Fréttablaðið - 15.04.2002, Síða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
15. apríl 2002 MÁNUDAGUR
Sala sölumyndbanda hér á landi eftir
framleiðslusvæðum árin 1999 og 2000
í fjölda seldra eintaka:
Landsvæði íslensk 1999 11.876 2000 14.969 +/-% +26,0
Norræn 8.041 8.241 +2,5
Evrópsk 6.717 5.724 -17,3
Bandarísk 133.125 Önnur svæði 244 160.628 +20,6 -100,0
Alls 159.983 189.562 +18,5
Borgarstjórnarkosningar:
Dregur
saman með
fylkingum
kosningar Bilið milli stóru fram-
boðanna í Reykjavík hefur minnk-
að nokkuð samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun sem Gallup gerði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Samkvæmt
henni fengi D-listi sex menn og R-
listinn níu.
Samkvæmt könnuninni fengi
Sjálfstæðisflokkurinn um 40% at-
kvæða en R-listinn rúm 55%. F-
listi Frjálslynda flokksins og
óháðra fengi 4% og næði ekki
manni í borgarstjórn. í könnun
sem Gallup birti fyrir hálfum
mánuði mældist Sjálfstæðisflokk-
urinn með 37% fylgi en R-listinn
rúmlega 61%, þannig að Reykja-
víkurlistinn hefur tapað 6% á
þessum tíma. ■
1löcreclufréttir|
Ungur ökumaður missti stjórn á
bíl sínum á Skothúsvegi um
kvöldmatarleytið á laugardag og
ók bíl sínum út í tjömina. Að sögn
lögreglu má rekja óhappið til hálku
í borginni þá um kvöldið auk
reynsluleysis ökumannsins, sem er
17 ára og nýkominn með bílpróf.
Töluverð ölvun var í Reykjavík
um helgina. Á sunnudagsmorg-
un gistu 11 manns fangageymslur
fyrir ölvun og ólæti, en það mun
vera í meira lagi þótt ekki sé það
óvenju mikið. Eitthvað var um
slagsmál milli manna við skemmti-
staði og aðrir voru að finnast
dauðadrukknir á víðavangi, að
sögn lögreglu. Ekki taldi lögregla
þó að ólæti hafi verið venju frem-
ur meiri þessa helgina en aðrar í
höfðustaðnum.
Rúmlega tvítugur maður var
fluttur á sjúkrahús með skurði
í andliti, eftir bílveltu á Sandgerð-
isvegi um klukkan hálf sjö á laug-
ardagsmorgun. Mikil hálka var á
veginum þegar óhappið varð. Mað-
urinn sem slasaðist var farþegi í
bílnum, en hvorki hann né ung
kona sem ók bílnum voru í bílbelt-
um. Bíllinn er mikið skemmdur og
var dreginn af vettvangi.
Rekstur Ibúðalánasjóðs:
Tap í fyrsta
sinn
húsnæðislán Vegna óhagstæðrar
gengisþróunar varð tap á rekstri
Ibúðalánasjóðs og er það í fyrsta
sinn sem sjóðurinn er rekinn meó
tapi. Gengistap sjóðsins var 612
milljónir króna, en tap á rekstri
sjóðsins á árinu 2001 varð þó ekki
nema 373 milljónir króna sam-
kvæmt rekstrarreikningi.
Rekstrarkostnaður íbúðalána-
sjóðs hækkaði um 7,2% á árinu,
sem er lægra en nemur verðlags-
breytingum.
Utistandandi lán sjóðsins í lok
ársins voru rúmir 355 milljarðar
króna og eigið fé sjóðsins í árslok
nam 8.684 milljónum króna eða
2,4% af heildareignum. ■
Útboðslýsingar:
Islenskcin á undanhaldi
atvinnulíf Svo virðist sem íslensk-
an sé almennt á undanhaldi fyrir
ensku í útboðslýsingum. Þetta gild-
ir bæði hjá hinu opinbera og á al-
menna markaðnum. í smærri verk-
um eru útboðslýsingar ennþá á ís-
lensku. Hins vegar eru verk sem
boðin eru út á EES-svæðinu auk ís-
lands eingöngu á ensku. Torfi
Hjartarson hjá VSÓ - ráðgjöf segir
að menn geti fengið slíkar útboðs-
lýsingar á íslensku ef óskað er sér-
staklega eftir því. í forvali á útboði
á EES-svæðinu og á íslandi vegna
húsgagnakaupa í nýjar höfuðstöðv-
ar Orkuveitu Reykjavíkur eru út-
boðslýsingar t.d. á ensku.
NÝBYCCINC ORKUVEITUNNAR
Útboðsgögn I forvali vegna húsgagna eru á
ensku.
Jón H. Ásbjörnsson deildar-
stjóri útboðsdeildar Ríkiskaupa ,
segir að það fari eftir óskum verk-
kaupa hvort útboðslýsing sé á
ensku eða íslensku. Hann segir að
ekkert útboð hafi ennþá verið boð-
ið út á tveimur tungumálum. Hins
vegar sé það talið vera jafnræði
að hafa útboð á ensku fyrir EES-
svæðið. Stundum séu útboð á
ensku jafnvel þótt vitað sé að til-
boð muni ekki berast nema frá ís-
lenskum fyrirtækjum. Það sé m.a.
vegna þess að innlendu fyrirtæk-
in séu með umboð fyrir erlend
fyrirtæki. Auk þess sé hætta á
misskilningi ef margir innlendir
heildsalar séu að þýða útboðs-
gögn. ■
Maður í Vesturbæ:
Slóst við inn-
brotsþjófa
lögregluiviál íbúi í Vesturbænum í
Reykjavík vaknaði við það aðfar-
anótt sunnudags að tveir menn
höfðu brotist inn hjá honum og
höfðu hrifsað til sín ýmislegt laus-
legt. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík lenti maðurinn í
nokkrum riskingum við annan inn-
brotsþjófinn er hann reyndi að
bjarga frá þjófnum málverki sem
honum var annt um. Þjófarnir
lögðu á flótta, en voru handsamaðir
af lögreglu skömmu síðar.
Að sögn lögreglu eru þjófarnir
rúmlega tvítugir að aldri og hafa
ekki mikið komið við sögu lögregl-
unnar áður. ■
Töpuðu milljarði af líf-
eyrisspamaði sjóðsfélaga
Raunávöxtun Lífeyrissjóðsins Einingar hefur verið neikvæð síðustu tvö ár. Undarlegt að ávöxt-
unin skuli vera mun verri en afkoma Kaupþings sem heldur utan um sjóðinn ,segir sjóðsfélagi,
sem vill sjá breytingar á samþykktum sjóðsins.
„Það hafa orð-
ið einhver slys
i meðferð og
rekstri þessa
sjóðs þessi
tvö ár."
—♦—
lífeyrissjÓðir Neikvæð raunávöxt-
un Lífeyrissjóðsins Einingar und-
anfarin tvö ár jafngildir því að
milljarður hafi tapast af lífeyris-
sparnaði sjóðsfélaga. Raunávöxt-
un sjóðsins hefur á þessum árum
verið neikvæð um 6,58% og
8,35%. Raunávöxtun á fimm ára
tímabili er komin í
2,2% en almennt
er stefnt að því að
raunávöxtun líf-
eyrissjóða á fimm
ára tímabili fari
ekki undir 3,5%.
„Það hafa orðið
einhver slys í með-
ferð og rekstri
þessa sjóðs þessi tvö ár,“ segir
Óttar Yngvason, hæstaréttarlög-
maður og sjóðfélagi, sem hefur
lagt til breytingar á samþykktum
sjóðsins. Hann gagnrýnir að
Kaupþing hafi of mikil völd innan
sjóðsins. í tillögum Óttars er
kveðið á um að endurskoðandi
verði óháður
rekstraraðila, að
ekki sé skylt að
láta Kaupþing
annast rekstur
sjóðsins og að
stjórn sjóðsins
verði í heild kosin
af sjóðsfélögum
en í dag skipar
Kaupþing meiri-
hluta stjórnar.
Óttar segir að
þrátt fyrir að sjóð-
urinn hafi vaxið
hratt á fyrri árum sé það áhyggju-
efni hvernig hefur sigið á ógæfu-
hliðina. Eins veki það spurningar
að á sama tíma og Kaupþing sé
ÓTTAR
YNGVASON
Vill sjá lýðræðis-
legri reglur um
hvernig sjóðnum
skuli stjórnað.
KAUPÞINC
Kaupþing stofnaði Lífeyrissjóðinn Einingu og fer með rekstur hans. Nokkurrar óánægju gætir meðal sjóðsfélaga vegna lélegrar ávöxtunar
sjóðsins undanfarin tvö ár.
rekið með hagnaði sé neikvæð
raunávöxtun á rekstri lífeyris-
sjóðsins. „Það er kannski ekki
hægt að álasa mönnum fyrir það
þó þeir spái einhvern tíma vitlaust.
En þegar þeir spá vel fyrir þegar
þeir ávaxta fyrir sjálfa sig en spá
illa í ávöxtuninni fyrir kúnnann er
það dálítið slæmt.“ Rekstur verð-
bréfafyrirtækis sé reyndar ekki
fyllilega sambærilegur rekstri líf-
eyrissjóðs en þó ekki á ólíku fjár-
málasviði.
„Við höfum haldið okkar striki,"
segir Hafliði Kristjánsson, for-
stöðumaður sölu- og kynningar-
sviðs Kaupþings. „Það er lækkun
núna en ráðgjöfin er óbreytt. Ef þú
ert að fjárfesta til lengri tíma þá
áttu að vera í því sem hefur gefið
betri ávöxtun til lengri tíma.“ Fólki
bjóðist þó að skipta á milli sparn-
aðarforma og sé ekki tekið gjald
fyrir það.
Lífeyrissjóðurinn Eining var
stofnaður af Kaupþingi. í honum
eru 15.000 sjóðsfélagar. Eignir
sjóðsins nema 7,7 milljörðum
króna.
brynjolfur@frettabladid.ls
Þriggja daga stjórnarbyltingu í Venesúela lauk í gær:
Chavez kominn
til valda á ný
venesúela Hugo Chavez tók sigri
hrósandi við forsetavaldi í Venes-
úela í gær, aðeins tveimur dögum
eftir að herinn steypti honum af
stóli. Þúsundir stuðningsmanna
fögnuðu honum þegar hann kom
með þyrlu til forsetahallarinnar í
höfuðborginni Caracas í gær-
morgun. Sjónvarpað var beint frá
athöfn í höllinni, þar sem honum
voru fengin völdin.
Herinn neyddi Chavez til að
segja af sér á föstudaginn eftir
að fjölmenn mótmæli gegn stjórn
hans enduðu með blóðbaði. Vopn-
aðir menn hófu skothríð á mann-
fjöldann og létu þar að minnsta
kosti sextán manns lífið.
Pedro Carmona, forseti Versl-
unarráðs Venesúela, var gerður
að forseta bráðabirgðastjórnar
landsins á föstudaginn, sama dag
og herinn steypti Chavez af stóli.
Carmona hafði verið í hópi þeirra
sem skipulögðu mótmælin gegn
Chavez. Hann leysti upp þingið
og tók úr gildi stjórnarskrá
landsins. Carmona sagði hins
vegar snarlega af sér eftir að gíf-
urlegur fjöldi landsmanna sýndi
andstöðu sína gegn þessum að-
ferðum. ■
HUGO CHAVEZ
Reis upp á þriðja degi.
Mikið um innbrot í
Reykjavík:
Brotist inn í
Breiðholti
löcreglumál Mikið var um innbrot
í hús og bíla í Reykjavík um helg-
ina. Aðfaranótt laugardags var far-
ið ránshendi um Seljahverfi og
Efra-Breiðholt. í Seljahverfi var
brotist inn í tvö íbúðarhús og stolið
heimilisbúnaði og peningum. Einn
maður var handtekinn á iaugar-
dagsmorgun grunaður um aðild að
innbrotum þá um nóttina.
Að sögn lögreglu hefur verið
nokkur aukning í innbrot í bíla, og
er hún rakin til þess að eiturlyfja-
neysla sé í auknum mæli fjármögn-
uð með þessum hætti. Lögregla
taldi þó að einhvern hluta mætti
rekja til almennrar ómennsku og
leti þar sem menn nenntu ekki að
vinna heiðarlega vinnu. ■