Fréttablaðið - 14.05.2002, Síða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
14. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HASKOLABIO
• ;ÍHI 54»J lílv • ii/ir.iA t'f IIIM 'i /• Þ IJ AI li l AHOtlHt
Athugið að engat sÝ"''"^r
*ru U 13,14 Og 15 rnai
vegna NATÓ fundar.
Sýnd kl. 5, 7.30, 10 Bönnuð innan 10 ára
[FRAIITY kl. 5.50,8 og 10.101 [ÍSÖLD m/ensku tali
|KATE & LEOPOLD kl.8ogl0J0[ [fsðrD^m/islensku taí
kl. 4. 6 og loJoj
kl. 4 ogfi]
PQ Dolby /DD/ .líTx SfMl 564 0000 www.smariibio.ls
Sýnd kl.5.50, 8og 10.10 VTTJ77 ISHOWTIME kl.4,6og80
IBUBBLEBOY kl. 4, 6, 8 og 10 ||p [ÍÍMMYNEUIRON m/isLtali M.4 [jttTl
|THE SCORPION KINC 4, 6, 8oglo|rlf| IpÉTUR PAN m/ísL~tali kl. 4 | |?J|
Annasamur september
hjá Björk:
Safnplata
og barn
tónlist Þá er kominn tími fyrir
Björk Guðmundsdóttur að líta að-
eins um öxl. Útgáfufyrirtæki
hennar, One Little Indian, hefur
nefnilega greint frá því að næsta
útgáfa hennar verður safnplata.
Þar verður að finna hennar vin-
sælustu lög, þau lög sem eru í per-
sónulegu uppáhaldi hjá henni af
breiðskífunum auk þess sem eitt
nýtt lag fær að fljóta með. Von-
andi verður það hið frábæra lag
„In our hands“, eina óútgefna lag-
ið sem Björk flutti á tónleikum
sínum í Laugardalshöll í desem-
ber síðastliðnum.
Platan kemur út í september
um það leyti sem söngkonan á von
á öðru barni sínu. ■
MfNUS
Eru komnir á dagskránna á Hróarskeldu
hátíðinni í ár.
Hróarskelduhátíðin 2002:
Búið að bóka
tvær íslensk-
ar sveitir
tónlist Margir orðrómar eru á
kreiki um hvaða íslenskar hljóm-
sveitir leiki á Hróarskelduhátíð-
inni í ár. Síðastliðin 5 ár hefur nán-
ast engin hátíð verið laus við ís-
lenska tóna. Ýmsu hefur verið
varpað í loftið, allt frá Stuðmönn-
um til Sigur Rósar. Á heimasíðu
hátíðarinnar kemur þó fram að
einu íslensku sveitirnar sem þegar
eru staðfestar eru Mínus og múm.
Aðrar sveitir sem þykja líkleg-
ar til þess að leika í ár eru
Orgelkvartettinn Apparat, sem
lék einnig í fyrra, og hin nýút-
sprungna rokkhljómsveit Leaves.
Hátíðin fer fram daganna 27. -
30. júní. Á meðal erlendra lista-
manna í ár eru Andrew W.K.,
Erykah Badu, Manu Chao,
Chemical Brothers, Nelly
Furtado, Garbage, Kent, P Diddy,
Pet Shop Boys, Primal Scream,
Rammstein, Red Hot Chili Pepp-
ers og White Stripes. ■
IFRÉTTIR AF FÓLKII
Ellefu forsýningar voru á nýju
Star Wars myndinni á sama
tíma í Bandaríkjunum á sunnu-
daginn. Stjörnur
myndarinnar
Ewan McGregor,
Samuel L.
Jackson og
I Natalie Portman
i dreifðu sér á
milli þeirra. Allur
ágóði forsýning-
anna rann til góð-
gerðamála. Mikið
ys og þys var á
hverri sýningu
og mátti oft sjá
Svarthöfða og
hermenn hans á
meðal áhorfenda.
Myndin verður
frumsýnd á
föstudag.
Söngkonan Dianne Warwick
var handtekin á flugvelli í Mi-
ami eftir að tollgæslan taldi sig
hafa fundið 11
marijuana jónur
faldar í varalita-
geymslu.
Warwick, sem er
61 árs, var á leið-
inni til Los Ang-
eles. Hún átti
áralangt samstarf
við lagahöfund-
inn Burt Bacharach og á meðal
hennar frægari lögum má nefna
„Walk on by“ og „Anyone who
had a heart". Hún hefur verið
ákærð fyrir að hafa tæplega
fimm grömm af marijuana í fór-
um sér og þarf að mæta í réttar-
salinn fljótlega til að svara sök-
um.
Bæði James Brown og fyrr-
verandi starfsmaður hans
sem kærði hann fyrir ólöglega
uppsögn og kyn-
ferðislega áreitni
hafa áfrýjað máli
sínu til dómstóla.
Brown var sýkn-
aður af kærum
um kynferðislega
áreitni en þurfti
að greiða
stúlkunni um 40
þúsund dollara (tæplega 3,7
milljónir ísl. kr.) í skaðabætur
fyrir ólögmæta uppsögn. Bæði
urðu þau ósátt við þessa niður-
stöðu og ætla því að mætast í
annari umferð. James Brown
syngur því víst ekki lagið „I feel
good“ af mikilli sannfæringu
þessa daganna.
Eminem segist ekki ætla að
snúa sér aftur að leiklist á
meðan tónlist hans nýtur enn
vinsælda. Hann
segist aðeins hafa
tekið að sér hlut-
verk í myndinni
„8 Mile“, sem
frumsýnd verður
á þessu ári,
vegna þess að
honum fannst
handritið sérstak-
Iega gott. Handrit myndarinnar
er víst að hluta til byggt á ævi
rapparans.
Múm á tveimur tungum
I næstu viku verður mikið að gerast í rafheimi múm. Onnur breið-
skífan, „Finally we are no one“, kemur út á heimsvísu og lagt verður
af stað í langt tónleikaferðalag.
tónlist Hljómsveitin múm sló
holu í höggi með fyrstu breið-
skífu sinni „Yesterday was
dramatic, Today was OK“ og
lönduðu útgáfusamningi við bres-
ka plötufyrirtækið Fat Cat. Fyrir-
tækinu hefur gengið vel að koma
tónum Sigur Rósar að áhugasöm-
um erlendum eyrum og því verð-
ur gaman að fylgjast með hvern-
ig nýju breiðskífu múm, „Finally
we are no one“, verður tekið.
Enska útgáfa plötunnar kemur út
á heimsvísu eftir tæpa viku. Sér
útgáfa plötunnar, þar sem öll lög
eru sungin á íslensku, kemur svo
í plötubúðir hér þann 27.maí. Það
eru systurnar Gyða og Kristín
Valtýrsdætur sem sjá um söng-
inn auk þess að leika á hin ýmsu
hljóðfæri.
„Þær syngja báðar á plötunni
en Kristín var kannski ófeimn-
ari við það í þetta skiptið," segir
Gunnar Tynes annar karlleggur
rafkvartettsins múm. „Það var
ótrúlega gaman að gera tilraun-
ir með söng. Það var ekki mikið
um það á fyrri plötunni. Því þá
voru stelpurnar eiginlega bara
að byrja í hljómsveitinni."
Hingað til hafa ekki margar
íslenskar breiðskífur verið
gefnar út á tveimur tungum.
Helst ber að nefna plötu Sykur-
molanna, „Here Today Tomor-
row Next Week“ sem kom út á
íslensku undir nafninu „Illur
arfur“.
„Þessi hugmynd kom upp og
það var vel tekið í hana. Við höf-
um hingað til verið að gera mjög
sjálfsframleidda hluti sem urðu
eðlilega á íslensku. Við tókum
svo þá ákvörðun þegar við gerð-
um fyrstu plötuna að hafa hana
á ensku þar sem við gerðum
okkur grein fyrir því að hlut-
fallslega væru færri hér sem
hefðu gaman af tónlist okkar en
annars staðar í heiminum. Að
gera tvær útgáfur er ekki svo
erfitt og okkur langaði til þess.“
Tónar nýju breiðskífunnar
eru kveðnir við sama tón og
áður. Aðalbreytingin er sú að nú
er sungið í flestum lögum. Þetta
kallar vitanlega á frekari texta-
smíðar sem Örvar Þóreyjarson
Smárason sér nær alfarið um.
Textar hans eru oft heillandi
svipmyndir sem lýsa töfrandi
augnablikum og aðstæðum. Á
plötunni má svo finna sundlaug í
titlum tveggja laga.
„Þau lög voru bæði samin
fyrir neðanvatnshátalara sem
Í.T.R. á og tengjast neðanvatns-
tónleikum sem við höfum oft
tekið þátt í. Við vorum mjög
hrifin af þeim, þannig að lögin
snigluðust með á plötuna."
Tónleikaferðalag múm hefst
í Bretlandi þann 23.maí. í byrj-
un júní færa þau sig yfir á meg-
inlandið þar sem þau halda tón-
leika í Frakklandi, Belgíu, Sviss,
Þýskalandi, Hollandi, Noregi og
Danmörku. Eftir það verður lagt
af stað til Bandaríkjanna.
biggi@frettabladid.is
Tónleikar á Gauknum gegn NATO:
Friðsæl framtíð í
friðsælu tónlistarríki
tónleikar í Tjarnarbíói í gær-
kvöldi voru haldnir rokktónleikar
gegn NATO þar sem margar af
reiðari sveitum landsins létu
heyra í sér. Þar verða svo aðrir
tónleikar í kvöld þar sem fleiri
reiðar sveitir láta öllum illum lát-
um.
Ekki er nóg með það því á
Gauki á Stöng í kvöld verða haldn-
ir rokktónleikar undir yfirskrift-
inni „Friðsæld framtíð" þar sem
rólegri andstæðingar herstöðvar-
innar ætla að leika.
„Út af þessum Atlantshafs-
bandalagsfundi erum við að vekja
upp spurninguna hvort fólk vilji
friðsæla framtíð,“ segir Vilhelm
Anton Jónsson söngvari 200 þús-
und naglbíta en þeir leika í kvöld
ásamt hljómsveitunum XXX
Rotweilerhundum, Heiðu & Heið-
ingjunum og Tveimur dónalegum
haustum. „Við viljum vekja at-
hygli á því að ísland er friðsælt
tónlistarríki. Við viljum nota
tækifærið að vekja athygli á
þessu á meðan fundurinn er. Það
200 ÞÚSUND NAGLBfTAR
Villi segir hljómsveitina nær eingöngu ætla
að leika nýtt efni I kvöld og að styttast fari
nýja breiðsklfu.
þarf engin að borga og allir með
aldur eru velkomnir inn ólíkt
NATO fundinum þar sem allir
borga en enginn má fara á.“
Tónleikarnir hefjast kl.22. ■