Fréttablaðið - 14.05.2002, Síða 22
FRÉTTABLAÐIÐ
SflCA DACSINS
14. Mflf
Fyrsta Fokker Friendship flug-
vél Flugfélags íslands kom til
landsins á þessum degi árið 1965.
Fokker vélarnar eru enn notaðar í
innanlandsflugi Flugfélagsins.
A' rið 1998 talaði Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir í fimm og hálfa
klukkustund samfellt í
umræðum um húsnæð-
isfrumvarp á Alþingi.
Þar með sló hún 24 ára gamalt met
Sverris Hermannssonar sem var
fimm klukkustunda samfelld ræða.
Arið 1948 lýsti David Ben
Gurion yfir „stofnun ríkis Gyð-
inga í Palestínu, sem nefnt verður
ísrael." Hann varð fyrsti forseti
hins nýja ríkis. Gyðingum hafði
fjölgað mjög í Palestínu áratugina
á undan, en voru þó ekki nema rétt
tæpur helmingur íbúanna.
22
14. maí 2002 ÞRIÐJUDACUR
Nauðsynlegt að færa skíðaíþróttina til almennings
Eg er Ólafsfirðingur og við fæð-
umst á skíðum," sagði nýkjor-
inn formaður Skíðasambands ís-
lands, Friðrik Einarsson. „Nei,
grínlaust," heldur hann áfram,
„ég hef stundað skíðagöngu í
mörg ár og tók þátt í keppni til
fimmtán ára aldurs.“ Friðrik, sem
var kjörinn formaður Skíðasam-
bandsins um síðustu helgi, er að-
stoðarframkvæmdastjóri hjá
KPMG-Ráðgjöf, en segir skíða-
íþróttina áhugamál. „Við ætlum
að halda áfram því góða starfi
sem hefur verið unnið,“ segir
Friðrik, aðspurður hvort nýjum
formanni fylgi nýjar áherslur.
„Meginmarkmiðið er að færa
skíðaíþróttina nær almenningi.
Það hefur verið gert með kennslu
fyrir almenning og staðið hefur
verið fyrir almenningsgöngumót-
um og við ætlum að leggja enn
meiri kraft í þetta. Snjósveltir
Sunnlendingar eiga líka að geta
stundað skíðaíþi'óttina á heima-
slóðum,“ segir Friðrik. „Það voru
snjóbyssur í Hamragilinu síðasta
vetur og það gafst mjög vel. Við
þurfum bara að fá fleiri byssur."
Friðrik bendir hlæjandi á að jafn-
vægis verði að gæta og jafnmiklir
fjármunir ættu að fást í byssurn-
ar og innanhússfótboltavellina.
Friðrik er kvæntur Hrund
Steindórsdóttur, flugfreyju, og
eiga þau tveggja og hálfs árs
gamla tvíbura. „Skíðin eru mikið
fjölskyldusport,“ segir Friðrik.
„Nú er hægt að fá skíði á börn nið-
............Persónan
Friðrik Einarsson er nýkjörinn formaður
Skiðasambands islands.
ur í tveggja ára og tvíburarnir
voru komnir með okkur á skíði í
Hlíðarfjall um síðustu páska. Um
að gera að byrja nógu snemma,"
segir nýkjörinn formaður að lok-
um, bjartsýnn á framtíð skíða-
íþróttarinnar. ■
FRIÐRIK EINARSSON
Friðrik segir skíðaíþrótt-
ina tilvalið fjölskyldu-
sport og stofnkostnað
ekki mikinn.
TÍMAMÓT
JARÐARFARIR
13.30 Hulda Svava Elíasdóttir frá Elliða i
Staðarsveit, Álfhólsvegi 95, Kópa-
vogi, verður jarðsungin frá Digra-
neskirkju í Kópavogi.
13.30 Steinþór Guðmundsson, Otrateigi
8, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Áskirkju í Reykjavík.
14.00 Hallgrímur Gylfi Axelsson, Þjóð-
ólfshaga í Holtum, verður jarð-
sunginn frá Marteinstungukirkju.
AFMÆLI____________________________
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands,
er 59 ára í dag.
Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður ut-
anríkismálanefndar Alþingis, er 56 ára í
dag.
I FÓLK í FRÉTTUM |
Stökur hafa alltaf verið órjúf-
anlegur hluti af stjórnmála-
baráttu á íslandi. Nú arka fram-
bjóðendur R og D lista um götur
borgarinnar og tala við kjósend-
ur. Stundum er tekist á um mál-
efnin i alvarlegum tón og öðrum
stundum er glettnin ekki langt
undan. Þessari stöku var skotið
að frambjóðanda Sjálfstæðis-
flokksins þegar hann var á tali
við borgarana í Kolaportinu:
Áform rík ég ekki svík
efndir mínar sanna.
Því Reykjavík er liðið lík
í lófa vinstri manna.
'mtmtxmsmstsmHi&xtwsmtsmismsaimmmiMimsmtí*
PERSÓNAN
Kitlar að lyfta bikar með Valsliðinu
Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleiksmaður Vals, hlaut háttvísiverðlaun HSI á dögun-
um.Hann þakkar þá leiðsögn sem faðir hans hefur gefið og segir hana ómetanlega.
Snorri Steinn Guðjónsson, leik-
maður Vals, hlaut á dögunum
háttvísiverðlaun á uppskeruhátíð
Handboltasambands íslands.
Snorri, sem er 22 ára gamall, seg-
ir áhuga sinn á handbolta hafa
kviknaðjiegar hann var ungur að
árum. „Eg hef haft áhuga á hand-
bolta frá því að ég man eftir mér.
Pabbi var þjálfari Víkings í hand-
bolta á sínum tíma og einnig að-
stoðarlandsliðsþjálfari. Má segja
að ég hafi farið með honum nán-
ast á hverja einustu æfingu í tæp
átta ár. Ég er harður á því að það
hafi gefið mér mikið að fá að
fylgjast með þessum gaurum
sem þá voru að spila.“ Þess má
geta að faðir Snorra er Guðjón
Guðmundsson. „Pabbi er enn
þann dag í dag að veita mér ómet-
anlega leiðsögn og góð ráð. Það
ber að þakka.“
Snorri segir ekkert annað hafa
komið til greina en að æfa með
Val. Fjölskyldan hafi flutti í Hlíð-
arnar þegar hann var ungur að
árum og hann hafi leikið óslitið
með liðinu síðan. Hann á eina
systur og æfir hún einnig hand-
bolta með Val. Þá er Snorri trú-
lofaður og heitir heitkona hans
Marín Sörensen. Hún hafi reynst
SNORRI STEINN
GUÐJÓNSSON
Snorri stundar nú nám
við Fjölbrautaskólann I
Ármúla. Hann segist
stefna ótrauður í at-
vinnumennskuna.
honum frábærlega og sýni fullan
skilning. Oft reyni á þolrifin hjá
henni, sérstaklega eftir tapleik-
ina. „Fjölskylda mín og kærasta
reyna að koma á sem flesta leiki,
sérstaklega þá stóru. Ég legg
mikla áherslu á að þau komi, því
persónulega finn ég fyrir miklum
stuðningi."
Snorri hefur verið orðaður við
2. deildar liðið Friesenheim í
Þýskalandi og var hann spurður
hvort hann væri á leiðinni út.
„Þetta er allt saman á byrjunar-
stigi og á ég eftir að skoða alla
kosti vandlega. Við Valsmenn „
misstum af íslandsmeistaratitlin- s
um í ár og það kitlar ósegjanlega §
að lyfta bikar með Valsliðinu sem 1
vonandi kemur til með að skapa «
mér atvinnu erlendis þegar fram E
í sækir.“ “
kolbrun@frettabladid.is
<s
..'-■4 aSU* mOMKAlSSUFA ‘'XxPASTn Mi
súpuJeikurfnn
Maggi-súpur eru vel þekktará íslenskum heimilum fyrirgott bragð og
einfalda eldamennsku. Þú geturvalið á milli 11 súputegunda sem
eru hverannarri Ijúffengari.
Taktu þátt I léttum leiítl
Sendu inn toppa af 7 súpupökkum og þú ert með í leiknum.
( pottinum eru 20 glæsilegir vinningar:
1. Utanlandsferð að eigin vali að andvirði 120.000 kr.
2. Heimilistæki að eigin vali fyrir 80.000 kr.
3. Heimilistæki að eigin vali fyrir 50.000 kr.
4.-9. Glæsilegt pottasett að andvirði 15.000 kr.
10.-20. Gjafakarfa full af góðgæti.
21.-70. Bíómiðarí Háskólabíó.
Sendu inn 7 toppa fyrir 20. maí ásamt upplýsingum um
nafn, heímili og síma til: Maggi-leíkur, Pósthólf 4132,124 Rvík.
FÓLK í FRÉTTUM
Setning Listahátíðar setti mikinn
svip á borgarlífið um helgina.
Frönsku trúðarnir í Mobile
hommes hópnum vöktu til að
mynda mikla athygli. Þeir sprell-
uðu á Austurvelli á laugardag og
dreif að múg og margmenni til að
fylgjast með þeim og
myndaðist umferða-
öngþveiti um tíma.
Forseti íslands, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson,
var einn þeirra sem
fylgdist með trúðun-
um. Hann vakti sérstaka athygli
eins úr hópnum sem rauk á forset-
ann og kyssti hann. Síðar komst
trúðurinn að því að hann hefði
kysst forsetann sjálfan en honum
mun hafa þótt hann svo sætur.
Um kvöldið var óperan Hol-
lendingurinn fljúgandi frum-
sýnd í Þjóðleikhúsinu. Þangað
voru mættir bankastjórar og for-
stjórar eins og vera ber við menn-
ingaratburð af þessari tegund. Fé-
lagar í Wagner-klúbbnum og fólk
sem tengist íslensku óperunni rað-
aði sér hins vegar á öftustu bekk-
ina í salnum og fagnaði söngvur-
unum gífurlega. Þau Magnea
Tómasdóttir, Kolbeinn Ketilsson,
Snorri Wium, Viðar Gunnarsson
og Anna Sigríður Helgadóttir
hlutu einkar mikið lófatak að
loknum söngnum.
Kosningabaráttan stendur nú
sem hæst og frambjóðendur á
fullu í því að afla listum sínum
fylgis. í Silfri Egils um helgina
mættust þeir Gísli Marteinn Bald-
ursson og Dagur B. Eggertsson.
Þeir hafa áður mæst á þeim velli
og ræddu þá málin í frekar mikl-
um rólegheitum. Á sunnudag var
hins vegar kominn meiri hiti í
Gísla Martein sem er greinilega
búinn að kasta kurteisa sjónvarps-
manninum til hliðar. Hann hafði
líka mun betur í baráttunni í þetta
skiptið.
Það virðist annars vinsælt að
stilla þeim félögum upp saman.
Þeir mætast í kvöld í rökræðum á
vegum JC-samtakanna. Gísli Mart-
einn og Dagur hljóta að vera orðn-
ir ansi vanir að eigast
við, í góðu og illu.
Þeir eru jafn gamlir,
voru í forsvari nem-
endafélaga í skólum
sínum á lokaári fram-
haldsskólans, Gísli
Marteinn í Versló og Dagur í MR.
Þeir tókust svo á í stúdentapólitík-
inni á háskólaárunum þar sem
Gísli var í Vöku og Dagur í
Röskvu.
Eins og vera ber hafa framboðin
opnað kosningaskrifstofur um
allan bæ. Sjálfstæðisflokkurinn
opnaði eina slíka á Laugaveginum,
gegnt kránni O’Briens. Eiganda
þess ágæta bars varð um og ó þeg-
ar verið var að undirbúa opnun
skrifstofunnar. Hann sá ekki betur
en hver bjórdunkurinn á fætu öðr-
um væri borinn inn á skrifstofuna.
Bjórinn var síðan að sjálfsögðu
gefinn, sem er heldur erfið sam-
keppnisstaða fyrir venjulegan bar.
Eigandinn andar eflaust léttar þeg-
ar skrifstofunni verður lokað eftir
kosningarnar.