Víkverji

Tölublað

Víkverji - 24.07.1873, Blaðsíða 3

Víkverji - 24.07.1873, Blaðsíða 3
51 stýrimenn á íslenskum og dönskum skipum, er á ferðum eru við ísland. Nefndin (Egill þm. Snæfellinga, Páll þm. Húnvetn. og Davíð þm. Skagfirðinga) réði alþingi að ráða konungi frá, að frumvarpið verði gjört að lögum. Ástæðurnar fyrir þessari tillögu eru mjög stuttar. Nefndin lætr sér nægja að lýsa yfir þeim dómi sínum, að á- kvarðanir frumvarpsins eigi hér ekki við, eptir því sem hér til hagar. Það sé auðsætt af athuga- semdum stjórnarinnar við frumvarpið, að í embætti þetta verði vafalaust settr danskr maðr ogað prófnefndin eigi að skipast dönsk- um mönnum. «Kenslan og prófið verðr því alveg danskt og því alveg óhafandi fyrir ís- lendinga’i. «Nefndin treystir sér eigi heldr til að gjöra breytingar við frumvarpið, því henni geðjast jafnt að hverri einstakri grein þess, eins og því í heild sinni, eins og það nú liggr fyrir, og síst í samvinnu við þá stjórn, er sýnir það æ berlegar, að hún skeytir lítið tillögum alþingis». Litlar ttmræður urðu um þelta frumvarp, eins og um liin. Menn sáu, að meiri hluti þingmanna hafði komið sér saman um úrslil málsins, og að engin ráð voru til að verka á skoðanir hans; vér skulum einungis taka það fram, að konungsfulltrúi skýrði þinginu frá,að það væri svo langt frá að stjórnin ætlaði dönsk- um manni forstjóraembætli sjómannaskólans, að hann jafnvel hefði ástæðu til að halda, að kostr væri á duglegum og vel hæfum íslend- ingi til embættis þessa, ef stjörnarfrumvarpið nú yrði viðtekið. Dmræða um mál, sem búið er að gera út um, fyrr en það kemr til um- ræðu, verðr allént að fá dauflegan brag, en ályktarumræðan í þessu máli varð samt all- merkileg, þar sem konungsfulltrúitók tilefni af þeim yfirlýsingum, er fram hafa komið á þessu þingi um, að megn óánægja sé til í iandinu með stjórnina, að fara nokkrum orðum um stjórnarmál vort, og prentum vér hér það, sem oss þykir mest kveða að í þessari ræðu, 1) f>6 óhngsandi sé, sýnast inir virtiulegu nofndar- menn eigi at) hafa þekt nppástungur alþingis 1869 um próflþ, eþr vill nefndin telja oss trú nm, at) alþingi „refni at> koma dónsku sniþi á sem fiest" htr i landi? og í ræðu, er hr. Jón frá Gautlöndum flutti til að svara konungsfulltrúa. Konungsfulltrúi talaði hér um bil á þessa leið: Eg skal fastlega halda því fram, að ekki hefir lög- gjafarvaldið í neinu brotið á móti inum gild- andi lögum og ekki hefir stjórnin f neinu gert þetta. Óánægjan er því sprottin af, að in gildandi lög um stjórnarfyrirkomulagið eigi geðjast mönnum, og á þetta sérlega við með tilliti til sjálfs stjórnarfyrirkomulagsins. Hver sá sem vill landinu vel, á að gjöra sér Ijóst, hvaðan óánægja þjóðarinnar er sprottin, og lagfæra það, sem hefir valdið henni. Ef stjórn landsins hefir brotið á móti inum gild- andi lögum, þá er það skylda þingsins gagn- vartlandinu, eins og það samkvæmt alþingis- tilskipuninni eru rétlindi þess, að koma fram fastákveðnum umkvörtunum, en það dugar eigi að lýsa yfir þessari óánægju hér og hvar við frumvörp um hvalkjöt og annarstaðar. Nú þykir sumum þingmönnum að eigi verði ráðin bót á inum gildandi lögum um stjórnarfyrirkomulag nema með þeim hætti, sem þeim virðist inn besti; þeir vilja eigi hafa aðra bót á málinu, en þá, er í öllu fellr þeim í geð —• en er þetta skynsamlegt, þegar ræðir nm mannaverk, sem ómögulega geta verið öllum til geðs? Vér óskum allir breyt- ingar á stjórnarfyrirkomulagi þessa lands. Vér höfum á inum undanförnu þingum náð samkomulagi um öll veruleg atriði stjórnar- skrárinnar að undanteknu einu atriði — stjórnarábyrgð þeirri, er á að vera tilhögun framkvæmdarvaldsins samferða. Meiri hluti þingsins hefir þrisvar sagt: Vér viljum enga stjórnarskrá hafa, ef vér eigi getum fengið ákvörðun hér um í því formi, sem oss þykir best. Þrisvar hefir hans hátign konungrinn tilkynt þinginu, að hann geti ómögulega tekið þessar tillögur þingsins til greina. Hér er því alvarlegr ágreiningr, og að mínu áliti er eigi annað ráð, en að leita samkomulags á þeim grundvelli, er virðist konungi inn eini mögulegi. Enginn vafl gelr verið á því, að konungi beri bæði sam- þyktarvald og úrskurðarvald í þessu máli Þingmenn verða að hafa það hugfast, að til- kall vort til frjáslrar stjórnarskipunar er bygt

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.