Fréttablaðið - 15.04.2002, Page 23

Fréttablaðið - 15.04.2002, Page 23
IVIÁNUPAGtJR 15. apríl 2002 23 Dularfullt ljóð í útför drottningarmóðurinnar: Engin höf- undur finnst sviðsuós Ljóð sem Bretadrottning valdi fyrir jarðarför móður sinnar á dögunum kom bókmenntafræð- ingum í opna skjöldu. Enginn veit nefnilega hver samdi það, eða hvar drottningin fann það. Allar tilraunir til þess að finna höfundinn hafa mistekist og telja sumir að hún hafi fundið það á Netinu eða jafnvel á samúðar- korti. Ljóðið heitir „She is Gone“ og er Elísabet sögð hafa valið það sérstaklega þar sem henni á að hafa fundist það endurspegla hvernig hún óskaði að almenning- ur minntist móður sinnar. ■ "I FÓLK í FRÉTTUM |“ Framtíðarsýn menntamálaráð- herrans nýja, Tómasar Inga Olrich, um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins vefst nokkuð fyr- ir þeim sem hing- að til hafa viljað sjá veg stofnun- arinnar sem mestan og bestan í ranni ríkisins. Tómas vill nefni- lega að Útvarpið hf. verði áfram í ríkiseigu, en hugmyndir um hlutafélagavæð- ingu hafa þótt tortryggilegar sem fyrsta skref- ið í að einkavæða stofnunina. Tómas segir hins vegar að frelsi stofnunarinnar aukist við formbreytingu, en margir hafa verið talsmenn þess að frelsa Útvarpið undan of- stjórn misviturra stjórnmála- manna. Velta menn því nú fyrir sér hvort ekki megi auka frelsi og sjálfstæði stofnunarinnar á einhvern annan máta en að breyta henni í hlutafélag. Tómasi hefur því ekki tekist að fullu að kveða niður sam- særiskenningar eða ótta sumra um að bréfin í RÚV hf. verði seld við fyrsta hentugleik eftir að það form er komið á. Seltirningar eru nú fullir að- dáunar á samningasnilld fráfarandi bæjarstjóra síns, Sig- urgeirs Sigurðs- sonar. Honum hefur tekist að semja við Símann um að Seltirning- ar í afmörkuðum hverfum fái að greiða 60 þúsund krónur fyrir breið- bandstengingu sem margir Reykvíkingar og einhverjir Seltirningar hafa fengið fyrir ekki neitt. Ekki kemur þó til tengingarinnar nema 70% íbú- anna í þessum afmörkuðu hverf- um vilji ganga að þessu kosta- boði. Ekki er að efa að sú verði raunin enda er það ekki á hverj- um degi sem fólki býðst að borga 60 þúsund fyrir það sem aðrir hafa fengið frítt. \liÁn, P/lfai íyrir.sf^húsgös'i, aiugga°g k æðninga* 1 ■04 PSjLI ffl'" MÁLARINNim BásiárlÍtVdl t * **0»*MI'' Si'mi! 381' 3Sðð> Finnsk ópemmenning: Dario Fo í Helsinki leikhús ítalski nóbelsverðlauna- höfundurinn Dario Fo ætlar að leikstýra óperunni Ferðin til Reims eftir Rossini í I-Ielsinki næsta vetur. Óperustjóri Finnsku ríkisóperunnar í Helsinki, Erkki Korhonen, tilkynnti þetta í síðustu viku. Æfingar hefjast í nóvember og frumsýning er áætluð 17. janú- ar. „Við erum í skýjunum yfir þessu. Mér dettur ekki í hug betri maður til að leikstýra verkinu," sagði Korhonen. ítalinn Maurizio Barbacini verður stjórnandi. Grínóperan eftir Rossini er sam- in 1825. Hún fjallar um Evrópu- menn, sem hittast í hótelherbergi á leið í krýningu Karls X konungs í frönsku borginni Reims. Kor- honen sagði að virkni Fo í þjóðfé- lagslegum málum og gagnrýni hans á ranglæti gagnvart þeim sem minna mega sín séu ástæða þess að hann er fullkominn í leik- stjórastólinn. „Óperan er gagn- rýnin á sameinaða Evrópu á lúmskan máta. Hægt er að sjá Evrópu samtímans í þessu sam- hengi, þar sem leiðtogar allrar álfunnar hittast," sagði Kor- honen. ■ DARIO FO ítalskt leikskáld, leikari og leikstjóri. Vann bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1997. Eftir hverju ert þú að bíða? Sýndu frumkvæði og kauptu skrifstofuvörurnar í Griffli - þar sem þær eru alltaf ódýrari. Komdu núna og byrjaðu að græða. Canon P29-D Reiknivéi með strimli Bréfabindi Ljósritunarpappír Gatapokar Skrifanlegir geisladiskar | Carlton Fartölvutaska 111111111111111111111 1 Skrifstofumarkaður Skeifunni 11d • Sfmi 533 1010 Opið virka daga 10-18 laugardaga 12-16 GRIFFILL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.