Fréttablaðið - 14.05.2002, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 14. maí 2002
[ÍÞRÓTTIR í DAG|
16.00 Eurosport
England - Brasilía.
Knattspyrnumót 21 árs og
yngri.
18.00 Sýn
Heklusport
18.00 Stöð 2
Leiðin á HM
(Road to Asia 2002)
18.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu
19.30 Sýn
Gillette-sportpakkinn
HM2002
20.00 Sýn
íþróttir um allan heim
21.15 Eurosport
Fótbolti- Leiðin á
HM 2002
22.30 Svn
Heklusport
Léttir fyrir landsliðsþjálf-
ara Englands:
Beckham
verður með
áHM
fótbolti David Beckham mun
spila með enska landsliðinu á
heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu sem fram
fer í Japan og
Suður-Kóreu.
Beckham fót-
brotnaði í leik
gegn Deportivo
La Coruna í
Meistaradeild
Evrópu í síðasta
mánuði og var
talið að hann gæti ekki verið með
á HM. Landsliðsfyrirliðinn er hins
vegar byrjaður að hlaupa um og
segist verða klár í slaginn í lok
mánaðarins. Fréttirnar af Beck-
ham létta talsvert á Sven-Göran
Eriksson, landsliðsþjálfara Eng-
lands, en miðvallarleikmennirnir
Steven Gerrard og Kieron Dyer
meiddust báðir um síðustu helgi
og ekki víst hvort þeir komist
verðj með.
„Ég er búinn að hlaupa svolítið
um og það gengur ágætlega," sagði
Beckham í samtali við blaðamenn.
„Ég er talsvert aumur en það eru
þrjár vikur í HM og ég verð búinn
að jafna mig fyrir HM.“
Fyrsti leikur Englands verður
sunnudaginn 2. júní gegn Svíþjóð. ■
—♦—
Islenska kvennalandsliðið
kynnt:
Dóra
í landsliðið
fótbolti Jörundur Áki Sveinsson,
landsliðsþjálfari A-landsliðs
kvenna, hefur valið 16 manna hóp
sem mætir Rússlandi þann 18.
maí. Leikið verður ytra. Leikurinn
er liður í undankeppni heims-
meistaramótsins. Dóra Stefáns-
dóttir, úr Val, er eini nýliðinn í
hópnum en hún er aðeins 17 ára
gömul. íslensku stelpurnar munu
fljúga til Moskvu á fimmtudegin-
um 16. maí með millilendingu í
Stokkhólmi. ■
LANDSLIÐSHÓPURINN:
X
kr
>
MARKVERÐIR:
Þóra Björg Helgadóttir KR
María Björg Ágústsdóttir Stjarnan
AÐRIR LEIKMENN:
Eva Guðbjörnsdóttir Breiðablik
Margrét R. Ólafsdóttir Breiðablik
Guðlaug Jónsdóttir Bröndby
Erla Hendriksdóttir FVB
Katrín Jónsdóttir Kolbotn
Ásdís Þorgilsdóttir KR
Ásthildur Helgadóttir KR
Edda Garðarsdóttir KR
Elín J. Þorsteinsdóttir KR
Guðrún S. Gunnarsdóttir KR
Olga Færseth KR
Ásgerður H. Ingibergsdótti r Valur
Dóra Stefánsdóttir Valur
Rósa Júlía Steinþórsdóttir Valur
T A C U M A
- fjölskyldubíll framtíðarinnar
Rúmgóður fjölskyldubíll þar sem hugsað er um alla farþegana
---------------------------- ♦ --------------------------------
Gott farangursrými, stór vél og fallegur bíll
---------------------------- ♦ --------------------------------
Fjölskylda ekki innifalin
♦
Vagnhöföa 23 • Sími 590 2000 • www.benni.is