Norðlingur - 19.07.1877, Page 3

Norðlingur - 19.07.1877, Page 3
22 21 að nokkur af þeim að slaðaldri slarfi að þeim verkum, sem'Jaun eru goldin fyrir. Frá tekjum af embællislaunum má telja skrifstofukostnað o. fl. sem er samfara embættinu, svo má og færa lil úlgjalda eptiriaun og aðrar kvaðir, er á embættinu liggja. Endurgjald það, er sá, sem fjærverandi er frá heimilí sínu i opinberar þarfir, fær í fæðispen- inga og fyrir ferðakostnað, verður eigi talið mcð tekjum, er skatt skal greiða af. Af þeim tekjum, sem fást á þann hátt, að maður cyðir höfuð- stóli sínum eða tekur lán, skal eigi greiða skatt, en það verður eigi talið frá tekjum, sem haft er til þess að borga skuld. 8. gr. Ilver búsettur maður á íslandi, sem tekjur hefir, þær er skattskyldar eru eptir undanfarandi greinum, skal greiða tekjuskatt bvort heldur er karl eða kona, ungur eða gamall, og hverrar séttar sem hann er. þeir, sem eru í foreldrahúsum eða á framfæri hjá öðrum, greiða að eins skatt af þeim lekjum, sem þeir hafa auk upp- eldis hjff foreldrunum eða þeim, sem þeir hafa framfæri hjá. Hluta- félög, Verzlunarf&lög og önnur slík félög og stofnanir skulu talin sem sérstæðir gjaidendur, en samt skal frá skattskyldum tekjum draga það, sem rennur til einstakra manna, sem búsetlir eru á íslandi. 9. gr. Undanþegnir öllum tckjuskatti eru: landssjóðurinn og aðr- ir þeir sjóðir sem fjáriögin ná til; kirkjur, að því er snertir por- tiónstekjur þeirra, öll sveitarfélög, félög og sjóðir sem stofnaðir eru til almennra þarfa, sparisjóðir, sem eigi eru eign einstakra manna. 10. gr. Nú dvelur maður um stundarsakir í öðru landi, en bregð- ur eigi heimili sínu á íslandi, og skal hann þá gjalda skatt eins og hann væri í landinu. Nú er maður eigi búsettur á Islandi, en hefir tekjur af jarðeign eða atvinnu eða sýslu, sem þar er rekin, og skal hann þá greiða skatt af tekjum þessum, og tilnefna fyrir hlutaðeigandi sýslumanni eða bæjarfógeta mann þar í sýslunni eða kaupstaðnum, sem greiði skattgjald hans. Sönruleiðis skal sá sem eigi hefir aðsetur á íslandi, en hefir laun, eptirlaun, biðlaun eða styrk úr laudssjóði íslands, greiða skatt af þessum tekjum, og skal ráðgjafinn fyrir ísland sjá um, að tekju- skattinum af þessu sö haldið aptur. Landshöfðinginn sker úr því, hvort útlendir menn, er dvelja «m stundarsakir á íslandi, og ekki reka þar neina atvinnu, söu skattskyldir. 11. gr Skrár um tekjur þeirra, sem skatt eiga að greiða, skulu samdar af skattanefndum, sem til þess verða skipaðar, ein í hverj- um lirepp og kaupstaö. í skattanefnd hverri sitja 3 menn, í kaupstöðunum formaður bæjarstjórnarinnar eða hæjarfulltrúanna og 2 bæjarfulltrúar, er bæj- arsljórnin til þess kýs, en í sveitum hreppstjórinn, eða þar sem fleiri eru breppstjórar enn einn, sá þeirra, er sýslumaður til þess nefnir, og 2 menn, sem hreppsnefndin kýs úr sínum flokki. Auk þess skal á sama hátt kjósa einn vara-nefndarmann, sem tekur sæti f nefndinni í forföllum einhvers af nefndarmönnum, og má hann vera utan hreppsnefndar, ef hreppsnefndarmenn eru eigi fleiri en þrír. Formaður bæjarstjórnarinnar eða bæjarfulltrúanna í kaupstöðum og hreppstjórinn í sveitunum er formaður skattanefndarinnar. í forföllum formannsins kýs skattanefndin sjálf formann til að stjórna íundunum um stundarsakir. 12. gr. Allir embættismenn og aðrir, er einhver störf hafa á hendi í þarfir hins opinbera, svo og stjórnendur stofnana og félaga, eru skyldir að iáta skattnefndum í tð allar þær skýrslur, er þær beiðast og með þurfa, svo sem skýrslur um embættislaun, um skulda- hréf og hlutabréf, er eigandi er tilgreindur að, um þinglesnar veð- skuldir og annað því um líkt. Tregðist einhver við að gefa slíka skýrslu, sker landshöfðingi úr, hvort hann er til þess skyldur eða öif'i og getur landshöfðingi lagt daglegar sektir við, ef eigi er hlýtt. 13. gr. Á hreppastefnum á haustum og i kaupstöðum á fundi, sem haldinn skal í októbermánuði ár hvert, skulu skattanefndirnar safna skýrslum um tekjur lireppsbúa eða kaupstaðarbúa þeirra, er setja skal á tekjuskrána. f>yki skattanefndinni tortryggileg skýrsla einhvers, getur hún krafizt sannana og skírleina, er henni þykir þurfa og ákveður síðan tekju-upphæðina. Nú er einhver sá er enga skýrslu gefur, og skal þá nefndin kveða á um lekjur hans eptir því, sem hún veit réttast og sannast. 14. gr. þá er skattanelndin hefir kveðið á um tekju-upphæð hvers eins skal hún semja skrá yfir alla þá, sem tekjuskatt eiga að greiða, og skal þar tilgreint: fult nafn og heimili gjaldanda, upp- hæð hverrar tekjugreinar um sig, hver kostnaður á Iiggi, er til af- dráttar kemur eptir lögum þessum, og hvort gjaldandi hafi sjálfur skýrt frá tekjum sínum eða ekki. 15. gr. J>á er skrár þcssar eru fullgjörðar, skulu þær lagðar fram í hreppunum á stað, sem er hentugur hreppsbúum, og sem birt- ur hefir verið á kirkjufundi, og í kaupstöðunum í bæjarþingstof- unni, eigi síðar en 15. dag nóvemberm., og liggja þar til sýnís mánuðinn út. 16. gr. Nú er einhver óánægður með ákvörðun skattanefndar- innar um tekjur hans, og skal hann bera upp kæru sína bréflega fyrir formanni skattanefndarinnar fyrir 1. dag desemberm., en hann skal kalla nefndarmenn til fundar ásamt kæranda, og skal úrskurð- ur feldur um kæruna innan 15, dags desemberm. 17. gr. Urskurði skattanefndarinnar má skjóta til hlutaðeigandí yfirskattanefndar, og skal það gjört bréflega til formanns hennar og ástæður færðar fyrir kærunni. Sé kæran eigi komin til formanns yfirskattanefndarinnar fyrir nýár, verður henni eigi sint. 18. gr. f hverri sýslu og kaupstað skal skipuð yfirskattanefnd. í kaupstöðum skipar landshöfðingi menn í yfirskattanefndina eptir uppástungu hlutaðeigandi bæjarstjórnar, en í sveitum skulu í henni sitja sýslumaður, og er hann formaður, og 2 menn, er sýslunefnd- in kýs úr sínum flokki. Á sama hátt skal og kjósa varanefndar- mann, er tekur sæti í nefndinni í forföllum eins af nefndarmönnum. Eigi má sami maður sitja í skattanefnd og yfirskattanefnd. 19. gr. Yfirskattanefndin sker úr öllum kærum yfir úrskurðum skattanefndanna í þvt umdæmi, sem hún er skipuð yfir, og skal hún hafa lagt úrskurð á þær innan janúarm. loka. Yfirskattanefnd- in skýrir tafarlaust bæði hlutaðeigandi skattanefnd og kæranda frá úrskurði sínum, og er því máli þar með ráðið til lykta. 20. gr. Nú er sá, er kærir yfir ákvörðun skattanefndar um tekj- ur hans, sjálfur í þeirri skattanefnd eða í yfirskattanefndinni, og skal varanefndarmaður þá taka sæti í nefndinni, er úrskurður er feldur um kœruna. 21. gr. Skatlanefndirnar skulu hafa sent sýslumanni eða bæjar- fógeta skrárnar yfir gjaldskyldar tekjur í hrepp sínum cða kaup- staðnum, leiðröttar eptir úrskurðum þeim, er leldir kunna að hafa verið samkvæmt 16. og 19. gr., fyrir byrjun marzm. ár hvert; og semur sýslumaður eða bæjarfógeti eptir þeim skrá yflr tekjuskatt þann, er greiða ber sýslunni eða kaupstaðnum eptir lögum þessum. 22. gr. Skattinn skal greiða í peningum, og heimta sýslumenn og bæjarfógetar hann á manntalsþingum. 23. gr. Fyrir tekjuskattinum má gjöra fjárnám hjá gjaldanda samkæmt opnu bréfi 2. dag aprílm. 1841, og hefir hann í tvö ár frá gjalddaga forgöngurélt þann, sem um er rætt í laganna 5.—14. —37. og opnum bréfum 23. dag júlím. 1819 og 11. dag desem- berm. 1869. Tekjuskattur af jarðeign skal um tveggja ára bil frá gjalddaga ganga fyrir öllum veðkröfum í hlutaðeigandi jörð. 24. gr. Sá, sem mótibetri vitund skýrir rangt frá tekjum sín- um til skattanefndar eða yfirskattanefndar, skal greiða í landssjóð sekt, er sé fimmföld við gjald það, sem undan er dregið. Iíomizt undandrátturinn eigi fyr upp en eptir lát skattgreiðanda, við skipti á búi hans, skal af búinu greiða tvöfalt gjald við það, sem undan var dregið. 25. gr. Landshöfðinginn semur reglugjörðir fyrir skattanefndir og yfirskattanefndir, og fyrirmyndir fyrir skrám skattanefndanna. Yerði ágreiningur um skattskyldu sjóðs eða félags samkvæmt 9. gr., leggur landshöfðingi úrskurð á málið. 26. gr. Skatt þann, sem ræðir um í lögum þessum, skal greiða í fyrsta sinn á manntalsþingum árið 1879. FRUMVARP lil laga um húsaskalt. 1. gr. Af öllum timburhúsum og steinhúsum í kaupstöðum og verzlunarstöðum landsins skal greiða skatt til landssjóðs, 2 kr. af hverjum 1000 krónum virðingarverðs þeirra. Sama skatt skal og greiða af öðrum timburhúsum og steinhúsum, þótt eigi standi þau í kaupstað eða verzlunarstað, ef þau fylgja eigi jörð þeirri, er met- in sé til dýrleika. IIvíli þinglýstar veðskuldir á húsi, skulu þær dregnar frá virðingarverði þess, og skatturinn lagður á það, sem eptir er. 2. gr. Undanþegnar þessu gjaldi eru kirkjur allar, skólar, sjúkra hús, og öll önnur hús, sem eru þjóðeign eða til opinberra þarfa. Ef ágreiningur verður um það, hvort liús er undanþegið skattinura eða ekki, sker landshöfðingi úr. 3. gr. I Reykjavík skal skatturinn lagður á eptir virðingu þeirri sem gjörð hefir verið samkvæmt tilsk. 14. dag febrúarmán. 1874, 4. og 5. gr. Alstaðar annarstaðar á landinu skulu húseignir þær, er skatturinn nær til, metnar eptir tilhlutun yíirvaldsins og sam- kvæmt reglugjörð, sem landshöfðinginn semur um það efni. 4. gr. Fyrir virðingar þessar bera hverjum virðingamanni 3 kr. hvern þann dag, sem þeir eru að virðingunni, og greiðist það fé úr landssjóði, eins og hver annar kostnaður, sein virðingargjörðir þess- ar hafa í för með sér. 5. gr, Fyrir húsaskatti þessum má gjöra fjárnám hjá greiðanda

x

Norðlingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðlingur
https://timarit.is/publication/106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.