Tíminn - 08.05.1873, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.05.1873, Blaðsíða 3
51 hálfu, skal jeg ekki daema um, en hitt veit jeg, að við íslendingar erum enn, og verðum því mið- ur fyrst um sinn, aumingjar. Þá Jhorkill John- son, Hinrik Iírohn og fjelaga, skal jeg ekki aumka, hversu sem þeir kunna að vera blekktir: þeir fá sitt með rentum, hvort heldur vjer borgum þeim betur eða miður. Matthías Jolcltumsson. oHjúin gjöra garðinn frægan». Hjer er að vísu meint til góðra hjúa, en þau hjú eru líka til, sem gjöra garðinn ófrægan með ýmsu móti. J»að mun ekki minnsta meinið í þjóðlíkama vorum, hvernig hjúahaldi og húsaga er varið nú á tímum, og þegar óreglan í þessu efni þótti óþol- andi á 17. og 18. öld, eins og sjá má af þá gefn- um lagaboðum, og eptirlátnum skrifum helztu manna á landi hjer, t. d. biskupanna Gísla Odds- sonar og Finns Jónssonar, (sjá kirkjusögu hins síðar nefnda), og þá ætla jeg að meistara Jóni Þorkelssyni i sínu meistarstykki1 hafi fundizt á- bótavant í þessu efni, og mundi þessum og ótal fleiri, ef þeir mættu líta upp úr gröf sinni núna seinni hluta 19. aldur, sjá og segja oheimur versnandi fer«. Hjer var að vísu til húsaga tilskipun af 3. júní 1746, en hún mun á seinni tímum hafa ver- ið líkt á sig komin eins og Ritningin, þegarLúter sá hana fyrst — og held jeg að lítið hafi úr þessu bætt tilskipun af 26. janúar 1866. Við þekkjum líka hvernig sumum þörfum lögum er haldið uppi að tilhlutun rjettvísinnar á vorum dögum, t. d. kláðalöggjöfinni; það er ekki nóg að hafa góð og míkil lög, það þarf árvakra yíirmenn, þó er það enn ekki nóg, því ekki getur einn formaður borið sig ef hásetarnir eru ragir og latir, og jafnvel ekki dregið, þó fiskurinn sje á, af því þeir vita að for- • maðurinn ekki sjer í botninn. Vjer megum þó ekki ætlast til að yfirvöldin fari inn í hvern kofa daglega, þó þeir hefðu vald til — en betur má ef vel vill — enda mundu fæstir kjósa að þess þyrfti við, því það er húsbændanna að halda lögreglu í lagi, hver í sínu húsi, og það gjörir hver góður og nýtur húsbóndi. Samt er það ekki meining mín að yfirvöldin geti ekkert verkað á þetta mál, því það er ekki nóg í rjettum sltilningi til að vera gott og uppbyggilegt yfirvald að halda dauðahaldi um hinn dauða bókstaf, en hirða ekkert um andann sem iífgar, og við skulum ekki hugsa að við eig- um svo ómannlega stjórn yfir okkur hvorki utan- lands nje innan, sem ekki meti hvern þann þegn sinn þess meir, sem hann kemur meiru til leið- ar, í því sem til framfara leiðir, hverrar stjettar sem hann er. (Niðurl. í næstabl.). — Þareð hin blöðin hafa svo rækilega, sagt frá öllum merkisviðburðum hjer í Reykjavík, allt frá því að stjórnarbótin, eða stjórnarbreytingin komst á hjá oss, og þar til urn sumarmálin, þá sýuist «Timanum» það eigi óviðurkvæmilegt, að geta þess helzta er síðan hefir gjörzt hjer frásöguvert. Út af greininni «Landshöfðingja-hneygslið» f «Göngu-Hrólfi», höfðaði Landshöfðingi þegar mál móti ritstjóranum Jóni Ólafssyni, mættu þeir fyrst fyrir sáttanefnd, en gekk eigi saman með þeim á sáttafundi þessum, þótti ritstjóra J. Ó. að Lands- höfðingi við hafa meiðyrði um sig, og höfðaði þegar mál gegn honum út úr því; hafa þeir í því einnig verið fyrir forlíkun, og gekk ekki saman sem fyr, þar á móti höfum vjer heyrt, að ritstj. J. Ó. hafi gjört sig líklegan til, að fara i annað málið við Landshöfðingjann, þar eð honum þótti hann nokkuð meiðyrtur sig. Nú er að segja frá blaðinu «Göngu-Hrólfi», prentsmiðjan í Reykjavík skuldbatt sig í vetur til að prenta þetta blað með því skilyrði, að tveir gildir og góðir menn vildu ábyrgjast borgunina fyrirborgun þess, því rilstjóri sjálfur er mjög efna- lítill. Til þess að ganga í þessa ábyrgð urðu 2 heiðvirðir skólakennarar við latínuskólann; þóttu þeir næsta ágætir til þessa, á meðan allt gekk að óskum, en nú sýnist ætla að rætast á þeim, að 1) Hóspostilla Vídalíus.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.