Norðlingur - 17.08.1880, Blaðsíða 1

Norðlingur - 17.08.1880, Blaðsíða 1
?, 35.-36. fieiuur út 2—3 ;í mánitði 31 blöft als uiii irið. Akureyri 17. ágíist 1880 Kostar3kr ár». (erlendis 4 kr ) stök nr. 20 aura. 1880. Reglugjörð fyrir kreniiaskólann á Laugalandi, 1. grein. Tilgangur skóians er sá, að veita ungum stúlkum þá tilsögn og kunnáttu tO munns og handa er gjöri þær sem iærastar til að gegna þeirri köllun og þeim skyldum, er staða lifsins af þeim heimtar. 2. grein. Kvennaskóli Eyfirðinga á Laugalandi er sjálfstæð stofnun undir yfirumsjón sýslunefndarinnar í Eyjafirði og amtsráðsins í Norður- og Austurumdæminu. Kvennaskól- iun á sitt eigið skólahús með nauðsynlegum húsbúnaði og áhöldum á Syðra-Laugalandi í Eyjafirði, og er áformað að 30 námsmeyjar eður fleiri geti notið þar gefins húsrúms og tilsagnar. 3. grein. Sýslunefndin í Eyjafirði hefir á hendi með umráði amtsráðsins alla yfirstjóm kvennaskólans. Sjslunefndin kýs ár hvert 3 menn í nefnd, er með ráði 3 kvenna, er hún sjálf nefnir, hefir alla nánari umsjón, ráðstöfun, eptir- lit og aðra framkvæmd með kvennaskólanum. 4. grein. Framkvæmdaraefnd þessi ræður forstöðukonu skólans og með ráði hennar keuslukonur og ákveður laun þeirra. Nefndin veitir námsmeyjum inntöku, tiltekur eptir sam- komulagi við förstöðukonuna inntökuskilyrðin og upphæð meðgjafarinnar ár hvert, auglýsir það í tíma og sér um skilvísa greiðslu meðgjafarinnar í hönd forstöðukonunnar. Nefndin hefir umsjón yfir skólahúsinu, húsbúnaði og öðr- um eignum. Nefndin hefir á hendi fjárhald skólans, sem- ur reikning yfir tekjur hans og gjöld í lok hvers fardaga- árs, er vera skal fjárhagsár skólans, og afhendir oddvita sýslunefndarinnar reikninginn. Hún skal og jafnfrarat semja og afhenda oddvita greinilega skýrslu um aðrar gjörðir sínar í þarfir skólans og um hagi hans og ástand. f>essum starfa sinum skal nefndin hafa lokið innan útgöngu júlimánaðar ár hvert. 5. grein. Forstöðukonan skal fyrir byrjun hvers skólaárs semja kensluskrá, er gilda skal þann vetur, þó með breytingum þeim er þörf er á að gjöra fyrir síðara hluta vetrarins. Svo skal hún og semja almennar reglur fyrir allri hátt- semi námsmeyja, svo sem fótaferð, skylduverkum þeirra, reglusemi og háttprýði. Kenstaskrána og hinar almennu reglur, svo og allar markverðar breytingar á þeim skal forstöðukonan bera undir álit og samþykki framkvæmdar- nefndarinnar. 6. grein, Námsmeyjar era skyldar að fylgja nákvæmlega reglum þeim, er forstöðukonan setur um kensluna, skylduverk þeirra og aðra háttsemi, svo og að auðsýna henni og kenslukonunum virðing og hlýðni i öllum greinum. 7. grein. Fullkominn námstími telst alment 2 vetur. |>ó eru eámsmeyjar teknar til eíms vetrar, eins geta þær átt kost á að vera lengur en 2 vetar, ef rúna er til þess í skól- anum. Kenslan í skólam™ byrjar 1. október og er á enda í miðjum mai ár hvert 8. grein. Námsgreinarnar eru þessar: I. Bóklegax. 1. skript, 2. réttritun, 3. orðfæri, 4. upplestur og framburð- ur islenzkrar tungu, 5. einfaldur reikningur, einkum bú- reikningur, 6. að lesa og skilja dönsku, 7. landafræði eptir landabréfum, 8. tilsögn í mannkynssögu, 9. grasafraði og 10, heilbrigðisfræði. II. Verklegar. 1. öll vanaleg matreiðsla, 2. meðferð á ull og tóskap, 3. lérepta- og fatasaumur, 4. breyttax hannyrðir og 5. þvottur og meðferð á líni. Námsmeyjar þær er vel era að sér í öðrum námsgreinum geta eptir samkomulagi við forstöðukonuna fengið kens u í enskri tungu. 9. grein. Próf skal haldið ílok hvers skólaárs. Að loknu prófi eiga námsmeyjar heimting á að fá hjá forstöðukonunm vitnisburð um nám sitt og framferði. Forstöðukonan og framkvæmdaraefndin skipa fyrir um í hve mörgum náms- greinum skal prófa og hvernig prófið skal haldið, og með hverjum og hve mörgum prófdómendum. 10. gr. Námsmeyjar njóta gefins kenslu, rúms, húshúnaðarog áhalda skólans. En fæði ljós og hita fá þær fyrir ákveðið verð hjá forstöðukonunni (sbr. 2. og 4. gr.). Kenslubækur skrifföng og verkeíni leggja námsmeyjar sér til sjálfar, en eiga og sjálfar vinnu sina. Akureyri 14. apríl 1880. S. Thorarensen, Davið Ouðmundsson ArnJjótur ólafsson. * * * Vér hyggjum að gjöra lesendum Norðlíngs þægt verk með því að lofa þeim að sjá reglugjörð Kvennaskölans á Laugalandi, álítum vér reglugjörðina viturlega og vel samda eins og höfundunum var ætlandi. Menn sj'i á henni að það eru öfgar einar, að áherzla sé um of lögð á ýmislegt fitl og fínar hannyrðir, þærerusú (|órtáinta námsgrein af 15 er upp eru taldar, og er vonandi að engum þyki það hlutfall þeim um of í vil, sem annars ber nokkurt scynbragð á þetta og hefir næma tilfinning fyrir sóma kvennþjóðarinnar. Vér vonum og að þeir hinir smærri kvennaskólar, er nú eru að myndast, hafi gagn af að hafa þessa reglugjörð hins fjölsóttasta kvennaskóla landsins sér til hliðsjónar í byrjuninni. Ritstjórinn. Alþíng:iskosiiiiig:ar. (Kafli úr bréfi að vestan.) „Sá fregn liefir borizt hingað, að |>ingeyingar ætli að velja sýslumann sinn, Benidikt Sveinsson til pingsetu, en lofa Jóni Sigurðssyni, forseta hi s síðasta alþingis, að sitja heima. Marga furðar á þessn, því hér er álitið, að landinu væri hollara, að B. Sv. færi hvergi til þings, og ekki sízt, ef hann yrði orsök tíl þess, að landið misti einu af sínum beztu þingmönnum þar sem J. S. er; það er sagt að hann vilji eigi gefa kost á sér annarstaðar en í sínu gamla kjördæmi, sem hann hefir verið fyrir nú yfir 20 ár. Aðalorsökin til þess að Norður-pingeyingar eigi vilja velja Jón, á að vera sú. að þeim þykir hann hafa komið illa fram í launamálinu góða 1875, en sé það orsök-

x

Norðlingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðlingur
https://timarit.is/publication/106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.