Norðanfari


Norðanfari - 07.01.1884, Síða 4

Norðanfari - 07.01.1884, Síða 4
-ur!“ kallaði einhver recld. 9/u - 83. Nýlega kvað Riissakeisari hafa fundið kassa á borðinu fullan af helvjelum og fylgdi brjef þess efnis, að hann skyldi ékki ætla sig ór allri hæltu enn. Níhilistar eru og farnir að gefa út nvtt blað; það eru ekki ell kurl komin til grafar enn á Rússlandi. INJíLEífDAIl FEJETTIE. Úr brjefi að vestan 28 nóv. 1883. Kú liggur mjög þungt, í taugaveiki að sagt er, Jón bóndi Ólafsson á Hornstöðumí Dalasýslu, sem er orðinn alþekktur af sinum ágætlega heppnu læknisstörfum, svo að fáir mundu verða, meir tregaðir hjer vestra enn hann, ef hans missti við nú þegar, sem ósk- andi er að ekki verði. Enn þó hann lifni er óvíst nær hann getur tekið til sinnar fyrri yðju n. 1. að lækna sjúka nær og íjærf þvi vart mun hann geta haft þá aðhjúkrnn sem þorf er á, vegna örðugra kringumstæða, þvi fjölskylda, og næstum ofmikil góðsemi eður hofðinglyndi og þarafleiðandi fjeskortur ern þar orsok til. Fagurt og skyldugt væri það að almenn- ingur hjer vestra vottaði honnm i verkinu þakk- læti sitt, og sæmdi hann með heiðursgjefum, því allt gott á bann sklíð, og fólk hans, ckki sizt þegar þörf krefur mest. í þeim til- gangi safnaðist á stuttum tíma í fyrra vetur i Bæjarhreppií Strandasýslu ekki svo Títið fje, -og að góðum mun úr vestustuhreppum Húna- vatnssýslu; og mun það hafa hjálpað honum ‘til að geta haldið áfram lækningum, þrátt íyrir þann skaða sem hann beið af harðær- anu, sem aðrír, undanfarin ár Úr brjefi nr Straudasýslu 28 okt. 1883. «Engar frjettir ufem sumarið hjer í Strand- asýslu var kalt og graslítið, svo að beyskapur varð mjög rýr, þó varð hann betri en í fyrra sumar, samt munu fáir vera byrgir fyrir þær fáu skepnur, ersettar verðaá ef vetur verður nokknð harður. Ekki er fiskur enn kominn, og mun mergum verða erfitt lífið ef ekkert fiskast í haust Úr brjefi úr Beykjavík 29. nóv. 1883. Fjarskalega óstillt tíð siðan um miðjan f. m. og þarafleiðandi gæftaleysi og afli frem- ur rýr, þá sjaldan hefir verið róið hjerum 20 I hlut þá er bezt hefir verið; ekki hefir hjer fallið snjór nema einusinni og þó lítill og ringdi hann af eptir 2 eða 3 daga, svo nú er hjer alrauð jörð nema lítið föl efst á fjöllum. Heilbrigði manna er bjer almennt góð, það jeg veit, en heldur mun lítið um bjargræði hjá þeim er ekki hafa annað að treysta uppá enn sjóinn, því þegar hann bregzt eða ógæftir ganga þá hafa menn ekkert nema kornmatinn og hann þurran og svartann kaffisopann má- ske sikurlausann eða sikurlítin; fjöldi manna hjer mun ekki hafa eignast inunnbita af kjöti f haust. enda var það ekki gefið 25—30 aura pundið móti peningum útí hönd, mör 35— 38 aura, gærur tóku kaupmenn eptir vigt 30 aura pd. og haustull gekk á 45—50 aura pd. Slátur mun hafa orðið í kringum 2 kr. Hjer er komin ný prentsmiðja, og er nú verið að setja hana á laggirnar þessa dagana og byrjar hún víst að vinna von bráðara, er það sem jeg hefi sjeð af prentsmiðju þessari nýtt og mjög vandað pnda er Sigmundur manna hag- sýnastur og útsjónarsamastur í því efni. Úr brjefi úr Vesturhópi í Húna- vatnssýslu 8. des. 1883.| •Tíðin hefir verið mjðg óstillt fog um- — 115 — hleypingasöm í vetur og mjög miklar úrkom- ur, einkum snjógangur svo víða varð hagskarpt um tima, útigangshross töluvert farinn að brakast og víst fje þar sem lítið hefir verið gefið, ótimgun talsverð í lömbum af skitu- pest -svo þau hafa víða drepist upp að 10 og yfir það sumstaðar. Heifsufar yfir höfuð gott og engir nafnkenndir dáið nema Friðrík Da- víðsson á Blönduósi úr taugaveiki. Fiskileysi mikið við Miðfjörð og Hrútafjörð í haust og- sama fiskileysi sagt af Ströndum allt norður að Gjögri, en þar nokkuð skárra*. Úr brjefi úr Reykjavík 30 nóv. 1883. «Veðurátta hefir hjer syrðra verið mikið góð til landsins, frostlaust og snjólaust að heita má ; þarámóti hefir verið fjarska storma- samt og haustvertíðin hefir þvi en sem kom- ið er orðið að sárlitlum notum, dálítið hefir þó fiskast þá sjaldan gefið hefir. |>að er því ekki laust við að þröngt sje í búi hjá ýms- um tómthúsmönnum hjer, sem mestmegnis eða þvínær eingöngu lifa á sjónum. Eggert Gunnarsson hefir fengið talsvert af vörum í í haust, er hann mestmegnis selur fyrir pen- inga. Hann er nú að kaupa fje og hesta, er hann ætlar uð senda út með póstskipinu». Úr brjefi út Hrútaíirði 9 des. 1883. «Hjer hefir mátt heitagóðtíð það sem af er vetrinum og nýafstaðin góð hláka, lakari tíð kvað vera — einkum snjóþyngsli — í Húna- vatns- og Skagaljarðarsýslum, og er óvanalegt að hjer skuli vera betra. Fiskilaust hefir hjer verið alveg í haust*. Ur brjefi úr Svartardal í Húna- vatnssýslu 10 des. 1883. «Tið er mjög rosasöm, einlægir útsynn- ingar og bleytuhríðar. Hjer í sveit hefir ver- ið jörð að þessu, en Skagafjörður hefir verið lakari svo farið er að gefa þar víða hrossum og fje. Heilbrigði er almenn, þó stingursjer taugaveiki niður á stöku stað, úrhennierný- dáiun Friðrik verzlunarstjóri Davíðsson á Blönduósi. Að fráfalli slíkra manna, sem hans, er æfinlega skaði, því auk þess sem hann var efnilegur æskumaður, hafði hann á- unnið sjer álit allra betri manna fyrir það hvað áreiðanlegur og viss hann var l viðskipt- um». Úr 17 blaði «Leifs» 1883. Frjettablöð í Constantinopel. segja frá að nokkrir Tyrkneskir menn, er sendir höfðu ver- ið til að rannsaka hvað mildar skemmdir höfðu orsakast af snjöflóðum úr fjallinu Ararat, hafi fundið örk Nóa. þeir sáu álengdar hátt uppí jöklinom, eitthvað líkt stórkostlegri byggingu úr dökkleitu timbri, fóru þeir þá að grennsl- ast eptir hvað þetta væri, hjá búendum í kringumliggjandi sveitum, og frjettu þeir að þetta hefði sjezt í jöklinum nú í síðast liðin 6 ár, en enginn hafði þorað að skoða hvað það var fyrir hræðilegri mynd, er þeir þótt- ust sjá í einum glugganum, en sendimenn Tyrkja voru hugdjarfir, og ásettu þeir sjerað komazt eptir hvað petta gæti verið, og eptir langvinnar þrautir tókst þeim loks að komazt að örkinni, og fundu þeir að hún hafði geymst furðu vel, en talsvert höfðu bornin (þar var hvorki skutur nje barki) brotnað, og það hefir sjálfsagt gjörst þegar hún hrapaði ofan eptir fjallinu, með Tyrkjum var í för þessari einn Englendingur og sá hann að örkin var smíð- uð úr þeirri viðartegund sem ritningin segir að Nói hafi brúkað, og sem hvergi fæst nema á sljettunum íram með Euphrat, þeir brutu sig inní örkina, og skoðuðu 3 herbergi og voru þau 15 fet frá gólfi til lopts, meira gátu þeir ekki skoðað, því allt var fullt af ís, og geta þeir því ekki sagt neitt um stærðina ef þessi örk skyldi vera jafnstór og Nóa örkin er sögð að hafi verið (o: 300 al. á lengd og 50 á breidd e. s. frv.) verður ervitt fyrir mótmælendur Genesis bókar, að bera móti að syndaflóðið hali átt sjer stað. Auglýsingar. D^"’ Vegna skulda minna til annara, hlýt jeg hjer með að skora á alla þá, sem eru mjer skyldugir fvrir «Norðanfara» og fleira frá und- anförnum árum, að þeir borgi í þessum mánuði, helzt. I peningum; en þeir, sem ekki geta það, þá með innskript til þeirrar verzlunar hvar jeg hefi reikning og þeim hægast að ráðstafa því.' Einnig óskajegað þeir, sem eru kaupendur að 22. árgangi Nf., og ekki eru þegar búnir að borga bann, vildu gjöra svo vel og greiða til min borgun fyrir hanu á nefndu tímabili. Akureyri, 7 jan. 1883. Björn Jónsson. Hnakkur til siilu "Wl alfær, með reiða, gjörð, ístöðum og í- staðaólum, yfirdýnu laus, lítið skemmdur. Ritstjóri vísar á, seljanda. Hinn 22 Október 1883 voru seldar við opinbert uppboð í Skriðuhrepp þessar úrtýn- ings kindur: 1. Hvit lambgimbur með mark miðhlut- að hægra, sýlt og biti apt. vinstra. 2. Hvít lambgimbur með mark: J>rí- slýft fr. hægra Stúfrifað vinstra. J. Jónatansson. Á tímabilinu frá 20—22 október tapaðist hjer frá Steindyrum á Látraströnd hvolpur (tík) svartflekkótt nálægt missiris gömul, köll- uð Píla, (Tíla) tneðferðamönnum semfóru hjer inn fyrir þá daga frá uppboði sem haldið var á Látrum á strandskipi. Hvern sem kynni að hafa orðið var við nefndan hvólp, er vinsam- legast beðinn að greiða fyrir honum ef hægt er til mín, eða að gjöra mjer orð skriflega ef það væri langt frá. Steindyrum 20 des. 1883. S.' Stefánsson. í haust var mjer dreginn livithornótt lambgimbur með mínu marki sem er Stúf- rifað hægra fjöður fr. Stýft vinstra. Hver sem er rjettur eigandi lambs þessa verður að vitja andvirðisins til mín og semja við mig um markið og jafnframt borga auglýsingu þessa. Mælifetli 4. des. 1883. Sigurður Magnússon. Á næstliðnu hausti Var mjer dregin vet- ur gömul ær með mínu fjármarki hvatt biti fr. hægra, hamarskorið vinstra, og með ólæsi legu brennimarki á hornum. Sá sem saunar kindina sína eign má vitja andvirðis til mín ef hann borgar auglýsingu þessa* Yestarikrókum i Hálshrepp 17/i2 — 83. Björn Bjarnason. Eigandi og ábyrgðarm.: Bjðrn Júnssun. Prentsmiðja Norðanfara, Prentari: B. St. Thorarensen.

x

Norðanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðanfari
https://timarit.is/publication/88

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.