Fréttablaðið - 15.04.2002, Page 22
SAGA PAGSINS
15. APRIL
Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti
íslands, fæddist árið
1930. Árið 1990 kom af-
mælisritið Yrkja út í til-
efni af sextugsafmæli Vig-
dísar. Ritið var grundvöllur Yrkju-
sjóðs sem kostaði gróðursetningu
tugþúsunda trjáplantna ár hvert.
Arið 1990 kom upp eldur ofan á
ammoníaksgeymi Áburðarverk-
smiðjunnar í Gufunesi. Fljótlega
tókst að slökkva eldinn en talið var
að mikið hættuástand hafi skapast.
Níutíu ár eru í dag liðin frá því
breska farþegaskipið Titanic
sökk niður á botn Atlantshafsins.
Meira en 1.500 manns fórust með
skipinu. Um það bil sjö hundruð
manns björguðust, flest konur og
börn.
22
FRETTABLAÐIÐ
15. apríl 2002 MÁNUDAGUR
Vildi kalla á slökkvilið-
ið til að stöðva gosið
Þetta samfélag hefur verið að
gefa dálítið eftir undanfarin
ár, eins og svo mörg samfélög á
landsbyggðinni. Þegar var leitað
til mín að leiða listann, þá fannst
mér ég ekki geta skorast undan
því,“ segir Lúðvík Bergvinsson,
þingmaður. „Ég tel þetta geta far-
ið vel saman við þingstörfin. Það
er öflugt fólk á þessum lista og
það er vel þekkt bæði hér í Eyjum
sem og annarstaðar, að menn hafa
bæði setið í sveitarstjórnum og á
Alþingi." Lúðvík er ekki bæjar-
stjórnarefni listans enda finnst
honum það ekki fara saman; að
vera bæjarstjóri og þingmaður.
Hann segir það hafa verið forrétt-
indi að alast upp í Vestmanneyj-
um enda nóg að gera.
„Ég var átta ára gamall þegar
gosið varð. Ég man ég stóð úti á
tröppum með stýrur í augunum og
horfði á Eyjuna rifna upp. Ég vissi
ekki hvað eldgos var og skildi
ekki af hverju menn kölluðu ekki
á slökkviliðið," segir Lúðvík hlæj-
andi, minnugur gossins. „Síðar
tóku menn upp á því að dæla sjó á
hraunið til að stoppa það. Hug-
myndin mín var því kannski ekki
svo galin.“
Persónan
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður, mun leiða
Vestmannaeyjalistann í bæjarstjórnarkosn-
ingunum þann 25. maí.
Lúðvík á marga leiki að baki
með meistaraflokki ÍBV í knatt-
spyrnu en þurfti að leggja skóna á
hilluna eftir að festingar í nára
slitnuðu. Hann sparkar þó í bolt-
ann í frístundum. „Við erum með
lið í þinginu og erum að fara spila
við Ríkisútvarpið. Síðan er ákveð-
in kjarni úr Vestmannaeyjum sem
spilar fótbolta á sunnudögum." b
LÚÐVÍK BERGVINSSON
Lúðvík er 37 ára og elstur þriggja systkina.
Hann var átta ára þegar gaus í Eyjum
FÓLK í FRÉTTUM
Mikil spenna er nú í kringum
Norðurljós eftir að kyrr-
stöðusamningur félagsins við
lánardrottna sína rann út. Ýmsir
hugsa sér gott til glóðarinnar og
vilja tryggja sér bita af kökunni
líkt og kom fram í blaðinu fyrir
helgi þar sem greint var frá því
að Islenska sjónvarpsfélagið sem
rekur Skjá einn vildi eignast Stöð
2 og Sýn. Ekki eru þó allir á því
að það sé góð hugmynd að leggja
saman tvo mínusa. Enda sýni
gamli barnaskólalærdómurinn að
það þurfi að margfalda tvo
mínusa til að fá út plústölu. Mín-
us mínus mínus þýðir bara ennþá
stærri mínus.
Eigendur Skjás eins eru þó ekki
þeir einu sem sýna því áhuga
að plokka úr Norðurljósum.
Þannig herma óstaðfestar fréttir
að Hreggviður Jónsson, forstjóri
Norðurljósa þar til í febrúar, sé nú
búinn að ná saman hópi banda-
rískra fjárfesta sem hafi áhuga á
því að kcrna inn á íslenskan fjöl-
miðlamarkað. Það væri þá ekki í
fyrsta skipti sem Stöð 2 skipti um
eigendur undir érfiðum fjárhags-
legum kringumstæðum enda kom
hluti núverandi eigenda Norður-
ljósa fyrst að Stöð 2 þegar hún
rambaði á barmi gjaldþrots fyrir
áratug.
STÖÐUVEITING
Heim á nýjum bíl
á hverjum degi
Jón Snorri Snorrason settist í forstjórastólinn
hjá B & L síðastliðinn fimmtudag.
Eg hef átt hér mikil viðskipti,
bæði prívat og gegnum fyrri
störf,“ segir Jón Snorri Snorra-
son, nýráðinn forstjóri B & L.
Hann var aðstoðarframkvæmda-
stjóri Lýsingar og átti þá mikil
samskipti við fyrirtækið og allur
bílafloti Ölgerðarinnar sem hann
stýrði í sex ár kom frá B & L.
Auk þess ekur fjölskylda Jóns
Snorra á Renault-bifreið. „Ég er
eiginlega kominn í þriðja hlekk-
inn í þessu, frá því að vera að
fjármagna bílakaup, kaupa þá
beint og svo núna í söluna.“
Jón Snorri cr að setja sig inn í
mál hjá fyrirtækinu og eitt af því
sem hann þarf að gera er að
kynnast þeim bílategundum sem
B & L flytur inn. „Ég er að prófa
bílana svo ég viti hvað fyrirtæk-
ið er aö selja þannig að ég fer
heim á mismunandi bílum hvert
kvöld,“ segir Jón Snorri og
finnst þetta greinilega ekki leið-
inlegur hluti starfsins þótt hann
sé að eigin sögn ekki forfallinn
bíladellukarl. „Ég er bara með
væga dellu."
Jón Snorri er fæddur í Reykja-
vík en hóf skólagöngu í Svíþjóð
þar sem faðir hans stundaði
framhaldsnám. Hann er stúdent
frá MH, lauk prófi í viðskipta-
fræði frá HI árið 1979 og
mastersprófi frá háskólanum í
Essex árið 1981. Hann var þar
áfram við kennslu og rannsóknir
til 1983. Þá rcðst hann til við-
skiptafræðideildar HÍ þaðan sem
leiðin lá í hagdeild Landsbankans
ög svo til Kaupþings. Árið 1992
var Jón Snorri ráðinn aðstoðar-
framkvæmdastjóri Lýsingar og
1995 réðist hann til Ölgerðarinn-
ar. Kona Jóns Snorra er Sigríður
JÓN SNORRI SNORRASON
Jóni Snorra finnst áberandi hversu margir starfsmenn hafa verið mjög lengi hjá B & L og
finnst það bera því vitni að gott sé að vinna hjá fyrirtækinu. Hér er hann við Dixie Flyer bíl.
Knútsdóttir kennari og eiga þau
þrjú börn á aldrinum 14 til 23 ára.
Jón Snorri segist líta björtum
augum til framtíðar bílainnflutn-
ings í landinu. „Bílasala gengur í
miklum sveiflum og hefur alltaf
gert hér. Það verður ábyggilega
mjög athyglisvert að sjá hvernig
þessir hlutir þróast. Það má vel
verið að einhver uppstokkun
verði á bílaumboðunum eins og
bau eru í dag. Það verður oft ein-
hver uppstokkun í kjölfar kreppu
og það er aldrei að vita nema að
það verði í þessari grein líka.“
steinunn@frettabladid.is
www.sumarbudir.is
Skráning í síma 551 9160 / 551 9170
yv\
n
Sumorbáðírnar
Ævintýmfond
TÍMAMÓT
JARÐARFARIR
13.30 Elísabet Guðrún Helgadóttir frá
Kálfaborgará í Bárðardal verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
13.30 Jón Jóhannesson járnsmiður,
Hrafnistu í Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Laugarneskirkju.
14.00 Kristín Kristjánsdóttir frá Bakka-
koti verður jarðsungin frá Borgar-
neskirkju.
15.00 Ingvar Guðmundur Sigurðsson,
Cape Coral, Flórída, verður jarð-
sunginn frá Innri-Njarðvíkurkirkju.
AFMÆLI_______________________________
Vigdís Finnbogadóttir er 72 ára í dag.
Skúli Helgason er 37 ára í dag.
ANPLÁT_______________________________
Árni Jón Jóhannsson, Grófarseli 22, lést
12. apríl.
Vuokko Kivi (Selma Marteinsdóttir),
Lantana, Flórída, lést 12. mars. Bálförin
hefur farið fram.
Guðveig Hinriksdóttir lést á elliheimil-
inu Grund 11. apríl.
Ingibjörg Sólveig Sigurðardóttir lést á
Hrafnistu í Reykjavík 11. apríl.
Ragna Kristin Guðmundsdóttir, Hlíðar-
vegi 28, Kópavogi, lést 11. apríl.
Vignir H. Benediktsson, Hléskógum 16,
lést 11. april.
Áki Kristján Jensson, Sólheimum 23,
lést 10. apríl.
Halidór Pálsson, Faxabraut 75, Keflavík,
lést 10. apríl.
Sóley Ingvarsdóttir, andaðist á Barna-
spítala Hringsins, 10. apríl.
Aðalbjörg Guðrún Guðmundsdóttir,
Suðurgötu 8, Vogum, lést 9. apríl.
ÐÁsta Ragna Jónsdóttir, Kleppsvegi 39,
lést 9. apríl.
Börkur Hrafn Víðisson lést 9. apríl.
Sigurður Andersen, Túngötu 57, Eyrar-
bakka, lést 4. april. Jarðarförin hefur far-
ið fram.