Baldur - 02.02.1869, Blaðsíða 4

Baldur - 02.02.1869, Blaðsíða 4
12 um orðum: sagt ósatt, en að öðrum kosti lýsum vjer hann fyrir þetta minni mann. Og að svo mæltu virðum vjer eigi þetta mál annarra svara. í annan stað viljum vjer gjöra lesendum vorum grein fyrir, hvernig á því stóð, að Jón Ólafsson gjörðist ritstjóri biaðs þessa. Svo var mál með vexti, að það var fullráðið, að skipta um ábyrgðarmann að blaði þessu; sá, er átti að taka við, var eigi staddur við hjer svo, að hann hefði lient- ngleika á, að taka við blaðinu um áramótin; fyrir því þurfti að fá mann til þessa til bráðabyrgða; þótti það á litlu standa, hvort sá maður væri fjelagsmaður, eður samið væri við einhvern annan, er til þess væri hæfur; en öllum fje- lagsmönnum þótti einmitt hr. Jón Ólafsson fyrir margra hluta sakir flestra manna bezt fallinn til þess starfa, enda var hann eigi ófús á það, og þannig tók hann að sjer að vera ritstjóri að fyrsta sjöttungi þessa árgangs, og hefir honum farið það svo úr liendi, að vjer eigi myndum skipta, ef vjer ættum kost á honum lengur; en hann hefir eigi gefið kost á sjer nema til 3—4 blaða af þessu ári. Útgefendur «Baldurs». Auga fyrir auga og tönn fyrir t'ónn. (Suum cuique) . Hinir heiðruðu útgefendur þessa blaðs hafa hjer að framan stuttlega skýrt frá sambandi mínu og blaðsins, og sjá þá allir, að jeg er að eins verkamaður þeirra. — Jeg ælla ekki að fara mörgum orðum um grein «t’jóðólfs■>; en jeg vil að eins geta þess, að það, sem sagt er þar um, að jeg sje eigi fullveðja, er að eins kastað fram út í bláinn, og engar ástæður færðar fyrir því, enda mun og hafa verið grannt um að þær væri til. Það væri því reyndar nóg að segja, að þetta sje ó- sannindi, því að ástæðuleysu þarf eigi að hrekja með á- stæðum; en jeg skal þó gjöra það í þetta sinn. Jeg ætla eigi að gjöra mikið úr því, að höf. þekkir eigi aldur minn, en get þess, að það sem hann segir um fjársamninga, er mjer sem ritstjóra óviðkomandi; það er útgefendanna. Hitt er vitanlegt, að hver maður á tvítugsaldri hefir ábyrgð orða sinna og gjörða, því það hefir maður enda 16 ára. Nú er það eigi síður víst, að svara verður maður til fleiri orða, en prentaðra. Nú ef jeg lýg meiðandi áburði á mann og slcrifa, þá er vitanlegt, að jeg verð lögsóttur, og það með fullum rjetti, en löggjöf 9. maí 1855 gjörir engan mun á skrifuðu eða prentuðu letri, heldur leggur að jöfnu. Þá er vitanlegt, að ef jeg get brotið mót lögum með hvorutveggja mótinu, þá verð jeg jafnt að svara til gjörða minna, hvort sem er.— Öll greinin er annars samin í svo ókurteisum og hrokalegum stýl, að mjerdettur eigi í hug, að hún sje eptir ábyrgðarmanninn, enda er það flestum kunnugt hjer í grenndinni, að sú alda er eigi þaðan runnin; og mjer er skapraun að því, að vita, að ábm., sem jeg á svo margt gott upp að inna, skuli leita að lagavizku hjá þeim manni, sem ekki einu sinni veit fyrir þrekleysi, hvort hann veit nokkuð sjálfur í lögum eða ekki. Mjer þykir það illt, að hann hefir þannig neytt mig til, að segja sannleika, sem jeg annars hefði þagað með; og jeg vildi óska þess, að hann væri eigi svo laus á svellinu, að hann stæð- ist, þótt hann heyrði þann »karakterleysingja« eða önnur því- lík gjáríf geltikvikindi segja: «þj- þj- þje taki þeþþa grein; hana taki þje—þje taki hana, mnjú, þa- þa- þa gjöriþje — mj-mj- mjaú«. Jón Óiafsson, ritstjóri. TIL ÁBMS. «ÞJÓÐÓLFS». titgefendur og ritstjóri Baldurs eru hjer að framan búnir að sýna, hversu illviljuð og ástæðulaus greinin í «Þjóð- ólfi» 21. árg., nr. 14—15 er, og er því að nokkru óþarft, þótt jeg sje nefndur í henni, að tala fleira um hana; en af því hugsunarvillurnar í þessari grein hjá skólak. H. Kr. Friðrikssyni sýnast að benda til þess, að jeg hafi þurft að semja við ritstjóra Baldurs — en hann sje ekki samnings- bær—, þá set jeg hjer þessi fáu orð:— «Baldur» berþað með sjer, að fjelagið, sem gefur hann út, hefir alla inn- tekt og útgipt blaðsins; og fjelagið hefir einnig í blaðinu beðið kaupendur þess að borga til mín, en blaðið ber ekki með sjer, að ritstjórinn sje í fjelaginu. Hverjum getur nú komið fil hugar að setja slíkar vitleysur fram, — nema skólakennaranum og hans fylgjurum — að gefa það undir fótinn, að jeg hafi þurft að semja nokkuð við ritstjóra blaðsins um fjárútlát þess, þar sem svona stendur á? Sama hugsunarvilla liggur til grundvallar í greininni, frá orðunum «enda virðist» og allt til endans; það ern ráð- leggingar, er afvega leiða alla þá, er á slíkt vilja fallast; (sjá löggjöf um prentfrelsi af 9. maí 1855). Einar Þórðarson. AUGLÝSINGAR. — Þar eð ýmsir þeir, er jeg í sumar sendi boðsbrjef upp á tímarit, enn þá eigi hafa sent mjer þau aptur, og enga vísbendingu gefið mjer um það, hvort þeir hafi feng- ið nokkra kaupendur, eður eigi, þá óska jeg, að þeir hið fyrsta vildu láta mig vita, hvað þeim hefir orðið ágengt í þessu efni, svo jeg geti sjeð, hvort jeg fái svo marga kaupendur, að jeg sjái mjer fært, að byrja prentun ritsins. Keykjavík í janrtar 1869. Jón Pjetursson. — Tópnli er áma, er ták nær 5 tnnur; hún var úr eik, meb 8 járn- gjiirbum, tvíbytin, meb ferkúntuíiu sponsgati, álíka víb, og bún var liing. Finuist áman, er bebib ab haida henni til skila til undirskrifabs Narfakoti 17. d. jan.-m. 1869. Arinbj. Ólafsson. titgefandi: «Fjetag eitt í Iieykjavík«. — Ritstjóri: Jón Ólafsson. — Skrifstofa: Lœlmisgötu M 5. <1 Preutabur í lands-prentsmiljunni 1869. Einar púrbarson.

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/90

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.