Alþýðublaðið - 05.03.1960, Síða 10
wmvwwwwwwwwww
Kjörgarður
Lau^aveg 59.
í AIls konar karlmannafatnað
• ur. — Afgreiðum föt eftir
t máli eða eftir númeri með
stuttum fyrirvara.
Zlltíma
B R E Z K I R togaraeig—
endur verja um þessar
mundir sem nemur einni
milljón króna í sérstakan
blaðaáróður vegna Genf-
arfundaríns um Iandhelg-
ismál, ao því er Benedikt
Gröndal upplýsti í ræðu í
neðri deild í gaer. Kvað
hann togaraeigendur hafa
sérstakt áróðursfirma í
London í þjónustu sinni,
en þar hefðu sérfræðingar
útbúið sérstakan, litprent-
aðan pésa og blaðaauglýs-
ingar, sem birzt hefðu
meðal annars í blöðum í
Grikklandi, Portúgal og
víðar.
Benedikt nefndi ýmis
dæmi úr þeim áróðri, sem
haldið er uppi gegn fs-
lendingum í Bretlandi. —
Fjöldi blaða hefði til dæm
is skýrt frá því, að yfir-
maður á togara hefði orð-
ið að sauma saman þriggja
tommu skurð á slösuðum
sjómamii, þar. sem skipið
gat ekki farið til íslenzkr-
ar hafnar, án þess að verða
tekið.
Benedikt hvatti mjög til
þess, að íslenzk yfirvöld
væru árvökul á upplýs-
ingasviði og mundi það
eitt bezta ráðið til að fyr-
irbyggja, að atburðirnir
við Snæfellsnes endurtaki
sig, ef við létum umheim-
inn vita, hvað gerzt hefur.
Þyrftum við að hafa okk-
ur alla við til að mæta
fréttasendingum Breta, —
sem væru yfirleitt langt
á undan fréttum héðan af
slíkum atburðum — og
bæri sjaldan saman við
okkar frásagnir.
tWMWWWWWWWWWWI
ÍÞRÓTTIR
Frh. af 11. síðu.
mikill hugur væri í meiri hluta
piltanna, en því miður eru ekki
alveg allir, er æfa sem skyldi.
Vonandi fara þeir samt að taka
sig á og hefja æfingar af full-
um krafti, því að engann tíma
má missa.
Um næstu helgi verður háð
mei'staramót íslands í frjálsí-
þróttum innanhúss og það er
fyrsta alvarlega keppni frjálsí-
þróttamannanna á þessu ári.
Á sumardaginn fyrsta, sem
er í næst mánuði, 21. apríl hefst
svo keppnistímabilið utanhúss
með hinu árlega Víðavangs-
hlaupi' ÍR.
Stúdentar...
Framhald af 2. síðu.
hvaðan sem kúgunin kemur, —•
hver sem í hlut á. Saga okkar
sjálfra er slík, að við hljótum
að óska eftir því, að allar þjóð-
ir, hvar sem eru í heiminum,
fái að ráða málum sínum sjálf-
ar. Mál dr. Hastings Banda er
okkur sannarlega ekki óvið-
komandi“.
Á fundinum voru lagðar fram
tvær tillögur frá stúdentaráði.
Tóku nokkrir stúdentar til máls
og ræddu þær, en umræður
urðu litlar.
Fundinn sat Haraldur Kroyer
forsetari'tari, en hann vinnur að
undirbúningi greinargerðar um
þetta mál fyrir, utanríkisráð-
herra. Greindi hann nokkuð frá
þeirri meðferð, sem slík mál
hljóta hjá‘ Mannrétti'ndanefnd-
inni og taldi líklegt að málið
yrði rætt í utanríkisnefnd Al-
þingis og væntanlega einnig í
ríkisstjórninni.
Að loknum umræðum voru
tillögurnar samþykktar sam-
hljóða.
Skodaeigendur
Framkvæmum allar við-
gerðir á bíl yðar. Erum
ávallt birgir af varahlut-
um.
Mótorviðgerðir —
Réttingar — og
Málning.
Skodaverkstæðið
Skipholti 37
Sími 32881.
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. — Eigum fyrirliggj-
andi hólfuð og óhólfuð dún-
og fiðurheld ver.
Fljót afgreiðsla.
Dún- og fiðurhreinsunin
Kirkjuteig 29. — Sími 33301
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■
Bifreiðasalan
og leigan
Ii9
Sími 19092 og 18966
Kynnið yður hið stóra úi
val sem við höfum af
alls konar bifreiðum.
Stórt og rúmgott
sýningarsvæði.
Bifreiðasalan
og Iergan
Ingólfsstræti 9
Sími 19092 og 18966
Ingólfs-Café
Gftmh dansarnir
• ■ 1
i
í kvöld klukkan 9
Aðgöngumiðasala frá kl. 5.
Sími 12826.
í kvöld, laugardaginn 5. marz kl. 20,30.
Dr. t'heol. Frank M. Halldórsson talar.
Kórsöngur: Bl. kór KFUM og K. — Ein-
söngur og mikill almennur söngur.
Allir velkomnir.
Kristilegt stúdentafélag.
Móforvélsljóra-
félag fstands
heldur aðalfund að Bárugötu 11 sunnudag-
inn 6. marz k|. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Leynardómur Guðs
opinberast
nefnist 5. erindi í erindaflokkii
um boðskap Ölpinberunarbók-
arinnar, sem
Júlíus Guðmundsson skóla-
stjóri flytur í Aðventkirbj-
unni sunnudaginn 6. marz
kl. 5 síðd.
Frú Anma Johansen syngur
einsöng.
Allir velkomnir.
OPffi I KV0LD
til kl. 1.
MATUR framreiddur
allan daginn.
Naustartríóið leikur.
Borðpantanir í síma 17758 og 17759
Auglýsingasíml blaðsins er 14906
JQ 5. marz 1960. — Alþýðublaðið