Fréttablaðið - 14.05.2002, Qupperneq 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
14. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Hefurðu fylgst eitthvað með
Natófundinum?
Ég hef ósköp lítið fylgst með honum. Nán-
ast ekki neitt. Ég hef engar sérstakar skoð-
anir á honum. Efast stórlega um að ég fari í
mótmæli eða skipti mér af fundinum að
öðru leyti.
Vigdís Asgeirsdóttir, nemi
BUSH TALAR VIÐ BLAÐAMENN
Bush skýrði frá samkomulagi um fækkun
kjarnavopna áður en hann hélt í stutta
ferð til Chicago í gær.
Bandaríkin og Rússland:
Samkomulag
um fækkun
kjarnavopna
WASHINGTON. ap George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, skýrði frá
því í gær að Bandaríkin og Rúss-
land hefðu náð samkomulagi um
fækka verulega kjarnorkuvopn-
um sínum. Hann og Vladimir Put-
in, forseti Rússlands, ætla að und-
irrita samkomulagið á fundi sín-
um í Rússlandi 24. maí.
Á síðasta ári samþykktu þeir
að fækka kjarnavopnum sínum úr
6.000 í 1.700 til 2.000. Fulltrúar
þeirra hafa síðan verið að gera
formlegan samning um það. Bush
sagði í gær að með þessum samn-
ingi hefjist nýtt tímabil í sam-
skiptum landanna. ■
VIÐSKIPTI
Ránarborg seldi hlutabréf í
Granda fyrir rúmlega 89
milljónir króna á föstudag. Nafn-
virði hlutabréfanna var 14,5
milljónir króna og sölugengið
6,15.
Hagnaður Kers, sem áður hét
Olíufélag íslands, fyrstu þrjá
mánuði ársins var 313 milljónir
króna eftir skatta. Hagnaður fyr-
ir allt árið í fyrra var 1.550 millj-
ónir króna.
Mikill samdráttur á Leifsstöð:
Fjórðungi færri
lendingar
flug 25% færri lendingar voru við
flugstöð Leifs Eiríkssonar í apríl í
ár en á sama tíma í fyrra segir
Björn Ingi Knútsson, flugvalla-
stjóri. Hann segir mikinn sam-
drátt í umferð um flugvöllinn. Or-
sök samdráttarins má rekja bæði
til hryðjuverkanna 11. september
og samdráttar í efnahagslífi að
sögn Björns Inga. Hann segir að
þegar í ársbyrjun 2001 hafi menn
verið farnir að finna fyrir sam-
drætti. „Árið 2000 var líka um
margt frekar sérstakt," segir
Björn Ingi sem bendir á að þá hafi
verið mjög mikið sætaframboð.
Til dæmis hafi Samvinnuferðir-
Landsýn boðið upp á ódýrt flug til
Kaupmannahafnar og London.
Uppgangurinn í þjóðfélaginu hafi
skilað sér í auknum ferðalögum.
Nú ferðist íslendingar hins vegar
minna og erlendum ferðamönnum
fækkaði. Þetta hefur neikvæð
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Samdráttur bitnar á rekstri flugstöðvarinnar.
áhrif á rekstur flugstöðvarinnar
segir Björn Ingi. Hann segir ein-
nig að hertar öryggiskröfur í kjöl-
far hryðjuverkanna kosti sitt,
ráða hafi þurft nýtt starfsfólk til
þess að mæta auknum kröfum. ■
INNLENT
Tveir menn undir tvítugu
voru handteknir um mið-
nætti í fyrrinótt eftir að hafa
haft ólögleg fíkniefni í fórum
sér. Að sögn lögreglunnar í
Kópavogi voru mennirnir hand-
samaðir á Hamraborgarsvæð-
inu. Talið er að þeir hafi haft
hass meðferðis. Voru þeir látnir
lausir að lokinni yfirheyrslu.
Idag birtir Hagstofa íslands verð-
bólgumælingu sína fyrir maí-
mánuð. Kemur þá í ljós hvort
markmið aðila vinnumarkaðarins
og ríkisstjórnarinnar um verðbólgu
innan rauða striksins, sem dregið
var við 222,5 verðbólgustig, náist.
Fari svo hefur Seðlabanki íslands
lýst yfir að búast megi við vaxta-
lækkunum í kjölfarið.
Eimskipvill meiri-
hluta í Skagstrendingi
Eimskip á rúm 97 prósent í Utgerðarfélagi Akureyringa eftir að hluthafar UA gengu að kauptil-
boði félagsins. Vilja einnig eignast meirihluta í Skagstrendingi. Ræða sameiningu
Skagstrendings og UA.
sjAvarútvegur „Það kemur í ljós
á næstu dögum eða vikum
hvernig viðræðunum lyktar,“
segir Adolf Berndsen, stjórnar-
formaður Skagstrendings og
oddviti Höfðahrepps, um við-
ræður við Eimskip um samein-
ingu félagsins við Útgerðarfélag
Akureyringa. Hann segir marga
hluti þurfi skoðunar við enda
miklir hagsmunir tengdir mál-
inu. „Viðræður hafa gengið
ágætlega og menn eru að feta
sig nær niðurstöðu."
„Það hefur verið unnið að
sameiningunni en niðurstaða
liggur ekki fyrir,“
^ ~ segir Garðar
,,Þegar við Halldórsson,
lögðum af varaformaður
stað höfðum stjórnar Eim-
við væntingar skips. Hann segir
um að flestir niðurstöðu að
myndu taka vænta innan
þessu tilboði." skamms.
___4— Höfðahreppur
á rúmlega 24 pró-
sent í Skagstrendingi en Eim-
skip 41 prósent. Eimsjdp á ein-
nig rúm 97 prósent í ÚA. Félag-
inu bar skylda til að bjóða hlut-
höfum í ÚÁ að skipta hlut sínum
fyrir hlut í Eimskip eftir að fé-
lagið eignaðist meirihluta í fé-
laginu. Vegna þess bættist 42
prósent af hlutafénu við eignar-
hlut Eimskips. Samskonar yfir-
tökuskylda myndi koma til ef
Höfðahreppur selur Eimskip
sinn hlut í Skagstrendingi.
Guðbrandur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri ÚA, segir að
enn berist óskir frá hluthöfum
að skipta bréfum yfir í hlut í
Eimskip. Þetta kauptilboð muni
standa áfram þó fresturinn sé
útrunninn.
„Þegar við lögðum af stað
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Félagið hyggst fjárfesta mikið í sjávarútvegi á þessu ári og byggja upp öflug sjávarútvegsfyrirtæki.
GUÐBRANDUR
SIGURÐSSON,
FRAMKVÆMDA-
STJÓRI ÚA
„Hefur litla breyt-
ingar í för með sér
fyrir okkur en gefur
okkur meiri slag-
kraft og vind f segl-
in."
höfðum við
væntingar um
að flestir
myndu taka
þessu tilboði,"
segir Garðar.
Hann segir
þetta hag-
kvæmt fyrir hluthafa ÚA ekki
síður en hluthafa Eimskips. „Við
vorum með væntingar um að ná
yfir 90 prósent eignarhlut í fé-
laginu."
Garðar segir í grundvallarat-
riðum verði ekki gerðar breyt-
ingar á rekstri eða stjórnun fyr-
irtækisins. Höfuðstöðvarnar
verði fyrir norðan en ÚA komi
inn í samstæðureikning Eim-
skips sem dótturfélag. Núver-
andi framkvæmdastjóri muni
vinna að framsókn fyrirtækisins
ásamt forstjóra Eimskips.
bjorgvin@frettabladid.is
Hagnaður af rekstri Vinnslu-
stöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum var 545 milljónir króna á
fyrsta ársfjórðungi ársins.
Skagstrendingur var rekinn
með 97 milljón króna hagnaði
fyrstu þrjá mánuði ársins 2002.
Fyrir sama tímabil í fyrra var
tap á rekstrinum upp á 33 millj-
ónir króna.
Taprekstur Aco Tæknivals var
16,4 milljónir króna fyrsta
ársfjórðung ársins. Allt árið í
fyrra var tapið rúmlega einn
milljarður króna.
Guðmundur Runólfsson hf. var
rekið með 81 milljón króna
hagnaði eftir skatta á fyrstu
þremur mánuðum ársins 2002,Ý
samanborið við 20 milljón króna
tap á sama tímabili 2001.
Þýskur karlmaður:
Lést eftir slys um borð í seglskipi
banaslys Áhöfn þýska seglskips-
ins GORCH FOCH hafði í fyrra-
kvöld kl. 23:30 samband við
stjórnstöð Landhelgisgæslu ís-
lands vegna slasaðs manns um
borð og var óskað eftir aðstoð
þyrlu til að flytja hann á sjúkra-
hús. Hafði maðurinn fallið efst úr
mastri niður á dekk og var talinn
alvarlega slasaður. í framhaldi af
því var áhöfn TF-SIF, þyrlu Land-
helgisgæslunnar, kölluð út. Segl-
skipið GORCH FOCH, sem er
skólaskip, var statt 83 sjómíliir
suður af Hornafirði á leið frá ís-
landi er neyðarkallið barst og
þurfti TF-SIF þess vegna að taka
eldsneyti í Vestmannaeyjum. Kl.
GORCH FOCH I REYKJAVIK
Seglskipið hafði nokkurra daga viðdvöl í Reykjavík i síðustu viku.
01:38 hafði læknir um borð í segl-
skipinu samband við stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar og tilkynnti
að hinn slasaði væri látinn. ■
Lottómiði týTidist í Ástralíu:
Gullæði á
öskuhaugum
perth. ap Ofurlitlu gullæði, sem
hefur staðið yfir í ástralska bæn-
um Kalgoorlie undanfarnar vikur,
er nú lokið. Æðið hófst eftir að lot-
tómiði týndist. Vinningur var á
miðanum að upphæð 80 milljónir
króna. Maður nokkur var hand-
viss um að hafa hent vinningsmið-
anum, að hann fór að leita í ösku-
haugum bæjarins. 'Ihgir bæjar-
búa tóku þátt í leitinni með hon-
um, en allt kom fyrir ekki. Snar-
lega var bundinn endi á þetta litla
gullæði þegar miðinn fannst í
hanskahólfi bifreiðar. Vinnings-
hafarnir eru hjón á fertugsaldri. ■