Fréttablaðið - 15.04.2002, Qupperneq 14
14
fréttabLaðið
15. aprfl 2002' MÁNÚDAGUR
smnnn\} bíú
MULHOLLAND DRIVE
Sýnd kl. 5, 8 og 10
[THE MEAN MflCHINE
Iamelie
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.30
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10
HARRY POTTER m/ens-tal
LE ROI ET LÖISEAU
kl. 10,40
I jlSÖLD m/ens.tal kl. 4,6, 8 og 101 Sýnd kl. 8 og 10
| ÍÍSÖLD m/ísLtal kl.4 0g6j [sLaCKERS kl. 4, 6, 8 og 10 j 1
k *
un Uotoy JOOI ' I!JX Sll/I 564 oooo wvi/w.s morflbíoj*
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 vrr 367
jjlMMYNEUTRON m/ísl tali 4 og 6
|JIMMY NEUTRON kl. 4,6 BoglO
jBEAUTIFUL MIND kl. 8 og 10.30
|THE TIME MACHINE 8 og 10.10
|V j Sýnd kl. 5.54, 8 Og 10.15 VIT337
BIt| Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.20 vrr 337 SJ3
|Tl |PÉTUR PAN m/lsl. tali
ET
kL 530
FRÉTTIR AF FÓLKI
Boin markaðssókn
Bein markaðsókn óskar
eftir að ráða hörkuduglegt
starfsfólk í sölu og
úthringiverkefni á
daginn. Góð verkefni og
góðir tekjumöguleikar.
Hringið í síma 5908000 eða sendið
tQLvupcst á fritzsfcm.is til a3 fíviðtaL.
www.tan.is
Bein markaðssQkn er leiðorrii
ipplýsir^fyrirt^d san veitir
sértefða þjcnustu 1 markaðs- sölu og
ipplýsingamálum. Lferkmið fyrirtæk-
isins er að aðstcða vdðskdptavini sim
við að rá settu marki 1 ipplýsirga-
og iTHtkaðsstarfi.
0 IB!3í5EÍ3EÍSMfSI3J3ISISIlISI3I Ell
1
S
1
S
Antik:
rkrTosa
Antik húsgögn og listmunir
ANTIK KV/RIOJA
Grensósvegi 14.
S: 588 9595 og 660 3509
Opið
món-fös. fró kl. 12-18.
Lau.frákl 12-17.
Í
I
I
I
.1
0
Nýjar línur í
undirfatnaði frá
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
Sími 553 7355
Opið mán.-föst. kl. 11-18
laugard. kl. 11-15
Maðurinn sem öll breska
þjóðin finnur til með þessa
dagana, David Beckham, komst
ekki á frumsýningu kvikmynd-
i arinnar „Bend it
j like Beckham“
j vegna meiðsla
j sinna. Beckham,
j eins og flestir
vita, fótbrotnaði
í síðasta leik
Manchester Utd.
Myndin fjallar
um stúlku sem dreymir um at-
vinnumennskuna í boltanum og
hefur Beckham í guðatölu.
Beckhamhjónin sendu leik-
stjóra myndarinnar, Gurinder
Chadha, skeyti þar sem þau
báðu hana innilegrar afsökunar
á því að komast ekki á frum-
sýninguna. Þau hafa séð mynd-
ina og sjást stuttlega í henni í
einu atriðanna.
Jæja, þá hefur Justin Timb-
erlake loksins gert opinbert
að hann og poppdúkkan Britney
Spears séu hætt saman. Hann
var gestur í
spjallþætti Rosie
O’Donnell og hún
spurði vitanlega
spurningarinnar
sem allar tán-
ingsstúlkur í
Bandaríkjunum
vildu fá svarið
við. Hann sagði
að þau væru hætt, en hann
myndi alltaf elska hana. Þar
með lauk sögunni endalausu.
Astralska leikkonan Holly
Valance, sem aðdáendur
sápuóperunnar „Nágrannar"
þekkja vel, ætlar að reyna að
feta í fótspor
! Kylie Minouge
og Natalie
j Imbruglia. Þær
; léku báðar í þátt-
; unum áður en
þær urðu vinsæl-
ar söngkonur.
Hún hyggst
flytja burt frá
Ramsay-götu og ætlar að reyna
fyrir sér í tónlist. Holly segist
taka öllum samlíkingum við
Kylie sem hrósi þar sem hún sé
hetja hennar. Fyrsta smáskífa
Valance, „Kiss Kiss,“ kemur út
eftir tvær vikur.
Framleiðendur Simpson-þátt-
anna hafa beðið íbúa Ríó de
Janeiro afsökunar á beittu glen-
si þeirra af borginni. Fjölskyld-
an fór til Ríó í einum þáttanna
og þótti mörgum
grínið vera fyrir
neðan beltisstað.
í þættinum var
Hómer m.a.
rændur af götu-
krökkum og svo
rænt af ólögleg-
um leigubíls-
stjóra. Framleið-
endurnir bættu
því svo við að ef sættir næðust
ekki núna væri Hómer vel til í
að mæta forseta Brasilíu í
hnefaleikahringnum í hinum
umdeilda sjónvarpsþætti
„Celebrity Boxing".
RUN-DMC
Hafa þurft að ganga langa og stranga göngu á ferli sínum.
Brautryðjendurnir
Run-DMC nálgast
Þann 25. apríl næstkomandi verður haldin hip-hopveisla í Laugar-
dalshöll, þegar Run D.M.C. heimsækja okkur. Þremenningarnir eru
líklegast þeir áhrifamestu innan hip-hopgeirans.
tónlist Það er engum blöðum um
það að fletta að Run-DMC voru
brautryðjendur hiphopsins. Þeir
urðu fyrsta hip-hopsveitin til að
ná gull- og platínusölu í Banda-
ríkjunum. Þeir urðu fyrsta hip-
hopsveitin til að fá myndband
sýnt á MTV. Þeir urðu fyrsta
hip-hopsveitin til að komast á
forsíðu Rolling Stone-tímarits-
ins. Þeir urðu fyrsta hip,-
hopsveitin til að fá tilnefningu
til Grammy verðlauna.
Run-DMC var stofnuð í
Queens hluta Nevv York árið
1982 af þeim Joseph Simmons
og Darryl McDaniel eftir að
stóri bróðir þess fyrrnefnda
hvatti þá til þess. Þeir tóku sér
fljótlega listamannanöfnin Run
og DMC. Fljótlega bættu þeir
við plötusnúðnum Jason Mizell
sem valdi sér nafnið Jam Master
Jay.
Fyrsta smáskífa tríósins, „It’s
Like That / Sucker M.C.’s", kom
svo út árinu seinna. Þeir líktust
engu sem áður hafði heyrst.
Tónn þeirra þótti beittari en
Grandmaster Flash, Run og
DMC voru með svalari sviðs-
framkomu og textar þeirra fjöll-
uðu um kaldar,staðreyndir raun-
veruleika þeirra. Hljómsveitir á
borð við Public Enemy og
N.W.A. hafa fúslega viðurkennt
Run DMC sem áhrifavalda.
Lag þeirra „It’s Like That“
komst á topp 20 lista Billboards
og náðu þremenningarnir að
fylgja vinsældunum með næstu
tveimur smáskífum.
Þeir ákváðu snemma að gera
sitt til að rífa niður vegginn
milli rokks og rapps. Þeir urðu
fyrstir til að blanda rokki inn í
rapp á þriðju plötu sinni „Rais-
ing Hell“ sem kom út árið ‘86.
Frægasta lagið af þeirri plötu er
án efa „Walk This Way“, endur-
vinnsla á lagi Aerosmith sem
Steve Tyler söngvari og gítar-
leikarinn Joe Perry tóku þátt í
að flytja. Aldrei áður hafði plata
náð að höfða til rokkara og rapp-
ara í einu og er þessi þriðja plata
þeirra enn í dag þeirra sölu-
hæsta. Vinsældir hennar voru
það miklar að talað var um
næstu plötu þeirra, „Tougher
than Leather", sem „flopp“,
þrátt fyrir að hafa náð platínu-
sölu.
Fyrri hluti síðasta áratugar
var þeim afar erfióur. DMC
þurfti að glíma við Bakkus á
meðan félagi hans Run var
ákærður fyrir nauðgun. Eftir að
DMC hafði náð að þurrka sig
upp og ákærur á hendur Run
voru felldar niður fundu þeir
báðir Guð. Plata þeirra frá árinu
‘93 er því stútfull af lofi til skap-
arans. Titillag plötunnar, „Down
with the King“, kom þeim aftur
inn á vinsældalista eftir erfiðar
raunir.
biggi@frettabladid.is
Matrix 2:
Dóttir Marvin Gaye
tók vid af Aaliyuh
kvikmyndir Dóttir soul söngvar-
ans látna Marvin Gaye hefur ver-
ið ráðin í hlutverkið sem upphaf-
lega var ætlað söngkonunni Aali-
yuh í tveimur framhaldsmyndum
„The Matrix". Hún vakti nýlega
athygli þegar hún lék aðra eigin-
konu boxarans Muhammad Ali í
myndinni sem Will Smith var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir.
Nona Gaye reyndi sjálf fyrir
sér á tónlistarsviðinu í upphafi
síðasta áratugar og gerði lag sitt
„I’m Overjoyed" vinsælt í Banda-
ríkjunum. Hlutverk hennar í nýju
Matrix myndunum á líklegast eft-
ir að greiða veginn fyrir hana í
Hollywood.
Alliyah var búin að leika nokk-
ur atriðanna sem hún átti að vera
í, en framleiðendur myndarinnar
sáu ekki fram á að geta notað þau
án þess að rífa persónu hennar úr
sögusamhengi. Kvikmyndin „The
Matrix: Reloaded" er væntanleg á
næsta ári. ■
NONA GAYE
Hlýtur að teljast til betri afurða
snillingsins Manrin Gaye.