Fréttablaðið - 14.05.2002, Síða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
14. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
DANMÖRK
Danska ríkisstjórnin hefur
uppi áform um einkavæðingu
sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Sú
stöð hefur verið rekin að hluta til
fyrir auglýsingafé, og að hluta til
fyrir afnotagjöld. Danska rík-
issútvarpinu verður og bannað að
hækka afnotagjöldin, þau á að
binda í lög frá og með næstu ára-
mótum.
60% fullorðinna Dana vita ekki
hversu háan blóðþrýsting þeir
eru með. Þessi vanþekking kostar
þúsundir Dani lífið árlega segir í
Politiken. 10.000 Danir fá hjarta-
áfall ár hvert. Helmingur þeirra
orsakast af of háum blóðþrýsting
sem í sumum tilfellum hefði ver-
ið hægt að koma í veg fyrir með
lyfjagjöf.
Tímamót hjá stangveiðimönnum:
Veiöileyfi seld
á nýju vefsvæði
stangveiði A nýjum veiðivef á Net-
inu er hægt að ganga frá kaupum á
veiðileyfum í íslenskum ám og
vötnum. Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra opnaði vefinn í síð-
ustu viku.
Á vefnum, sem ber nafnið agn.is,
er m.a. mikill gagnabanki um veiði-
staði og fréttir af veiðinni. Þjónust-
an á vefnum verður ókeypis. Til við-
bótar verður þó starfræktur klúbb-
ur sem bíður upp á sérstakt viku-
legt fréttabréf og ýmis tilboð.
Ágúst Karl Ágústsson, kerfis-
fræðingur og einn ritstjóra agns.is,
segir mestu nýjungina felast í því
að nú er hægt að kaupa veiðileyfi á
Netinu. „Þú einfaldlega finnur laus
veiðileyfi, borgar með greiðslukorti
og prentar leyfin sjálfur út heima
hjáj)ér,“ segir Ágúst.
I augnablikinu er hægt að kaupa
leyfi í sex veiðistaði á agni.is. Með-
al þeirra eru Grímsá, Ytri-Rangá og
Grenlækur. Ágúst segir að verið sé
að ganga frá aðkomu mun fleiri
veiðileyfisala. „Áhuginn er mikill
og fljótlega verður hægt að kaupa
hjá okkur leyfi á tugum annarra
veiðisvæða," segir hann. ■
ÁGÚST KARL ÁGÚSTSSON
Ágúst Karl Ágústsson er einn þriggja fastra
starfsmanna veiðivefjarins agns.is. Vefur-
inn er í eigu hlutafélagsins Greindar.
STUTT
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra, hefur ákveðið að fela al-
þjóðlegu endurskoðunarfyrirtæki að
fara yfir útreikninga um fjárhagsleg-
an kostnað og ávinning íslands af aðild
að Evrópusambandinu. Stöð 2 greindi
frá.
Skólastjómendur í Hagaskóla hafa
kvatt foreldra bama sem stunda
nám við skólann að sækja böm sín eft-
ir að skóla lýkur. f Rúv í gær kom
fram að foreldrar nokkurra bama
hefðu ákveðið að senda böm sín ekki í
skólann meðan á NATÓ-fundi stendur.
Fímm af æðstu yfirmönnum
Byggðastofnunar eru þeirrar skoð-
unar að framganga Kristins H. Gunn-
arssonar, stjómarformanns stofnunar-
innar, hafi staðið störfum stofnunar-
innar fyrir þrifum.
Grunur um íkveikju:
Hætta á að
eldurinn bær-
ist í skólann
lögreglumál Talið er að kveikt
hafi verið í gámi við Hólabrekku-
skóla í Efra-Breiðholti. Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins var kallað
á vettvang og náði að ráða niður-
lögum eldsins um sexleytið á
sunnudag. Töluverður eldur var í
gáminum sem var fullur rusli. Að
sögn talsmanns slökkviliðsins var
talin hætta á að eldurinn bærist í
skólann þar sem gámurinn var
staðsettur alveg við húsið.
Þá var slökkviliðið kallað að
einbýlishúsið við Huldubraut í
Kópavogi um svipað leyti þegar
kviknaði í þurrkara. Ekki var mik-
ill eldur að sögn slökkviliðsins en
einhverjar reykskemmdir. ■
—♦—
Húsasmiðjan með 10%
afslátt út árið
Styður verð-
bólgumarkmið
til lengri tíma
rauðu strikin Húsasmiðjan mun
veita 10% staðgreiðsluafslátt af
öllum vörum sínum til áramóta.
Fyrirtækið var í hópi þeirra sem í
upphafi árs leiddu baráttuna fyrir
„rauðu strikunum" og vill með
þessum aðgerðum leggja sitt af
mörkum til að verðbólgumarkmið
haldi til lengri tíma. Húsasmiðjan
hvetur atvinnulífið og hið opin-
bera til að sameinast um að halda
verðlagi stöðugu og leggur áher-
slu á að umtalsverðar vaxtalækk-
anir fylgi í kjölfarið þegar ver-
bólgumarkmið eru í sjónmáli. ■
Netanjcihu kominn
tel aviv. ap Benjamin Netanjahu,
fyrrverandi forsætisráðherra ísra-
els, er kominn aftur á flug. Ekki er
annað að sjá en að hann ætli sér að
komast í stól Ariels Sharons, flokks-
leiðtoga síns og núverandi forsætis-
ráðherra.
Netanjahu náði fram sigri gegn
Sharon á fundi miðstjórnar Likud á
sunnudaginn. Miðstjórn flokksins
samþykkti þar nánast einróma
breytingu á afstöðunni til stofnunar
sjálfstæðs ríkis Palestínumanna.
Sharon vildi halda óbreyttri
stefnu. Hann sagðist þeirrar skoð-
unar að sjálfstætt ríki Palestínu-
manna væri „óhjákvæmilegt", en
áður en af stofnun þess verði þurfi
að uppfylla ströng skilyrði.
Netanjahu fékk því hins vegar
framgengt að nú stendur í stefnu-
skrá flokksins þessi einfalda setn-
ing: „Ekkert Palestínuríki verður
vestan Jórdanár“.
Sharon reyndi að bæta stöðu sína
á flokksþinginu um helgina með því
að fá samþykkta ályktun, þar sem
flokkurinn lýsti yfir stuðningi við
forsætisráðherra sinn og ríkis-
stjórn í friðarumleitunum og örygg-
ismálum. Sú ályktun var hins vegar
felld í leynilegri atkvæðagreiðslu í
miðstjórn flokksins með 59 prósent-
um gegn 41.
Eftir þennan ósigur gekk Sharon
EKKERT PALESTfNURlKI VERÐUR VESTAN JÓRDANÁR"
Benjamin Netanjahu fékk þvf framgengt að nú stendur þessi einfalda setning í stefnuskrá Likud.
aftur á flug
Virðist stefna á forsætisráðherrastólinn. Fékk því framgengt að Likud hafnar stofnun
Palestínuríkis. Gagnrýnir Sharon fyrir linkind.
Sumarskólinn í FB
Yfir 60 áfangar í boði.
Kennt frá 23. maí tii21. júní
Nám fyrir nemendur í 10. bekk hefst 5. júní.
Netinnritun hafm á www.fb.is.
Símainnritun frá 15:00 til 17:00 virka daga í síma 570 5620.
Almenn innritun í FB frá 16. maí á milli 17:00 og 19:00.
Einnig innritað laugardaginn 18. maí frá 10:00 til 13:00.
Allar frekari upplýsingar á www.fb.is.
af fundi og lét Netanjahu eftir
sviðsljósið. Netanjahu átti auðvelt
með að vinna flokksmenn á sitt
band og hundruð þeirra greiddu at-
kvæði með stefnuskrárbreyting-
unni, þar sem Palestínuríki var úti-
lokað. Aðeins um tíu atkvæði voru á
móti.
Eftir að Netanjahu missti stuðning
þingsins árið 1999 lét hann lengi vel lít-
ið á sér bera. Hann hefur hins vegar
óspart gagnrýnt Sharon undanfarið ár,
og þá jafnan sagt hann ekki ganga nógu
langt í aðgerðum sínum gegn Palestínu-
mönnum.
Þegar Sharon fór af stað með alls-
herjarhemað gegn Palestínumönnum
víða á herteknu svæðunum fyrir
nokkrum vikum bað hann Netanjahu
um að tala máli ísraelsmanna erlendis.
Netanjahu varð við þeirri bón og fór
meðal annars til Bandaríkjanna í þeim
erindagjörðum. Nú gagnrýnir hann
Sharonáný fyrir linkind. ■
Bæjarmálafélagið Hnjúkar fær að bjóða fram:
, ,Hef ekki heyrt annað
enokkur
„Þetta voru aðeins mannleg
mistök sem öllum getur orðið á.
Ég skil ekki í að fólk ætti ekki að
geta treyst okkur þrátt fyrir
þessa yfirsjón“ segir Þórdís
Hjálmarsdóttir bæjarulltrúi Bæj-
armálafélagsins Hnjúka á
Blönduósi. Héraðsdómur Norður-
lands vestra hefur úrskurðað að
Hnjúkar fái að bjóða fram þrátt
fyrir að framboðslisti hafi borist
ellefu mínútum of seint.
„Við höfum unnið að heilindum
í bæjarstjórn fram að þessu og
það er ekki ástæða til að ætla að
sétreyst“
við gerum það ekki áfram þrátt
fyrir mistökin." Þórdís segir að
fylgið á bak við framboðið hafi
verið uin það bil 30% í síðustu
kosningum og því ljóst að margir
fylgi þeim að málum. „Ég hef ekki
heyrt annað hér á bæjarbúum en
okkur sé treysti þrátt fyrir þetta.
Við unnum að krafti í þessu máli
og börðumst til að fá úrskurð okk-
ur í hag. Af því mega menn sjá að
við erum þess verðug að vera með
enda eru það fyrst og fremst
hagsmunir kjósenda að fá að
velja." ■