Víkverji

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkverji - 25.10.1873, Qupperneq 2

Víkverji - 25.10.1873, Qupperneq 2
122 — Um fólkstöluna í fornöld hér á landi fer hæstaréttardómari Yilhjálmr Finsen meðal annars svo feldum orðum í ritgjörð þeirri um íslensk lög á þjóðveldistímanum, er vér fyr höfum um getið: Svo er sagt í íslend- ingasögum, að Gisur biskup í Skálholti hafi látið telja alla búendr ílandinu, áðr en bisk- upsstóll var settrað llólum hérumbil ár 1105, og voru þeir þá als 4560, en því verðr við bætt, að þeir hafi verið ótaldir, er eigi áttu þingfararkaupi að gegna, en þingfararkaupið er síðar orðið að tolli þeim, er skattr er nefndr, eins og kunnugt er. Skýrsla er nú til um, að ár 1753 voru allir bændr á íslandi taldir 6,700, skaltbændr 2,100 og alt fólkið 50,000. Menn hafa þá með því að ætla, eins og taldist 1753, tal allra bænda þrefalt við tal skattbænda, og með því að giska á, að hver bóndi hafi átt 7 manns í heimili, fundið út, að fólkstalan á íslandi, þá er Gisur var biskup hafi verið 100,000 (sjá Ný félagsrit X 27—28, Skýrslur um landshagi á Islandi I. 319 og flg.). Vér getum eigi fallist á reikning þenna. Nú á hver bóndi, er hefir nægilegt lausa- fé fram yfir manntal, að gjalda skatt án til- lits til þess, hvort hannerefnaðr eðr fátækr, Og skattrinn nemr 20 álnum (hver alin er eptir verðlagsskrám 1872—73 hér um bil 24 sk.). Tollr þessi gelr þannig verið mjög ósannsýnn og þungbær, og það er eigi ólík- legt, að bændr geri alt, hvað í þeirra valdi stendr til að komast hjá því að greiða þenna toll. fingfararkaup það, sem álli að greiða á þjóðveldistimanum, var þar í mót eigi nærri eins þungbært. frað hefir varla verið meira en lOálnir, og það kemr sér í lagi til greina, að það var engin skyldukvöð,- en hverjum bónda var frjálst að komast hjá að gjalda það, ef bann vildi riða til alþingis, og þar var í þá daga fjörugt og skemtilegt að koma. Færi bóndinn til alþingis, varð liann laus við að greiða tollinn, og fékk þar að auki sjálfr þingfararkaup. Hér við bætist, að menn þá keptust við að verða taldir skattbændr, þar sem þeir, er áttu þingfararkaupi að gegna, höfðu ýms réltindi, er liinir eigi höfðu, og voru þeir, er eigi töldust með skattbændum, því álitnir minni háttar menn. Ástæða er þannig til að ætla, að langflestir bændr á þjóðveldistimanum hafi goldið þingfararkaup; hér við koma heim orðin í Kristnisögu 13. kap.: «Hann (Gisur biskup) hafði áðr látið telja bændr ALLA á Islandi, — — — og voru þeir einir taidir, er þingfarkaupi áttu að gegna» ; og virðist það liggja í þessum orð- um, að þeir, er eigi hafa átt þingfararkaupi að gegna, eigi hafi verið margir. Það er af þessum rökum ætlun vor, að hlutfallið milli skattbænda og annara bænda hafi ár 1100 verið gagnstætt því, er það var ár 1753, og að þeir, er áttu þingfararkaupi að gegna ár 1100, hafi verið fleiri en hinir bændrnir. Því er það, ef til vill, heldr of mikið að ætla, að tala þeirra, er eigi greiddu þingfararkaup, hafir verið til dæmis 2000, þá er tala skattbændanna er sögð 4560, og hefir hér eptir tala allra bænda verið hérum bil hin sama, og hún var 1753. Vilji maðr nú af tilliti til þess, að á höfðingjabæum í fornöld voru fieiri menn í heimili en nú á sfðari tímum, reikna 10 manns í heimili hvers bónda verðr tala fólksins á íslandi í fornöld 60—70,000 manns. KONUNGR vor hefir í fyrra mánuði ferð- ast með drotlningunni, prinsi Valdimari og prinsessu l*yri til Rumpenheimshallar áÞýska- landi, þar er ættfólk drottningarinnar býr. Konungr hóf ferð sína 2. septbr. frá Friðar- borg, aðsetrsstað hans. Hann sigldi á gufuskipi sínu «Slésvík» tilLybeks, hélt þaðan áfram ferð- inni landveg, og kom á leiðinni við í Bonn, og hefir hann árið 1839 lesið við háskólann, er þar er. Hann komaptr2i.f. m. í fjærvist hans var ríkisstjórnin falin Friðriki konungsefni á liendr. Um ferð og heimkomu sínahefir kon- ungr gefið út 2 auglýsingar á vora tnngu, og komu þær nú til landsins. LÆKNASKIPUNIN. Dómsmálastjórnin hefir 1. septbr. þ. á., eptir tillögum lands- höfðingjans fallist á að landlæknir, jústilsráð Jón Hjaltalín verði fyrst um sinn laus við héraðslæknisstörf í læknisumdæmi því, sem sameinað er með landlæknisembættinu.

x

Víkverji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.