Tíminn - 21.03.1872, Qupperneq 4
28
ura» Dr. J. Hjaltalfns, og vonum vjer að íslend-
ingar taki þeim fegins hendi, svo þau deyi eigi út
að ári liðnu, eins og sumt af tímaritum vorum,
þvi þau eru sönn meinabót, og verða að þeim
tilætluðu notum, sje þeim gaumur gefin.
36 + 2.
MANNALÁT.
(Aðsent.) í næstliðnum febrúarmánuði, andað-
ist Sigurður Eiríksson bónda á Vöglum í Eyjafirði,
Sigurðarsonar bónda í Engey og Guðnvjar Gísla-
dóttur, þórðarsonar bónda í Borgarfirði syðra;
bóndi á Ingjaldsstöðum í Bárðardal, rúmra 47 ára
að aldri, fæddur 20. nóvember 1824; frá konu og
11 börnum; hann átti alls 12 börn, enn 1 þeirra
andaðist ungt. Hann var heilsutæpur lengst æfi
sinnar af brjóstveiki, enn hann var mesti fjör-
maður og lá ekki á liði sínu með að ala önn
fyrir sjer og sínum, eptir fyllstu kröptum. Guð
hafði gefið honum skarpar og góðar gáfur, þó
hann gæti ekki sýnt þær, eins og þeir, er ná
hinni almennu menntun. Hann var einn þeirra
manna er stofnuðu hófsemdarfjelag í þingeyjar-
sýslu, árið 1844 (sjá «Fjölnir» 8. ár 1845 bls. 82).
Auðæfum þessa heims, hafði honunVeigi hlotnast að
safna, enn dyggð og guðsótti, voru þeir fjársjóð-
ir sem hann stundaði að ávinna sjer og sínum.
Stofnendur sparisjóðsins ábyrgjast sjerhvern
þann halla, sem sjóðurinn kann að verða fyrir,
og sem hann eigi sjálfur megnar að borga, með
allt að 100 rd. hver. Fjórum mönnum mun verða
gefinn kostur á að verða stofnendur sjóðsins,
sem fulltrúar fyrir önnur bjeruð, og takast þeir
þá á hendur sömu ábyrgð.
Ágóða sparisjóðsins, að frádregnum kostnaði,
verður haldið saman í ábyrgðarsjóð, og sjóðnum
stjórnað kauplaust uú fyrst um sinn.
Sem forstjórar sjóðsins, fyrir árið 1872, eru
af stofnendunum kosnir: land- og bæjarfógeti Árni
Thorsteinson, Adjunkt Halldór Guðmundsson og
jarðeigandi Magnús Jónsson í Bráðræði.
Á hverjum laugardegi kl. 4—5 e. m., er
tekið á móti fje í sparisjóð og svarað út, nú fyrst
um sinn í bæjarþingsstofunni.
Samþykktir sjóðsins, lil hverra skírskotast um
nákvæmari tilhögun sjóðsins, verða prentaðar og
fást síðan til kaups.
Heykjavík
Á. Thorsteinson.
Edvard Siemsen.
G. Zöega.
H. A. Sivertsen.
Jón P/etursson.
0. Fimen.
'. marz 1872.
B. P. Hjaltesteð.
Einar Jónsson.
II. Guðmundsson.
Hilmar Finsen.
Magnús Jónsson.
O. P. Möller.
AUGLÝSINGAR.
— Til þess að bæta úr almennum þörfum,
höfum vjer stofnað sparisjóð i Beykjavíkur-
kaupstað, sem byrjar starfa sinn 20. apríl 1872,
og tekur sjóðurinn við samlagi úr öllu landinu.
Sparisjóðurinn svarar fyrst um sinn 3 af 100
í vexti á hverju ári. Vextir útborgast tvisvar á
ári í 11. júní og 11. desember gjalddaga. Vext-
ir sem eru óútteknir innan 1. júlí og 1. janúar,
verða lagðir við höfuðstól og af þeim svöruð
renturenta.
Sparisjóðurinn er einnig lánssjóður, og verð-
ur úr honum lánað gegn áreiðanlegu veði og
sjálfsábyrgð.
— Af því það er afráðið, að 6 arkir komi út af
«Timanum» fyrir hálft árið, eður til útgöngujúní-
mánaðar næstkomandi, sem kosta 32 sk. eru kaup-
endurnir hjer með beðnir að greiða áðurnefnda
32 sk., að því leyti er þeir eigi hafa greitt þá,
fyrir lok maímánaðar þ. á. Sunnlendingar og
Vestfirðingar til Páls gullsmiðs Eyjólfssonar, hjer
í bænum, Norðlendingar og Auslfirðingar, til
Magnúsar norðanpósts Hallgrímssonar á Akureyri.
Jeg ber það traust til kaupenda blaðsins, að þeir
verði við þessum tilmælum.
Ábyrgðarm.
Ábyrgðarmaður: Jónas Sveinsson.
Prentabor í preotsmitiju íslaods. Einar þórSarson.