Fréttablaðið - 15.04.2002, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 15.04.2002, Qupperneq 13
MÁNUPAGUR 15. apríl 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 13 Markvörðurinn Peter Schmeichel: Kominn til Man. City Heimsmeistarinn einbeittur: Lewis byrj- aður að æfa hnefaleikar Um helgina ferðaðist Lennox Lewis heimsmeistari til Pocono-fjalla. Þar byrjaði hann að æfa stíft fyrir bardagann á móti Mike Tyson, sem fer fram áttunda júní. Lewis er kunnugur í fjöllun- um, sem eru í Pennsylvaniufylki í Bandaríkjunum. Þar hefur hann æft fyrir alla bardaga síðan árið 1992, að fjórum undanskyldum. „Þegar ég stíg inn í hnefaleika- hringinn áttunda júní verð ég til- búinn. Til að berjast á móti Mike Tyson verð ég í betra formi en nokkru sinni fyrr. Ég ætla að koma mér í form lífs míns. Ég get LENNOX LEWIS Ætlar að gera út af við Mike Tyson. ekki beðið eftir því að rota Tyson og útiloka hann úr heimi hnefa- leikanna fyrir fullt og allt,“ sagði Lewis kokhraustur í síðustu viku. Þegar hann mætir Tyson í júní verður liðið rúmt ár síðan hann þurfti að játa sig sigraðan á móti Hasim Rahman. Lewis ætlar ekki að gera sömu mistökin aftur. ■ fótbolti Markvörðurinn Peter Schmeichel tilkynnti fyrir helgi að hann muni kveðja Aston Villa eftir leiktíðina. „Við fáum eflaust einhver tilboð núna,“ sagði um- boðsmaður Schmeichel þegar hann sagði frá ákvörðun hans. Það voru orð að sönnu. Aðeins tveimur dögum seinna skýrði Kevin Keeg- an, stjóri Manchester City, að Schmeichel myndi ganga í lið hans. „Ég er í skýjunum yfir að fá svo reyndan leikmann fyrir næstu leiktíð," sagði Keegan. „Við erum búnir að semja um samning til eins árs og Peter er mjög ánægð- ur með hann.“ Daninn er samn- ingsbundinn hjá Villa þar til í vor. Eftir viðræður við Graham Taylor, knattspyrnustjóra Villa, ákvað Schmeichel að hætta hjá liðinu. „Peter og forveri minn John Gregory komust að munn- legu samkomulagi um það að hann yrði aðalmarkvörður liðsins," sagði Taylor. „Ég vil hinsvegar ekki fullvissa hann um að hann verði aðalmarkvörðurinn. Peter Enckelman kemur í Schmeichel stað. Hann var í læri hjá David James og Schmeichel og á skilið tækifæri," sagði Taylor. Það er ljóst að Manchester City er að breikka hópinn. Liðið er á höttunum eftir Hollendingnum PETER SCHMEICHEL Sættir sig ekki við að vera í öðru sæti. Edgar Davids og Stefan Effenberg hjá Bayern Múnchen. „Við eigum pening til að eyða,“ segir Kevin Keegan. City hefur einnig áhuga á Robbie Keane hjá Leeds. ■ ferdam/in Leeds refsar óþekktaranga: Woodgate sektadur Einvígið um Islandsmeistaratitilinn: Njarðvík vann aftur körfubolti Á laugardaginn mætt- ust Njarðvík og Keflavík í annað sinn í úrslitaeinvíginu um íslands- meistaratitilinn í körfubolta. Leik- urinn fór fram í Njarðvík. Til að byrja með voru Keflvíkingar betri aðilinn í leiknum. Þeir misstu hinsvegar niður forskotið og töpuðu fyrir heimamönnum, sem eru nú með 2-0 forskot í ein- víginu. Njarðvík þarf einn sigur til viðbótar til að tryggja sér titilinn. Peter Philo var stigahæstur hjá Njarðvík. Hann skoraði 30 stig. Guðjón Skúlason var stigahæstur hjá Keflavík. Hann skoraði 21 stig. Næsti leikur fer fram í Keflavík á þriðjudag. ■ fótbolti Jonathan Woodgate hjá Leeds verður sektaður um tveggja vikna laun fyrir brot á regl- um félagsins. Hann kjálkabrotnaði í gamnislag við vin sinn eftir kráar- ferð í síðustu viku. Þeir höfðu verið ásamt félögum sínum að horfa á leik Liverpool og Bayer Leverkusen í Meistaradeild Evrópu. Meiðslin gerðu það að verkum að Woodgate spilar ekki meira með Leeds í vor og félagið var ekki lengi að sekta hann. A föstudaginn var tilkynnt að sektin nemi rúmum þremur og hálfri milljón króna. Ef hann gæti það myndi Woodgate ef- laust naga sig í handarbökin. Litlu munaði að hann næði að komast hjá vandræðunum. Eftir kæru vegna árásar í fyrra var Woodgate skipað að flytja frá slæmum áhrif- um Middlesbrough. í næstu viku flytur hann inn í nýja íbúð í Wetherby í Leeds. ■ Sjálandsmót: Om setur Islandsmet sund Sundgarpurinn Örn Arnar- son bætti eigið íslandsmet í 50 metra baksundi um 55 sekúndu- brot á Sjálandsmótinu, Sjælland Open, í Danmörku í gær. Hann synti vegalengdina á 26,32 sek- úndum. Gamla metið var 26,87 sekúndur. Örn var bæði fyrstur í undanrásum og úrslitasundinu. Nú eru íslenskir sundmenn farnir að setja sig í stellingar fyi'ir Evrópumeistaramót í Berlín. Það fer fram 24. júlí til 4. ágúst í sum- ar. Lára Hrund Bjargardóttir bætt- ist í hóp þeirra sem hafa náð lág- marki fyrir mótið. Hún synti 200 metra skriðsund á tveimur mínút- , , um, 6,78 sekúndum. Örn, Jakob Jó- hann Sveinsson, Hjörtur Már .j Reynisson og Kolbrún Ýr Krist- jánsdóttir hafa éinnig náð lág- marki inn á mótið. ■ Nýjung á íslandi SMS-sérþjónusta MasterCard korthöfum stendur nú til boða a< fá tílkynningar um stöðu kortsins með SMS. Þetta veítir korthöfum áður óþekkt öryggi í viðskiptum á Netinu: Ávísun á góða ferð! Ný Ferðaávisun MasterCard MasterCar (ý& N&irmzfetWr 'MTEftRa týf HpyAygú, ný'ui t.uju ’.pJMOtiUi inri t\ f'l Uifó l\IUv.M'v(.íxtÚ Geröar hafa verió breytingar á Feröaávísun MasterCard til hagsbóta fyrir korthafa. Ávisunin hefur nú verið tengd veltu innan- lands, sem gefur korthöfum tækifæri til að hafa áhrif á fjárhæð hennar. Nú fyrnast fjárhæðirnar á tveimur árum í stað eins áður. Korthafar munu áfram fá 5.000 króna Feröaávísun viö stofnun korts. • Uppftjeöir Jö/núi tru (jt érltfga rfír ? tfi fttuH'i.'.un lt/l«fÞt*fi'Card »tv D hitui pttkkultfió i Um)utiu$ii *d y»»f» kurtimi :.*mi tu'n.unm nr stiluð íi HHVA; HIS'íli Tenging við veltu innanlands: • ATLAS korthafar safna 4 af hverjum 1.000 kr. * ♦ Gullkorthafar safna 5 af hverjum 1.000 kr. * Nánari upplýsingar ó www.europay.is, www.atlaskort.is og í Þjónustuveri MasterCard, Ármúla 28- 30, 108 Reykjavík, simi 550 1500.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.