Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2002, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 14.05.2002, Qupperneq 9
8 Wdii#,UttHfeUW S0uSl6m> i ÞRIÐIUDACUR 14. maí 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 9 Ferðaskrifstofur: Sektir stað- festar samkeppnismál Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest sektir sem samkeppnisráð lagði á fjögur ferðaþjónustufyriræki. Sektirnar sem nema samtals 1,4 milljónum króna voru lagðar á fyr- irtækin í mars vegna villandi aug- lýsinga þar sem flugvarllaskattar voru ekki innifaldir í verði ferða. Sektirnar renna til ríkissjóðs. f frétt frá Samkeppnisstofnun kemur fram að um er að ræða fyrstu málin, í kjölfar breytinga á samkeppnislögum, þar sem sekt- að er vegna rangra og villandi auglýsinga. ■ Ný skýrsla norsku ríkisstjórnarinnar: Stjórn og sjávarútvegur sátt við EES utanríkismál Ríkisstjórn Kjells Magnes Bondeviks í Noregi hefur lagt fyrir norska stórþingið skýrslu um reynsluna af samn- ingnum um Evrópska efnahags- svæðið. í nýjum leiðara norska blaðsins Fiskaren greinir frá að ríkisstjórnin sé sátt við samning- inn og blaðið sömuleiðis. Fiskaren segir að lesa megi úr skýrslunni að vel gangi fyrir Noreg að standa utan Evrópusambandsins, jafnvel þótt Norðmenn þurfi að láta yfir sig ganga lög og reglugerðir sam- bandsins án þess að hafa mikil áhrif á tilurð þeirra. Þá segir í leiðaranum að Norðmenn nýti sér ekki nægilega þá möguleika sem þeir hafi til að hafa áhrif á ákvarðanatöku í málum sem snerti þá, utan í orkumálum þar sem þeir hafi mikil áhrif. „Þrátt fyrir að við höfum hafnað póli- tískri þátttöku í Evrópusamband- inu höfum við allt að vinna í að nýta okkur þá möguleika sem bjóðast okkur í að hafa áhrif á ákvarðanatökuferli sambandsins á lægri stigum ákvarðanatökunn- ar,“ segir í leiðaranum sem klykk- ir út á orðunum: „Samningurinn hefur reynst okkur vel, en gæti reynst enn betur!“ ■ KJELL MAGNE BONDEVIK Samhljómur er með opinberri stefnu stjórnvalda í Noregi og hér þegar kemur að málefnum Evrópusambandsins. Pólfarinnn á Everest: Lokaáfanginn fjallganga Haraldur Örn Ólafsson áætlar að hefja lokagönguna á Ev- erest á miðvikudagskvöld. Veður- útlit er gott og hann býst við að standa á tindi hæsta fjalls verald- ar eldsnemma á fimmtudags- morgun að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með frétt- um af ferðum Haraldar Arnar á vefsvæðinu 7t.is. Á heimasíðunni kom fram að Haraldur Örn er við mjög góða heilsu. Hann drekki mjög mikið vatn til að halda réttu vökvajafn- vægi. Haraldur Örn er í sambandi við bakvarðasveit sína í Útilífi í Smáralind klukkan hálftólf á hverjum morgni. Allir geta komið og fylgst með samtölunum. ■ Kostar 270 milljónir: 2.400 unglingar í V innuskólanum unglingar Arnfinnur Jónsson, skólastjóri Vinnuskólans, gerir ráð fyrir að um 2.400 unglingar vinni hjá skólanum í sumar. Það er um 80% unglinga í þeim þrem- ur árgöngum sem eiga rétt á KAUP í VINNUSKÓLANUM* Fædd 1986: Fædd 1987: Fædd 1988: 373 kr. 281 kr. 249 kr. *Ofan á þetta bætist 10,17% orlof UNGLINGAR í GARÐAVINNU Ýmislegt er gert fyrir utan hefðbundin garðastörf í unglingavinnunni. vinnu í Vinnuskólanum. Arnfinn- ur segir hlutfallslega flesta verða með í Vinnuskólanum í yngsta ár- gangnum, heldur fækki í eldri ár- göngunum, enda eigi eldri krakk- arnir meiri möguleika á annarri vinnu. 160 leiðbeinendur starfa á vegum Vinnuskólans í sumar. Vinnan hefst 10. júní og geta ung- lingarnir fengið vinnu í sex vikur. Vinnuhóparnir starfa í níu vikur og geta krakkarnir ráðið hvaða vikur þeir vinna. Yngsta hópnum gefst kostur á að vinna þrjá og hálfan tíma á dag en þeim eldri í sjö tíma. Kostnaður við Vinnu- skólann eru 270 milljónir í ár, þeg- ar allt er talið. Auk garðavinnunar, sem mest- ur tíminn fer í, er ýmiss konar fræðsla hluti af Vinnuskólanum, segir Arnfinnur. Má þar nefna umhverfisfræðslu, jafningja- fræðslu og listafræðslu. ■ Álver á Austurlandi: Reyðarál vinnur áfram atvinnulíf Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Reyðaráls, segir félagið áfram vinna að álversfram- kvæmdum á Reyðarfirði. Norsk Hydro á helmingshlut í Reyðaráli. Eins og fram hefur komið treysti fyrirtækið sér ekki til að taka ákvörðun um hvort það hygðist taka þátt í uppbyggingu álvers á Reyðarfirði. Ákveðin vinna hefur farið fram á vegum Reyðaráls varðandi fram- kvæmdir í Reyðarfirði. íslensk stjórnvöld ræða nú við bandaríska álfyrirtækið Alcoa hvort það geti komið að byggingu álvers fyrir austan. Reyðarál er ekki þátttak- andi í þeim viðræðum en komið hefur til tals hvort hægt sé að nýta þá vinnu sem félagið hefur ráðist í eins og mat á umhverfisáhrifum. Það er þó háð samþykki Reyðaráls og þar með Norsk Hydro. Stefnt er að því að Alcoa taki ákvörðun í þessum mánuði. Fyrir- tækið er í viði’æðum við stjórnvöld og Landsvirkjun. Hingað hafa komið sendinefndir undanfarnar vikur til að skoða aðstæður og for- sendur rekstrarins. ■ Lína.Net og sjálfstæðismenn: Undir sama þak viðskipti Lína.Net mun flytja starfsemi sína í nýtt húsnæði í Skaftahlíð 24 undir lok mánaðar- ins. Samningur þessa efnis var undirritaður síðasta föstudag. Fyrirtækið er nú staðsett í tveim- ur húsum við Skúlagötu. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Línu.Nets, segir mikið hagræði af því að flytja húsið undir eitt þak auk þess sem leiguverð nýja hús- næðisins sé lægra en það. Sjálfstæðismenn í Reykjavík sem hafa gagnrýnt Línu.Net harkalega eru með kosningaskrif- stofu í Skaftahlíð 24. Alfreð segir tilviljun að fyrirtækið flytji í hús þar sem Sjálfstæðismenn eru með kosningamiðstöð. ■ NÝTT HÚSNÆÐI LÍNU.NETS Lína.Net flytur í Skaftahlíð 24 undir lok mánaðarins. Þá verða Sjálfstæðismenn á förum. Settu í sumarqírinn Komdu til okkar og græjaðu þig upp fýrir sumarið. Barnabílstóll, 6.989 kr. Barnapúðar, 2 teg. 1.195 kr.og 1.463 kr. Margir litir. Þetta eru nokkur dæmi um bílavörur sem við höfum á lager. Rafgeymir flottur fyrir sumarbústaðinn eða í bátinn, 17.708 kr. Spegill fyrir húsbila og fellihýsi, 2.490 kr. Dráttarbeisli með 1 5°/o afslætti og dráttarkúlur með 20% afslætti. Tilboðin gilda í maí á meðan birgðir endast. Borgartúni, Reykjavik. Daibraut, Akureyri. Bíldshöfða, Reykjavík. Grófinni, Keflavík. Bæjarhrauni, Hafnarfirði. Lyngási, Egilsstöðum. Hrísmýri, Selfossi, L : Alaugarvegi, Homafirði. www.bilanaust.is 01*8 Sími 535 9000

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.