Fréttablaðið - 15.04.2002, Page 16

Fréttablaðið - 15.04.2002, Page 16
FRÉTTABLAÐIÐ 15. apríl 2002 MÁNUDACUR Á HVÐA TÍMUM LIFUM VIÐ? Við lifum á timum þar sem fólk er sífellt að velta fyrir sér hvað það er sem það hefur ekki, á kostnað þess að meta það sem það hefur. Svona hugsun leiðir til veraldlegrar ófullnægju og eilífs kapphlaups. Bryndís Valsdóttir, heimspekingur. 16 Kvennakórinn Vox Feminae: Flytja kórverkið Lieberslieder-Walzer tónleikar Kvennakórinn Vox Fem- inae flytur Lieberslieder-Walzer op. 52 eftir Johannes Brahms í út- setningu Paul Hindermann. Stjórn- andi er Margrét Pálmadóttir. Með- leikarar á píanó eru Arnhildur Val- garðsdóttir og Ástríður Haralds- dóttir. Margrét Vilhjálmsdóttir, leikkona, les ástarljóð og úr ástar- bréfum og Sigrún Eðvaldsdóttir leikur á fiðlu. Lieberslieder-Walzer sem Kvennakórinn Vox Feminae flytur var upphaflega samið fyrir blandaðan kór, einsöngvara og pí- anó. Síðar var verkið raddsett fyr- ir kvennakór af Paul Hindermann. Kvennakórinn Vox Feminae var stofnaður haustið 1993. Kórinn hefur haldið sjálfstæða tónleika einu sinni til tvisvar á ári frá 1997. Einnig hefur hann tekið þátt í tón- leikum Kvennakórs Reykjavíkur- og farið í tónleikaferðir. Árið 2000 vann hann til silfurverðlauna í VIII Alþjóðlegu kórakeppninni í kirkjulegri tónlist sem haldin er árlega í nafni tónskáldsins Giovanni Pierluigi Da Palestrina í Vatikaninu í Róm. Tónleikarnir verða í kvöld í tónlistarhúsinu Ými. Þeir hefjast kl. 21 en húsið opnar kl. 20. ■ VOX FEMINAE Kvennakórinn Vox Feminae var stofnaður haustið 1993 en þá tóku nokkrar konur úr 120 kvenna Kvennakór Reykjavíkur sig saman, undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur, og stofnuðu „antik"-hóp. MÁNUDAGUR 15. APRÍÍT FUNDUR Túrbínu- þjónusta VELALAIMD VÉLASALA • TÚRBÍNUR VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík Sími: 577 4500 velaland@velaland.is 14.45 Dr. Eduard Kukan, utanríkisráð- herra Slóvakíu, heldur í dag fyrir- lestur í boði Félags stjórnmála- fræðinga og stjórnmála- fræðiskorar Háskóla fslands. í fyrirlestri sínum mun Dr. Kukan fjalla um stefnu Slóvakíu í utanrík- ismálum og stöðu landsins með tilliti til aðildar að Evrópusam- bandinu annars vegar og Atlants- hafsbandalaginu hins vegar. Fundurinn er haldinn í Norræna húsinu. 20.00 Hverfasamtök Vatnsendahverfis „Sveit í borg" standa í kvöld fyrir opnum fundi um framtíð Vatns- endasvæðisins. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimili Fáks í Víði- dal. Á fundinn munu mæta fram- bjóðendur þeirra flokka sem bjóða fram í Kópavogi nú i vor. Kynntar verða helstu hugmyndir íbúa sem varða framtíðarskipulag Vatnsendasvæðisins, en þær byggja á skoðanakönnun sem gerð var meðal íbúa og sumar- húsaeigenda sumarið 2001. 20.00 Skólafélag MR, Framtíðin og Foreldrafélag MR boða til opins fundar í kvöld í Ráðhúsi Reykja- víkur, Tjarnarsal, um húsnæðis- mál Menntaskólans i Reykjavík. Á fundinum mun fulltrúi nem- enda, Bolli Thoroddsen, inspector scholae, og fulltrúi foreldra Stein- grímur Ari Arason, hafa stutta framsögu um málefni skólans, einkum þó húsnæðismál hans. FÉLAGSSTARF _________________________ 10.00 Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Púttæf- ingar í Bæjarútgerðinni kl 10.00 til 11.30 og félagsvist kl. 13.30. TÓNLEIKAR 20.00 Hlöðver Sigurðsson, tenórsöngv- ari heldur söngtónleika í Salnum, Kópavogi, í kvöld. Með honum leikur Antonía Hevesi, planóleik- ari. Saman flytja þau Islensk sönglög og erlendar óperuaríur. 21.00 Kvennakórinn Vox Feminae flyt- ur í kvöld Lieberslieder-Walzer op. 52 eftir Johannes Brahms (1833 - 1897) i útsetningu Paul Hinder- mann, undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Tónleikarnir fara fram í Ými og opnar húsið kl. 20.00. Fór úr rokkinu í klassíkina Hlöðver Sigurðsson, tenórsöngvari, heldur tónleika í Salnum í kvöld. tónleikaw Hlöðver Sigurðsson, tenórsöngvari, heldur tónleika í Salnum, Kópavogi, í kvöld kl. 20. Með honum leikur Antonía Hevesi, píanóleikari. Saman flytja þau íslensk sönglög og er- lendar óperuaríur. Hlöðver er 29 ára gamall Sigl- firðingur. Hann hefur stundað nám hjá Antoníu Hevesi við Tón- listarskóla Siglufjarðar síðan á haustmánuðum 1995. Áður en leið Hlöðvers lá í klassíkina söng hann í rokkhljómsveit fram yfir tvítugt. Blaðamanni fannst lang- ur vegur frá rokki yfir í aríur og innti hann eftir þessu stökki. „Antonía var nýkomin frá Ungverjalandi til að kenna söng á Siglufirði. Hún heyrði fyrst í mér um verslunarmannahelgi þar sem ég stóð uppi á sviði gargandi yfir áhorfendur. Ein- hverra hluta vegna greindi hún einhverja sönghæfileika í öllu öskrinu, þrátt fyrir að ég minnti meira á Rod Stewart en tenór. Antonía vildi endilega fá mig í söngnám. Mér fannst hugmynd- in fráleit í fyrstu en lét slag standa,“ segir Hlöðver. Hann segist ekki hafa tekið námið al- varlega í fyrstu. Sú afstaða hafi breyst þegar árangurinn fór að koma í ljós. Hlöðver stundar nám við Guildhall School of Music and ANTONÍA HEVESI OG HLÖÐVER SIGURÐSSON Á efnisskrá tónleikana er m.a. lag Sigvalda Kaldalóns, Hamraborgin. „Ég hef sungið Hamraborgina á hverjum einustu tónleikum síðustu þrjú ár. Mér finnst alltaf gaman að syngja íslensku lögin." Drama í London. „Þetta er strembið nám og ólíkt því sem ég átti að venjast, sérstaklega hvað varðar aga sem er mikill og vinnuaðferðir eru ólíkar. í byrj- un þurfti ég að beita mig miklum sjálfsaga til að komast inn á rétta braut.“ Hlöðver hefur fengið inni í óperudeild The Royal Scottish Academy of Music & Drama. Þess má geta að Ólafur Kjartan Sigurðsson, óp- erusöngvari, sótti sama skóla. „Það má segia að ég sé kominn í alvöruna. Eg hef látið slag standa. Á sínum tíma hugsaði ég með mér að ég gæti þá ekki nag- að mig í handarbökin síðar meir að prófa ekki.“ Ferill Hlöðvers er rétt hafinn og að hans sögn er bjart framundan. „Það stefnir allt í að ég verði úti næstu árin. Ég er kannski ekki alveg búinn að negla allt niður, það getur allt gerst,“ segir þessi ungi og efni- legi söngvari sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. kolbrun@frettabladid.is SYNINGAR Arsineh Houspian hefur opnað sýn- ingu á svart-hvítum Ijósmyndum í Ljós- fold í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Sýninguna nefnir listakonan Séð með gestsaugum. Arsineh hefur dvalist á Is- landi undanfarna 10 mánuði og sýnir nú hluta mynda sem hún hefur tekið hér á landi. Ljósfold er opið á sama tíma og Gallerí Fold. Sýningunni lýkur 21. apríl. Sýning á verkum Sigurðar Gústafsson- ar arkitekts hefur opnað í Víkurskóla Hamravík 10, Grafarvogi. Að sýningunni standa sænska fyrirtækið Kallemo, sem framleiðir verk hönnuð af Sigurði og Epal hf. Sýningin Breiðholtið frá hugmynd til veruleika stendur yfir í Listasafni Reykjavíkar - Hafnarhúsi. Þar eru sýndar teikningar og skissur þeirra sem skipulögðu Breiðholtshverfin þrjú ásamt Ijósmyndum af hverfinu óbyggðu °g byggðu. Þá eru á sýningunni, í samstarfi við RÚV, ýmis konar myndefni sem tengist Breiðholtinu ásamt útvarps- upptökum með efni frá uppbyggingar- tíma hverfisins. Sýningin stendur til 5. tasýnii ússonar, Arnagarði við Suðurgötu. Handritasýning er opin kl. 14 -16 þriðjudaga til föstudaga. Sýningin Landafundir og ragnarök stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er samstarfsverkefni við Landafundanefnd og fjallar um landa- fundi og siglingar íslendinga á miðöld- um með áherslu á fund Grænlands og Vínlands. Tilkynningar sendist á ritstjorn @frettabiadid.is Mikil eftirspurn er nú eftir fólki meb meirapróf! eirapréis 99.900kr v££i£!i ^ Kn Hópbifreið Kennslubifreibar: Leigubifreiö: Nissan Terrano II, sjálfskiptur. Vörubifreiö: Volvo FL 10, 2x4ra gíra. Hópbifreiö: Benz 0303, 6 gíra. igjæiL jjMBHSV MM Nœstu námskeib 18. apríl- 19. maí 24. maí- 25. júní Skráning ísímum 581 1919, 892 4124 og 898 3810 Htesta nómskeib Hefet 18. apn '. öriá steti laus Ath! Nú greiba verkalýbsfélög allt ab 40.000 kr. af námskeibi. Skrábu þig núna! Síöustu námskeiö hafa öll fyllst! ÖKUSKÓLI Sími 581 1919 IEIGUBIFREI nuKin öKURÉTiinni ■ HÓPBIFREIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.