Fréttablaðið - 25.05.2002, Page 2
KJÖRKASSINN
Ríflega helm-
ingur lesenda
vlsis.is ætlað
fylgjast með
söngvakeppni
evrópskra
sjónvarps-
stöðva í
kvöld.
Ætlar þú að fylgjast með söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva að kvöldi
kjördags?
Niðurstöður gærdagsins
á www.vlsir.is
Spurning dagsins í dag:
Var kosningabaráttan Reykjavik málefn-
leg?
Farðu inn á visi.is og segðu
þína skoðun
ANKER J0RGENSEN
Hann var forsætisráðherra Danmerkur
1972-1973 og aftur 1975 til 1982.
Anker Jorgensen
í Færeyjum:
Rakst á gamla
ráðherra-
bílinn sinn
færeyjar Anker J0rgensen, fyrr-
verandi forsætisráðherra Dan-
merkur, er í stuttri heimsókn til
Færeyja. Þar rakst hann meðal
annars á gamla ráðherrabílinn
sinn, sem hefur verið í Færeyjum
í ein tuttugu ár. Færeyska dag-
blaðið Sosialurinn skýrði frá
þessu á netmiðli sínum í gær.
Bíllinn er af gerðinni Ford
Granada. Sú venja hefur lengi
verið við lýði, að þegar forsætis-
ráðherra Danmerkur fær sér nýj-
an bíl þá fer gamli bíllinn beina
leið til Færeyja þar sem umboðs-
maður Danmerkur þar fær hann
til afnota. ■
Bandaríkin:
Sendiherra
kveður
utanríkisþjónusta Barbara
Griffiths, sem verið hefur sendi-
herra Bandaríkjanna hér á landi
undanfarin 3 ár, er á förum. Til-
kynnt verður um nafn nýs sendi-
herra innan skamms. Barbara
snýr aftur til Washington þar sem
hún mun snúa sér að kennslu í al-
þjóðamálum á vegum bandarísku
utanríkisþjónustunnar. Barbara
hefur getið sér gott orð hér á land
og notið dvalarinnar með eigin-
manni sínum, David Schoonover,
sem einnig starfaði hjá utanríkis-
þjónustunni en er kominn á eftir-
laun. Þau hjón eru ákafir fugla-
skoðarar og nýttu frítíma sinn hér
á landi til þeirrar iðju. ■
STUTT
Greiningardeild Kaupþings
hefur endurskoðað verð-
bólguspá fyrir árið 2002 og
fært hana verulega niður frá
fyrri spá. Gert er ráð fyrir að
verðbólgan verði 2,6% yfir árið,
en í febrúar var spáð 4,5%.
Þessi mikla lækkun stafar fyrst
og fremst af gríðarlegri styrk-
ingu krónunnar. Enn fremur er
gert ráð fyrir harkalegri sam-
drætti eftirspurnar en áður.
FRETTABLAÐIÐ
25. maí 2002 LAUGARDAGUR
Samræmdu prófin:
Lakari útkoma í stærðfræði
skólamái Niðurstöður samræmdu
prófanna liggja nú fyrir. Ef bornar
eru saman niðurstöður sam-
ræmdra einkunna kemur í ljós að
Reykjavík og nágrenni þess eru
með hæstu meðaleinkunnir á land-
inu í öllum fögum.
Styr stóð um stærðfræðiprófið
og fannst sumum ekki hafa verið
tekið nægilegt mið af því námsefni
sem kennt er. Árangur á prófinu er
lakari en í fyrra. Meðaleinkunn í ár
var 5,5 á móti 5,8 í fyrra. Áberandi
lakari árangur varð í liðnum hlut-
föll og prósentur þar sem meðal-
einkunn fór úr 5,9 í 4,3.
Sigurgrímur Skúlason, sviðs-
stjóri samræmdra prófa hjá Náms-
HLUTFALL ÞEIRRA SEM FENGU EINKUNNINA 4,5 OG
LÆGRA Á SAMRÆMDU
PRÓFUNUM í EINSTÖKUM GREINUM:
2001 2002
Stærðfræði: 32,5% 36,5%
(slenska: 13,2% 12,8%
Danska: 44,2% 25,7%
Enska: 19,7% 6,5%
matsstofnun, segist geta tekið und-
ir að prófið hafi verið í þyngri
kantinum. Við útreikninga kom í
ljós að 36,5% nemenda í stærð-
fræði fengu 4,5 og lægra í ár á móti
32,5% árið á undan.
Árangur nemenda í ensku og
dönsku batnar. Árangur í íslensku
var snöggtum betri í ár en í fyrra.
Vert er að geta að 18% nemenda
þreyttu ekki próf í dönsku og því
um óræðan mun að ræða. 32% ne-
menda tóku ekki próf í náttúru-
fræði. ■
Afkoma ríkissjóðs:
2,9 millj-
arða halli
ríkisfjármál 2,9 milljarða króna
halli var á ríkissjóði fyrstu fjóra
mánuði ársins samkvæmt upplýs-
ingum frá fjármálaráðuneytinu. Á
sama tímabili í fyrra var 300 millj-
óna króna halli á afkomu ríkis-
sjóðs.
Tekjur ríkissjóðs fyrstu fjóra
mánuði ársins námu rúmlega 77
milljörðum króna. Á sama tíma
námu útgjöld ríkissjóðs 80,1 millj-
arði króna. Útgjöld ríkissjóðs juk-
ust meira en tekjur á tímabilinu.
Útgjöldin jukust um 7,5 milljarða
króna eða 10,4%. Tekjur jukust
um fimm milljarða, tæplega 7%. ■
Hús úr Skuggasundinu í garð
gamla Borgarbókasafnsins
Friðrik Weisshappel vill flytja hús í garðinn hjá frumkvöðlinum í OZ. Borgarskipulag samþykk-
ir. Húsafriðunarnefnd í viðbragðsstöðu.
„Að sjálfsögðu
mun ég fara
með hug-
mynd mína í
grenndarkynn-
ingu enda vil
ég gera þetta í
góðu samráði
við aðra ibúa í
hverfinu."
miðbærinn Reykvískur athafna-
maður hefur sótt um að fá að flyt-
ja gamalt hús sem nú stendur á
horni Sölvhólsgötu og Skugga-
sunds upp í garð gamla Borgar-
bókasafnsins við Þingholtsstræti.
Hyggst hann steypa kjallara und-
ir húsið aftan og sunnan við Borg-
arbókasafnið
..gamla og mundi
það því standa við
Grundarstíg. Þar
er nú mikill stein-
veggur sem brjóta
þyrfti niður að
hluta því garður-
inn liggur
nokkrum metrum
neðar en götuhæð
er við Grundar-
stíg.
—♦— Það er Friðrik
Weisshappel, þekktur úr veitinga-
húsalífi Reykjavíkur og sjón-
varpi, sem hyggur á þessar fram-
kvæmdir en lóðina undir húsið
kaupir hann af Guðjóni Má Guð-
jónssyni í OZ sem er eigandi Esju-
bergs eins og gamla Borgarbóka-
safnið er að öllu jöfnu nefnt.
„Hugmyndir mínar hafa verið
samþykktar í Borgarskipulagi en
eiga eftir að fara fyrir Húsafrið-
unarnefnd. Ég lít svo á að húsið
myndi bæta götumyndina á
Grundarstíg og verða til prýði.
Þetta er hús sem ég ætla að búa í
sjálfur," segir Friðrik Weisshapp-
el sem gert hefur upp mörg hús í
miðbæ Reykjavíkur og hlotið
verðlaun og viðurkenningar yfir-
valda fyrir. Sérstaklega var hann
heiðraður fyrir að byggja upp
gamlan steinbæ við Vesturgötu en
þar þótti vel að verki staðið. „Að
sjálfsögðu mun ég fara með hug-
HUSIÐ
Tilbúið til flutnings úr Skuggahverfinu í
garðin hjá gamla Borgarbókasafninu.
mynd mína í grenndarkynningu
enda vil ég gera þetta í góðu sam-
ráði við aðra íbúa í hverfinu," seg-
ir Friðrik.
Hugmyndir Friðriks
hafa enn ekki borist
Húsafriðunarnefnd en
Magnús Skúlason, fram-
kvæmdastjóri nefndar-
innar, segist vita af mál-
inu og bíða eftir gögnum.
Húsið sjálft, sem nú stendur á
horni Sölvhólsgötu og Skugga-
sunds, var í eigu fjármálaráðun-
eytisins áður en Friðrik keypti
það. Það er nær því hundrað ára
gamalt en í ágætu ásigkomulagi
Rannsóknum morðmála í Reykjavík að ljúka:
Gögn send ríkissaksóknara um
mánaðamótin
lögregla Lögreglurannsóknir
vegna morðanna á Víðimel og
Grettisgötu eru á lokastigi. Að
sögn lögreglu verða gögnin í mál-
unum send ríkissaksóknara um
mánaðamótin. Hann mun fara yfir
þau og að því loknu taka ákvörðun
um það hvort ákæra verði gefin
út.
Þór Sigurðsson, 23 ára, hefur
játað að hafa orðið Braga Oskars-
syni að bana á Víðimel aðfararnótt
mánudagsins 18. febrúar. Gæslu-
varðhald yfir Þór var nýverið
framlengt í Héraðsdómi Reykja-
víkur og verður hann í varðhaldi
fram í ágúst. Hann réðst á Braga
eftir að hafa brotist inn á dekk-
javerkstæði við Ægissíðu.
Tæplega fertug kona er í
gæsluvarðhaldi vegna morðsins á
VÍÐIMELUR
Þór Sigurðsson, sem játaði fljótlega að hafa orðið Braga Óskarssyni að bana, verður i
gæsluvarðhaldi fram í ágúst.
Grettisgötu. Gæsluvarðhaldið
rennur út um mánaðamótin og að
sögn lögreglu verður farið fram á
framlengingu. Konan er grunuð
um að hafa stungið sambýlismann
sinn, karlmann um fimmtugt,
þann 6. mars. Maðurinn var flutt-
ur á gjörgæsludeild Landspítalans
í Fossvogi 02^ lést af völdum
stungusáranna pann 23. mars. ■
og klætt utan með blikki. Ef og
þegar því verður komið fyrir í
garði gamla Borgarbókasafnsins
minnkar hann verulega en á þess-
um stað í garðinum stóð upphaf-
lega vandaður garðskáli sem síðar
var fluttur inn í grasagarðinn í
Laugardal. Guðjón Már, eigandi
hússins, hefur lýst áhuga sínum
að fá garðskálan aftur í garð sinn
en af því verður ekki ef þar verð-
ur komið fyrir húsi úr Skugga-
hvefinu.
eir@frettabladid.is
IlögreglufréttirI
Uppgjör Tap til lækkunar á
eigin fé Líftæknisjóðsins
MP BIO hf. á fyrsta ársfjórð-
ungi ársins 2002 var 128,9
milljónir króna. Þar af var
innleyst tap tímabilsins 9,4
milljónir króna. Eigið fé nem-
ur nú 873,1 milljón króna. Tap-
ið stafar fyrst og fremst af
lækkun á gengi skráðra mark-
aðsbréfa og vegna styrkingar
krónunnar gagnvart bandarík-
jadal.
Hagnaður samstæðu Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar
hf. á fyrsta ársfjórðungi árs-
ins nam 240,7 m.kr. Rekstrar-
tekjur voru 794 mkr. og
rekstrargjöld voru 531 m.kr.
Hagnaður samstæðunnar fyrir
afski-iftir og fjármagnsliði
(EBITDA) fyrstu þrjá mánuði
ársins nam 263 m.kr. króna,
sem er 33% af tekjum. Veltufé
frá rekstri nam 230 m.kr. kr. á
tímabilinu.