Fréttablaðið - 17.08.2001, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
17. ágúst 2001 FÖSTUPAGUR
Arafat leitar til Arabaríkja:
Vill samhæfðan
fréttaflutning
NeysÍuvísitalan. í
Bandaríkjunum:
Mesta lækk-
un í 15 ár
washington.ap. Neysluvísitalan í
Bandaríkjunum féll um 0,3% í
júlímánuði og er þetta mesta
lækkun vísitölunnar á einum mán-
uði í 15 ár. í kjölfarið lækkaði
snarlega verð á bensíni og öðrum
orkutengdum vörum í landinu. Er
þetta fyrsta fall vísitölunnar á
þessu ári í Bandaríkjunum en hún
er talin sýna vel verðbólguþróun í
landinu. Þess má geta að í júní
hækkaði talan um 0,2%. Síðast
þegar vísitalan féll svo mikið var
í aprílmánuði árið 1986 þegar hún
féll um 0,4%. ■
kaíró. egiptalandi, ap Jasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, átti í gær
lokaðan fund með upplýsingaráð-
herrum þeirra 22 ríkja sem aðild
eiga að Arababandalaginu. Til fund-
arins var boðað eftir að ísraelski
herinn hertók Austurlandahúsið í
Austur-Jerúsalem, þar sem Palest-
ínumenn höfðu höfuðstöðvar sínar.
Arafat fór þess á leit á fundinum
að Arabaríki samhæfðu fréttaflutn-
ing sinn af átökum fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Fjölmiðlar í Arabaríkjum eru
að stórum hluta til ríkisreknir,
þannig að ríkisstjórnir landanna
eiga hægt um vik að hafa áhrif á
fréttaflutning þeirra.
Jafnframt fór Arafat fram á
neyðarfund með utanríkisráðherr-
um Arabaríkjanna þar sem rætt
yrði um að Arabaheimurinn tæki
sameiginlega afstöðu til nýjustu
viðburða á þessum slóðum.
Amr Moussa, framkvæmda-
stjóri Arababandalagsins, sagði að
neyðarfundur utanríkisráðherr- málin rædd
anna gæti átt sér Stað í næstu Arafat ráðgast við Amr Moussa, fram-
viku ■ kvæmdastjóra Arababandalagsins.
Hráefnin séu framleidd
ásjállbæran hátt
Verslunarkeðjan Whole Food í Bandaríkjunum selur islenska lambákjötið sem árstíðarbundna
vöru. Fulitrúar verslunarkedjunnar eru yfir sig hrifnir af hráefninu.
ÍSLENSKA KINDIN VINSÆL
Von er á fulltrúum Whole Food aftur í haust en þeir komu hingað til lands síðasta vor
og skoðuðu sig þá um í sláturhúsum og viðar. í haust er ætlunin að fara með þá f
göngur og réttir.
Reykjavík:
Tveir drengir
brenndust
alvarlega
»LYS Tveir 14 ára drengir brennd-
ust illa.þegar eldur kviknaði í
vinnuskúr við Hraunbæ í Reykja-
vík um ellefuleytið í gærmorgun.
Drengirnir eru báðir alvarlega
slasaðir ög liggur annar þeirra á
’ gjörgæslu og hinn á bráðamóttöku
Landspítalans við Hringbraut. Svo
virðist sem eldur hafi blossað upp
inni í skúrnum og náð að festa sig í
föt drengjanna. Þeir voru ásamt
fleira fólki ad störfum við hreins-
un þegar slysið átti sér staö og
voru margir sjónarvottar aó at-
burðinum. Flytja þurfti sjö þeirra
á Landspítalann í Fossvogi þar
sem þeim var veitt áfallahjálp.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík er talið að kviknað hafi í út frá
bensíni sem í skúrnum var - en enn
liggur ekki ljóst fyrir hvað gerðist.
Málið hefur verið tekið til rann-
sóknar. ■
——
Svenska dagbladet:
Dregur
saman seglin
STOKKHÓLMUR. ap Minnkandi aug-
lýsingatekjur voru sagðar helsta
ástæða þess að sænska dagblaðið
Svenska dagbladet ætlar að segja
upp 55 starfsmönnum.
Uppsagnirnar verða einkum á
ritstjórn blaðsins og internetút-
gáfu þess, en talið er að um 55
milljónir sænskra króna sparist í
rekstrinum. Áður hafði um 100
manns verið sagt upp og með því
sparaði blaðið sér um 100 milljón-
um sænskra króna.
Rekstur blaðsins hefur staðið
illa undanfarin ár þrátt fyrir árleg-
an ríkisstyrk upp á 54 milljónir
sænskra króna. ■
LANÐAÚNAMJR „Þeir eru gríðarlega
sterkir í heimalandi sínu og vilja
fá meira magn en við getum
veitt,“ sagði Özur Lárusson fram-
kvæmdarstjóri markaðsráðs
kindakjöts og vís-
aði þar til banda-
rísku verslunar-
keójunnar Whole
Food - en um er að
ræða nýjung í út-
flutningi á nýslátr-
uðu íslensku
lambakjöti. Özur
sagði verslunar-
keðjuna þjóna við-
skiptavinum sem
kysu hráefni sem
framleitt er á sjálf-
bæran hátt. Sagði
hann viðskiptavini
þessa hafa meira á
milli handanna en
almennt gerðist og
að verðlagning í
verslununum væri
há. Whole Food
rekur 133 verslanir
víðs vegar um
Bandaríkin og eru
búðir þeirra stað-
settar í dýrari hverfunum.
„Við byrjuðum markaðssetn-
ingu í fyrra og höfðum þá annars
konar áherslur en áður og tókst
það feiknavel. Hingað hafa komið
fulltrúar frá Whole Food og lýstu
þeir yfir mikilli hrifningu á kjöt-
inu.“ Özur sagði íslenskan fjárbú-
skap vera nákvæmlega það sem
fulltrúarnir leituðu eftir því eins
og fyrr segir er áhersla lögð á sjá-
Ifbæra framleiðslu og að keypt sé
hráefni frá smærri búum. Versl-
unarkeðjan sneiðir algerlega
fram hjá svokölluðum verk-
smiðjubúskap. „Þetta er sá mark-
aður sem ég horfi björtum augum
til og ég held að eigi eftir að stæk-
ka gríðarlega. Fólk í Bandaríkjun-
um er farið að leita meira í hrá-
efni með uppruna frá smærri
bæjum til að forðast öll aukaefni í
kjöti og sýkingar sem einmitt
hafa tengst verksmiójubúskapn-
um.“
Özur sagði enga hækkun verða
á útflutningsverði til bænda í
haust því útflutningsmagn á kjöti
væri enn ekki mikið en vonir stan-
da til að það muni aukast. Sagði
hann nýja tækni við innpökkun á
kjöti hafa verið tekna í notkun.
Um er að ræða gaspökkunarvél
sem keypt var frá Nýja Sjálandi.
Hún gerir kleift að flytja ferskt
kjöt sjóleiðis. Af því leiðir lækkun
á flutningskostnaði um 40-50 kón-
ur á kílóið. „Við sjáum ekki að
ávinningur af þessu skili sér til
bænda fyrr en í sláturtíð á næsta
ári - en þó er ekki útilokað að það
verði í haust.“ Özur sagði viðmið-
unarverð það sama og í fyrra sem
er um 160 krónur á kílóið.
Özur sagði mikið tilstand verða
í kringum kynninguna á íslenska
lambakjötinu nú í haust. „Þeir
ætla að markaðssetja þetta sem
árstíðarbundna vöru sem fáist
einungis á haustin og fram að jól-
um sem hentar okkar fyrirkomu-
lagi mjög vel.“ Özur sagðist horfa
bjartsýnum augum á þennan
markað og taldi að hann ætti eftir
að stækka gríðarlega. „Við erum
bjartsýnir þrátt fyrir hrakfarir
afurðarstöðva hérna heima,“
sagði hann að lokum.
kolbrun@frettabladid.is
Spænsk rannsókn:
Drykkjufólk
telur sig
hraustara
HEILSA. Fólki
sem drekkur
áfengi finnst
það vera hraust-
ara ef miðað er
við þá sem ekki
drekka. Þetta
kemur fram í
nýlegri spæn-
skri rannsókn
þar sem 19.500
Spánverjar
voru spurðir út í
drykkjuvenjur sínar og hversu
hraustir þeir teldu sig vera. í nið-
urstöðum rannsóknarinnar kemur
fram að eftir því sem fólk drakk
meira magn áfengis þeim mun
hraustara taldi það sig vera. Að
því er kemur fram á fréttavef
BBC var rannsóknin birt í tímarit-
inu Journal of Epidemiology and
Community Health. ■
Spennandi störf
i leikskólanum Sæborg
Leikskólakennarar, þroskaþjálfar eða starfsmenn með aðra menntun
og/eða reynslu óskast til starfa í leikskólanum Sæborg við Starhaga.
• Leikskólinn er fjögurra deilda skóli þar sem dvelja 83 börn samtímis.
Megináhersla í kennslu er aó virkja sköpunarafl barnsins á sem flestum
sviðum.
® Leikskólinn er með vefsiðu, www.leikskoli.is, þar sem starfsemin er
kynnt nánar.
* Upplýsingar um störfin veitir Soffia Þorsteinsdóttir Leikskólastjóri
í síma 562 3664.
Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum leikskóla,
á skrifstofu Leikskóla Reykjavikur og á vefsvæði, www.leikskolar.is.
JfLei
Leikskólar
Reykjavíkur
Þetta er sá
markaður sem
ég horfi björt-
um augum til
og ég held að
eigi eftir að
stækka gríðar-
lega. Fólk í
Bandaríkjun-
um er farið að
leita meira í
hráefni með
uppruna frá
smærri bæj-
um til að forð-
ast öll auka-
efni í kjöti og
sýkingar sem
einmitt hafa
tengst verk-
smiðjubú-
skapnum.
---4,---