Fréttablaðið - 04.03.2002, Blaðsíða 1
4. mars til 10. mars 2002
FRETTABLAÐIÐ
FASTEIGNIR
1 á vísir-is!
Ibúðalánasjóður o_
bæta þjónustuna:
Uppreikna yflr-
tekin lán fyrir
skattframtalið
uán Upplýsingar um lán íbúðalánasjóðs verða forskráð á rafræn
skattframtöl landsmanna 2002. Yfirlit yfir afborganir og stöðu
lána íbúðalánasjóðs vegna ársins 2001 verða skráð beint á raf-
ræna skattframtalið 2002. Þetta er nýjung í samstarfi íbúðalána-
sjóðs og ríkisskattstjóra. Markmið hennar er að auðvelda við-
skiptavinum íbúðalánasjóðs að telja fram lán íbúðalánasjóðs og
auka þannig þjónustuna.
Að sögn Halls Magnússonar, sérfræðings hjá íbúðalánasjóði,
felst aðal nýjungin í því að yfirtekin lán verða uppreiknuð fyrir
skattframtalið í samræmi við skattareglur. Þessar upplýsingar
koma beint inn á rafræna skattframtalið en verða send í sérstöku
fylgiblaði með skattframtalinu í póstinum. Haliur bendir á að ein-
staklingar þurfi eftir sem áður að færa inn lán vegna íbúða-
kaupanna sem tekin voru hjá öðrum lánastofnunum og reiknast
einnig sem stofn fyrir vaxtabætur.
Afborganir lána íbúðalánasjóðs eru uppreiknaðar miðað við
yfirtökudag lánanna. Við uppreikninginn var og gengið út frá því
að lántakendur nytu vafans ef ekki var fullkomlega ljóst hvenær
þeir tóku yfir afborganir af lánum íbúðalánasjóðs.
Víst er að margar spurningar munu vakna vegna breyttrar
framsetningar upplýsinga um lán íbúðalánasjóðs. Að sögn Halls
verður leitast við að koma á framfæri algengustu spurningum og
svörum við þeim á vefsíðu íbúðalánasjóðs, www.ils.is og vefsíðu
ríkisskattstjóra www.rsk.is. ■
||gg|^
is
FAsreiGf
■0Í
—
HÁLFCERÐIR
DALMATTÍUKETTIR
Hér er Harpa með kisuna
Míru en Fúsi var á flandri
og vildi ekki láta mynda sig.
Miklir gleðigjafar
og kennarar
Kettirnir hennar Hörpu Arnardóttur leikkonu eru
ættaðir úr Þingholtunum og bera svipmót af því.
EINFALDARA FYRIR HUSEICENDUR
[ ár verða upplýsingar um lán íbúðalánasjóðs í fyrsta skipti forskráð á skattframtöl
landsmanna.
Míra og Fúsi, kettirnir hennar
Hörpu Arnardóttur leikkonu,
eru úr sama goti og að hennar sögn
undan dásamlegri læðu í Þingholt-
unum. Þau eru svört og hvít en
kenning eigandans er sú að það sé
býsna algengt útlit á köttum í Þing-
holtunum. Harpa hafði ekki verið
með heimilisdýr áður en hún eign-
aðist þessa ketti og segir að sér
hafi komið á óvart hversu mikið sé
hægt að læra af þessum dýrum.
„Þau eru náttúrulega alltaf í núinu.
Að því að maður best veit þá er
ekkert verið að flakka í fortíð eða
framtíð. Þannig eru þeir frábærir
„meditation" kennarar."
Harpa segist hafa verið nokkuð
lengi að ákveða nöfnin á kisurnar
en Fúsi heiti í raun Konfúsíus.
„Hann er bara kallaður Fúsi enda
er hann alltaf svo fús til alls. Hann
var eiginlega eins og hundur þegar
hann var lítill kettlingur. Hann
hljóp á móti fólki og var mjög fjör-
ugur.“
Harpa lét gelda Fúsa snemma
eða um leið og hann byrjaði að leita
á systur sína, enda kunni eigandinn
ekki alveg við það. Míra hefur hins
vegar eignast kettlinga. „Þeir voru
ofboðslega fallegir, allir svona
hvítir og svartir eins og Dalmatíu-
hundar.“ Harpa segir að öll börn
hafi fallið fyrir þessum kettlingum
og á endanum var biðlisti eftir
þeim.
Aðdragandinn að því að Harpa
eignaðist kettina var að einu sinni
þegar hún var að leika í Þjóðleik-
húsinu þvældist þangað inn kett-
lingur sem ómögulega vildi yfir-
gefa leikhúsið að sýningu lokinni.
Kettinum var gefið nafnið Rómeó
og Harpa ákvað að taka hann með
sér heim því húsverðinum fannst
svo nöturlegt að varpa honum á
dyr, út í nóttina. „Ég var allt í einu
komin með þennan litla Rómeb upp
í rúm til mín.“ Upphaflega ætlaði
Harpa ekki að fá sér tvo ketti en
þar sem hún er talsvert að heiman
fannst henni að það væri gott fyrir
þá að eiga félagskap hvor í öðrum.
„Það er rosalega falleg vinátta á
milli þeirra og það er mjög fallegt
að sjá þessi samskipti." ■
Fráb átr F&rnniri
AMERÍSKAR DÝNUR
Medic Twin XL 97x203 39,900 m/ramma
Medic Euro 120x200 49,900 m/ramma
Plush Twin XL 97x203 49,900 m/ramma
Plush Euro 120x200 59,900 m/ramma
Chiropractic Full XL frá 137x203 69,900 m/ramma
ekki betri!
EVRÓPSKAR DÝNLR
80x200 verð frá 24,900 m/fótum
90x200 verð frá 29,901 m/fótum
100x200 verð frá 34,900 m/fótum
HEILSUNNAR
Listhúsinu Laugardal, sími 5 8 1 22 3 3 • Dalsbraut 1, Akurevri, sími 4 6 1 1150 • www.svefnogheiIsa.is