Víkverji - 11.09.1874, Qupperneq 7

Víkverji - 11.09.1874, Qupperneq 7
— SIGURÐR ra&lari GUÐMUNDSSON e r d íl- i n n ; á mánudagsmorgunimi var um 8. stundu akildi hann við, 40 ára gamall. Hann var fæddr á Hellulandi í Skagatirði, og voru foreldrar hans Guðmundr búndi ólafsson og Steinun Pétursdóttir. Snemma bar á hæfilegleikum hans til uppdrátta, og var hann fví skömmu eptir fermingu sendur til Kaupmanna- hafnar, og var í upphafi eigi tilgangrinn annar en sá, að hann skyldi læra að mála hús utan og stofur innan og floira pess konar; en meistari sá, erhann var hjá og svo íslendingar í Ilöfn fundu að hann haf ði raikla hæfilegleika, og var hann þá styrktr til þess. að komast sem lærisveinn á ,,knnstakademíið“ í Kaupmannahöfn; gekk honnmm námiðsérlega vel, svo að hann fór bekk úr bekk á skemri tíma en flestir þeir, er honum voru þar samtíða, og var þvf eigi trútt um, að þeir öfunduðu hann af því, og gjörðu honum skapraunir ýmsar, sem að líkindum eru rót til kaldlyndis þess, er stundum kom fram hjá honum við ýmislegt útlent, þó að hann á hinn bóginn kannaðist með ást og virðingu við velgjörðir margra danskra manna við sig. Hann hjó til and- litsmyndir nokkrar af löndum sínum með olíulitum og voru sumar þeirra á sýning iþróttamanna, er árlega fer fram í Khöfn. En síöustu árin sem hannvarí Iíhöfn, fór hann að hafa áhuga á því, að laga íslenska kvenn- búninginn, sem hann af myndum í gömlum bókum, sá að var mjög mikið aflagaðr. Varði hann miklum tíma til þess að ransaka fornar bækr, skjöl og málverk til þcss að komast að réttri niðrstöðu um það hvernig kvennbúningrinn hefði verið. Arangr þessara rann- sókna má sjá í ritgjörð þeirri „Um kvcnnbúning á íslandi að fornu og nýju“, er hann ritaði og prent- uð er í Nýjum félagsritum 17. ári 1857 bls. 1—53. Ber ritgjörð þessi vott um ágæta greind, fróðleik og skarpskyggni. Arið 1858 mun hann hafa komið aptr til norðrlands og dvalið þar sumarlangt, siglt aptr um haustið, en kom svo vorið eptir með skip- um til vestrlands, og svo á áliðnu sumri 1853 hing- að til Reykjavíkr, og hér hefir hann síðan dvalið, og varið þessum árum til þess, sem hnnn fann, að hann gat gjört og gjöra þurfti, og sem enginn ann- ar gat gjört en hann. En það sem hann gjörðihér auk þess að hann bjó til myndir af einstökum mönn- um og myndaði eigi allfáar altaristöflur, sem að miklu leyti voru gjörðar eptir altaristöflunni í Reykjavíkr dómkirkju, en sem jað nokkru leyti, eink- um hvað Kristmyndina sjálfa snertir, eru ólíkar frummyndinni og nokkuð fráburgðnar hver annari,— var einkum að lesa fornsögur vorar til þess að safna öllu því er þar finnst og sem snertir fslands „kúl- túrsögu", ogsvo aðstyðja að tfiingu innlendra sjón- arleika; en aðalvinna hans var að stofna og efla fomgripasafn vort, skipa því niðr, og rita um það skýrslur þær, sem ýmist eru prentaðar í |)jó8ólfi eðr í bókum bókmentafélagsins, hafa umsjón með því, og sýna það þeim, er þess óskuðu, alt ókeypis. Skýrslur hans eru eigi þurr upptalning munanna, heldr lýsing nákvæm, og hefir hann þar víða skotiö inn í fróðlegum og lærdómsríkum athugasemdum í ýmsar stefnur; þessar skýrslur eru þvi sannr fjár- sjóðr fyrir oss og alveg ómissandi lykill og upplýs- ing um forngripi vora, og eru þær oss nú því dýr- mætari, sem Sigurðar missti fyrr við, og þoir eru engir innlendir nú til, sem hafa þekkingu þá, er þarf til þess að gcfa skýrslur um fomgripi vora jafn fróðlegar og þarfar, eðr að skipa þeim niðr, en því síðr eru margir jafn ósérdrægir og SigurÖr var, því liann lifði ávalt fyrir einhverja hugsjón (Ide), og hugsaði aldrei um ið tímanlega, eða hvort hann fengi nokkuð fyrir vinnu sína, sæi hann að eins að það væri eitthvað til framfara fyrir ísland, þá var honum nóg. Sigurðr virtist þó opt vera aðgjörða- lítill, en hann var aldroi hugsunarlaus, heldr hugs- aði hann jafnan um það, sem honum lá á hjarta, og vann af alefli að því, að framkvæma þá hugsjón sem hafði gripið hann í það og það skipti; ætíðvar hann reiðubúinn til þess að leiðbeina konum vorum, er þær voru að endrbæta íslenska kvennbúninginn, og miklum tíma varði hann til þess að búa til upp- drætti handa þeim, og að stúdera blóm íslands og teikna þau á ýmsu skeiði þroska þeirra, til þess að koma viti í uppdrættina og fá þá bæði lika nátt- úrunni og þá sér í lagi íslands náttúru; hann var ætíð reiðubúinn til þess, að gefa gullsmiðum vornm ráð og uppdrætti að því er íslenska kvennsilfrið sncrtir, og er það honuin að þakka, að svo miklu leyti sem einhver s t í 11 er í smíðum þeirra, og var hann opt gramr yfir því, aö mentunarleysi margra innlendra smiða gjörðibæði, að þeir hvorki vilduné gætu notað tilsögn sína og uppdrætti sér til gagns og sóma; að þvi mér er kunnugt, mun Sigurðr gull- smiðr Vigfússon hafa fengið marga uppdrætti frá honum, og er það honum mikill sómi, og án efa líka gagn, að hafa viljað og getað rifið sig út úr iuu gamla smekkleysi og notað uppdrætti Sigurðar málara. Auk þessa hefir Sigurðr heitinn ritaðýms- ar ritgjörðir um ýmisleg efni í dagblöð vor, og dreg- ið upp uppdrátt. yfir þingvöll með búðastæðum og öllum örnefnum áteiknuðum, eptir þvf sem hann gat næst komist með nákvæmum lestri fornbókanna, og hefir herra Dasent í Lundunum uppdrátt þann, og er það mikið tjón að hann eigi enn er prentaðr; svo hefir hann og dregið upp uppdrátt af skála í fornöld, sem prentaðr er í Dasents þýðingu af Njálssögu og er súmynd tekin uppí danskar fræði- bækr. þá hefi hann og búið til uppdrátt af Kross- nesi, er mun vera gamall þingstaðr Kjalnesinga við Elliðavatn, og er sá uppdráttr þegar prentaðr í ferðasögu Angusar Smiths 1873. Sigurðr var maðr jafnlyndr og glaðlyndr, og þótti sumum hann kaldlyndr ástundum, en allir, er þekktu hann betr, urðu að kannast við að hann var hreinlyndr og áhugamaðr mikill um það, er honum

x

Víkverji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.