Heilbrigðistíðindi - 01.01.1872, Blaðsíða 3

Heilbrigðistíðindi - 01.01.1872, Blaðsíða 3
an gengur», og finna þannig nokkurs konar afbötun fyrir yfir- sjón sína í því; en má eg þá spyrja: erum vjer íslendingar nokkru bættari fyrir það, þótt vjer öpum ýmsa hættulega lesti eptir útlendum þjóðum? Iíoma ekki hinar skaðlegu afleiðing- ar ofdrykkjunnar að jafnri tiltölu fram við oss fyrir það, þótt landslýðurinn sje miklu fámennari en í öðrum löndum? Og erum vjer í nokkru bættari fyrir það, þótt aðrir sjeu í sömu ó- gæfunni, sem sjálfir vjer? í útlöndum, þar sem mannfjöldinn er svo afskaplega mikill, í samanburði við íslauds fámenna lýð, ber raunar í fijótu bragði eigi svo mikið á því, þar sem svo mikið er að taka á, en þó er það víst, að öllum þeim, sein trúað er fyrir heilsu manna, jeg á við læknana, þykir þetta mjög svo urn of, og játa það, að hin brýnasta nauðsyn sje til, að sporna við því á allan leyfilegan hátt. «Það er búið að margsanna það með alveg órækum reikn- ingum», segir enskur læknir, Dr. Augustus Guy (Gæ), «að dauðratalan meðal drykkjumanna er árlega þrefalt stærri en ir.eðal hinna, sem hófsamir eru eða bindindissamir, og þó» — bætir hann við — «ber enn þá meira á þessum mikla mis- mun á ungmennum en þeim, sem fullorðnir eru orðnir. Allir þeir, sem til ofdrykkju falla á unga aldri, eða milli tvítugs og þrítugs, missa samkvæmt áreiðanlegum reikningum, gjörð- um á mörgum þúsundum manns, liðug 20 til 22 ár af æfi sinni, og af þeim deyja fimmfalt fleiri, en af hinum, sem eigi hafa drukkið á þessum aldri». «það kann enginn högum að því að hyggja, hversu skaðvænir allir áfengir drykkir eru fyrir ung- mennin» segir nafntogaður frakkneskur líffræðingar, enda munu mjög fá dæmi finnast þess, að menn, sem farið hafa að drekka á unga aldri, hafi orðið gamlir menn, hversu vel sem þeir svo hafa verið gjörðir af náttúrunni». «Fáein soll», segir nafnkennd- ur læknir í Vesturheimi, «geta steypt unglingnum í slíkan sjúkdóm, að hann bíði þess aldrei bætur, heldur verður það opt hans banamein að fáum árum, og það á ýmsan hátt. Hinir sem aptur á móíi fara fyrst að drekka, þegar þeir eru komnir á apturfararárin (i Involutions Perioden), geta opt orðið gamlir menn, og, ef til vill, haldið sjer vel fram á elliárin, einkum ef 1*

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.