Fréttablaðið - 17.08.2001, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN
ÁFELLISDÓMUR
Netverjar hafa ekki
áður verið jafn sam-
mála í afstöðu sinni.
Níu af hverjum tíu
segja skýrsluna um |" A'
Árnamál áfellisdóm.
Er skýrsla Ríkisendur-
skoðunar áfellisdómur
yfir stjórnsýslunni?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
EESL
191%
9%
Spurning dagsins í dag:
Ber Björn Bjarnason ábyrgð á gerðum
Árna Johnsen?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
EKKI BARA SLYSAHÆTTA
Mengun af völdum umferðarinnar stofnar
heilsu og lífi fólks í hættu.
Gróðurhúsalofttegundir:
Víðtæk áhrif
á heilsufar al-
mennings
WASHINCTON. ap „Eftir því sem við
komumst næst, þá látast fleiri af
völdum loftmengunar frá umferð-
inni heldur en af völdum umferð-
arslysa," segir Devra Lee Davis,
aðalhöfundur greinar sem birtist í
tímaritinu Science í dag, föstu-
dag.
I greininni er skýrt frá rann-
sóknum á heilsufarsáhrifum gróð-
urhúsalofttegunda, en niðurstöð-
urnar benda ótvírætt til þess að
mengun af mannavöldum sé nú
þegar farinn að stofna lífi og heil-
brigði fólks í hættu, alveg burtséð
frá margvíslegum áhrifum vegna
hlýnunar næstu áratugina.
„Til eru meira en þúsund rann-
sóknir frá tuttugu löndum, sem
allar sýna fram á að hægt sé að
spá fyrir um ákveðna dánartíðni
út frá því hversu mengun er mik-
il,“ sagði Davis.
Hjarta- og lungnasjúkdómar af
ýmsu tagi eiga í fjölmörgum til-
fellum rætur sínar að rekja til
brennslu bensíns og kola, og
Davies telur fullvíst að bjarga
megi þúsundum mannslífa á
næstu árum með því að draga úr
áhrifum gróðurhúsalofttegunda
með aðferðum sem þegar eru
þekktar. ■
FRETTABLAÐIÐ
17. ágúst 2001 FÖSTUDAGUR
Björn Bjarnason menntamálaráðherra:
Segir skort á reglum valda agaleysi
stjórnsýsla Björn Bjarnason
menntamálaráðheri’a segir að við-
ræður hans við formann stjórnar
Endurbótasjóðs menningarbygg-
inga hafi snúist um nauðsyn þess
að standa vel og skipulaga að fram:
kvæmdum við Þjóðleikhúsið. í
skýrslu ríkisendurskoðunar um
málefni Árna Johnsen kemur fram
að formaður Endurbótasjóðsins
kom tvisvar að máli við ráðherrann
vegna óeðlilegi’a vinnubragða
byggingarnefndar Þjóðleikhússins
sem Árni stýrði.
Björn segir þá sjóðsformanninn
hafa rætt um að áætlanir fyrir
byggingarnefndina yrðu gerðar í
samræmi við lögin
um opinberar
f ramkvæmdir.
„Þetta var áréttað í
bréfi sem ég skrif-
aði síðan bygging-
arnefndinni í júlí
1997 og við áréttuð-
um síðan árinu á
1998. Við fengum
síðan greinagerð
um þess efni í apríl
1999, “ segir hann.
Björn segir
RÁÐHERRANN
„Ég er líka með
ábendingar í
bréfi sem
menntamála-
ráðuneytið sendi
ríkisendurskoð-
anda."
skýrslu ríkisendurskoðunar ekki
þess eðlis að hún marki þáttaskil.
„En þarna eru ákveðnar ábending-
ar sem þarf að hafa í huga. Ég er
líka með ábendingar í bréfi sem
menntamálaráðuneytið sendi ríkis-
endurskoðanda sem eru ekki síður
mikilvægar en það sem stendur í
skýrslu ríkisendurskoðunar ef litið
er til framtíðar varðandi þessi
mál,“ segir hann og vísar þar til
bréfs með athugasemdum ráðu-
neytisins við innihald skýrslunnar
áður en hún var birt:
„Þar er ég aðallega að fjalla um
skipulag á opinberum fram-
kvæmdum; hvernig menn haga
þessum samskiptum og um nauð-
syn þess að það verði settar stjórn-
sýslulegar reglur um byggingar-
nefndir því það er ekki unnt að
halda uppi stjórnsýsluaga nema
menn viti eftir hvaða reglum þeir
eiga að starfa. Það hefur komið
fram að það vantar reglur um
byggingarnefndir. “
Margrét Frímannsdóttir vara-
formaður Samfylkingarinnar sagð-
ist í útvarpi í gær telja að ekki væri
útilokað að Björn þyrfti að segja af
sér sem menntamálaráðherra.
Björn segir þann málflutning ekki
koma sér á óvart. „Mér finnst hún
nú stundum hafa kveðið fastar að
orði um nauðsyn þess að ég hyrfi
úr embætti," segir ráðherrann.
gar@frettabladid.is
9 9
Ororkubæturncir að
veði fyrir drykkjunni
Borgarráð hefur enn frestað að framlengja vínveitingaleyfi til Kaffi Austurstrætis og vill fá lög-
regluna á fund sinn. M.a. borgarlögmaður og lögregla segja enn ekkert mæla gegn leyfinu. Ekki
hefur verið tilefni til afskipta í mörgum eftirlitsferðum lögreglu sem segir að lánað sé fyrir
drykkjum gegn veði í bankabókum. Þessu neitar eigandinn.
veitincarekstur Borgarráð hefur
enn frestað að taka afstöðu til
framlengingar vínveitingaleyfis
fyrir Kaffi Austurstræti.
Borgarráð samþykkti á fundi
sínum á þriðjudag að boða full-
trúa lögreglunnar á næsta fund
ráðsins. Málinu hefur margsinnis
verið frestað þrátt fyrir að m.a.
borgarlögmaður, Lögreglan í
Reykjavík ’ og skrifstofustjóri
borgarstjórnarinnar hafi ítrekað
sagt að engar forsendur séu til
þess að leggjast gegn leyfisveit-
ingunni.
Minnihluti sjálfstæðismanna í
borgarráði hefur lagt til að Kaffi
Austurstræti verði synjað um
vínveitingaleyfið vegna meints
ónæðis af rekstrinum fyrir aðra
starfsemi í húsinu.
„Það lítur út fyrir að það eigi
að kreista eitthvað út úr lögregl-
unni til að hanka mig á,“ segir
Björn Erlendsson, eigandi Kaffi
Austurstrætis, sem furðar sig á
meðferð borgaryfirvalda á sér.
„Ég hef ekkert erindi fengið frá
borginni um að þeir séu óánægð-
ir með minn r.ekstur. Ef svo er af
hverju tala þeir þá ekki við mig?“
spyr hann.
Lögreglumaður, sem farið hef-
ur óeinkennisbúinn í yfir 50 eftir-
litsferðir á Kaffi Austurstræti á
þessu ári, segir að í þeim ferðum
hafi aldrei verið tilfefni til af-
skipta af gestum staðarins.
Athygli vekur hins vegar að
lögreglumaðurinn segist hafa
það eftir nokkrum gestanna að
þeim sé veitt lán fyrir drykkjum
gegn því að afhenda bankabækur
sínar sem tryggingu. LFpphæð
lána hvers mánaðar sé í tilteknu
KAFFI AUSTURSTRÆTI
Lögregla segir gesti Kaffi Austurstrætis bera að þeir fái lánað í hlutfalli við örorkustyrk en eigandinn segir styrkinn ekki lagðan til grund-
vallar þegar hann metur lánstraust gesta sinna.
hlutfalli við þær örorku- eða líf-
eyrisbætur sem viðkomandi við-
skiptavinur eigi von á eða á bil-
inu 20 til 50 þúsund krónur á
mánuði.
„Það er ekki bannað að lána og
ég hef lánað fólki. En ég hef
aldrei tekið bankabækur í pant og
það er bölvuð þvæla að ég sé að
fara út í banka með fólki til að
leysa út peninga. Stór hluti þessa
fólk er heimilslaus og oftar en
ekki biður það mig að geyma ým-
islegt fyrir sig sem það vill ekki
glata. Það geta þess vegna verið
debetkort. Menn hafa líka beðið
mig að fá lánað gegn því að ég
geymi fyrir þá kortin og svo komi
þeir bara þegar komið er inn á
kortið og gangi frá sínum málum.
Þegar er lánað þá er lántrausts
hvers og eins metið en það fer
ekki eftir örorku," segir Björn.
garnfrettabladid.is
Nýtt hlutafé Islandssíma:
Verðmæti hlutafjárins
hefur fallið um milljarð
HLUTABRÉF Íslandssími jók hlutafé
sitt að nafnvirði um 200 milljónir
í vor. Markaðsvirðið var um
1.700 milljónir, þar af skilaði
breytanlegt skuldabréf Lands-
bankans 700 milljónum og millj-
arður kom frá fjárfestum í út-
boðinu. Á meðan gengi hlutabréf-
anna hefur lækkað um tæp 60%
frá skráningu hefur verðmæti
hlutabréfaeignar fjárfestanna í
félaginu því dregist saman um
milljarð. Upplýsingatæknivísi-
tala Verðbréfaþingsins hefur á
sama tíma dregist saman um
30% og heildarvísitala aðallista
um 3%. Upplýsingatæknivísital-
an hefur lækkað um tæp 50% frá
14. maí.
í umfjöllun greiningardeildar
Kaupþings frá því í vor vegna út-
boðs Islandssíma kemur fram að
lítið megi út af bregða til að fé-
lagið nái að halda settum mark-
miðum. Þar sem ekki sé gert ráð
fyrir auknu hlutafé í nánustu
framtíð megi gera ráð fyrir að
félagið hyggist auka við skulda-
hlið sína náist ekki takmörk
varðandi fjármögnun fjárfest-
inga. Að sögn Eddu Rósar Karls-
dóttur, hjá Búnaðarbankanum
verðbréfum, mælti greiningar-
deild bankans ekki með kaupum í
útboðinu á þeim forsendum að
útboðsgengið væri of hátt. ■