Víkverji

Tölublað

Víkverji - 04.11.1873, Blaðsíða 1

Víkverji - 04.11.1873, Blaðsíða 1
Afgreiðsluatofa «Vilt- verja« er í húsi Te.its (h'jralœkn. Finnboga- sonar. Verð blaðs- ins er 8 mrk um árið, 2 mrk um ársfjórð. wim^wmmsio 1». « Víkverji« kemr út á hverjum virkum laugardegi. Borgun fyrir auglýsingar 4/3 fyrir smáletrs- línu eðr viðlíkt rúm. 4fl» dag 2arar viku vetrar, j Viija guðs, oss og vorri pjóð 1. ár, 2. ársfjórðungr, þriðjud. 4. dag nóvenibermán. jvinnum, á meðan hrœrist blóð. 33. lölublað. Lundum í Borgarfirði 28. oklbr. 1873. Af því að nú liggr ferð suðr, datt mér í hug að rispa þér fáeinar línur, þótt mér sé nú hrollkalt, því viðsjáll er svipr vetrarins, þegar hann gengr í garð. Hér upp til sveita eru komin harðindi og óviðfeldin veðrátt líkt og á I’orra og enda lakari, því það er ó- vanalegt, að fáir sem engvir hafa getað hýst eðr hlynt að húsum eðr gert nokkuð haust- verk svo gagn sé í vegna kulda og snjó- komu, sem haldist hefir síðan um réttir, en hvað er þó veðrátta hér hjá þvi, sem er á Norðrlandi. Sira Páll á Hesli fór norðr að Melstað með Kristínu dóttur sira Ólafs, hreppti byl á heiðinni, svo hann mátti lil að vera þar sem hann var kominn til næsta morg- nns, gróf Kristínu í fönn, en var sjálfr á rjátli, og náði næsla dag norðr yfir heiðina með alt jafngótt. Það vildi svo vel til að frostlítið var og birli upp um morguninn. Hann kom til mín í gær að norðan og var inn frískasti. Bar hann mér þung tíðindi, að þá þegar hann lagði á stað frá Melstað hafi brunnið bœrinn að Sveðjustöðum í Mið- firði um nóltina, þar sem madame Elisabel ekkja sira Böðvars sáloga Þorvaldssonar bjó með Böðvari syni sínum, og bar eldinn svo brátt að, að fólkið varð að bjarga sér útum glugga hálfnakið og litlti varð bjargað af þvi, sem í húsnnum var, nema einhverju af rúm- fatnaði. Það var margt, sem hjálpaði lil, að svona atvikaðist, fyrst kviknaði í eldhúsveggn- um, veðrið mikið úti, eg þegar eldrinn hafði læst sig um alt, þá var bæði steinolía í bæn- um og töluvert af púðri, sem hjálpaði til. Einnig sagði sira Páll lát Páls alpingismanns í Víðidaistungu; hann hafði fengið ógnar verk i höfuðið, svo gróf út um bæði eyrun, lá í hálfan mánuð og dó stðan. Tvö kaupför kattpmanna hefir slitið upp t' ofsaveðri við Skagaströnd og átli að fara að halda uppboð á þeim þessa daga. Pétr Eggerts er nú kominn sjálfr á Borð- eyri með 46 lesta skip og annað frá honum á Grafarós. Þau höfðu bæði hafnað sig, þegar sira Páll fór að norðan. Verslunin hefir gengið þar vel, því fyrir hálfum mán- uði var Pétr búinn að fá um 900 fjár til skurðar, og var þó kvartað yfir slæmri færð og illviðrum að koma fé til kaupstaðar. Sagt er, að rúgr sé þar 10 rd., bankabygg 16 og 18 rd. eptir gæðum, kaffi 48 sk. Ull var tek- in á 36 sk., sauðir með aldri 9 og 10 rd. o. s. frv. Ur Norðrárdalnum hafa menn þang- að farið, en héðan engvir, þvi veðrátta hefir hamlað því. Héðan hefi eg ekkert að skrifa, nema það að víða befir fent sauðfé og hrakið, og er eigi tilspurt um það, þvi það gengr sjálfala um þenna tíma víða og því óvíst, hvort það hefst alt á endanum. í Laxholti hrakti fé í tjörn, svo 15 kindr köfnuðu, og var þó eigi alt hitt fundið. — RÁÐSMANNSSÝSLUNINA við þinghúsið og hegningarhúsið, er þar við er bygt, i Þing- holtinu fyrir austan bæinn, hefir landshöfð- ingi í dag veitt borgara og húseiganda hér í bænum Sigurði Jónssyni. Honum er gert að skyldu að ferðast til Danmerkr og vera þar við hegningarhússtjórn í 4 mánuði, áðr en hann tekst sýslun sína á hendr, og er 200 rd. styrkr veittr honum hér til. Laun hans og dagr sá, er hann næsta ár á að ganga að sýslun sinni, er enn eigi ákveðinn. HITI UPPSPRETTUVATNS. Fleslir menn halda, að kuldinn á uppsprettuvatni alstaðar sé inn sami, en þó oss sýnist svo, þegar vér drekkum vatnið, gelr verið eigi lítill munr hér á í inum ýmsum uppsprettum. Björn bóndi á Breiðabólstnð er fylgði pró- 129

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.