pó á ári, og kaup póstsin's engum eyri minna. — bfú segir póstur: Af biðinni getur leitt, að jeg fái illt veður og færi, sem jeg annars hefði sloppið hjá; verður ætíð meiri ferða- kostnaður pegar illt er, og pá eiga biðpening- arnir að bæta mjer upp pann skaða. J>etta er engin ástæða segjumvjer; fyrst og freinst er póstur ekki hræddur við ótíð pegar hann kemur mörgum dögum á eptir tímanum (honum er nú opt hamlað að komast áfram), og svo má eins vel ímynda sjer, að póstur fái að jafnaði illt og gott veður og færi fyrir biðina; ef ástæða er til að póstur fái borgaða bið fyrir daga pá, er hann verður að bíða á aðalstöðvum sínum, pá er lika ástæða til, að sekta hann fyrir hvern pann dag, er hann Jkemur á eptir tímanum, og hann er á einhvern hátt valdur að. Sektin fyrir daginn, verður að vera jöfn pví kaupi, er pósturinn fær pegar hann verður að bíða. — «Er ekki ólíklegt, að póstar myndu passa sig betur pegar petta kæmist á; eins og nú er, pá pyrfti petta að vera svona. Segjuin vjer enn, að mjög er ranglátt að greiða petta aukagjald til póstnnna, og skulum vjer nú eptir láta lesendum Norðan- fara, að hugsa ögn um pað, Vjer vonum að póstarnir, peir ljelegu, verði ekki lengi í sessi sínum; að stjórn- endur póstmáTa á landi hjer líti heldur miskunnandi á málið, og enginn íslendingur poli lengur kúgun, óreglu, menntunarleysi, leti og pjóðar-minnkunn orða og bótalaust. Kitað litlu eptir Nýár 1883. r. n, Brjef úr Hörgárdal, 83_ Heiðraði ritstjóri! pú baðst mig síðast, að skrifa pjer um ástandið hjer í hrepp, er leitt hefir af hínu liðna mjög bága árferði m. fl. Skal jeg nú stuttlega sýna lit á pví. Sumarið 1881, var svo mikill töðubrestur hjer i hrepp að pað nam 1000 hestum, eða fulium 33. kýr- fóðrum, fyrir neðan meðallag, sem jeg met í pað minnsta 4000 kr. Næstliðið vor, voru 400 lambsotur fram yfir venju, pað met jeg pannig; 400 lömb 1600 kr. málnyta undan 400 ám minnst 1600 kr. J>að er mörgum Ijóst, og af mörgum viðurkennt, að afnota- rirð á skurðarfjenu í haust, sem var meiri hluti geldpeningsins, hafi verið i minnsta lagi 1 kr. á kind hverri, og er pess ljós vottur, sauðasalan í haust til Skota, er pvi sá búhnekkir í hreppnum 3300 kr. Næst- liðið sumar var útheys bresturinn svo afar- mikill, að pað nam yfir helming niður úr fyrri ára meðaltali, helmingur er 3667 best. sem vel má reikna til 7500 kr., Er pá pessi beinlínis búhnekkir, 66 búenda í hreppn- um, 18000 krónur, p. e. rúmar 270 kr, á hvern. jpetta munu allir góðgjarnir menn viðurkenna stóran linekki, par, sem af pess- um búendum eru 34, undir skiptitíund, 21 tiunda 5—10 hndr., 10 tíunda 10—15, og að eins einn par yfir. Mun pó ekki stór tíundarundandráttur, eiga sjer stað bjer í brepp, pví jeg hefi orðið pess var, að hrepp- stjórinn mun hafa kennt mönnum að telja rjett fram, með pví að bæta við tíund par er honum hefir pótt' við eiga; en peir sem fyrir urðu munu hafa sætt sig við pað, og bætt ráð sitt; svo jeg lield að hans aðferð sje allgóð lækning við tíundarsótt.' Fyrir ofanskrifaðri skyrslu, er hægt að færa næg- ar ástæður, pví hún er byggð á búnaðar og tiundar skýrslum hreppsins. Aptur á móti er ekki hægt nákvæmlega að reikna, hvað hallærið liefir óbeinlínis, valdið miklu tjóni. Svo sem atvinnu brestur á hinu langvinna illviðra vori síðast, málnytu missir af bú- peningi yfir sumarið, hrakningur og aðrar skemmdir á hinum litlu heyjum og par af leiðandi málnytu brestur á kúm í vetur og margt fleira. |>etta verður að vísu ekki reiknað til peninga, samt munu pað engar öfgar að meta pað til 4000 kr. virði. Jeg hefi heyrt, að sýslumaður, pegar í haust, hafi skorað á hreppsnefi.dirnar, að gefa glöggar skýrslur um ástandið í sýsl- unni útaf árferðinu, og er líklegt að neínd- irnar gegni jafn nauðsynlegri og skynsamri áskorun. Ekki hefir samt orðið vart við neina framkvæmd nefndarinnar í pá átt hjer í hrepp; kunnar framkvæmdir hennar eru að eins fólgnar í pví, að, seljabændum peirra eigin eign, p. e. útlendu gjatirnar. J>að hefir nú annars í vetur verið efst á dagskrá hjer í hrepp,^og jeg ætla víðar, hfnar útlendu korns og fóðursgjafir, en pað yrði oflangt og óparft mál að rita allt pað sem par um hefir skrafað og skeggrætt verið, svo jeg leiði pað hjá mjer að mestu, að eins skal jeg taka pað fram, að framanrituð skýrsla sje ljós vottur pess, að hjer er um hallæri að ræða pótt ekki sje manndauði, pvi jeg ætla að hallærið komí fyrst, og síð- ast dauði, ef ekki er viðlitið. J>að liefir nú verið orð á pví að nokkrir „háttstandandi" menn sjeu svo skammsýnir að peir láti sjer um munn fara að hjer um sveitir, hafi ekkert hallæri verið, og að bæði menn og skepnur hafi en nægtir, svo að gjafanna sje engin pörf uú, heldur eigi að stofna af peim hreppasjóði tii framtiðar; en sem vafalaust striðir móti tilgangi gefendanna, sem er si 1. að sýslumaður ásamt sýslunefnd skipti milli hreppanna, 2. að hreppsnefndin ásamt hreppstjóra, skipti gjöfunum meðal hreppsbúa sem þegar hafa liðið tjónafhall- ærinu, er pví heimildarláust að siafna peim í sjóð, handa einhverjum mönnum fram í tímanum. ]pað er annars mjög eptirtekta- vert, að menn pessir er mótmæla hallærinu eru sumir emlfSettismenn og auðmenn; enn allur almenningur er annars hugar í pessu efni, og mun pað vera af pví að liann finn- ur skóinu kreppa. Aptur á móti virðist, sem hinir ekki sjái háskann fyr en vesal- ingarnir sitja hnípnir hungraðir og horaðir á grafarbarminum, pá ætla þeir að fara að líta eptir ástandinu, og hugsa fyrst sem svo, et og drekk sála min, pví í launum minum og maurum er ekkert hallæri, síðan fer jeg að „penkja og álykta“, og svokem jeg til að hjálpa með ráði og dáð, enn þá eru máske margir fallnir í hina dimmu gröf; fer þeim pá líkt og mannfýlunni sem á að hafa sagt, „bíddu við Jón litli, með- an jeg klæði mig úr sokkunum“ en á með- an drukknaði drengurinn, ];>egar jeg í „Sknld“ las hið óviðjafnanlega brjef, frá Guðbrandi nokkrum íslending á Englandi þá datt mjer í hug þetta: Ódrengur hlýt- ur maður pessi að vera, og að „þarfara væri að myllusteinn o. s. frv“. Heldur en að skrifa fósturjörðu sinni til ills, pótt hann ekki vilji gjöra henni gott, ekki sízt ef hann er alinn upp af fátækrafje hennar. Jeg vildi óska, að vinur minn skólastjóri J. Hjaltalín, pegar liann skrifar til-Englands, um ástandið hjer hjá okkur, byggði meira á skýrslum peim. sem vonandi er að innan skamms komi frá hreppsnefndunum, og skyn- samra bænda áliti, sem honum er hægt að útvega sjer, heldur en gullhömrum pessa Guðbrandar. Litið er um framfarir í búnaðarlegu tilliti pessi árin eins og skýrslurnar sýna, sein líklega stafar mikið af vorharðindun- um: Að vísu hefi jeg sjeð í stjórnartíðind- unum, að framfarafjelag nokkurt í Bægis- ársðkn, hafi þegar fengið prjár fjárveiting- ar úr laudssjóði fullar 100 kr. í hvert skipti. En hjer virðist að vera einhver hængur i spilinu, og hann er sá, að bændur í sókn- inni þverneita að þeir sjeu í nokkru pess- konar fjelagi, og þeim sje pað fjelag með öllu ókunnugt, svo maður nokkur í minna- lagi menntur, hjelt að hjer væri einhver vind- ingur í: eða þá að skollin væri farin að spila „lauinuspíl11 Yeðurátt er hjer stillt og góð, og snjó- lítið, en svo mikil svellalög að mjög erhag- skart fyrir skepnur, einkum hesta, sem koma nú pungt á hin litlu hey, gengur því óðum á hin skemmdu hey. Kránksamt erhjeraf kvefsótt, svo fólk er víða við rúmið, og börn- in deyja, en pótt mikið væri af pví orðið á síðastliðnu ári, líkleganær hundraði barna dáin í Glæsibæar, Skriðu, og Arnarneshrepp- um, læt eg nú.hjer -staðar nema að sinni og mátt pú setja þessar linur í blaðið, ef pú villt nýta þær til ’pess. Frjettir útlendar. Hðfn, 13. jan. 1883. Árið 1883 er gengið í garð og má kalla að gamlárið 1882 hafi verið stórtíðindalaust og friðarár að minnsta kosti í Norðurálfu. Á Egyptalandi einu liefir nokkuð sögulegt orðið, pví ekki er teljandi að Bismark við árslokin bljes upp heljarmikinn blaðastorm, svo mönnum sýndist uin hríð, sem hinar mestu viðsjár- og ófriðardylgjur væru með þjóðverjum, Rússum og Austurríkismönnum; hinn gamli seggur helir optar villt sjónir fyrir mönnum og hefir liann þá optast eitt- hvað á prjónunum sjálfur undir nið,-^ sem hann vill leyna. Giers, utanríkis-ráðgjafi Rússa, tók sjer ferð á hendur, langa og stranga; fyrst hitti haun Bisniark í Varzin (par heíir hann setið síðan ófriðnum laulc við Frakka); eliki vita menn livnð peim hefir farið á milli, en geta til, að erindið liafi verið vináttu- samband og muni liann hafa farið jafnnær; til Vínar kom. hann og, og nú er liann suður á Ítalíu. Bismark notaði tækifærið til að gjöra uppskátt 5 ára samband milli J>jóð- verja og Austurríkismanna 15. okt. 1879 til 15. okt. 1884; vill hann með pessu sýna, að J>jóðverjum ögri ekki úlfakreppan, Frakka að vestan og Rússa að austan, en pess gjörist nú lítt pörf, pví dauðinn, hinn voðalegi bandamaður Bismarks sem Prakkar kalla, beíir heimt Gambettu og Skobelef til heljar. Egyptaland lætur hann sig engu skipta, en gefur sig allan við auka og efla herinn, en til pess gengur ógrynni og hefir liann pví snúið seglum og vill hafa bundna verzlun par sem hann áður vildi hafa frjálsa, hælskar og fjölgar tollum; frelsismenn felldu reyndar

x

Norðanfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.